Morgunblaðið - 11.04.1990, Síða 48
SJQVAriTTALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Blómasalar
bíða í röðum
um nætur
(VatJNDANFARNAR vikur hafa
blómasalar á höfiiðborgarsvæð-
inu byrjað að mynda biðraðir
fyrir utan Réttarháls 2 í
Reykjavík, þar sem blómaheild-
sölurnar tvær, Blómamiðstöðin
og Blómaheildsalan eru til húsa,
um miðjar nætur flesta daga vik-
unnar.
Að sögn Bóasar Kristjánssonar
blómasala er helsta ástæðan sú að
um áramót hættu heildsölurnar,
sem eru í eigu garðyrkjubænda, að
keyra vörur sínar út til viðskipta-
vina og vegna takmarkana á inn-
flutningi á blómum er, um háanna-
tímann frá mars til maí, ekki nægi-
lega mikið til af blómum í hæsta
IJ^æðaflokki til að anna eftirspurn.
Ekki er þó efnt til uppboðs á staðn-
um og sjaldgæft mun að kaupmenn
verði frá að hverfa án blóma en að
sögn Bóasar reka auknar kröfur
neytenda blómasala til að komast
fremst í röðina til að geta valið sér
blóm meðan úrvalið er mest. Hann
sagðist eiga von á að um hægðist
í sumar þegar háannatíminn væri
liðinn og framleiðsla innanlands
næði hámarki.
'Havel gef-
ur fé til
skógræktar
í tilefni af
sextugsaf-
mæli Vigdís-
ar Finnboga-
dóttur, for-
seta Islands,
sendir Vacl-
av Havel,
forseti
Tékkóslóva-
^.kíu, henni
heillaóskir og gefúr 100.000
íslenskar krónur sem renni
til skógræktar.
Georg Zeman, sendifulltrúi
Tékkóslóvakíu á íslandi, til-
kynnir Vigdísi Finnbogadóttur
í dag um gjöfina frá Vaclav
Havel en henni fylgja innilegar
hamingjuóskir til forseta Is-
lands vegna sextugsafmælis
hennar næstkomandi sunnu-
dag.
Vaclav Havel kom hingað til
lands um miðjan febrúar og sá
sýningu á leikriti sínu Endur-
byggingin í Þjóðleikhúsinu.
Vaclav Havel
Hafdísi gefíð nafíi
Morgunblaðið/Sverrir
Kaflaskipti urðu hjá Flugleiðum í gærmorgun þegar ný Boeing 757-
flugvél félagsins lenti í fyrsta skipti á Keflavíkurflugvelli. Ástríður
Thorarensen borgarstjórafrú jós vélina vatni og gaf henni nafnið
Hafdís. Hin nýja flugvél kostar með varahlutum og fleiru um 50 millj-
ónir bandaríkjadala eða um 3000 milljónir íslenzkra króna. Tvær vélar
ar eru í smíðum fyrir Flugleiðir hjá Boeing-verksmiðjunum. Önnur er
sömu gerðar og Hafdís af gerðinni 757 en hin vélin er af gerðinni
737. Hún hefur hlotið nafnið Fanndís. Báðar þessar vélar koma til
landsins í vor. Hafdís verður notuð til flugs yfir Norður-Atlantshafið.
Sjá nánar um komu Hafdísar á miðopnu blaðsins.
Miðlunartillaga samþykkt og verkfalli lokið:
Framleiðsla álversins í full-
an gang eftir 4 til 5 vikur
Framleiðslutap í verkfallinu 30 til 40 milljónir króna
VERKAMENN í álverinu í
Straumsvík samþykktu miðlun-
artillögu ríkissáttasemjara með
156 atkvæðum gegn 111, en einn
seðill var auður og vinnuveitend-
ur samþykktu miðlunartiilöguna
einnig með 15 samhljóða atkvæð-
um. Verkfalli í álverinu er því
lokið, en það hefúr staðið yfír frá
miðnætti fostudagsins 30. mars.
Þegar verður hafist handa um
að auka straum á kerum álvers-
Fjárhags- og viðskiptaneftid neðri deildar Alþingis:
Viðskipti með hluta-
bréf verði auðvelduð
LAGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um tekju- og
^l'ignarskatt, sem meðal annars gerir ráð fyrir að hagnaður af sölu
hlutabréfa verði skattfrjáls upp að 300 þúsund króna marki, hafi
þau verið í eigu viðkomandi aðila í 4 ár. Frumvarpið er lagt fram
af Qárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar og er byggt á frum-
varpi, sem Friðrik Sophusson og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
í deildinni lögðu fram fyrr í vetur.
stað 10% í núgildandi lögum. Einn-
ig er gert ráð fyrir að hlutabréfavið-
skipti á Verðbréfaþingi íslands
verði auðvelduð með þvf að ekki
þurfi að telja hlutabréf til eignar á
um
Auk ofangreinds ákvæðis
söluhagnað er í frumvarpinu gert
•iw'áð fyrir að heimilt verði að miða
'skattfrjálsar arðgreiðslur við allt
að 15% af nafnvirði hlutabréfa í
kaupþingsverði, þótt þau séu skráð
á opinberu kaupþingi.
Friðrik Sophusson segir það
fagnaðarefni, að þetta nýja skref
hafi verið stigið til að ýta undir
hlutaijárkaup almennings og efla
markað með hlutabréf. Með .þessu
hafi fjárhags- og viðskiptanefnd
neðri deildar sýnt í verki skilning á
tillöguflutningi sjálfstæðismanna á
Alþingi.
Sjá nánar á þingsíðu bls. 29.
ins og á hann að vera að fúllu
kominn á eftir sex daga. Hins
vegar er reynsla fyrir því að
straumlækkunin veldur truflun í
kerganginum og því má búast
við að það taki fjórar til Gmm
vikur fyrir framleiðsluna að kom-
ast í það ágæta horf, sem hún
var í fyrir verkfall, að sögn Jak-
obs Möllers, starfsmannastjóra
ÍSAL. Búast má við að fram-
leiðslutap vegna verkfallsins
nemi 30-40 milljónum króna.
Verkamenn í Hlíf sem höfðu at-
kvæðisrétt voru 294 og atkvæði
greiddu 268 eða 91,1%. Til saman-
burðar greiddu rétt rúm 60% at-
kvæði um samninginn þegar hann
var felldur með 98 atkvæðum gegn
77, fjórir seðlar voru auðir og einn
ógildur.
Jakob sagðist vera mjög ánægð-
ur með þessa niðurstöðu. Samning-
arnir sem gerðir hefðu verið væru
mjög mikilvægir fyrir fyrirtækið og
það hefðu vissulega verið mikil von-
brigði að Hlíf skyldi fella þá, en
þáttaka í atkvæðagreiðslunni hefði
verið minni en oftast áður í at-
kvæðagreiðslu um samninga í ál-
verinu.
„Eftir að miðlunartillagan kom
fram var ég mjög bjartsýnn á að
hún yrði samþykkt, enda hefur svo
farið,“ sagði Jakob. Hann sagði að
engin eftirmál yrðu eftir þessa deílu
af hálfu fyrirtækisins. Niðurkeyrsla
framleiðslunnar á verkfallstíma
hefði farið nákvæmlega eftir því
samkomulagi sem þar væri um og
enginn ágreiningur komið upp sem
ekki hefði reynst auðvelt að leysa.
„Það á hins vegar eftir að fram-
kvæma þennan samning og það
kunna að verða deildar meiningar
þá, en ég býst ekki við neinum
vandkvæðum."
„Þetta er niðurstaða og ánægjan
er blandin," sagði Sigurður T. Sig-
urðsson, formaður verkamannafé-
lagsins Hlífar. Hann sagði að það
væri mikill órói á vinnustaðnum og
hann hefði skapast vegna óheppi-
legra vinnubragða, eins og alltaf
væri þegar ætti að þvinga fólk til
einhvers. Málefni sem hefði átt að
leysa fyrir fimm árum eða lengri
tíma væru dregin og dregin og þeg-
ar loks væri tekið á þeim væri það
gert þannig að það eina sem fólk
dytti í hug væri gerræði. „Fólki
finnst því stillt upp við vegg og það
sé verið að kúga það og við erum
öll þannig að þá rísum við upp. Af
minni hálfu og verkamannafélags-
ins Hlífar hefur þetta engin eftir-
kaup, en ég er reynslunni ríkari,"
sagði Sigurður.