Morgunblaðið - 11.04.1990, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Nýir listar
koma til sögnnnar
Nýir listar eru að fæðast
vegna sveitarstjórnakosn-
inganna sem fram fara 26. maí
næstkomandi. í Reykjavík, á
Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ og
Garðabæ hafa orðið til sameig-
inleg framboð gegn sjálfstæðis-
mönnum en í öllum þessum
bæjarfélögum hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn notið stuðnings
meirihluta íbúanna. Nú er sem
sé ætlunin að reyna að hnekkja
þessum meirihluta með sameig-
inlegri gagnsókn. Samstarfi
andstæðinga sjálfstæðismanna
er misjafnlega háttað.
Af eðlilegum ástæðum beinist
athyglin einkum að Reykjavík.
Þar eru kjósendur flestir og þar
hafa átökin orðið mest vegna
undirbúnings hins sameiginlega
framboðs. Þannig má segja, að
tveir flokkar hafi klofnað vegna
þess, Alþýðubandalagið og
Borgaraflokkurinn, og þriðji
flokkurinn hleypur nú á bakvið
nýjan listabókstaf; A-listi Al-
þýðuflokksins verður ekki bor-
inn fram í Reykjavík en á hinn
bóginn hafa ýmsir frammámenn
flokksins lýst stuðningi við
framboð H-lista Nýs vettvangs.
í prófkjöri á sunnudag lenti
Bjarni P. Magnússon, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, í þriðja
sæti á H-listanum og fyrir ofan
hann eru þær Ólína Þorvarðar-
dóttir, sem sögð er óflokksbund-
in, og Kristín A. Ólafsdóttir, en
hún situr nú í borgarstjórn fyrir
Alþýðubandalagið.
Eftir að niðurstaða liggur fyr-
ir í prófkjöri Nýs vettvangs láta
þeir sem eru í tveimur efstu
sætunum eins og þátttaka í
prófkjörinu gefi til kynna, að
þrír efstu menn á lista þess
muni ná kjöri í komandi kosn-
ingum ef ekki fleiri. Erfitt er
að sjá hvaða rök eru fyrir þess-
ari bjartsýni, ef ekki er stuðst
við annað en ^ölda þeirra, sem
kusu í prófkjörinu.
Eins og áður segir eru það
yfirlýstir stuðningsmenn þriggja
flokka, sem stóðu að prófkjöri
Nýs vettvangs fyrir utan þá, sem
sagðir eru óflokksbundnir. Alls
greiddu 2.130 atkvæði en á kjör-
skrá í Reykjavík eru 71.325,
þannig að 3% þeirra sem eru á
kjörskrá létu sig þetta prófkjör
einhveiju varða, í prófkjöri sem
Alþýðuflokkurinn einn efndi til
fyrir borgarstjómarkosningar í
Reykjavík vorið 1986 voru þátt-
takendur 2.048 en þá voru
65.987 á kjörskrá í höfuðborg-
inni, þannig að rúmlega 3% kjós-
enda höfðu afskipti af prófkjöri
Alþýðuflokksins; þá fékk flokk-
urinn 5.276 atkvæði og einn
mann kjörinn. I prófkjöri sem
Alþýðuflokkurinn einn efndi til
fyrir borgarstjórnarkosningar
1982 voru þátttakendur 2.300
en alls voru þá 58.481 á kjör-
skrá í Reykjavík, þannig að um
4% kjósenda tóku þátt í próf-
kjöri flokksins, en þá fékk A-list-
inn 3.949 atkvæði og 1 mann.
Sé þannig aðeins tekið mið af
tölum í prófkjöri eins flokks,
Alþýðuflokksins, sem að vísu
treysti sér ekki til að bjóða fram
einn og óstuddur í Reykjavík að
þessu sinni, sést að með öllu er
ástæðulaust fyrir aðstandendur
Nýs vettvangs að hrósa sigri
fyrirfram vegna þess að 2.130
manns tóku þátt í prófkjörinu
núna.
Eins og áður sagði er það
yfirlýst markmið með sameigin-
legum framboðum andstæðinga
Sjálfstæðisflokksins að ná betri
vígstöðu gegn meirihluta flokks-
ins í þeim byggðarlögum þar
sem hann hefur stjórnað af
myndugleika. Vegni þessum
framboðum vel hangir hins veg-
ar annað á spýtunni. Velgengni
þeirra verður notuð til þess að
lítillækka þá í Alþýðubandalag-
inu í Reykjavík eða Borgara-
flokknum, sem vilja ekki ganga
til liðs við Nýjan vettvang. Innan
Alþýðuflokksins í Reykjavík er
síður en svo almenn ánægja með
það, að þessi gamalgróni höfuð-
borgarflokkur treystir sér ekki
til að bjóða fram undir eigin
nafni og eygi jafnvel minni
möguleika á því nú en ef A-listi
hefði verið borinn fram að eign-
ast nokkurn mann í borgar-
stjórn. Gangi H-listanum vel
verða þessar raddir afgreiddar
sem marklausar og flokkurinn
verður leiddur til enn frekari
samvinnu við klofningslið úr
öðrum flokkum. Þá verður
stuðningur við þessi vinstrisinn-
uðu sameiningar-framboð túlk-
aður sem yfirlýsing um fram-
hald á vinstra samstarfi í lands-
stjórninni með Framsóknar-
flokknum.
Baráttan vegna sveitar-
stjórnakosninganna verður stutt
en snörp, þegar hún hefst að
loknum páskum. Þótt hún snúist
vissulega um það, hveijum sé
best treystandi til að hafa for-
ystu í sveitarfélögunum, valda
tilraunir vinstrisinna til samruna
og sameiningar því, að einnig
er deilt um hinar pólitísku meg-
inlínur á landsvísu og jafnvel
framtíð þriggja stjórnmála-
flokka.
Umferðarslys:
40 þúsund króna tjón
á hvern 17 til 19 ára
Tryggingafélagið Sjóvá- Almennar hefúr sent öllum ungmennum,
sem verða 17 ára á þessu ári, um 4500 talsins, bókina „Lífíð er lukku-
spil“. Bókin Ijallar um ungmenni, sem kynnast hörmulegum afleiðing-
um bílslysa. I gær tók Sjóvá-AImennar, ásamt Ábyrgð, í notkun nýja
tjónaskoðunarstöð við Dragháls 14-16, þar sem metnar eru skemmdir
á bílum og þeir bílar seldir sem félagið leysir til sín. Þar var bókin
og starfsemi nýju stöðvarinnar kynnt blaðamönnum í gær.
Á blaðamannafundinum kom
fram, að sending bókarinnar til ung-
menna er liður í aukinni áherslu
Sjóvá-Almennra á aðgerðir til að
fækka umferðarslysum. I lauslegri
könnun, sem gerð var í bekk í fram-
haldsskóla, kom í ljós að af 27 nem-
endum höfðu 19 þeirra lent í um-
ferðaróhöppum. Þá kom fram, að
ef tjónabótum vegna umferðarslysa,
sem 17 til 19 ára unglingar valda,
er deilt á alla í aldurshópnum gerir
það um 40 þúsund krónur á hvern
og einn. Unglingar á þessum aldri
koma við sögu sem ökumenn í 3
þúsund árekstrum á ári hvetju.
Tjónastöðin er rekin af Sjóvá-
Almennum og Ábyrgð og er megin-
hlutverk hennar að meta skemmdir
á bílum og selja þá bíla sem trygg-
ingafélögin leysa til sín. Útboð og
sala á bílum og vörum í stöðinni fer
fram á mánudögum og koma á milli
20 og 30 bílar til sölu vikulega. Þá
er hægt að gera tilboð í bíla hjá
umboðsmönnum um land allt. Þá
verður tekin upp sú nýjung að í
tjónaskoðunarstöðinni verða aðrir
tjónamunir en bílar seldir, oftast
varningur sem er skemmdur eftir
bruna- eða vatnstjón. Forstöðumað-
ur stöðvarinnar er Reynir Sveinsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður tjónaskoðunarstöðvarinnar,
Siguijón Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra,
Ágústa D. Guðmundsdóttir, Jóhann E. Björnsson, Ábyrgð og Olafúr
Jón Ingólfsson, deildarstjóri almenningstengsla hjá Sjóvá-Almennum,
kynntu nýju tjónaskoðunarstöðina og bókina „Lífið er lukkuspil."
Hvert sæti jafnvirði
dágóðs einbýlishúss
HAFDÍS, hin nýja Boeing 757-véI Flugleiða, lenti á Keflavíkurflugvelli
í gærmorgun, eftir sjö og hálfrar stunda beint flug frá Seattle, Was-
hington. Ástríður Thorarensen borgarstjórafrú gaf vélinni nafíi við
hátíðlega athöfn í Leifstöð. Sannkölluð hátíðarstemmning ríkti í hópi
starfsmanna Flugleiða og gesta þeirra í gærmorgun, enda stórt skref
stigið í endurnýjun flugflota félagsins. Kaupverð nýju vélarinnar er
liðlega 40 milljón dollarar en með varahlutum og öðru telst kaupverð-
ið um 50 milljónir dollara eða um 3000 milljónir íslenskra króna.
Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flugleiða, orðaði það svo að
hvert sæti í vélinni væri jafnvirði dágóðs einbýlishúss, eða um 12
milljóna króna.
Á næstunni munu tvær nýjar
vélar frá Boeing, önnur af sömu
gerð og Hafdís og hin Boeing 737
bætast í flugflota Flugleiða, og mun
félagið þar með státa af yngsta
flugflota nokkurs Evrópuflugfé-
lags. Hafdís tekur 189 farþega en
737-gerðin tekur 156 farþega.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmenni var við mótlökuathöfnina í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli
í gærmorgun.
Áður en lent var í Keflavík á
tíunda tímanum í gærmorgun var
Hafdísi flogið yfir Reykjavík í út-
sýnisfiugi. Flugstjóri í ferðinni var
Guðlaugur Helgason og aðstoðar-
flugmaður var Skúli Guðjónsson.
„Ég hef ekki haft nein afskipti
af nafngift þessarar flugvélar, en
ég er forstjóra og starfsmönnum
mjög þakklátur fyrir þá hugulsemi
að láta flugvélina heita í höfuðið á
minni ágætu konu. Hún heitir nefni-
lega Unnur Hafdís,“ sagði Sigurður
Helgason stjórnarformaður m.a.
þegar hann ávarpaði starfsmenn
og gesti við móttökuathöfnina í
gærmorgun.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, sem
var sérstakur heiðursgestur í ferð-
inni, sökum þess að Seattle og
Reykjavík eru vinaborgir, sagði í
gærmorgun: „Ég vil þakka fyrir
okkur gestina sem fengum að fljóta
með í þessum glæsilega farkosti.
Við fundum strax að fiugliðarnir
fóru mjög vel með þann góða grip
sem þeir voru komnir með í hend-
urnar.“
Sigurður Helgason forstjóri tók
einnig til máls við athöfnina í gær-
morgun, og vék í máli sínu að þeim
Lynn Olafsson, sem var fram-
kvæmdastjóri þeirrar deildar
Boeing-verksmiðjanna sem sá um
hönnun á Boeing 707-vélunum á
sínum tíma og Borge Boeskov,
framkvæmdastjóra Evrópusölu-
deildar Boeing, sem er hálfur ís-
lendingur og hálfur Dani. Hann
sagði að þótt þeir væru fyrst og
fremst Boeing-menn, liti hann
ávallt á þá sem íslendingana hjá
Boeing. „Þeir hafa báðir markað
spor í íslenska flugsögu. Lynn með
þátttöku sinni í hönnun flugvéla
sem hafa verið notaðar í millilanda-
flugi í mörg ár og Borge með að-
stoð sinni við Flugleiðir á meðan á
samningaviðræðum við Boeing
stóð. Hann var alltaf sannfærður
um að Flugleiðir og Boeing ættu
samleið. í samningaviðræðum sem
stundum voru erfiðar lagði hann
mikið af mörkum fyrir hönd Boeing
til þess að dæmið gengi upp,“ sagði
Sigurður.
Ástríður Thorarensen, borgar-
stjórafrú, sagði við nafngiftina í
gærmorgun: „Ég gef þér nafnið
Hafdís. Megi Guð og gæfan fylgja
þér, flugleiðum þínum og farþegum
um alla framtíð."
Ingimar K. Sveinbjörnsson flugstjóri lét Morgunblaðinu í té þessa mynd sem tekin var fyrir skömmu í
Seattle fyrir framan Fanndísi, B-757-vél Flugleiða sem verður afhent á næstunni. Þessi föngulegi hópur
er fyrsti flugmannahópur Flugleiða sem hlaut starfsþjálfun sína hjá Boeing í Seattle. Frá vinstri eru þeir:
Lárus Guðgeirsson, Hilmar Leósson, Skúli Guðjónsson, Ingimar K. Sveinbjörnsson, Ingvar Þorgilsson,
Þór Sigurbjörnsson, Jón Waage, Vilhjálmur Þórðarson, Einar Gíslason, Guðlaugur Helgason, Pétur Lúðvíg
Marteinsson og Sigurður Haukdal.
Siglingar á stríðsárunum:
Norskir íslandssjómenn
heiðraðir í Reykjavík
Utg’áía Nýja Testament-
isins á íslensku 450 ára
Hafdís lendir í fyrsta skipti á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Hafdís komin heim:
Þeir Guðlaugur Helgason flugstjóri og Skúli Guðjónsson aðstoðarflug-
maður voru að vonum ánægðir með tilveruna í flugstjórnarklefa
Hafdísar í gærmorgun.
FJÓRIR sjómenn úr norska versl-
unarflotanum voru í liðinni viku
heiðraðir í norska sendiráðinu í
Reykjavík. Þeir hlutu Frelsisorðu
Hákons VII fyrir störf sín í seinni
heimsstyijöld. Villy Juliussen,
Reidar Isaksen, Ólafúr Marteinn
Pálsson og Arne Jakobsen, sem
er látinn, voru á sjó öll stríðsárin
og sigldu mikið á íslandsmið.
Þeir giftust allir íslenskum konum
og settust hér að í stríðslok. Villy
Juliussen er bílsljóri í norska
sendiráðinu. Hann segir erfitt að
skýra atburði stríðsáranna fyrir
þeim sem upplifðu þá ekki.
„Ég var á olíuskipi á leið til
Suður-Ameríku þegar Noregur var
hertekinn," segir Villy. „Síðan var
ég á vöruflutningaskipum öll
stríðsárin og fór víða. Það var mikið
siglt í skipalestum, þar sem 50-60
skip fóru í röð. Um tíma var ég í
strandsiglingum og svo fluttum við
kol til Kanada og tókum timbur til
baka. Við misstum 4.000 sjómenn
og 500 skip úr norska verslunarflot-
anum styijaldarárin. Siglingarnar
fóru illa með heilsuna hjá flestum,
þetta voru miklar vökur og eilíft
taugastríð. Maður vissi aldrei á
ingu Odds. Hafsteinn Guðmundsson
teiknaði titilblað og síðuumgjörðir
og sr. Sigurður Pálsson ritaði eftir-
mála.
Og árið 1988 kom út á vegum
Lögbergs/Sverris Kristinssonar/ í
samvinnu við Hið íslenska biblíufé-
lag, Kirkjuráð og Orðabók Háskól-
ans, afar vönduð útgáfa N.T. Odds
með nútímastafsetningu. Þar rita
inngang Sigurbjöm Einarsson, Guð-
rún Kvaran, Gunnlaugur Ingólfsson
og Jón Aðalsteinn Jónsson.
Sú útgáfa fékk góða kynningu og
umfjöllun í fiölmiðlum haustið 1988. .
Nýja Testamentið — þessi horn-
steinn hinnar evangelísku trúar —
hefur viðstöðulaust komið út á
íslensku í 450 ár og aldrei í stærri
upplögum en nú. í áratugi hafa Gíde-
onfélagar gefíð Nýja Testamentið
öllum 10 ára skólabörnum á landinu
— á sl. hausti um 4.500 talsins —
auk þess sem Gídeontestamenti eru
lögð inn við rúm á öllum sjúkrahús-
um, svo og til sjúkraliða og inn í
fangaklefa og víðar.
Biblíur frá Gídeonfélögum er auk
þess að fínna í öllum hótelherbergj-
um í landinu.
Hið íslenska biblíufélag, sem ann-
ast alla útgáfu Biblíunnar i heild svo
og Nýja Testamentisins með sálmun-
um í fjölbreyttum útgáfum, verður
175 ára 10. júlí nk. og verður síðar
kynnt með hvaða hætti það verður
hátíðlegt haldið.
En — til að minnast. og þakka
útkomu N.T. Odds árið 1540, þá
verður helgistund í Hallgrímskirkju
á Skólavörðuhæð á vegum Hins
íslenska biblíufélags kl. 9 að morgni
á skírdag, 12. apríl nk. Að ósk bisk-
ups, Ólafs Skúlasonar, forseta HÍB,
annast helgistundina sr. Jónas Gísla-
son, vígslubiskup og varaforseti HÍB,
ásamt prestum og organleikara
Hallgrímskirkju.
Um tilganginn með hinu rit-
aða/prentaða Orði — Ritningunni —
segir svo íúiðurlagi 20. kap. Jóhann-
esar guðspjalls, í þýðingu Ódds Gott-
skálkssonar:
„En þetta er skrifað að þér trúið
það Jesús sé Kristur, Guðs sonur,
svo að þér trúaðir hefðuð eilíft lif í_
hans nafni.“
(Frcttatilk. frá Hinu íslcnska biblíufclagi.)
Á SKÍRDAG, 12. apríl nk., eru 450
ár liðin frá fyrstu útkomu Nýja
Testamentisins á íslensku í þýð-
ingu Odds Gottskálkssonar.
Á síðustu blaðsíðu þeirrar bókar
stendur:
Þrykkt útí konunglegum stað
Roskyld, af mér, Hans Barth,
xii. dag aprílis, anno domini mdxl.
Um þessa bókarútgáfu árið 1540
hefur verið sagt:
„Fullyrða má, að útgáfa N.Tm.,
sé mesti viðburðurinn í sögu kristni
vorrar, annar en kristnitakan sjálf.
Eins og kristnitakan varð grundvöll-
ur kristnihalds í landi voru , svo
varð og útgáfa N.Tm. hornsteinn
hinnar evangelísku trúar.“ (Sr.S.P.
1940.)
Um þýðanda og útgefanda þessar-
ar — að talið er — fyrstu bókar, sem
prentuð var á íslensku og enn er til,
hefur verið sagt:
„En sá, sem mest og best starfaði
að því, að útbreiða siðbótina á ís-
landi var Oddur Gottskálksson, hann
var íslenskur maður og vel að sér,
þótt leikmaður væri. Hann þýddi
Nýja Testamentið á íslensku og lét
prenta í Danmörku 1540.“ — (S.J.,
kennari, 1927.)
Ljósprentun þessarar fyrstu út-
gáfu kom út á vegum Munksgaard
í Kaupmannahöfn 1933 með formála
eftir Sigurð Nordal. í tilefni þess að
100 ár eru liðin frá fæðingu Munks-
gaards er sýning í anddyri Lands-
bókasafnsins um þessar mundir á
ljósprentunum hans, m.a. N.T. Odds
frá 1540.
Árið 1940, er 400 ár voru liðin frá
útkomu N.T. Odds, kom út á vegum
Jóhannesar Sigurðssonar prentara,
kver með völdum köflum N.T. í þýð-
Enn frestað að selja úr
Ottó N. Þorlákssyni
FISKVERÐ var enn lágt á mörkuðum í Vestur Þýskalandi í gær og
var enn frestað að selja afla úr togaranum Ottó N. Þorlákssyni af þeim
sökum. Á mánudag var hætt við að selja hluta af afla hans þegar ljóst
varð að verð hafði fallið og voru þá eftir um 160 tonn af aflanum. í
gær átti að selja þau, en þegar tæp hundrað tonn voru óseld var þeim
kippt til baka, þar sem verð hafði ekkert hækkað, og á að freista þess
að fá hærra verð fyrir fiskinn í dag. Meðalverð fyrir karfa hefúr fallið
á tæpri viku úr um 157 krónum niður í um 65 krónur í gærmorgun.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar
framkvæmdastjóra Aflamiðlunar
eru margar skýringar taldar vera á
verðfallinu. Menn hallist þó helst að
því, að mjög ör og mikil verðhækkun
undanfarið hafi valdið. Meðal annars
vegna þess að hið háa verð hafi lað-
að marga seljendur á markaðinn
með þeim afleiðingum að í verslun-
um fáist nú fiskur á lægra verði en
karfinn er á, því haldi kaupendur á
uppboðsmörkuðum að sér höndunum
og bjóði lágt verð á meðan hið mikla
framboð varir.
Villijálmur segir ógerlegt að spá
fyrir um áframhaldandi verðþróun,
en í augnablikinu líti ekki vel út
með að verð hækki á ný.
Á mánudag seldi Viðey RE alls
392 tonn í Bremerhaven fyrir 35,7
milljónir króna, meðalverð alls aflans
var 90,97 krónur fyrir kílóið. 336,7
tonn voru karfi og fengust 90,99
krónur fyrir kílóið.
Ólafur Jónsson GK seldi í Bremen
á laugardag 239,5 tonn fyrir 21,9
milljónir króna, meðalverð 91,64.
Þar af voru 143,5 tonn karfi, meðal-
verð 102,01.
Rán HF seldi í Bremerhaven á
laugardag, 193,4 tonn fyrir 22,2
milljónir króna, meðalverð 115,01.
Þar af var karfi 141,1 tonn, meðal-
verð fyrir hann 120,72.
Hegranes SK seldi í Bremerhaven
á föstudag, 184 tonn fyrir 24,5 millj-
ónir króna, meðalverð 133,31. Þar
af var karfi 125,9 tonn, meðalverð
145,20.
Guðbjörg ÍS seldi í Bremerhaven
á föstudag, 275,8 tonn fyrir 36,8
milljónir króna, meðalverð 133,44.
Þar af var karfi 188,9 tonn, meðal-
vérð 145,75.
Kolbeinsey ÞH seldi í Bremerha-
ven á föstudag, 173,5 tonn fyrir
24,9 milljónir króna, nieðalverð
143,72. Þar af var karfi 89,1 tonn,
meðalverð 156,63.
Vigri RE seldi í Bremerhaven á
fimmtudag, 309,7 tonn fyrir 37,3
milljónir króna, meðalverð 120,32.
Þar af var karfi 241,7 tonn, meðal-
verð 127,46 krónur.
Morgunblaðið/Bjami
Norski sendiherrann, lengst til vinstri á myndinni, afhenti þremur
löndum sinum Frelsisorðu Hákons VII í liðinni viku. Ekkja fiórða
sjómannsins tók við heiðurspeningi hans.
hveiju væri von næsta augnablik.
Ég var heppinn. Skipin sem ég
var á urðu aldrei fyrir beinni árás,
en í loftárásum komu sprengjur oft
niður nærri skipunum. Þetta var
stundum heldur ljótt.“
Villy segir að hann og landar
hans þrir, sem allir settust hér að
eftir stríðið, hafi unnið ýmis störf
síðan. „Við höfum sennilega allir
fengið nóg af siglingum á stríðsár-
unum. Og þegar menn eru komnir
með fjölskyldu eru langar siglingar -
ekki mjög freistandi. Ég var bílstjóri
í sænska sendiráðinu í 32 ár og er
nú í því norska. Þetta er langur
vegur frá siglingunum, en þær
gleymast ekki svo glatt.“