Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 19 Virðisaukaskattur á áburð: Trúi ekki öðru en að við fáum leiðréttingn - segir Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri SVEINN Runólfsson, land- græðslustjóri, segir að álagning virðisaukaskatts á áburð komi afar illa við landgræðslustarfið. Hann trúi hins vegar ekki öðru en að Landgræðsla ríkisins fái einhverja leiðréttingu vegna þessa. „Við erum bjartsýnir og trúum því ekki öðru en að það verði fund- in leið til að Landgræðsla ríkis fái einhveija leiðréttingu vegna álagn- ingar virðisaukaskatts á áburðinn, enda kemur þetta afar illa við land- græðslustarfið,“ segir Sveinn Run- ólfsson. Landgræðsla ríkisins þarf að greiða 24,5% virðisaukaskatt af þeim ábut'ði sem hún kaupir, en fram til áramóta var hann undan- þeginn söluskatti. Stofnunin fær innskattsfrádrátt, ef hún selur áburðinn til þriðja aðila, en ekki vegna þess áburðar, sem hún dreif- ir sjálf. Landgræðslustjóri segir að þetta þýði þó ekki 24,5% samdrátt í upp- græðslustörfum miðað við síðasta ár. Framlög til Landgræðslunnar á fjárlögum hafi hækkað ívið meira en verðbólgan, auk þess sem virðis- aukaskattur vegna áburðar, sem bændur og aðrir samstarfsaðilar Landgræðslunnar dreifi, fáist end- urgreiddur. Hins vegar komi þetta sér auðvitað afar illa. Sighvatur Björgvinsson, formað- ur fjárveitinganefndar Alþingis, segir að við gerð fjárlaga fyrir þetta ár hafi ekki verið gert ráð fyrir auknum framlögum til Landgræðsl- unnar til að mæta þeim kostnaði, sem álagning virðisaukaskattsins hafi í för með sér. Ekki hafi heldur verið gert ráð fyrir að Landgræðsl- an fengi skattinn endurgreiddan. Fjölmargar aðrar stofnanir, sem einnig ynnu góð verk, þyrftu líka að standa skil á þessum skatti. „Með upptöku virðisaukaskatts- ins var ætlunin að fækka undan- þágum eins og hægt var, þannig að allir verði jafnir fyrir lögunum," segir Sighvatur. „Það er því miður staðreynd, sem fólk verður að átta sig á, að ef ríkið ætlar að halda uppi félagslegri þjónustu verður að afla til þess fjár með skattheimtu.“ lllgllliuuuu.1 CJUIl v Iv/ V.1U. na 011111(1. Ólafsvík: Einar Ingimundarson sýnir EINAR Ingimundarson málara- meistari í Borgarnesi sýnir olíumálverk í Ólafsvík dagana 16. og 17. júní. Hann hefúr sýnt í Stykkishólmi undanfarna daga en flytur sýninguna nú til Ólafsvíkur. Einar opnar næst sýningu í Eden í Hveragerði 9. júlí. Flestar myndanna eru málaðar upphaflega á árunum 1951-52, en hann hefur lokið þeim á síðustu mánuðum. Myndirnar eru flestar frá Snæfellsnesi. Einar Ingimundarson nam húsamálun og starfaði lengst af við iðnina í Borgarnesi. Hann fékk ungur áhuga á málverkinu og hélt sína fyrstu sýningu átján ára gamall. Hann hóf hám í Handíða- og myndlistaskólanum og fór utan til framhaldsnáms í Þýskalandi og síðar í Svíþjóð. Hann hefur haldið allmargar sýningar á und- anförnum árum. NÚ ER HANN ÞREFALDUR! UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.