Morgunblaðið - 11.04.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990
2?
Borgaraflokkurinn
hættir við prófkjör
STJÓRN kjördæmisfélags Borgaraflokksins í Reykjavík hefur ákveð-
ið að hætta við að hafa prófkjör til að velja lista ffokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningar í Reykjavík.
Guðmundur Ágústsson, þing-
maður Borgaraflokksins í
Reykjavík, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að menn hefðu tekið þessa
ákvörðun í framhaldi af dræmri
kjörsókn í prófkjöri Nýs vettvangs
Leiðrétting
í Morgunblaðinu í gær var mis-
sagt að Bjarni Marinó Þorsteinsson,
höfundur greinarinnar „Saltfiskur-
inn og landsbyggðin“, væri saltfisk-
verkandi í Ólafsfirði. Þar átti að
standa í Siglufirði.
Rukkunar-
hefti tapaðist
Fyrir síðustu helgi tapaðist rukk-
unarhefti fyrir Dverghamra og
Gerðhamra. Finnandi vinsamlegast
hafi samband við skrifstofu Morg-
unblaðsins, Aðalstræti 6, eða í síma
691140.
um helgina. „Menn óttuðust að það
yrði lítil þátttaka, að menn væru
ekkert komnir í það stuð ennþá að
taka þátt og raða upp á lista,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að ekki væri búið að
útiloka framboð á vegum Borgara-
flokksins í Reykjavík eða stuðning
flokksins við eitthvert óháð fram-
boð, sem fram kynni að koma.
Úlrik Ólason Loftur Erlingsson
Nafiiavíxl
Nöfn víxluðust undir myndum í
gagnrýni Jóns Ásgeirssonar um
þýska sálumessuí Morgunblaðinu í
gær. Hér eru birt réttu nöfnin und-
ir myndunum.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
6. apríl.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 79,00 63,00 78,78 7,156 563.691
Keila 26,00 26,00 26,00 0,760 19.766
Ýsa 70,00 46,00 58,43 0,168 9.816
Ýsa(óst) 81,00 81,00 81,00 0,238 19.278
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,031 620
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,054 1.080
Steinbítur 39,00 20,00 36,86 4,647 171.287
Steinb. (ósl.) 30,00 30,00 30,00 0,189 5.670
Þorskur(óst) 79,00 58,00 73,48 14,935 1.097.384
Rauðm./grásl. 40,00 36,00 38,61 0,076 2.934
Hrogn 115,00 115,00 115,00 0,080 9.200
Bland 25,00 25,00 25,00 0,188 4.700
Samtals 66,81 28,521 1.905.426
1 dag verða meðal annars seld ...
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(st) 76,50 65,00 74,33 66,355 4.931.898
Þorskur(óst) 86,00 54,00 77,18 17,446 1.356.906
Ýsa (sl.) 112,00 50,00 101,68 8,411 855.252
Ýsa(óst) 117,00 40,00 88,52 0,474 41.960
Karfi 34,00 20,00 32,54 51,234 1.667.026
Ufsi 37,00 32,00 35,40 11,870 420.219
Steinb./hlýri 30,00 20,00 29,45 0,813 23.940
Langa 48,00 40,00 42,02 2,369 99.526
Lúða 320,00 155,00 236,06 0,213 50.280
Skarkoli 55,00 35,00 36,76 0,824 30.289
Undirm.þorsk. 31,00 31,00 31,00 0,125 3.875
Skötuselur 165,00 165,00 165,00 0,174 28.710
Rauðm./grásl. 51,00 14,00 23,13 1,652 38.211
Hrogn 205,00 205,00 205,00 0,341 69.905
Blandað 30,00 15,00 22,56 0,486 10.965
Samtals 59,15 162,786 9.628.963
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 105,00 46,00 85,57 42,824 3.664.476
Keila 29,00 14,00 28,88 1,212 34.983
Ýsa 96,00 49,00 80,08 17,133 1.372.054
Blandað 6,00 6,00 6,00 0,027 162
Karfi 30,00 15,00 28,91 2,115 61.139
Ufsi 36,00 25,00 34,17 3,686 125.961
Steinbítur 25,00 14,00 18,70 0,351 6.564
Langa 60,00 60,00 60,00 0,119 7.140
Lúða 255,00 100,00 156,97 0,641 100.620
Skarkoli 40,00 40,00 40,00 0,025 1.000
Steinb./hlýri 35,00 35,00 35,00 2,185 76.475
Hrogn 166,00 166,00 166,00 0,015 2.450
Undirmál 33,00 33,00 33,00 0,123 4.059
Svartfugl 20,00 20,00 20,00 0,058 1.160
Samtals 77,41 70,514 5.458.883
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
I SÖLUR í Vestur-Þýskalandi 10. apríl.
Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 96,59 61,27 78,93
Ýsa 165,79 68,48 117,14
Karfi 144,16 61,63 102,90
Ufsi 72,08 72,08 72,08
Samtals
SKIPASÖLUR í Bretlandi 10. apríl.
Þorskur 196,02 140,25 168,14
Ýsa 184,87 149,81 167,34
Karfi 105,18 79,68 92,43
Ufsi 86,06 66,94 75,50
Samtals
| Magn og heildarverð lágu ekki fyrir í gær.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Vöruflutningabifreið með aftanívagni valt út af veginum við Kambs-
nesháls er falskur kantur gaf sig við veginn.
Velta í Álftafirði
Alflafirði.
Vöruflutningabifreið með aftanívagni fór útaf veginum skammt
innan við Kambsnesháls í Álftafirði um þrjúleytið aðfaranótt mánu-
dagsins. Ökumaður sem var einn í bílnum slapp ómeiddur en ekki
er ljóst hversu miklar skemmdir urðu á bifreiðinni.
Að sögn Bjarna Þórðarsonar eig-
anda og ökumanns bifreiðarinnar
valt bifreiðin er falskur kantur gaf
sig við veginn. Bjarni sagði vegi í
ísafjarðardjúpi víða orðna hættu-
lega stórum bílum þar sem mynd-
ast hafa snjókantar þar sem ekki
væri nógu breiður kafli ruddur.
Verst kvað Bjarni ástandið vera í
Skötufirði og hefði hann fjórum
sinnum nærri misst bílinn útaf á
þeirri leið.
Kristinn Jón Jónsson rekstrar-
stjóri Vegagerðar ríkisins á Isafirði
sagði í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins að ísafjarðardjúp
hefði ekki verið mokað síðan þriðju-
daginn 2. apríl og síðan hefði skaf-
ið nokkuð út á vegina og þrengdi
það að sjálfsögðu vegina. Þetta
leiddi af sér að menn yrðu að sýna
sérstaka aðgæslu við akstur.
- DóJó
Sala á kart-
öfluút-
sæðihaGn
Sala á kartöfluútsæði til heima-
ræktunar er hafin hjá Ágæti
hf. að Faxafeni 12, en útsæði
frá Ágæti hf. er einnig selt í
Blómavali við Sigtún. Að sögn
Sturlu R. Guðmundssonar
framkvæmdastjóra er áætlað
að í ár verði seld um 70 tonn
af útsæði, en um er að ræða
stofnútsæði frá Norðurlandi og
almennt útsæði frá Suðurlandi
og Hornafirði, og er það selt í
5 kg og 25 kg pokum. Verðið
á stofndtsæði er frá 144 kr. til
154 kr. kílóið, en almennt úts-
æði kostar frá 105 kr. til 135
kr. kílóið. Á myndinni sést Ingi-
björg Sv. Guðjónsdóttir vigta
Helguútsæðiskartöflur hjá
Ágæti hf.
„Baker-bræð-
urnir“ í Há-
skólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni „Baker-bræð-
urnir“. I aðalhlutverkum eru Jeff
Bridges og Michelle Pfeiffer.
Jack og Frank Baker eru bræður
sem vinna fyrir sér með píanóleik á
skemmtistöðum. Farið er að halla
undir fæti hjá þeim bræðrum og
þeir ákveða að bæta söngkonunni
Susie við. Vinsældir þeirra fara vax-
andi og þau fá hvert tilboðið á fætur
öðru. Jack er þó meiri tónlistarmað-
ur en Frank en hinn mesti kvenna-
Beau Bridges, Michelle Pfeiffer
og Jeff Bridges í hlutverkum
sinum í mynd Háskólabíós, „Bak-
er-bræðurnir“.
bósi. Susie laðast að Jack og þar
kemur, að það sýður uppúr milli
bræðranna og Susie hættir söngn-
um.
Morgunblaðið/Emilla
mm'i ©: ]
; f MSb BRffJfBgnH aBSsapl W. ■ •]
f 1 í yji fH 4 11 ýÉI J
Morgunblaðið/Bjc'in Sveinsson
Frá sýningu Leikfélags Mcnntaskólans á Egilsstöðum á leikriti Böð-
vars Guðmundssonar „Grísir gjalda, gömul svín valda“.
■ LEIKFÉLAG Menntaskólans
á Egilsstöðum sýnir um þessar
mundir „Grísir gjalda, gömul svín
valda," eftir Böðvar Guðmunds-
son í leikstjórn Jóns Helga Þórar-
inssonar. Sýningin hefur fengið
Skagaströnd:
Fjárhags-
áætlun Höfða-
hrepps kynnt
Skagaströnd.
Fjárhagsáætlun Höfða-
hrepps fyr*r árið 1990 var
kynnt á borgarafundi á
Skagaströnd í páskavikunni.
Áætlunin hljóðar upp á rúm-
lega 91 milljón, en beinar'
tekjur eru 78,6 milljónir,
23,9% af þeirri upphæð koma
til eignabreytinga eða rúm-
lega 18 milljónir.
4L
Nokkrar af stærstu fram-
kvæmdum hreppsins þetta ár
verða lagning gangstétta um
hluta þorpsins, viðbygging við
leikskólann og girðing um Spá-
konufell. Girðing um Spákonu-
fell er til að friða fjallið þar sem
gróðursetja á landgræðsluskóg
í sumar. Alls á að setja niður
35 þúsund birkiplöntur sem
Landgræðsla ríkisins afhendir.
Auk ofantalinna verkefna verð-
ur unnið að viðhaldi og nýbygg-
ingu hafnarinnar og fram-
kvæmdir verða við opin svæði
í þorpinu.
- Ó.B.
Úr nýjustu mynd Regnbogans,
„Skíðavaktin".
„Skíðavaktin“
sýnd í Regn-
boganum
HAFIN er sýning í Regnbogan-; -
um á kvikmyndinni „Skiðavakt-
in“. Með aðalhlutverk fara Roger
Rose og T.K. Carter. Leikstjóri
er Richard Correll.
Snæfjöll eru vinsæll skíðastaður
og myndin lýsir togstreitunni milli
tveggja skíðakennara, Jerry og
Lance. Jerry vill varðveita hið vin-
gjamlega andrúmsloft staðarins
sem hefur verið í eigu Pops í 40
ár, en Lance bruggar launráð með
gráðugum fasteignasala, Maris,
sem vill losna við Pops og byggja
hótel og fjárhættuspil á svæðinu.
Nú reynir meira á Jerry og félaga
hans í skíðaeftirliti Snæflalla en
nokkru sinni fyrr, segir í fréttatil-
kynningu frá kvikmyndahúsinu.
ágætar viðtökur. Grísir gjalda,
gömul svín valda, var skrifað fyrir
Leikfélag Menntaskólans á Akur-
eyri á ári bamsins 1987 og var
sett upp þar. Einnig hafa Leikfélag
Reykjavíkur og Alþýðuleikhúsið
tekið verk eftir Böðvar til sýninga.
Fjölmargir nemendur Mennta-
skólans á Egilsstöðum hafa tekið
þátt í uppsetningu á Grísir gjalda,
gömul svín valda, og hlutverk eru-v“
fjölmörg. Með helstu hlutverk fara
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Konr-
áð Benediktsson, Páll Þórðarson,
Dagný lljálmarsdóttir, Aðal-
steinn Hákonarson, Þórunn
Hreftia Sigurjónsdóttir, Hjalti
Þorkelsson og Berglind Guð-
mundsdóttir.
- Björn