Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 15. JUNI 1990 Sláturfélag Suðurlands: Rúmlega 90 milljóna króna rekstrartap varð á síðasta ári Á AÐALFUNDI Sláturfélags Suð- urlands, sem haldinn var á Hvols- velli í gær, kom fram að rekstr- artap fyrirtækisins á síðasta ári var rúmlega 91 milljón króna, en árið áður nam tapið um 274 millj- ónum króna. Heildarskuldir fyrir- tækisins eru nú orðnar rúmlega tveir milljarðar króna. Að sögn Steinþórs Skúlasonar, forstjóra Sláturfélagsins, varð 47 milljóna króna hagnaður af rekstri fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði á síðasta ári. „Fjármagnsliðirnir eru mjög háir og við enduðum með tap upp á 91 milljón. Inn í þetta spilar afskrift á kröfu í dótturfélag Slátur- félagsins upp á 27 milljónir, tap á skinnalager upp á 34 milljónir og tap á vörumiðstöð og smásöluverslun upp á rúmlega 20 milljónir. Þá er ótalinn kostnaður við að eiga nýbygginguna í Laugarnesi. Miðað við að þetta sé allt frá, þá erum við að horfa á miklu betri rekstur í ár, en hins vegar telj- um við óraunhæft að reikna með hagnaði fyrr en við erum lausir við Laugamesið." Á aðalfundinum var samþykkt tii- laga um stuðning við hugmyndir stjórnar Sláturfélagsins um að flytja kjötvinnslu þess á Hvolsvöll, og jafn- framt að ríkisstjómin leggi því máli lið. Steinþór sagði að það væri ein- dreginn vilji félagsmanna að fara þessa leið ef forsendur væru til stað- ar. „Það byijar auðvitað á sölu ný- byggingar Sláturfélagsins í Laugar- nesi, en sú 600 milljóna króna fjár- festing skilar engum arði og hleður á sig kostnaði. Við emm búnir að selja öll hlutabréf okkar í Vömhúsinu á Eiðistorgi, þannig að þar með er þetta í raun og vem eina stóra mál- ið sem er óleyst," sagði hann. Heildaraflinn í maí: Um tvö þúsund tonnum minni afli en í fyrra SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands var heildarafli landsmanna í maímánuði 74.407 tonn, en það er um tvö þúsund tonnum minni heildarafli en í sama mánuði í fyrra. Heildaraflinn frá áramótum var i lok maí orðinn 932.600 tonn, en á sama tímabili í fyrra var hann orðinn 945.400 tonn. Stærsti trúðurEvrópu Þessi trúður, sem er hálfur fímmti metri á hæð, leit dagsins ljós í gær og í dag fer hann til síns heima, sem verður Tívolíið í Hvera- gerði. Ólafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri Tívolísins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að hann vissi ekki betur en þama væri kominn stærsti trúður Evrópu og sagðist hann myndu efna til sam- keppni meðal tívolígesta um nafn á kappann. Trúðinn gerðu Stígur Steinþórsson og Þorvaldur Böðvar Jónsson hjá Sviðsmyndum og það eru þeir sem ásamt Ólafi stilltu sér upp við trúðinn, þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins tók myndina. Miðasalan hefst 20. júní. Ekki verður hægt að panta miða, en þeir verða seldir í Laugardalshöll- inni og hefur miðaverð. verið ákveð- ið um kr. 4.000 og seldir verða 3.000 til 3.500 miðar. Að ósk Dyl- 'ans verðá élftgöngu sætí t Láúgár- dalshöllinni og stendur til að hafa sæti riúmeruð. Dýrustu miðarnir á Listahátíð voru miðar að sýningum dansara frá San Francisco ballettnum, en þeir kostaðu'2.200 krónur........... Við skoðun á heildaraflanum í maí kemur í Ijós að þorskur í aflanum er nú 5.000 tonnum meiri en i maí í fyrra, ýsa er 3.500 tonnum meiri, ufsi er 3.900 tonnum meiri, karfi er 730 tonnum meiri og skarkoli er 300 tonnum meiri. Hins vegar er grálúða 16.300 tonnum minni og steinbítur 230 tonnum minni. Annar botnfiskur er .580 tonnum meiri, rækja 160 tonnum meiri, hörpudiskur 247 tonn- um meiri og humar 213 tonnum meiri. Morgunblaðið/Þorkell Hefiir sungið í Scala, Metrópolitan og Vín ítalska sópransöngkonan Fiamma Izzo D’Amico kom til landsins í gær til þess að syngja á tónleikum í Háskólabíói á laugardag. Uppselt er á þessa lokatónleika Listahátíðar í Reykjavík. D’Amico er aðeins 26 ára gömul en hefúr þó sungið í helstu óperuhúsum heims með stórstjörnum eins og Luciano Pava- rotti, Jose Carreras og Placido Domingo. Á myndinni sést Sig- urður Björnsson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands heilsa D’Amico á Hótel Holti þar sem söngkonan býr meðan hún dvelur hér. Sjá fréttir af dagskrá Listahátiðar á bls.21. Lægri umsóknir eftir breytingu á aflamiðlun Tónleikar Bobs Dylans: Miðinn á rúm fjögur þúsund MIÐI á tónleika Bob Dylans mun kosta rúmlega 4000 krónur að því er Egill Helgason, blaðafulltrúi Listahátíðar, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær. Hversu mikið á fímmta þúsundið miðinn kosíar hefur að sögn Egils ekki verið ákveðið endanlega, en hins vegar hefúr verið ákveðið hvernig miðasölunni verður háttað. Tónleikar Bobs Dylans verða Listahátíðarauki 27. júní. „ÞAÐ sýnir sig strax eftir að fresturinn frá umsókn að úthlut- un hefúr verið styttur, að um- sóknirnar eru mun raunhæfari en áður. Nú var sótt um leyfi til að flytja 1600 tonn af ýsu og þorski á Bretlandsmarkað, en að undanfornu hafa umsóknir legið nærri 2600 tonnum,“ segir Sigur- björn Svavarsson formaður stjórnar aflamiðlunar. Fyrsta út- hlutun útflutningsleyfa á fersk- um fiski, eftir að reglum aflamiðl- unar var breytt, fór fram í gær. Til úthlutunar komu um 1.000 tonn af þorski og ýsu í skipum og gámum á Bretlandsmarkað. Þar af fá skip leyfi til að sigla með 325 tonn. Á Þýskalandsmarkað var út- hlutað 260 tonnum af ufsa og karfa í gámum og auk þess gert ráð fyr- ir að í skipum færu um 230 tonn í næstu viku. Þá gaf aflamiðlun leyfi til að flytja 110 tonn af karfa og ufsa í gámum til Belgíu og Frakklands. Að sögn Sigurbjörns fengu 44 aðilar leyfi til útflutnings í gámum, Grundarfj örður: Nýr prestur í Set- bergsprestakalli Grundarflrði. SIGURÐUR Kristinn Sigurðsson cand. theol. var í gær kjörinn bindandi kosningu sem sóknar- prestur í Setbergsprestakalli. Hann hlaut átta af tíu atkvæðum. Kosningin fór fram á kjörfundi með prófasti Snæfells- og Hnappa- dalssýslu, sr. Ingiberg J. Hannes- syni, sem haldinn var í safnaðar- heimili Grundarfjarðarkirkju. Sigurður Kristinn Sigurðsson tekur vígslu 24. júní. Eiginkona hans er Kristín Johannesdóttir kennari og organisti. Auk Sigurðar sóttu séra Karl Matthíasson ísafirði og séra Ragn- heiður Erla Bjarnadóttir Raufar- höfn. Ragnherður en á þeirra snærum eru yfir 150 Otto Wathne NS 90, Páll ÁR 401, skip. Og 5 skip sigla utan með afla Náttfari HF 185,.Halldóra HF 61 í næstu viku. Þetta eru togararriir og Vigri RE 71. Óttumst að ákvarð- anir sfy’órnvalda leiði af sér hækkanir - segir framkvæmdastj óri Félags íslenskra stórkaupmanna SAMSTARFSRÁÐ verslunarinnar hefúr sent Steingrími Hermanns- syni, forsætisráðherra, bréf þar sem skorað er á stjórnvöld að hætta við að leggja niður greiðslufrest á virðisaukaskatti í tolli. Jaftiframt er skorað á ríkisstjórnina að standa við fyrirheit um að leggja niður jöfiiunargjald. Árni Reynisson, framkvæmdastjóri Skrifstofú viðskipt- alífsins, segir að innan samtaka verslunarinnar vilji menn halda að sér höndum í sambandi við verðhækkanir, en óttist að ákvarðanir stjórnvalda kunni að leiða af sér hækkanir. Ámi Reynisson segir, að Sam- starfsráð verslunarinnar hafi áhyggjur af því að ekki takist að halda verðhækkunum í skefjum þegar líða tekur á árið. Menn innan samtaka verslunarinnar vilji halda að sér höndum, en óttist hins vegar að ákvarðanir stjómvalda geti kom- ið skriðu verðhækkana af stað. Hann nefnir, að um síðustu ára- mót hafi verið ákveðið að stytta og fella síðan niður greiðslufrest á virðisaukaskatti í tolli, en það leiði af sér aukna fjárbindingu og kostn- aðarhækkanir við innflutning, sem hafi i för með sér verðhækkanir og aukinn vaxtakostnað. Því sé mikil- vægt að ríkisstjómin breyti þessari ákvörðun sinni. Ámi segir að einnig skipti miklu að staðið verði við þá ákvörðun að fella niður 5% jöfnunargjald á inn- flutning. í fjárlögum hafi verið gert ráð fyrir tekjum af því í hálft ár, en ekki bólaði enn á aðgerðum til að fella það niður. Hann segir að þessar aðgerðir séu til þess fallnar að tryggja stöð- ugt verðlag. „Það má ekki gleym- •ast; að-verslunin á það sameiginlegt- með neytendum, að hag hennar er best borgið i stöðugu verðlagi. Hér væri því verið að neyða menn út í það sem þeir ekki vilja, ef aðgerðir ríkisstjómaripnar leiða til hækk- ana,“ segir Ámi Reynisson. Sjá bréf Samstarfsráðs verslun- arinnar á bls.27 Árnesprestakall: Sr. Jón ísleifs- son kosinn sókn- arprestur SÉRA Jón ísleifsson hefúr verið kosinn sóknarprestur í Árnes- prestakalli á Ströndum. Hann var eini umsækjandinn um prestakallið og hlaut lögmæta kosningu. Sr. Jón ísleifsson þjónaði til skamms -tíma í- Sauðlauksdal. - - J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.