Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
Tek aó mér þrif í heimahúsum í Hafnarfirði.
Hafið samband í síma 65 26 84 Björg.
AU
HöfÓinglegt hádegi
á Hótel Holti
Ljúffengt og Létt
Næstu vikumar býður Hótel Holt gestum sínum
upp á sérstakan matseðil í hádeginu, þar sem létt-
leikinn og hollustan eru í fyrirrúmi.
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur sem hver velur
að vild, með gæði og góða þjónustu að leiðarljósi
sem fyrr.
Forréttir
Súpa dagsins
Gæsasalat vinaigrette
Fylltar pönnukökur með sjávardýrum og súrsætri
sósu
Salat með reyktum grísastrimlum
Adalréttir
Innbakað hreindýrakjöt í ostasósu
Grillaður karfi með hvítvínsdillsósu
Steinbítur á pasta og grænsalati
Ofnsteiktur grísahryggur
Ejtirréttir
Heitt epli með rúsínum og vanillusósu
Terta dagsins
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur
kr 995
Hafðu það fyrsta flokks - það kostar ekki meira.
Bergstabastrœti 37, Sími 91-25700
Þessir hringdu ..
Sparnaðartillögur
Óskar Haraldsson hringdi:
í Þjóðviljanum var spurt fyrir
nokkru hvað ætti að spara. Hér
eru nokkrar tillögur.
Það ætti að fækka þingmönn-
um í 35, þá þyrfti ekki heldur að
stækka húsnæðið. Fækka ætti
ráðherrum í fimm. Þá ætti að
afnema þjónaliðið hjá þeim, bæði
bílstjórana og aðstoðarmennina.
Afnema ætti alla styrki til blaða.
Fækka ætti ráðuneytum og
nefndum og fólki á ríkisjötunni,
þetta myndi spara húsnæði og
alls konar framlög. Þá legg ég
líka til að hætt verði að hafa
kirkjuna á ríkisjötunni. Hún á að
sjái um sig sjálf ein og allir aðrir
sértrúarflokkar. Það ætti aðeins
að veita lán til þeirra námsmanna
sem stunda hagnýtt nám. Ég
gæti lagt fram miklu fleiri tillögur
en læt þetta nægja að sinni.“
Stöð 2
Yerkakona í Reykjavík
hringdi:
„Ég vil lýsa yfir fullum stuðn-
ing við Jón Óttar Ragnarsson og
ég er hrædd um að Stöð 2 verði
eins og höfuðlaus her án Jon.
Hann er ábyggileg búinn að vinna
myrkrana á milli og leggja alla
sína krafta í að gera Stöð 2 að
góðri sjónvarpsstöð. Ég ætla að
sjá til hvernig málin þróast en
annars að segja Stöð 2 upp nema
að Jón Óttar taki þar við aftur.
Stöð 2 virðist hafa staðið og fall-
ið með honum.“
Myndavél
Myndavél í hvítum plastpoka
af tegundinni Voigtlander með
Braun flassi tapaðist í september.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 11882.
Veski
Seðlaveski, ljósbrúnt veski með
ökuskírteini, lyklum o. fl. tapaðist
á Hótel íslandi á laugardagskvöld.
Finnandi vinsamlegast hringi í
Þórunni í síma 53749 eftir kl. 19.
Fundarlaun.
Gleraugu
Kvengleraugu, ljós að lit með
rauðri rönd, töpuðust fyrir
nokkru, líklega við Stóragerði.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 37837 á kvöldin.
Peysa
Grá handprjónuð jakkapeysa
tapaðst sl. sumar í Reykjavík.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Sigríði í síma 32328.
Ur
Gyllt kvenmannsúr tapaðist í
Miðbænum á sunnudag. Upplýs-
ingar í síma 622747. Fundarlaun.
Köttur
Stálgrá læða tapaðist fyrir viku
síðan. Þeir sem geta veitt upplýs-
ingar vinsamlegast hringi í síma
38716 fyrir hádegi eða á kvöldin.
Veski
Rauðbrúnt veski, gamalt og
slitið, tapaðist 2. febrúar á bíla-
stæðinu við Kringluna. í því var
ávísanahefti, skilríki o. fl.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 16591.
Taska
Röng taska var tekin í misgrip-
um í rútu sem fór úr Bláfjöllum
í Vogavör. Um er að ræða gráar
Adidastöskur. í töskunni sem
eftir var skilnin voru m.a. rauðir
Nordica skór, lúffur o. fl. Sá sem
hefur töskuna undir höndum er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 39772.
Taska
Barnaskiptataska fannst við
Hraunbæ fyrir nokkru. Upplýs-
ingar í síma 671196.
Gleraugu
Gleraugu í brúnu gleraugna-
hylki töpuðust 27. janúar.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 34617 eða 53952.
TILBEIÐSLA DYRLINGA
Til Velvakanda.
Grein sr. Jóns Habets er bar
yfirskriftina Er Jesús Guð? vakti
mig til umhugsunar enda hafði ég
áður lesið ágætar greinar hans um
kristileg efni. Ég vil þakka honum
fyrir þessa grein því full þörf var
á að svara grein Bronko Bj. Har-
alds. Sú grein byggðist auðvitað á
vanþekkingu fyrst og fremst en
þegar Haralds segir að Jesús hafi
bannað mönnum að tilbiðja sig
bregður fyrir hreinum útúrsnún-
ingi. Hvað á það að fyrirstilla að
misbjóða hinni heilögu bók með
þessum hætti? En sr. Habets hefur
þegar sýnt fram á hversu aumleg
þessi röksemdafærsla var og ætla
ég ekki að eyða í það fleiri orðum.
Það er hins vegar ein spurning
sem brennur mér á tungu og ég
hef vissan grun um að svo sé um
fleiri. Kaþólska kirkjan heillaði mig
á mínum yngri árum en þegar ég
kannaði og hugleiddi málið betur
var það eitt og annað sem ég setti
fyrir mig. Mér var vel ljóst hversu
mikill ábyrgðarhluti var að yfirgefa
hina luthersku kirkju og gerast
kaþólikki. Það voru dýrlingamir
sem tilbeðnir eru sem ég gat alls
ekki sætt mig við. Ég gat og get
ekki skilið Biblíuna öðruvísi en svo
að það sé Guð einn sem okkur ber
að tilbiðja og ég er sannfærður um
að það er réttur skilningur. Þess
vegna get ég ekki sætt mig við að
dýrlingar séu tilbeðnir og er mér
þá sama hvort um er að ræða
Maríu mey eða einhveija góða menn
sem á síðari tímum hafa verið tekn-
ir í dýrlingatölu eftir dauða sinn.
Eins get ég ekki alveg fellt mig
við að kennivald páfa sé eins vítt
og mikið og það er. Ég neita því
ekki að röksemdir Habets, sem
fram komu í fyrri greinum hans
um kennivald páfa, eru mikilvægar.
Ekki dreg ég í efa að Pétri bar að
hafa forystu fyrir hinum lærisvein-
unum en eftirmenn hans, sem svo
kalla sig, gruna ég suma mjög um
græsku. Eg tel með öðrum orðum
að þeir menn sem setið hafa á páfa-
stóli og haft þetta mikla vald yfir
bræðrum sínum hafi stundum mis-
notað það t.d. á hinum myrku
miðöldum. Við getum til dæmis
nefnt sölu aflátsbréfa sem Lúther
hneykslaðist svo mjög á. Slíkt
uppátæki samræmist ekki anda
Biblíunnar og var aðeins merki um
mikla veraldlega spillingu sem
páfavaldið lagði blessun sína yfir.
Þetta hefur líka fælt mig frá ka-
þólsku kirkjunni. Hvað þetta varðar
tel ég lúthersku kirkjuna hreinni
því hún er algerlega laus við alla
manndýrkun — menn bregðst alltaf
eins og þeir hafa alltaf brugðist.
Biblían ein vísar okkur hinn rétta
veg. Þar höfum við Guðs orð klárt
og kvitt og þar getum við vitað
vilja hans. Eða eins og skrifað
stendur: „En yfir yður, sem óttist
nafn mitt, mun réttlætissólin upp
renna með græðslu undir vængjum
sínum og þér munuð út koma og
leika yður eins og kálfar, sem út
er hleypt úr stíu.“ (Mal. 4,1). Við
getum verið óhrædd með Biblíuna
að leiðarljósi því þannig mun allt
fara vel.
Siðaskiptin urðu íslendingum
erfiður tími og kostuðu þjóðina
miklar fómir. Fégráðugir höfðingj-
ar hrifsuðu eignir kaþólsku kirkj-
unnar og upprættu hana ekki síst
í því skyni að auðgast. Við þetta
hvarf stór hluti af sameiginlegri
eign þjóðarinnar, sem verið hafði í
vörslu kaþólsku kirkjunnar, undir
erlenda kónga sem lítið skeyttu um
hag þegna sinna en gleymdu aldrei
að hagnast á þeim og skattpína þá.
Af þessum sökum mun kaþólska
kirkjan njóta meiri samúðar en ella
hér á landi og gamla kenningin
hennar heillar marga, rétt eins og
mig á mínum yngri árum. Ég hef
heyrt ungt fólk segja að því þyki
þjóðkirkjan „ekki nógu spennandi"
og fleiri en áður beina sjónum sínum
til kaþólsku kirkjunnar. En þeir
sem hyggja á trúskipti ættu að
skoða sinn hug vel.
Jóhann Guðmundsson
Skrifstofutækninám •mn w- 7 ' -.-'f"
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66 .• "fT ■vZ^^N.'.a asi
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvað-
eina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10
og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að
skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða-
skiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að
höfundur óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.