Morgunblaðið - 11.04.1990, Side 1

Morgunblaðið - 11.04.1990, Side 1
56 SIÐUR B/C 85. tbl. 78. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Gorbatsjov - Litháen: Hótar að beita for- setavaldi Moskvu, Washington. Reuter, dpa. MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti segir að hann útiloki ekki þann möguleika að setja Litháen undir beina stjórn sína en til slíkra ráða verði þó aðeins gripið ef „til átaka milli óbreyttra borgara kemur eða bardaga". Ákvæði eru um beina forsetastjórn einstakra Sovétlýð- velda í stjórnarskránni, sem breytt var fyrir skömmu er Gorb- atsjov hlaut aukin völd. Talsmenn stjórna Bandaríkjanna og Bret- lands hafa á ný gagnrýnt þving- unaraðgerðir Sovétstjórnarinnar í Litháen og hvatt til friðsamlegra samninga. Vytautas Land- bergis, forseti Lit- háens, hefur for- dæmt hótanir Sov- étmanna. „Hver veit nema Vestur- landabúar sjái nú að sú ímynd, sem Gorbatsjov hefur reynt að búa til af sjálfum sér stang- Gorbatsjov ast á við veruleik- ann,“ sagði Landsbergis. Talsmaður Gorbatsjovs, Arkadíj Maslenníkov, sagði í gær að yfirlýs- ing forsetans á mánudag um hertar pólitískar og efnahagslegar aðgerðir gegn Litháum hefði verið almenns eðlis og engar ákvarðanir hefðu ver- ið teknar. Aðspurður sagði hann að krafa hóps rússneskra harðlínuþing- manna um að litháíska þingið yrði leyst upp væri aðeins ein af mörgum tillögum og ekki lögð fram að frum- kvæði æðstu ráðamanna. Mas- lenníkov sagði Moskvustjórnina setja þau skilyrði fyrir samningaviðræðum að Litháar tækju aftur yfirlýsingar um að stjórnarskrá Sovétríkjanna gilti ekki lengur í landinu. Jafnframt yrðu þeir að fella úr gildi um 80 lög og ályktanir sem samþykktar hefðu verið frá 11. mars er Litháar lýstu sjálfstæði endurreist í landi sínu. Litháar hafa þegar sagt að þeir séu reiðubúnir að semja um allar ákvarðanir sem teknar hafi verið eftir 11. mars. PASKAHATIÐIN UNDIRBUIN Morgunblaðið/Árni Sæberg Páskahátíðin gengur senn í garð. Börnin hafa verið önnum kafin við að útbúa skreytingar fyrir þessa miklu hátíð. Myndin var tekin í gær í Grænuborg við Eiríksgötu. • • Ofgamenn í Beirút sleppa þremur Vesturlandabúum úr haldi: FVanskar þotur til Gaddafís stuðluðu að lausn gíslanna Beirút. dpa. The Daily Telegraph. FRANSKRI konu, belgískum unnusta hennar og dóttur þeirra var sleppt í Beirút í Líbanon í gær eftir 29 mánaða gíslingu. Francois Mitterrand Frakklandsforseti sendi Muammar Gaddaft Líbýuleiðtoga þakkir í gær fyrir hans þátt í málinu. Talið er að afhending á frönsk- um herþotum til Líbýu hafi stuðlað að frelsun gíslanna. Palestínsku hryðjuverkasamtök- I síðustu viku að þau myndu láta in Byltingarráð Fatah tilkynntu í I gíslana þrjá lausa að tilmælum Slysið í Scandinavian Star: Enn óvissa um fiö lda lát- inna og upptök eldsvoðans LÖGREGLAN í Ósló var í gær tilbúin með lista með nöfnum 193 manna, sem ýmist höfðu fundist látnir um borð í ferjunni Scand- inavian Star eða er saknað. Eftir læknum, sem voru við björgunar- störf í ferjunni, er þó haft, að hugsanlega verði aldrei fullljóst hve margir létust í brunanum vegna þess, að eldurinn hafi líklega gjöreytt sumum líkanna, að sögn dagblaðsins Aftenposten. Norðmenn, sem stjórna rann- ekki taka svo djúpt í árinni. sókn á upptökum eldsvoðans, segja Lögreglan í Osló ætlaði í gær- æ fleira benda til íkveikju en tals- kvöld að afhenda norsku kirkjunni .maður lögreglunnar í Lysekil í lista með nöfnum 193 manna, Svíþjóð, þar sem skipið liggur, vildi látinna og þeirra, sem saknað er, en hann verður ekki birtur opin- berlega fyrr en á fimmtudag í fyrsta lagi eða þegar prestar hafa rætt við alla aðstandendur. Var skýrt frá þessu á blaðamanna- fundi í gær. Leif Skoglund, talsmaður lög- reglunnar í Lysekil, sagði í gær, að skipið væri svo ilia leikið, að hugsanlega væri ekki unnt að komast að raun um hvernig eldur- inn kom upp. Reuter Fjölskyldan í garði franska sendiráðsins í Vestur-Beirút. Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga. Talið er að foringi samtakanna, Abu Nidal, hafist við í Líbýu undir vernd- aivæng Gaddafis. Skýringin á því að Gaddafi lagði sig fram um að fá gíslana lausa er líklega nýgerð kaup hans við Frakka. Fyrir skömmu fékk Gaddafi afhentar þrjár orrustuþotur af Mirage-gerð, smíðaðar í Frakklandi. Þoturnar voru sendar til viðgerðar í Frakk- landi árið 1986 en kyrrsettar þar vegna banns Evrópubandalagsins við útflutningi á hergögnum til Líbýu. Það voru fimm grímuklæddir byssumenn sem létu Jacqueline Valente, 31 árs gamla, unnusta hennar, Fernard Houtekins, sem er 42 ára gamall, og tveggja ára dótt- ur þeirra, sem fæddist í prísund- inni, laus i gærmorgun í Beirút. Flogið var með þau til Parísar í gær. Sendiherra Frakklands í Líbanon segir að þeim Valente og Houtekin hafi fæðst sonur á meðan þau voru í haldi en hann hafi veikst og látist. Enn er mönnum hulin ráðgáta hvers vegna Byltingarráðið tók Valente og Houtekin ásamt tveimur dætrum Valente og fjórum ættingj- um Houtekins í gíslingu 8. nóvem- ber 1987. Getgátur hafa verið uppi um að þau hafi átt í einhveijum viðskiptum við Byltingarráðið en forsvarsmenn jiess sökuðu þau um njósnir fyrir Israela. Ráðið segist ekki ætla að láta lausa þá sem enn eru í haldi fyrr en Nasser Said, Palestínumanni sem situr í belgísku fangelsi, hafi verið sleppt. Dætrum Valente var sleppt í desember 1988.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.