Morgunblaðið - 11.04.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990
Frumvarp til laga um Verðjöfiiunarsjóð sjávarútvegsins:
Tveggja milljarða skuldir
gamla sjóðsins falli á ríkið
SAMKVÆMT fyrirliggjandi handriti að frumvarpi til laga um Verðjöfii-
unarsjóð sjávarútvegsins og afnám Verðjöfhunarsjóðs fískiðnaðarins,
er gert ráð fyrir því aðsum tveggja milljarða króna skuldbindingar
gamla sjóðsins falli á ríkissjóð. Skuldbindingar þessar eru vegna lán-
töku sjóðsins hjá Seðlabankanum og hafa stjórnyöld gefíð fyrirheit
um það, að ríkissjóður sjái um greiðslu þeirra. A Qárlögum síðasta
árs var meðal annars gert ráð fyrir 600 milljóna króna tekjuafgangi
til greiðslu á lántökum af þessu tagi. Niðurstaða Qárlaga varð hins
vegar neikvæð um 6 milljarða króna.
Um þennan þátt nýrra laga um
Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins er
íjallað í sérstöku ákvæði þeirra til
bráðabirgða. Þar segir að rÍKissjóður
skuli taka við skuldbindingum Verð-
jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, en
innistæður deilda í þeim sjóði skulu
færðar á sérstaka reikninga í hinum
nýja sjóði. Inneignir Verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins voru í byijun
febrúar í ár um 700 millljónir króna.
í humardeild voru inni 253 milljónir,
237 í rækjudeild og 102 í saltfisk-
deild. Lántökur sjóðsins sjá Seðla-
bankanum stafa meðal annars af
verðjöfnun á frystar afurðir, sem
ákveðin var í tengslum við fisk-
verðsákvörðun og aðgerðir stjóm-
valda í efnahagsmálum fyrir nokkr-
um misserum.
í hinu nýja frumvarpi felast veiga-
miklar breytingar frá núverandi fyr-
irkomulagi. Töluverð óánægja hefur
verið með Verðjöfnunarsjóð fiskiðn-
aðarins. Óánægjan hefur beinzt að
seinvirku uppgjöri, pólitískri en ekki
faglegri beitingu sjóðsins, meðal
annars með lántökum til verðjöfnun-
ar og að því að inneignin í sjóðum
hefur ekki verið á nafni þess, sem
í hann hefur greitt. Því hafa þess
verið dæmi að fyrirtæki hafi fengið
greitt úr sjóðnum án þess að hafa
borgað inn á hann. Samkvæmt frum-
varpinu verða innistæður í Verðjöfn-
unarsjóði sjávarútvegsins á nafni
viðkomandi framleiðenda. Engar til-
færslur verða því þeirra á milli. í
öðru lagi verða greiðslur inn í sjóð-
inn og út úr honum byggðar á hrein-
um verðjöfnunarsjónarmiðum, eins
og segir í bréfi til sjávarútvegsráð-
herra, frá nefnd þeirra, sem skipuð
var til frumvarpsgerðarinnar.
Nefndin skiptist í afstöðu sinni til
frumvarpsins. Flestir nefndarmanna
voru þó hlynntir verðjöfnun í anda
þess með fyrirvara um einstök at-
riði. Fulltrúi FFSÍ var fylgjandi verð-
jöfnun í öðrum greinum en botnfisk-
vinnslu, fulltrúi SH vildi að verðjöfn-
un af þessu tagi yrði lögð niður, en
skattalögum breytt á þann hátt
leggja mætti í varasjóð til að mæta
tekjusveiflum í útflutningi. Fulltrúar
Fijálslynda hægriflokksins, útgerð-
armanna og sjómanna lögðu til að
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
yrði lagður niður og enginn nýr sjóð-
ur tæki við hlutverki hans.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstola Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 11. APRIL
YFIRLIT í GÆR: Milli ísiands og Noregs er 973 mb lægð á leið
norðaustur, og 980 mb smálægð er á Grænlandshafi. Um 800 km
suðsuðaustur af Hvarfi er vaxandi 985 mb lægð sem hreyfist all-
hratt norðaustur í átt til landsins.
SPÁ: Norðaustan- austan- og suðaustan 7-9 vindstig víðast hvar
á landinu. Snjókoma, slydda eða rigning. Hiti frá +4 til 3 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðlæg átt um allt land. Éljagangur
um norðanvert landið en þurrt og víða léttskýjað syðra. Forst 1-5
stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG:Hæg og vestlæg átt. Léttskýjað á Norð-
ur- og Austurlandi en þykknar upp á vestanverðu landinu, þegar
líður á daginn. Frost 2-8 stig.
TAKN:
Heiðskírt
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
1Q Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|* Skafrenningur
Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +1 alskýjað Reykjavík 4 úrkoma í grennd
Bergen 4 rigning
Helsinki 9 léttskýjað
Kaupmannah. 7 alskýjað
Narssarssuaq ■í-4 snjókoma
Nuuk -9 snjókoma
Osló 10 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam vantar
Barcelona 14 léttskýjað
Berlfn 9 léttskýjað
Chicago 4 súld
Feneyjar 13 heiðskírt
Frankfurt 12 léttskýjað
Glasgow 10 skúr
Hamborg 10 léttskýjað
Las Palmas 20 skýjað
London 12 alskýjað
LosAngeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 10 léttskýjað
Madrid 11 léttskýjað
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 12 alskýjað
Montreal vantar
NewYork 11 skýjað
Orlando 17 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Róm 14 skýjað
Vín 8 skýjað
Washington 13 skýjað
Winnipeg vantar
Íilili -
Morgunblaðið/Sverrir
Vinkonurmeð vormarkað
Þóra Leifsdóttir, 9 ára, og Hildur Guðjónsdóttir, 7 ára, hafa sett
upp vormarkað í hverfinu sínu, við Gullteig í Reykjavík. Þær láta
ekki á sig fá þó ekki sé alltaf vor í lofti þessa dagana og selja
vægu verði ýmsa muni, sem þær hafa safnað hjá ættingjum og vin-
um. „Við gerðum þetta líka í fyrra og það gekk vel,“ sögðu þær,
þegar blaðamaður og ljósmyndari komu við á markaðnum í gær.
„Okkur langar að vinna í búð þegar við verðum stórar, til dæmis
dótabúð. Þetta gengur ágætlega núna og peningana, sem við fáum
fyrir hlutina, ætlum við að senda Rauða krossi Islands."
Myndlista- og handíðaskóli íslands:
Námskeiðahaldi fyrir
almenning hætt í vor
MYNDLISTA- og handiðaskólinn
hættir í vor að bjóða námskeið
fyrir almenning, vegna fjárskorts
og algers aðstöðuleysis, að sögn
Bjarna Daníelssonar skólastjóra.
Hátt í 400 manns hafa sótt nám-
skeið skólans yfir vetrartímann.
Bjami segir mjög æskilegt að í
skólanum sé boðið upp á slík nám-
skeið. „Öll kvöldnámskeið voru lögð
niður fyrir nokkrum árum,“ segir
hann, „en við reyndum aftur þegar
svokallaður teiknisalur bættist við
húsnæðið í Skipholti 1. Nú gengur
þetta ekki lengur, við höfum ákveðið
að hætta í bili og álítum að eitt verði
yfir öll námskeið að ganga. Þannig
verða engin kvöld- eða síðdegisnám-
skeið í boði næsta haust. Á fjárlögum
í ár er heimild til húsnæðiskaupa
fyrir skólann, en við viljum ræða þau
mál í samhengi við áform um Lista-
háskóla íslands."
Gúmmíbát stolið
FJÖGURRA manna gúmmíbát í
hvítu plasthylki var stolið afjeppa-
kerru við bensínstöð Skeljungs við
Vesturlandsveg að kvöldi mánu-
dags eða aðfaranótt þriðjudags.
Eigandi bátsins kom með hann
utan að landi til Reykjavíkur til að
selja hann, en hann er tugþúsunda
virði. Hann ætlaði að geyma bátinn
og kerruna næturlangt við bensín-
stöðina en þegar hann vitjaði eign-
anna hafði bátnum verið stolið.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur að málinu og eru þeir sem kunna
að búa yfir upplýsingum um málið
beðnir að hafa við hana samband.
Oskoðaðir smábátar
verða settir í farbann
EF róið er á óskoðuðum smábát
eftir páskastopp má eiga von á
því að Siglingamálstofnun selji
hann í farbann.
Magnús Jóhannesson, siglinga-
málastjóri, segir að um 1600 opnir
bátar séu á skrá, en það séu helst
eigendur þeirra sem trassi skoðun.
„Við ákváðum í fyrra að ganga harð-
ar eftir því að bátar væru skoðaðir,"
sagði hann. „Eigendur þessara báta
hafa ráðrúm til að verða sér úti um
haffærniskírteini í páskastoppinu og
ég hvet þá til að gera það, svo ekki
þurfi að grípa til farbannsins."
Andrés Krisljánsson
fv. ritstjóri látinn
ANDRÉS Kristjánsson fyrrver-
andi ritstjóri dagblaðsins Tímans
lést 9. apríl sl., 74 ára að aldri.
Andrés var fæddur 10. september
1915 að Syðri-Tungu á Tjömesi í
Suður-Þingeyjarsýslu, sonur Kristj-
áns J. Jóhannessonar bónda þar og
kennara og konu hans Friðfinnu
Sörensdóttur. Lauk kennaraprófi
1938 og kenndi til 1948, fyrst við
Reykdælaskóla í eitt ár, síðan við
barna- og unglingaskóla Húsavíkur
1939-43 og við Austurbæjarskólann
í Reykjavík 1943-48. Gerðist blaða-
maður á Tímanum 1947, fréttarit-
stjóri 1953-60 og ritstjóri 1960-73.
Fræðslustjóri og skólafulltrúi í Kópa-
vogi 1974-77. FormaðUr Blaða-
mannafélags íslands tvívegis,
1955-56 og 1960-61 og gegndi auk
þess fjölmörgum öðrum trúnaðar-
störfum á vegum hins opinbera og
ýmissa félagasamtaka. Hann var
afkastamikill rithöfundur og þýddi
auk þpgs.gglmargar þækur.
Andrés Kristjánsson
Eftirlifandi eiginkona Andrésar er
Þorgerður Kolbeinsdóttir. Þau eign-
UHfeft gmgiÍlfiHÍ*_______________