Morgunblaðið - 11.04.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.04.1990, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 Hvað á borgin að heita? Reuter íbúarnir í austur-þýsku borginni Karl-Marx-Stadt mynu greiða um það atkvæði 22. apríl nk. hvort hálda skuli nafni borgarinnar eða taka upp gamla heitið, Chemnitz. Óvist er að vita hvaða afstöðu Karl Marx sjálfur hefðí væri hann enn ofar moldu en bíleigandinn er augljóslega búinn að gera upp sinn hug. Hann vill eiga heima í Chemnitz. Svíþjóð: Bændur hindruðu mj ólkurdreifingu - til að mótmæla hugmyndum um minni niðurgreiðslur Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. SÆNSKIR kúabændur settust um öll 40 mjólkurbúin í Svíþjóð á mánudag og höfðu þau í herkví þar til í gærmorgun. Var engin ny'ólk flutt frá þeim í þennan tíma en það, sem vakti fyrir bændun- um, var að hafa áhrif á stefhu ríkisstjórnarinnar, sem telur nauðsyn- legt að draga úr offramleiðslu í landbúnaði og minnka niðurgreiðslur. Bændasamtökin í Svíþjóð lögðu blessun sína yfir þessar aðgerðir en Mats Hellström landbúnaðarráð- herra fór hörðum orðum um þær og benti á, að með þeim væru bænd- ur að beita fyrir sig barnafólki, sjúklingum og skólabörnum. í mjólkurbúunum var farið að hella niður mjólk og má nefna sem dæmi, að í Östersund varð mjólkur- búið að losa sig við 450.000 lítra. Var víðast að verða mjólkurlaust þegar bændurnir ákváðu að hætta aðgerðunum en Hellström sagði í gær, að þær gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sjálfa og neyt- endur og ekki síst fyrir úrvinnslu- iðnaðinn, til dæmis ostagerðina. „Á offramleiðslutímum verðum við að leiða hugann að þeim álög- um, sem landbúnaðurinn leggur á skattgreiðendur," sagði' Hellström og bætti við, að samtökum bænda væri nær að taka þátt í óhjákvæmi- legri endurskipulagningu innan at- vinnugreinarinnar. Pólland: Walesa vill verða forseti Ráðstefha um efhahagssamvinnu í Evrópu: Lýðræði og ftjáls markaður forsendur bættra lífskjara ## Bonn. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. OLL ríkin 35 sem eiga fulltrúa á RÖSE-ráðsteínunni um eíhahagssam- vinnu, sem lýkur í Bonn í dag, hafa samþykkt yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á að lýðræði og frjálst markaðskerfi verði forsendur samskipta allra Evrópuríkja í framtíðinni. Er samdóma álit þátttak- enda í ráðstefhunni, að aldrei fyrr hafi vilji til samkomulags verið meiri á RÖSE-fundi, en í Bonn hefur verið rætt um ýmsa grundvaljar- þætti í efnahagsmálum og sljórn þeirra. Hefur hugmyndafræðilegur ágreiningur á milli sósíalista og kapítalista ekki komið í veg fyrir samkomulag, sem byggist á grundvallarskoðunum kapítalistanna, markaðskerfínu og einkaeignarréttinum. í ráðstefnunni um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (RÖSE) eru þátttak- endur frá aðildarríkjum Atlants- bandalagsins og Varsjárbandalags- ins auk hlutlausra ríkja í Evrópu. Bandaríkjamenn lögðu fram drög að yfirlýsingu um grundvallarreglur í viðskiptum milli þjóða. Þótt drögin þættu bera mikinn keim af mark- aðshyggju var hún samþykkt með ERLENT lítilvægum breytingum að tillögu Sovétmanna, sem vildu að í henni væri getið um félagslegt öryggi og dregið úr áherslu á fijálst ijár- magnsstreymi. I lokayfirlýsingu ráðstefnunnar viðurkenna þátttökuríkin, að lýð- ræðislegar stofnanir og efnahags- legt frelsi séu forsendur efnahags- legra og félagslegra framfara. Þau lýsa yfir að hagvöxtur bæti lífskjör og lífsgæði, aukin atvinna ásamt skynsamlegri nýtingu auðlinda og umhverfisvernd séu sameiginleg markmið þeirra allra. Lögð er áhersla á, að frelsi feli m.a. í sér rétt einstaklingsins til að kaupa, eiga og selja eignir eða nýta þær á annan hátt. Viðurkennt er að hlut- verk ríkisvaldsins í viðskiptum sé að setja almennar leikreglur en Eiturlyfl abaráttunni beint að neytendum London. Reuter. FULLTRÚAR meira en 100 þjóða á ráðstefnu í London um eitur- lyfjavandann virðast sammála um að beina baráttunni í ríkari mæli að neytendunum sjálfum. Þátttakendur á ráðstefnunni, sem Sameinuðu þjóðimar og bresk stjóm- völd standa fyrir, vom sammála um, að best væri að stórauka fræðslu- starfið og búa svo um hnútana, að enginn færi í grafgötur um afleiðing- ar eiturlyfjaneyslunnar. Meðal fulltrúanna er Virgilio Barco, forseti Kólombíu, og er um tramn hafður' strangur vörður enda ákvarðanir í viðskiptum eigi að vera á ábyrgð þeirra, sem þau .stunda. Ríkin telja sig bundin fjölflokka lýðræði, sem byggist á regiulegum frjálsum kosningum; lögum sem virði jafnan rétt borgaranna og grundvallist á virðingu fyrir mann- réttindum; efnahagsstarfsemi sem stuðlar að mannlegri reisn og hafn- ar þrælkun og mismunun vegna kynþáttar, kynferðis, tungumála, stjórnmálaskoðana eða trúar- bragða. Viðurkenndur er réttur launþega til að stofna frjáls verka- lýðsfélög. Ríkin vilja að markaðsöflin fái að njóta sín, stuðlað verði að fijálsu flæði vöru og fjármagns. Verðlag skal ráðast af af lögmálum fram- boðs og eftirspurnar og stefnt að aðgerðum sem tryggja félagsleg réttindi, bæti lífskjör og aðbúnað á vinnustöðum. Eignarréttur ein- staklinga verði viðurkenndur að fullu og réttur borgaranna til að eiga og nýta eignir og hugverk. Bætur séu greiddar fyrir eignarnám eða þjóðnýtingu eigna. Meðal ræðumanna á fundi ráð- stefnunnar í gær var Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra. Af ræðum fulltrúa má ráða, að þeir telji að markmiðum ráðstefnunnar hafi verið náð. Lagður hafi verið grunn- ur að því að gera Evrópu að einu markaðssvæði. Ríkin í Austur-Evr- ópu þykja með samþykki sínu á lokayfirlýsingunni hafa staðfest að markaðir þeirra standa umheimin- um opnir. Varsjá. Reuter. LECH Walesa sagði í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram í embætti Póllandsforseta og ná- inn aðstoðarmaður Walesa sagði að hann væri tilbúinn til að neyða Wojciech Jaruzelski til að segja af sér. Þegar opinbera fréttastofan í Póllandi spurði Walesa út í þau ummæli aðstoðarmanns hans að hann hefði áhuga á að taka við forsetaembættinu af Jaruzelski svaraði hann aðeins: „Það er rétt.“ Hann skilgreindi það ekki nánar, en sagði: „Við eigum mikið af hæfu og mætu fólki innan og utan ríkisstjórnarinnar og við verðum að hraða umbótunum og losa okkur við gamla skipulagið.“ Áður hafði Krzysztof Pusz, nán- asti samstarfsmaður Walesa, sagt að Samstöðuleiðtoginn væri tilbú- inn til að neyða Jaruzelski til að segja af sér. Pusz sagði að réttast væri að Walesa tæki við forseta- embættinu sem fyrst af því að Jaruzelski gerði ekkert til að flýta fyrir umbótunum heima fyrir eða vinna málstað Póllands gagn er- lendis. sitja eiturlyfjabarónarnir um líf hans. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, lagði áherslu á, eiturlyf yrðu aldrei gerð lögleg í Bretlandi en dagblaðið Times í London sagði um þessi mál, að sums staðar væri ástandið svo alvarlegt, til dæmis í Bandaríkjunum, að óhjákvæmilegt væri að leyfa þau að einhverju marki. Áður hefur vikuritið The Economist í Bretlandi lýst þeirri skoðun, að skynsamlegasta ráðið til að ná tökum á eiturlyfjavandanum sé að heimila sölu fíkniefna. Jozsef Antall, líklegur forsætisráðherra Ungveijalands: Minnir helst á strangan en réttsýnan skólastjóra Búdapesi. Reuter. JOZSEF Antall, líklegur forsætisráðherra frjáls Ungveijalands eftir ljögurra áratuga einræði kommúnista, er 58 ára gamall og hélt upp á afmælið síðasta sunnudag með því að leiða flokk sinn, Lýðræðis- hreyfinguna, til mikils sigurs í síðari kosningaumferðinni. Stefhir hann nú að því að mynda stjórn í landinu ásamt Bændaflokknum og Kristilega demókrataflokknum, Antall segir um sjálfan sig, að hann sé frjálslyndur, kristilegur demókrati þótt hann tilheyri ekki þeirra flokki en Lýðræðishreyfingin var stofnuð í september 1987. Höfðu nokkrir rithöfundar for- göngu um stofnunina en þótt An- tall hefði verið á stofnfundinum komst hann ekki í sviðsljósið fyrr en í fyrrasumar þegar hann tók þátt í hringborðsumræðum stjórn- arandstöðunnar og kommúnista- flokksins. Með þeim var rudd braut- in fyrir vestrænu lýðræði í Ung- og Antall var kjörinn Lýðræðishreyfingar í verjalandi formaður október. Antall er meðalmaður á hæð með þykkt, grásprengt hár og úfnar augnabrúnir og það er ekki laust við, að hann stingi við þegar hann gengur. Minnir einna helst á strang- an en um leið réttsýnan skólastjóra. Hann er fæddur 8. apríl árið 1932 og var faðir hann einn af frammá- mönnum Bændaflokksins í þá daga, eindreginn andstæðingur nasista og ráðherra uppbyggingarmála að stríðinu loknu. Antall las sagnfræði við háskól- ann í Búdapest en vegna starfa hans fyrir Bændaflokkinn á dögum uppreisnarinnar í Ungveijalandi árið 1956 var honum bannað að stunda kennslustörf. Hann fékk hins vegar óáreittur að stunda rann- sóknir á sögu læknisfræðinnar og féll það vel þar sem hann komst þá hjá að vitna í marxískar fræði- kenningar. Að því kom svo, að hann var skipaður forstöðumaður Gemm- elweiss-læknisfræðisafnsins í Búdapest. Jozsef Antall lét ekki mikið til sín taka í hreyfingu ungverskra andófsmanna en kommúnistar töldu hann varasaman og létu fylgjast vel með honum á dögum „Vorsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.