Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 15
MPfiGUiNBLAÐIÐ FÖSTUpAGURflA-jy^ *P9Q; 15 VALDDREIFIN G eftir Birgi ísleif Gunnarsson Stuttu fyrir þinglok samþykkti Alþingi eftirfarandi þingsályktun- artillögu: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að kanna skipulega í samvinnu við Samband ísl. sveitarfélaga og landshluta- samtök sveitarfélaga hvernig best verði staðið að frekari tilfærslu á verkefnum og tekjustofnun frá ríkinu til sveitarfélaga og héraða." Tillaga þessi var flutt af grein- arhöfundi, ásamt þremur öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þeim Geir H. Haarde, Salome Þor- kelsdóttur og Guðmundi H. Garð- arssyni. Henni var vísað til athug- unar félagsmálanefndar samein- aðs þings sem leiðaði umsagna fjölmargra aðila. Niðurstaðan varð sú að nefndin varð sammála um að leggja tiLað tillagan yrði sam- þykkt með því orðalagi sem fram kemur að ofan, þ.e. orðið „héruð“ er notað jöfnum höndum með orð- inu „sveitarstjórnir." Ný verkaskipting Vorið 1989 voru samþykkt á Alþingi ný lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þau lög eru góður áfangi að skýrari verka- skiptingu þessara aðila. Þegar upp er staðið eftir þann áfanga kemur þó í ljós að í raun voru fleiri verk- efni færð til ríkisins en til sveitar- félaganna. Hugmyndir um að efla sjálfstæði sveitarfélaganna, færa valdið út í héruðin og draga úr miðstýringu, náðist ekki nema að litlu leyti fram við þessa lagasetn- ingu. Eg hef því verið þeirrar skoð- unar að það sé nauðsynlegt að hefja nú þegar að nýju sk-ipulega vinnu við breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem markmiðið verði að sveitarfélögin fái aukin verkefni. Sem dæmi um slík verkefni má nefna heilsu- gæslu, grunnskóla, löggæslu og málefni fatlaðra. Jafnframt aukn- „Ég hef því verið þeirr- ar skoðunar að það sé nauðsynlegt að hefla nú þegar að nýju skipulega vinnu við breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem markmiðið verði að sveitarfélögin fái aukin verkefni.“ um verkefnum til sveitarfélaga þarf að flytja tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga þannig að heildar- skattbyrði aukist ekki. Með samþykkt þessarar tillögu hefur Alþingi markað mjög mikil- væga stefnu. Það er ánægjulegt Birgir ísleifur Gunnarsson að á Alþingi skuli vera samstaða um það að æskilegt sé að stuðla að frekari valddreifingu í þjóðfé- laginu með því að sveitarfélög, héraðsnefndir eða önnur samtök, sem mynduð kunna að verða, taki við verkefnum frá ríkinu. Tryggja þarf að nauðsynlegir tekjustofnar fylgi með. Þetta er ekki síst ánægjulegt þegar haft er í huga að núverandi ríkisstjórn hefur ekki sýnt mikinn áhuga á valddreif- ingu. Þvert á móti hefur miðstýr- ing og skipulagshyggja einkennt störf hennar. Undirbúningur að nýrri löggjöf um verkefnatilfærslu þarf að vera vandaður og í því efni er nauðsyn- legt að taka mið af fenginni reynslu hérlerídis og í nágranna- löndunum. Reynslan hefur sýnt að aðdragandi að lagasetningu um þessi efni hefur verið langur hér á landi, samanber undirbúning að löggjöfinni frá því í maí 1989. Ríkisstjórnin hefur hins vegar nú fengið bein fyrirmæli frá Alþingi um að hefja störf að þessu verk- efni og þess er að vænta að nú verði hendur látnar standa fram úr ermum við undirbúning nýrrar löggjafar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er einn af alþingismönnum Sjlfstæðisflokks fyrir Keykja vík urkjördæmi. Þarna sérðu Magnús og Dóru ú heimleið eftir SVi órs útivist. Þau létu drauminn rætust ún þess uð ganga ó eigur sínur. Þau hjónin komu að landi 2. júní sl. og höfðu þá siglt u.þ.b. 40.000 sjómílur. Fyrir nokkrum árum ákváðu þau að selja íbúðina og láta drauminn rætast, - að sigla á skútu til framandi slóða, laus við áhyggjur hins venjubundna lífs. Dóra og Magnús hafa nú verið á ferðinni í 5Vi ár. Spánn, Kanaríeyjar, Grænhöfðaeyjar, Suður-Ameríka, Panamaskurðurinn, Kyrrahafseyjar, Ástralía, Indlandshaf, Súesskurður og Miðjarðarhaf eru nokkur þeirra svæða sem þau nutu í félagi við hafið og skútuna Dóru. Allan tímann var andvirði íbúðarinnar í vörslu Verð- bréfamarkaðarFjárfestingarfélagsins. Vextir umfram verðbætur sem þar fengust nægðu þeim til framfærslu í þessari frábæru ferð. Eftir ógleymanlega hnattferð standa þau Qárhagslega í sömu sporum og áður, því að uppreiknaður höfuðstóll stendur óhaggaður. Þau gætu þess vegna keypt sömu íbúð aftur. Velkomin heim Dóra og Magnús, - og til hamingju! VERÐBRÉFAMARKAÐU R FjÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. , HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI 689700 AKUREYRI11100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.