Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
FRJALSAR IÞROTTIR
Meistaramótið um helgina
Flest besta frjálsíþróttafólk íslands meðal keppenda í Mosfellsbæ
Ikvöld
Leik Vals og ÍBV, síðustu
viðureign fímmtu umferðar
1. deildarinnar í knattspyrnu,
var aftur frestað í gær, annan
daginn í röð. Ekki var hægt
að fljúga frá Eyjum vegna
veðurs. Stefnt er að því að
leikurinn fari fram í kvöld kl.
20.
■Heil umferð er á dagskrá í
2. deild í kvöld. Leikirnir, sem
hefjast allir kl. 20, eru: Víðir-
Selfoss, UBK-Leiftur,
Grindavík-ÍR, Tindastóll-ÍBK
og Fylkir-KS.
HANDBOLTI
Stuðningsmenn
Hauka stofna klúbb
Haukar leggja allt kapp á að endur-
heimta sæti sitt í 1. deild og hafa sjö
leikmenn gengið til liðs við félagið að
undanfömu, en undirbúningur fyrir
komandi keppnistímabil er um það bil
að hefjast. Tékkinn Peter Baummk
kemur til landsins á næstunni, Steinar
Birgisson og Snorri Leifsson koma frá
Noregi, Magnús Árnason og Einar
Hjaltason úr FH, Pétur Ingi Arnason
úr UBK og Siguijón Sigurðsson úr
Val.
Stuðningsmenn liðsins ætla ekki að
^ láta sitt eftir liggja og í kvöld klukkan
20 verður stofnfundur stuðnings-
mannaklúbbsins í Haukahúsinu.
GOLF
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsum íþróttum verður hald-
ið um helgina, 16.-18. júní.
Keppnin fer f ram á nýja vellin-
um í Mosfellsbæ og sér UMFA
um framkvæmdina. Mótið
hefst kl. 15.00 á morgun og
stendur til kl. 18.00. A sunnu-
dag stendur keppnin frá kl.
14.00 til 17.25 og á mánudag
frá kl. 18.30. Keppendur á mót-
inu verða rúmlega 200.
Flest besta frjálsíþróttafólk ís-
lands verður meðal keppenda á
mótinu og má búast við spennandi
keppni í mörgum greinum. íslands-
meistaramótið er eitt af stigamót-
um FRÍ þannig að um er að ræða
harða keppni þar sem mjótt verður
á mununum hjá þeim efstu í hverri
grein.
I kringlukasti verða Vésteinn
Hafsteinsson HSK og Eggert Boga-
son UMSK, báðir með. Eggert verð-
ur með þrátt fyrir meiðsli sem hann
hlaut síðastliðinn mánudag þegar
hann fékk sleggju í öxlina. Sigurður
Matthíasson spjótkastari er nýkom-
inn frá Bandaríkjunum og kastaði
þar í vor 79,56 metra sem er vel
yfir lágmarkinu á Evrópumeistara-
mótið sem fer fram nú í haust.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
verður einnig meðal keppenda.
Keppni í köstum kvenna hefur ver-
ið nokkuð jöfn, en Birgitta Guðjóns-
dóttir UMSE, hefur náð langbestum
árangri í spjótkasti. Þá hefur Guð-
rún Ingólfsdóttir USÚ, íslandsmet-
hafi í kringlukasti og kúluvarpi
hafið keppni á ný.
Hörð keppni á hlaupabrautinni
í langhlaupum er búist við spenn-
andi keppni milli Gunnlaugs Skúla-
sonar UMSS og Frímanns Hreins-
sonar FH, en Martha Ernstdóttir
ÍR-ingur hefur þó nokkra yfirburði
hjá kvenfólkinu. í millivegalengdum
munu FH-ingarnir Guðmundur
Skúlason, Steinn Jóhannsson, Finn-
bogi Gylfason ásamt Friðriki Larsen
HSK, líklega berjast um sigurinn.
I kvennaflokki stendur baráttan
líklega milli Fríðu Þórðardóttur
UMFA, Mörthu Ernstdóttur ÍR og
Margrétar Brynjólfsdóttur UMSB.
Einar Þ. Einarsson Ármanni, er
hæstur að stigum í stigakeppninni
og hefur haft nokkra yfirburði í 100
metra hlaupi. Hann hefur meðal
annars náð lágmarkinu fyrir Heims-
meistaramót unglinga. KR-ingur-
inn Egill Eiðsson verður meðal
keppenda eftir að hafa átt við
meiðsli að stríða. Þá verður Oddur
Sigurðsson FH , meðal keppenda í
400 metra hlaupi. Meðal keppenda
hjá konunum verða Guðrún Árnar-
dóttir UBK, Súsanna Helgadóttir
FH, Helga Halldórsdóttir KR, Geir-
laug B. Geiriaugsdóttir Ármanni og
Oddný Árnadóttir ÍR. Búist er við
spennandi keppni í 100 og 200
metra hlaupi, en Oddný hefur haft
yfírburði í 800 metrum undanfarið.
Gísli Sigurðsson UMSS, Auðunn
Guðjónsson HSK og Hjörður Gísla-
son UMSE hafa allir hlaupið á mjög
svipuðum tíma í 110 metra grind
nú í vor og verður örugglega um
harða keppni að ræða milli þeirra.
Hjá kvenfólkinu verða Þuríður Ing-
varsdóttir HSk, Halldís Höskulds-
dóttir Ármanni og Guðrún Arnar-
dóttir UBK meðal keppenda. Helga
Halldórsdóttir KR, Islandsmethafi
í 100 og 400 metra grindahlaupi
mun keppa í 400 metra grind.
Þríþraut kvenna í fyrsta skipti
Búist er við jafnri keppni í há-
stökki karla þar sem Gunnlaugur
Grettisson HSK og Einar Kristjáns-
son FH verða meðal keppenda. Þá
mun Sigurður T. Sigurðsson keppa
í stangástökki. í hástökki kvenna
hafa Þórdís Gísladóttir HSK og
Þóra Einarsdóttir UMSE stokkið
sömu hæð 1.75 metra. í langstökki
hafa HSK mennirnir Jón A. Magn-
ússon og Ólafur Guðmundsson náð
bestum árangri karla, en hjá konun-
um Bryndís Hólm ÍR og Súsanna
Helgadóttir FH. Friðrik Þór Frið-
riksson ÍR, keppir í þrístökki og
verður gaman að sjá hvort að yngri
keppendur nái að veita honum ein-
hveija keppni. Á þessu íslands-
meisraramóti verður í fýrsta sinn
keppt í þrístökki kvenna.
Úlfar í 2. sæti
- eftirfyrsta dag á Opnu Evrópumóti áhugamanna, á
67 höggum, tveimur undir gamla vallarmetinu •
17. júnímótGR
Golfklúbbur Reykjavíkur stend-
ur fyrir golfmóti í Grafarholti
á sunnudaginn, 17. júní. Leikin
verður 18 holu höggleikur með for-
gjöf. Einnig verða veitt verðlaun
fyrir besta skor. Veitt verða pen-
ingaverðlaun.
BMW-mótið sem fram átti að
fara í Grafarhoti um helgina var
frestað.
■Opna bandaríska meistaramótið
hófst í gær. Opið hús verður í skála
GR í Grafarholti þegar sýnt verður
beint frá keppninni um gervihnött,
fram á sunnudag.
I
Úlfar Jónsson.
ULFAR Jónsson, Golfklúbbnum
Keili í Hafnarfirði, byrjaði vel á
Opna Evrópumótinu í golfi,
sem hófst í Álaborg í Dan-
mörku í gær. Úlfar fór á 67
höggum og var í 2. sæti eftir
fyrsta keppisdag, en 140 golf-
arar eru með og var þátttaka
bundin við þann fjölda. Vallar-
metið fyrir keppnina var 69
högg.
voávier frá Ástralíu náði best-
um árangri í gær, notaði einu
höggi minna en Úlfar og fór á 66
höggum. Floria frá Ítalíu var í þriðja
sæti á 68 höggum.
Þrír íslendingar keppa á mótinu
og tókst hinum tveimur ekki eins
vel upp. Siguijón Arnarsson fór á
78 höggum og er í 85. sæti, en
Ragnar Ólafsson notaði 81 högg,
sem þýðir 115. sæti. Vafasamt er
að þeir komist áfram, en keppnin
heldur áfram í dag.
Kópavoqsvöllur
2. dcild
Breiðablik - Leiftur
í kvöld kl. 20:00
BYKO
AUK/SlA k10d11-156
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Þorbergur hefur
valið hóp sinn
- sem mætirlandsliðum Kuwait, Dan-
merkur og Noregs eftir hálfan mánuð
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
hefur valið hóp leikmanna til æfinga í sumar. Helsta verkefni
landsliðsins verður þátttaka í Friðarleikunum íSeattle í júlí. En
um næstu mánaðarmót verður fjögurra þjóða mót hér á landi
með þátttöku Dana, Norðmanna og Kuwaitbúa og er það liður
í Íþróttahátíð ÍSÍ sem fram fer 28. júní til 1. júlí. Leikið verður í
Hafnarfirði.
orbergur sagði að undirbún-
ingur liðsins hafi byrjað um
síðustu helgi og verður æft níu sinn-
um í viku. „Hópurinn er mjög ung-
ur og hefur meðalaldur leikmanna
íslenska liðsins frá því á HM í
Tékkóslóvakíu minnkað töluvert.
Þetta er hópur sem er ætlað að ná
langt á heimsmeistaramótinu á ís-
landi 1995. En fyrsta „alvöru“ verk-
efnið verður B-keppnin í Austurríki
1992,“ sagði Þorbergur.
Hann sagði að það yrði spenn-
andi að sjá hvað kæmi út úr íslenska
liðinu í mótinu um mánaðarmótin,
sérstaklega á móti Dönum og Norð-
mönnum. „Norðmenn endurnýjuðu
lið sitt fyrir tveimur árum og hafa
náð góðum árangri, unnu m.a. C-
keppnina í Finnlandi í vor. Þetta
mót er fyrst og fremst hugsað sem
æfingamót og ég ætla að gefa öllum
íslensku leikmönnunum tækifæri,"
sagði landsliðsþjálfarinn.
Þorbergur sagðist leggja á það
mikla áherslu að Kristján Arason
komi inn í liðið á næsta ári „og
hjálpi til við að flytja okkur yfir
B-keppnina í Austurríki 1992 á leið-
inni í A-keppnina 1993.“
íslenski hópurinn er skipaöur eftirtöidum
leikmönnum:
Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson
(FH), Páll Guðnason (Val), Bergsveinn
Bergsveinsson (FH), Leifur Dagfinnsson
(KR) og Hrafn Margeirsson (Víkingi).
llornamenn vinstra megin: Jakob Sig-
urðsson (Val) og Konráð Olavson (KR).
Hornamenn hægra megin: Bjarki Sigurðs-
son (Víkingi) og ValdimarGrímsson (Val).
Skyttur vinstra megin: Júlíus Jónasson
(Racing Asnieres), Héðinn Gilsson (Diissel-
dof) og Einar Sigurðsson (Selfossi).
Skyttur hægra megin: Magnús Sipairðsson
(Stjörnunni) og Ólafur Gylfason (IR).
Leikstjórnendur: Óskar Ármannsson
(FH), Sigurður Bjarnason (Stjörnunni) og
Gunnar Gunnarsson (Ystad).
Línumenn: Geir Sveinsson (Granollers) og
Birgir Sigurðsson (Víkingi).