Morgunblaðið - 11.04.1990, Page 32

Morgunblaðið - 11.04.1990, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 Minning: Einar Þorgeirsson rafverktaki Það var mikið áfall að heyra að Einar hefði farist af slysförum, þessi dugmikli maður sem ekkert virtist geta stöðvað. Við vorum stödd í Hollandi til þess að taka þátt í keppni ásamt Helgu eiginkonu hans. Þessi keppn- isferð var að mörgu leyti tómleg vegna þess að Einar var ekki með ^ okkur og var haft orð á því að þetta var í fyrsta sinn sem hann fylgdi ekki konu sinni í alþjóðakeppni er- lendis. ísland tók fyrst þátt í alþjóðlegri keppni 1985 í Vínarborg og þá var Einar með okkur, ekki eingöngu til þess að hjálpa Helgu heldur var hann boðinn og búinn til þess að • hjálpa öllum sem þurftu á hjálp að halda. Einar lét ekki við þessa einu keppni sitja heldur kom hann með okkur á keppni í Veróna, Búdapest og nú síðast til Helsingborgar sl. haust. Þá mætti skrifa heila bók um þá aðstoð sem hann veitti í sam- bandi við keppni hér á landi og hvernig hann leysti fyrir okkur raf- _ % magnsvandamál sem oft fylgdi þeim. Orðið ómögulegt var ekki til í hans orðabók. Það er sagt að það sem fóðri sorgina mest sé sektarkenndin og veit ég að mörgum sem tekið hafa þátt í þeim keppnum sem Einar fór með okkur í, svíður það sárt að hafa ekki látið hann njóta þess þakk- lætis sem hann átti skilið í lifanda lífi. Kraftur hans og dugnaður, hjálp- semi og glaðværð var kærkominn þeim sem tóku þátt í erfiðum keppn- um og áður en hægt væri að þakka , honum fyrir hjálpina var hann rokinn í burt eða sló þakklætinu upp í grín. Þrátt fyrir hijúfa framkomu, mikið skap, þá fór það aldrei á milli mála að þar fór maður með stórt hjarta og það er ótrúlegt hvað hann komst yfir að gera á sinni alltof stuttu ævi. Til dæmis um umhyggju Einars fyrir öðrum, þá gaf hann sér tíma til þess, þrátt fyrir eigin annir, að hringja í mig rétt áður en við fórum til Hollands og benda mér á að ef ég hugsaði ekki betur um rafmagns- tækin sem hann hafði gert fyrir fé- lagið okkar, þá endaði það með því að þau glötuðust. Ég hafði gaman af þessu símtali því ef Einar skamm- aði mann þá var það vegna þess að ^honum var ekki sama og að hann hefði taugar til hárgreiðslunnar. Þátttaka íslands í hárgreiðslukeppn- um erlendis er byggð á sjálfboða- vinnu og hafa makar keppenda ávallt lagt þar hönd á plóginn en að öllum öðrum ólöstuðum þá var Einar þar fremstur í fiokki. Það er sama hvar við leitum til að finna orð til huggunar ijölskyldu Einars, þau finnast ekki. Líf og dauði eru hugtök sem menn hafa skiptar skoðanir á svo og trú eða trúleysi. Því verður að eftirláta hvetjum og einum að finna sinn veg út úr sorg- inni. Eitt er víst, Einar hefði ekki gefist upp, heldur dregið aðra með sér til athafna. Þótt Einar sé ekki lengur meðal okkar, þá deyr orðstír hans aldrei. Elsku Helga, við vottum þér og bömum þínum okkar innilegustu samúð. Dóróthea og Torfi. Kork-o-Plast GÓLF-GLJÁI Fyrir PVC-filmur, linoleum, gúmmí, parkett og steinflísar. Notið aldrei saimiak eða önnur sterk sápuefni á Kork*oPlast Kinkaumboóá íslandi: O.MRGRlMSSON&CO Ármúla 29. Múlalorni, s. .18640. Mig langar í nokkrum orðum að minnast frænda míns og vinar sem lést svo sviplega af slysförum í þess- um mánuði. Það er erfitt að trúa því að hann Einar sé dáinn, en slys- in gera ekki boð á undan sér. Hann hafði alla þessa orku og framtíðará- ætlanir. Ég hef aldrei kynnst jafn- duglegum og framtakssömum manni, það var sama hvað hann tók sér fyrir hendur, hann gat fram- kvæmt bókstaflega allt sem hann ætlaði sér. Við höfðum oft orð á því hvernig þetta væri hægt. Ef um skemmtanir og ferðalög var að ræða, þá var hann þar fremst- ur í flokki og hrókur alls fagnaðar því það var stutt í húmorinn. Skap- laus var hann ekki og ef hlutirnir gengu ekki upp þá gat hann látið í sér heyra, en hann var alltaf sjálfum sér samkvæmur og sannur vinur vina sinna. Þær eru ófáar hárgreiðsluferðirn- ar sem ég fór með Einari og Helgu vinkonu minni og núna síðast var ég með Helgu í Hollandi, en það var ein af þeim fáu keppnum sem Einar var ekki með til að hjálpa og taka myndir fyrir okkur á keppnisdag, hann var eins og í mörgu öðru mjög góður ljósmyndari og á ég margar góðar myndir sem hann tók. Þau Helga og Einar unnu mjög vel saman að því að veita börnum sínum fallegt heimili enda bæði dug- leg og áhugasöm um að hafa fallegt í kringum sig. Áhugamálin voru mörg hjá Einari og þá sérstaklega með drengjunum, sem verður þeim ómetanlegt í minningunni um föður sinn. Því miður þá fáum við ekki Einar aftur, en ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þessum elskulega frænda mínum og átt með þeim hjónum ánægjulegar samverustundir. Elsku Helga, Sirrý, Einar Geir, Bjarni Þór, foreldrar og systkini, Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Guðfinna Jóhannsdóttir Það er ekki ofsögum sagt þegar styrk stoð úr vinahópi fellur frá að hugann setji hljóðan og myndrænir atburðir liðinna ára líti dagsins ljós. Einar er genginn á vit örlaga sinna langt um aldur fram. Þessi stóri og sterki persónuleiki sem lék oftast á als oddi var hrókur alls fagn- aðar á góðra vina fundum líður manni seint úr minni. Kankvíst bros og hressileg kerskni gáfu honum þennan litríka blæ sem einkennir oft aðsópsmikla menn. Hér var á ferð foringi og mikill dugnaðarforkur sem lét aldrei deigan síga enda mannkostur ótvíræður. Það lék allt í höndum þessa drengs hvort sem handleikið var járn eða tré. Útsjónar- semin og skipulagsgáfa sátu ætíð í fyrirrúmi. Tveggja áratuga kynni við Einar færði manni heim sanninn um að á bak við þykkan skrápinn var ein- stakt bróðurþel til vina og vanda- manna sem komu oftlega fram í ótilbeðinni hjálp og stuðningi hvers konar. Því ber ekki að neita að á bak við mannkosti Einars stóð heil- steypt kona sem var engin eftirbátur hans hvað eiju og dugnað snertir. En samstilit átak atorku og áræðis aflaði þeim hjónum ómældra vin- sælda og virðingar. Gestrisni þeirra og lundin létta sat alltaf í fyrirrúmi. Það má segja að mannfólkið allt sé á valdi orsaka og afleiðinga og enginn ráði sínum næturstað. Efst í huga mínum er þakklæti fyrir falslausa vináttu og tryggð. Megi alvaldur góði gefa honum frið og blessun og hann öðlist í Kristi gleði hins eilífa lífs. Elskulegri konu, börnum og að- standendum öllum votta ég einlæga hluttekningu. Hilmar Hlíðberg Gunnarsson Þriðjudagskvöldið hinn 3. þessa mánaðar lést ungur maður í einu af þessum alltof tíðu umferðarslys- um. Ég vissi ekki þá hver í hlut átti en hugsaði bara eins og aðrir, að nú ættu einhveijir um sárt að binda. Síðar, er mér var sagt að það hefði verið góðvinur minn, Einar Þorgeirs- son, rafverktaki, vildi ég helst neita að trúa, en staðreynd var það engu að síður. Einar var sonur hjónanna Sigríðar Einarsdóttur og Þorgeirs Jónssonar, vélvirkja. Þau hjón höfðu hvort í sínu lagi verið nágrannar mínir á mínum yngri árum. Hann í austur- borginni en hún síðar í vesturborg- inni, svo ég hafði af þeim og þeirra fólki nokkur kynni. Einar sá ég fyrst í Sundlaug Vest- urbæjar, þar sem hann kom daglega vegna íþróttar sinnar, því hann var sundmaður mikill. Þangað kom ég einnig um árabil, mér til heilsubót- ar. Þarna urðu mín fyrstu kynni við þennan glæsilega, góða dreng og sem áttu eftir að verða meiri, þar sem ég varð svo lánsamur að fá hann með mér til vinnu við gróður- störf ýmis og allt þar að lútandi. Það var einstök reynsla að starfa með honum. Hann hafði allt til að bera, dugnað, vilja, hjálpsemi, ásamt góðsemd og hlýju, sem gerði hann að betri manni. Að Einari stóðu sterkir stofnar, glæsilegt mann- dómsfólk, listamenn og völundar miklir, enda bar hann þess öll merki. Hans er sárt saknað af okkur öll- um, sem þótti vænt um hann að verðleikum. Ég er svo lánsarnur að eiga tvo góða bræður að. Á betra verður ei kosið. Einar var sem einn slíkur og veit ég, að fleiri geta sagt hið sama. Þann 3. október 1970 kvæntist Einar yndislegri konu, Helgu Bjarnadóttur, hárgreiðslumeistara, og varð það honum mikil gæfa. Hún er af þekktu dugnaðarfólki komin, eins og hún hefur ávallt sýnt við hlið hans. Þeim varð þriggja barna auðið. Þau eru: Sigríður Margrét, Einar Geir og Bjarni Þór. Helga mín! Orð segja kannski ekki mikið, en ég vona þið finnið hug okkar allra og bænir. Það getur enginn misst mikið, nema að hafa átt mikið. Þrátt fyrir það, reynið að njóta góðu minninganna og varð- veita þær. Kæru börn! Ykkur til handa á ég þá ósk, að mega líkjast föður ykkar sem mest, eins og við þekktum hann best. Þá ætti ykkur að farnast vel með öllu því góða, sem þið njótið frá móður ykkar. Ykkur öllum, foreldrum, sytkin- um, tengdaforeldrum og öðrum ást- vinum, vil ég votta samúð mína, er við kveðjum góðan vin. Einar kveð ég og þakka. Góður Guð varðveiti hann og ykkur öll. Jón A. Wathne Að morgni hins 4. apríl barst okk- ur sú harmafregn að hann Einar, okkar góði vinur, væri dáinn. Hann sem var ekki nema 41 árs, tekinn burt á svo sviplegan hátt frá yndis- legri eiginkonu og þremur börnum. Einar fæddist 13. desember 1948, sonur hjónanna Þorgeirs H. Jónsson- ar og Sigríðar M. Einarsdóttur og var hann næst elstur sex systkina. Það eru komin 22 ár síðan elsku- leg vinkona mín, Helga Bjamadótt- ir, hitti Einar sinn, þennan glæsilega unga mann. Þau gengu í hjónaband 3. október 1970. Þau byrjuðu að búa á Hlíðarvegi 40, Kópavogi, þar sem þau höfðu fest kaup á lítilli íbúð sem þau gerðu að yndislegu heimili sínu. Til Einars og Helgu var alltaf gott að koma og manni ávallt tekið opn- um örmum. Þar ríkti alltaf gleði og hamingja sem hefur fylgt þeim alla tíð. Það var mikill hamíngjudagur í lífi þeirra þann 13. október 1972 þegar þau eignuðust dóttur sína Sigríði Margréti sem var skírð í höf- uðið á föðurömmu sinni. Tveimur árum síðar, 20. september 1974, eignuðust þau svo tvíburana Einar Geir og Bjarna Þór. Það var stoltur faðir sem hringdi í mig þennan morgun og tilkynnti okkur að þau hefðu eignast tvo syni. Fjölskyldan var orðin stór og þröngt í litlu íbúðinni. Einar réðst í að kaupa fokhelt raðhús í Hafnar- firði og vann þar öllum stundum sem gáfust frá annarri vinnu. Þó Einar væri rafvirki að mennt lék flest í höndum hans hvort sem það voru smíðar eða annað. Þau kunnu vel við sig i Hafnar- firðinum og þegar börnin stálpuðust fór Helga að geta sinnt hárgreiðsl- unni sem hún hafði lært og hafði mikinn áhuga á og settu þau upp hárgreiðslustofuna Carmen. Alltaf studdi Einar Helgu og hvatti í því sem hún tók sér fyrir hendur. Sitt framtíðarheimili bjuggu þau sér svo á Sævangi 28 og þar eru mörg handtökin bæði úti og inni sem minna á þennan vinnusama mann sem alltaf virtist samt hafa nægan tíma fyrir alla. Ófáar eru ferðimar til vina og vandamanna þegar ein- hverstaðar þurfti að gera við eða laga eitthvað, þar var Einar kominn með sitt hressilega fas og glaða við- mót að bjarga málunum. Einar var mikill útivistarmaður og voru margar hamingjustundir sem hann átti með fjölskyldu og vin- um uppi á ljöllum þar sem þau fóru um á vélsleðum á góðviðrisdögum. Það var gaman að hlusta á Einar þegar hann lýsti þessum ævintýra- ferðum, þessari himnesku fegurð og kyrrð vetrarnáttúrunnar. Það er erfitt að hugsa til þess að þessi trausti vinur sé farinn frá okk- ur og við eigum ekki framar eftir að heyra dillandi hlátur hans. Elsku Helga min, Sirrý, Einar og Bjarni, góður Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Guð hefur kallað hann til sín til mikilvægari verkefna og við trúum því að við eigum eftir að hitta hann síðar þegar okkar tími kemur. Við eigum öll ógleymanlegar minningar um ástríkan eiginmann og föður, traustan vin og dreng góð- an, og allar góðu samverustundirn- ar. Foreldrum hans og systkinum, tengdaforeldrum og börnum þeirra vottum við okkar dýpstu samúð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Lára og Kiddi Mig langar með nokkrum fátæk- legum orðum að minnast rníns besta vinar sem lést af slysförum þann 3. apríl sl. Síminn hringir að morgni þann 4. apríl, og Ágústa systir seg- ir með grátstafinn í kverkum að hann Einar hennar Helgu sé dáinn, og ég hugsa, það getur ekki verið hann Einar hennar Helgu hár- greiðslu. En því miður var það hann, hann af ölium öðrum, hann sem var all- staðar hrókur alls fagnaðar hvar sem hann var. Það er sama hvar og hvenær við hittumst, alltaf varð hann að koma með smá skot. Einar, Helga og börn fluttu á Breiðvanginn við hliðina á mömmu og pabba árið 1976, maður tók eftir þeim bæði fyrir glæsileika og svo voru þau ung að árum með þtjú ung börn, Sirrý þá 4 ára, fædd 72 og tvíburana Einar Geir og Bjarna Þór, þá 2 ára, fædda 74. Þau ár sem þau bjuggu á Breiðvanginum eða allt til ágúst ’85, en þá flytja þau á Sævanginn, var mikill samgangur á milli Breiðvangar 23 og 25. Og þó það væru tíu ár á milli míns og Enars þá má best sjá hve góður vinur vina sinna hann var, því hann sem minn besti vinur var besti vinur foreldra minna en þar eru 20 ár á milli. Enda veit ég að hans er mikið saknað af Breiðvanginum og missir pabbi einn af sínum bestu félögum. Þó svo að þau flytji á Sævanginn helst sambandið alltaf á milli, enda voru engar stórar veislur né afmæli að Einar og Helga voru ekki með. Enda voru mín orð þegar ég fór að trúa þessu, hver á þá að koma öllum í gott skap og koma fólki til að hlæja í veislum hér eftir. Þegar ég lít til baka er margs að minnast, allt svo fallegt og gott. Enda er vart að finna eins glæsileg hjón og samrýnd og Einar og Helgu. Hve góður og kær Einar var Helgu sinni og studdi hana í sambandi við hárgreiðsluna, hve góður faðir hann var börnunum sínum, hve góður vin- ur hann var vinum sínum mun aldr- ei gleymast. Elsku Helga mín, Sirrý, Einar Geir og Bjarni Þór, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Minningin um Einar mun ætíð lifa. Líney og fjölskylda. Hann Einar bróðir okkar er dá- inn! Fregnin var óvænt, alveg eins og brottför hans úr þessu lífi bar brátt að. Vegir Guðs eru órannsak- anlegir, en við trúum því að hann hafi verið kallaður til annarra og mikilvægari starfa handan mark- anna sem skilja milli lífs og dauða. Einar gekk í Frímúrararegluna 1988 og í stúkuna Glitni. Nú er skarð fyrir skildi í röðum okkar bræð- ranna, en minningin um Einar lifir í hugum okkar. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Davíðsson, Isl. orðsnilld) Einar var hógvær í allri fram- göngu sinni en þótt hann gerði ekk- ert til að láta á sér bera varð maður alltaf var við nærveru hans, jafnvel í margmenni. Ekki er gott að henda reiður á hvað olli því að eftir honum var tekið. Hann var rétt rúmlega meðalmaður vexti, en hann virtist vera stór. Fas hans bar með sér traust og festu, en um leið rósemi og lítillæti. Handtak hans var þétt og höqdin hlý. Minningin um Einar er minning um góðan dreng, félaga og bróður. Guð blessi konu hans, Helgu Bjarnadóttur, börnin Sigríði Margréti, Einar Geir, Bjarna Þór og aðra aðstandendur og gefi þeim styrk til að bera missinn og sorgina. „Maður skal eftir mann lifa.“ F.h. Glitnisbræðra, M.A. . Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna Guð þerri tregatárin stríð. V. Briem. Við urðum harmi slegin er við fengum þá sorgarfregn að vinur okkar hefði látist af slysförum. Ein- ar var góður drengur og við minn- umst þess hve gott var að koma á heimili þeirra Einars og Helgu, og voru móttökur ætíð hlýjar og var oft glatt á hjalla. Einar var ávallt hress og kátúr og gaman að vera í návist hans. Hann var tryggur vinur og alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd og sýna góðvild á ýmsan hátt. Svo nú er höggvið stórt skarð í vina- hóp okkar. Samband Einars og Helgu var mjög náið og gott og fjöl- skyldulíf til fyrirmyndar. í dag kveðjum við góðan vin og vottum foreldrum hans, tengdafor- eldrum, systkinum og flölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Elsku Helga okkar, Sirrý, Einar Geir og Bjarni Þór, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur og blessa í ykkar miklu sorg. Minningin um góðan vin mun ávallt lifa. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V; Briem.) Ragnar, Alda, Oskar Vigfús, Kristín Ósk, Jónas og Ágústa. Það fór um mig ónota tilfinning þegar síminn hringdi um miðnætti þennan örlagaríka dag og í símanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.