Morgunblaðið - 11.04.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990
29
Virðisaukaskattur af flotgöllum:
Óviðuiiaiidi að skatt-
leggja björgunarbmiað
- segir Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
ÁRNI Johnsen (S/Sl) mælti í
neðri deild í gær fyrir frum-
varpi til laga um að virðis-
aukaskattur verði felldur nið-
ur af flotvinnubúningum.
Sagði hann að óviðunandi
væri, að björgunarbúnaður
Sljómskipunarlög:
Deildaskipt-
ing Alþing-
is aftiumin
- samkvæmt
frumvarpi Páls
Péturssonar
PÁLL Pétursson (F/Nv) hefiir
endurflutt frumvarp sitt frá
síðasta þingi um breytingar á
stjórnskipunarlögum. Þar er
meðal annars gert ráð fyrir
að deildaskipting Alþingis
verði afnumin, ríkisstjórn
verði veitt meiri aðild vegna
bráðabirgðalaga og aukaijár-
veitinga og að þingmenn sem
taka við ráðherraembættum
láti af þingmennsku.
í gi-einargerð með frumvarpinu
segir, að markmiðið sé að gera
málsmeðferð á Alþingi nútímalegri
og einfaldari og einnig að efla
sjálfstæði þingsins og eftirlit með
framkvæmdavaldinu.
Helstu breytingar í frumvarpinu
eru samkvæmt greinargerð eftir-
farandi: 1. Deildaskipting Alþingis
verði afnumin og þingið starfi í
einni málstofu. 2. Komið verði á
fót sérstakri stjórnsýslunefnd sem
rétt hafi til að rannsaka mikilvæg
mál sem varði almenning. Nefndin
hafi þannig eftirlit með störfum
stjórnvalda. 3. Bráðabirgðalög
verði ávallt lögð fyrir næsta Al-
þingi eftir setningu þeirra þegar
í byijun þings. 4. Þingmaður, sem
skipaður er ráðherra, láti af þing-
mennsku meðan hann gegnir ráð-
herraembætti en varamaður hans
taki sæti á Alþingi. 5. Þegar ný
ríkisstjórn er mynduð milli þinga,
skuli þing kvatt saman innan
þriggja vikna frá skipunardegi
stjórnar. 6. Aukafjárveitingar
verði takmarkaðar.
sjómanna væri skattlagdur, en
þeir byggju við mesta slysat-
íðni starfsstétta í landinu.
Þingmaðurinn sagði í umræðum
um frumvarpið, að þegar virðis-
aukaskattur væri ekki lagður á
flestar tegundir lögbundins örygg-
isbúnaðar i skipum, skyti það
skökku við að leggja hann á þann
búnað, sem sjómenn þyrftu sjálfir
að útvega sér. Hann rifjaði upp
mótmæli eiginkvenna sjómanna
og nemenda í Stýrimannaskólan-
um gegn þessari skattlagningu og
sagði að á undanförnum árum
væru um það mörg dæmi, að flot-
vinnubúningar hefðu bjargað lífi
sjómanna. Sjómenn byggju við
mesta slysatíðni starfsstétta í
landinu og óviðunandi væri, að
þessi björgunarbúnaður þeirra
væri skattlagður.
Kristín Einarsdóttir (SK/Rv) og
Pétur Bjarnason (F/Vf) tóku und-
ir sjónarmið flutningsmanns frum-
varpsins og lýstu yfir stuðningi
við markmið þess.
Búrfellsvirkjun.
Frumvarp um raforkuver:
Heimild til stækkunar virkj-
ana við Búrfell og Kröflu
LAGT hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga uin raf-
orkuver. Þar er meðal annars gert ráð fyrir heimildum til stækkun-
ar virkjana við Búrfell og Kröflu og að heimiit verði að reisa og
reka jarðgufuvirkjun til raforkuframleiðslu á Nesjavöllum.
MÞMKSI
í greinargerð með frumvarpinu
er sagt, að það sé flutt til að greiða
fyrir uppbyggingu orkufreks iðnað-
ar hér á landi í framhaldi af yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar og ATL-
ANTAL-aðilanna um nýtt álver.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að heimilt verði að stækka Búrfells-
virkjun í um 310 MW og Kröflu-
virkjun í um 60 MW. Fyrir vora
heimildir til Blönduvirkjunar,
Fljótsdalsvirkjunar, Villinganes-
virkjunar, Sultartangavirkjunar,
stækkunar Hrauneyjafossvirkjunar
og Sigölduvirkjunar. Enn fremur
er í frumvarpinu gert ráð fyrir
heimild til að reisa og reka jarð-
gufuvirkjun til raforkuframleiðslu á
Nesjavöllum.
í frumvatpinu er að lokum lagt
til að Landsvirkjun verði veitt heim-
ild til að veija 300 milljónum króna
til undirbúnings og framkvæmda á
árinu 1990 við Fljótsdalsvirkjun,
stækkun Búrfellsvirkjunar og
stofnlínur eins og nauðsynlegt sé,
til þess að hægt verði að sjá nýj;i
álveri fyrir nægri raforku árið 1994,
og taka það fé að láni.
Viðskipti með hlutabréf:
Söluhagnaður skattfrjals
upp að 300.000 kr. marki
— samkvæmt frumvarpi fjárhags- og viðskiptanefiidar neðri deildar
Fjárhags- og viðskiptanefnd
neðri deildar Alþingis hefur lagt
fram frumvarp til breytingar á
lögum um tekju- og eignarskatt,
þar sem meðal annars er gert
ráð fyrir að söluhagnaður af
hlutabréfum verði skattfrjáls upp
að 300 þúsund króna marki, hafi
þau verið í eigu aðila í 4 ár. Jafn-
STUTTAR ÞINGFRETTIR
■ FÓSTUREYÐINGAR: Ás-
geir Hannes Eiríksson (B/Rv)
hefur lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um ráðgjöf og
fræðslu varðandi kynlíf og barn-
eignir og um fóstureyðingar og
ófijósemisaðgerðir. Þar er meðal
annars gert ráð fyrir að óheimilt
verði að framkvæma fóstureyð-
ingu nema að lífi eða heilsu konu
sé hætta búin af áframhaldandi
meðgöngu og fæðingu, að sterkar
líkur séu á vansköpun barns eða
það sé haldið alvarlegum sjúk-
dómi, að þungun og fæðing verði
stúlku, allt að 16 ára aldri, of
erfið vegna félagslegra aðstæðna,
eða að þungun konu sé afleiðing
nauðgunar eða annars refsiverðs
athæfis.
■ MÁLEFNI HEYRNAR-
LAUSRA: Þórhildur Þorleifsdótt-
ir (SK/Rv) hefur lagt fram þijár
fyrirspurnir til menntamálaráð-
herra vegna málefna heyrnar-
lausra. Þingmaðurinn spyr meðal
annars um ráðstafanir til að
tryggja framhaldsnám þeirra,
hvort standi til að viðurkenna
íslenskt táknmál sem sérstakt og
sjálfstætt mál, og einnig hvað líði
undirbúningi að stofnun Sam-
skiptamiðstöðvar heymarlausra.
■ K J ARN ORKUTILRAUN-
IR: Eiður Guðnason hefur lagt
fram fyrirspurn til utanríkisráð-
herra um það, hvort ríkisstjórn
íslands hafi mótmælt þeim ráða-
gerðum Sovétríkjanna að flytja
tilraunir með kjarnorkuvopn frá
Mið-Asíu til Novaja Zemlja í
Norður-íshafinu.
■ KVIKMYNDASTOFN-
UN: Lagt hefur verið fram stjórn-
arfrumvarp um stofnun Kvik-
myndastofnunar íslands. Hlut-
verk hennar á meðal annars að
vera rekstur Kvikmyndasjóðs og
Kvikmyndasafns og er markmiðið
með frumvarpinu, samkvæmt at-
framt er gert ráð fyrir að heim-
ilt verði að miða skattfrjálsar
arðgreiðslur við allt að 15% af
nafnverði hlutabréfa í stað 10%
áður. Frumvarpið er í meginat-
riðum byggt á frumvarpi, sem
Friðrik Sophusson (S/Rv) og aðr-
ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
í neðri deild fluttu fyrr í vetur.
hugasemdum sem því fylgja, að
styrkja stöðu kvikmyndagerðar f
landinu til að halda í horfinu við
erlend menningatáhrif.
■ ÁTAK GEGN EINELTI:
Þingkonur Kvennalistans hafa
lagt fram þingsályktunartillögu
um að félagsmálaráðherra og
menntamálaráðherra beiti sér fyr-
ir átaki gegn einelti meðal barna
og unglinga. í því skyni verði
skipaður samstarfshópur, sem
skili áætlun um úrbætur fyrir 1.
mars 1991.
■ BÍLBELTI: Salome Þor-
kelsdóttir (S/Rn) hefur ásamt
þingmönnum úr öllum flokkum
lagt fram framvarp til laga um
að lögleiða notkun bíibelta fyrir
þá sem sitja í aftursæti og að
börn yngri en 6 ára skuli nota
bílbelti, barnabílstól, bílpúða eða
annan viðurkenndan öryggisbún-
að.
í athugasemdum með frumvarp-
inu segir meðal annars, að mark-
mið þess sé að koma á breytingum
til að örva eiginfjármyndun í
íslenskum atvinnurekstri. Breyting-
arnar sem felist í frumvarpinu séu
í fyrsta lagi, að söluhagnaður af
hlutabréfum í tilteknum fyrirtækj-
um verði skattfijáls ef hann er ekki
yfir 300.000 kr. eftir 4 ára eignar-
haldstíma. í annan stað, að heimilt
verði að miða skattfijálsar arð-
greiðslur við allt að 15% af nafn-
verði hlutabréfa í stað 10% áður. í
þriðja lagi, að úthlutaður arður fyr-
irtækja verði frádráttarbær upp að
15% af nafnverði og að síðustu, að
viðskipti með hlutabréf á verðbréfa-
þingi íslands verði auðvelduð með
því að ekki þurfi að telja hlutabréf
til eignar á kaupþingsverði þótt þau
séu skráð á opinbera kaupþingi.
Frumvarp þetta kemur í kjölfar
frumvarps um frádrátt af skatt-
skyldum tekjum vegna fjárfestingar
í atvinnurekstri sem varð að lögum
fyrr í vetur. Þar var sá frádráttur
fyrir einstaklinga meðal annars
hækkaður í 115 þúsund krónur og
fyrir hjón í 230 þúsund krónur. Það
frumvarp var einnig lagt fram af
Ijárhags- og viðskiptanefnd neðri
deildar en að meginstofni byggt á
frumvarpi Friðriks Sophussonar og
annarra sjálfstæðismanna um sama
efni.
Mannanöfii:
Skrá gerð yfir leyfileg nöfti
SVAVAR Gestsson, menntamálaráðherra, mælti í neðri deild í síðustu
viku fyrir frumvarpi til laga um mannanöfn. Þar er meðal annars
gert ráð fyrir að gerð verði skrá yfir þau nöfii, sem heimilt verður
að nota, en sérstök mannanafnanefnd fialli um þau nöfn sem ekki
verður þar að finna.
í frumvarpinu er gert ráð fyrsf*1
að stofnuð verði sérstök manna-
nafnanefnd. í henni sitji 2 fulltrúar
tilnefndir af heimspekideild Há-
skóla íslands og 1 fulltrúi tilnefndur
af Lagadeild. Hlutverk nefndarinn-
ar á að vera, að gera skrá yfir heim-
il mannanöfn í landinu. Óski for-
eldrar eftir þvi að gefa barni sínu_
nafn sem þar er ekki að fínna, skái'
nefndin úrskurða í málinu.
í frumvarpinu segir, að gefa skuli
barni eitt eða tvö eiginnöfn innan
hálfs árs frá fæðingu og skuli nöfn-
in vera íslensk eða hafa unnið sér
hefð í landinu og falla að íslensku
inálkerfi. Börn skuli fá eitt kenni-
nafn og verði hei milt að kenna þau
jafnt við móður sem föður. Ættar-
nöfn geti gengið jafnt í karllegg
sem kvenlegg, en óheimilt sé að
: takarapp ný. ■ n ).:.h > i u -. j