Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 23 Sovéskur kjarnorkukafbátur af Delta-gerð. Sovétmenn vilja heQa viðræður uin afvopnun á höfiinum og ýmsum fínnst að Bandaríkja- menn séu að færa sig nær viðræðum almennt um takmörkun vígbún- aðar á höfúnum. Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna: Bandaríkjamenn þok- ast nær viðræðum um afvopmm a höfimum Helsingör. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. VIÐRÆÐURNAR um leiðir til að efla traustvekjandi aðgerðir milli herflota á höfunum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hér í Helsin- gör einkennast af ólíkum viðhorfúm Bandaríkjamanna og Sovét- manna til takmörkunar á vígbúnaði í hafinu. Bandaríkjamenn vilja helst ekki ræða þessi mál og leggur bandaríski flotinn áherslu á að hlutverk sitt sé allt annars eðlis en hins sovéska. Sovétmenn vilja ólmir hefja viðræður um afvopnun á höfúnum. Afvopnunardeild Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir ráðstefn- unni og eru þátttakendur í henni 50 frá 17 löndum, þ. á m. öllum Norðurlöndunum en utanríkisráð- herrar þeirra ávarpa hana. Opin- berir embættismenn frá Sovétríkj- unum sitja ráðstefnuna en frá Bandaríkjunum koma fræðimenn og fyrrverandi flotaforingjar. Bandaríkjamenn hafa staðfastlega neitað formlegri og opinberri þátt- töku í viðræðum um takmörkun vígbúnaðar á höfunum. Astæða fyrir því er m.a. sögð sú, að banda- ríski flotinn hafi sjálfstæða og sterka stöðu innan stjórnkerfísins í Washington og vilji sem minnst afskipti utanríkisráðuneytisins eða annarra aðila af málefnum sinum. Hafa ýmsir lagt á það áherslu á ráðstefnunni, að fulltrúar flota Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ræði beint saman svo sem um meginþætti stefnu sinnar og leiðir til að draga úr líkum á því að hættuástand skapist fyrir slysni. Er þar m.a. vísað til þess að fulltrú- ar flotanna hafi samið um leiðir til að bregðast við óhöppum á hafinu í upphafi áttunda áratugarins. Finnst ýmsum að þátttaka Banda- ríkjamanna hér sýni, að þeir séu að færa sig nær viðræðum almennt um takmörkun vígbúnaðar á höfun- um. Einhliða fækkun kjarnavopna í umræðum hefur komið fram að með einhliða aðgerðum séu Bandaríkjamenn að fækka veru- lega skammdrægum kjarnorku- vopnum sínum á höfunum. Þróunin sé í þá átt að kjamorkuvopn gegni æ minna hlutverki en áður í sjó- hemaði. Á það er bent að þess sé þó ekki að vænta að eldflaugakaf- bátar vopnaðir langdrægum kjarnaflaugum og kjarnorkuknúnir kafbátar til varnar og sóknar gegn skipum á hafí úti hverfí úr sög- unni. Er sú skoðun uppi hjá sum- um, að samningaviðræður um þessi mál hefðu fremur tafíð fyrir fækk- un þeirra vopna sem nú hverfa vegna einhliða ákvarðana Banda- ríkjamanna. Athygli vekur að frá aðildarríkj- um Atlantshafsbandalagsins utan Danmerkur, íslands og Noregs em engir opinberir fulltrúar á ráðstefn- unni. Endurspeglar þessi staðreynd tregðu bandalagsþjóðanna til að hefja viðræður um þennan flókna og viðkvæma þátt afvopnunarmál- anna fyrr en lokið er samningagerð um fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu og START-samningum um niðurskurð langdrægra kjarnorku- vopna Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna. Frá íslandi sitja ráðstefnuna Albert Jónsson, framkvæmdastjóri Öryggismálanefndar, Gunnar Gunnarsson, ráðgjafí utanríkisráð- heiTa í afvopnunarmálum, og Guð- mundur Eiríksson, þjóðréttarfræð- ingur utanríkisráðuneytisins, sem flutti erindi um hafréttarreglur og traustvekajndi aðgerðir. Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherrá á að ávrpa ráðstefnuna í dag, föstu- dag. Fjöldagrafir pólskra hermanna finnast við Karkhov í Sovétríkjunum Moskvu. Reuter. FUNDIST hafa Qöldagrafir frá stríðsárunum í vesturhluta Úkr- aínu sem geyma m.a. jarðneskar leifar pólskra hermanna, að sögn sovéska vikuritsins Moskvufrétta. Um 15.000 pól- skir Iiðsforingjar, sem Rauði herinn tók til fanga við uppgjöf Pólveija haustið 1939, hurfú sporlaust en vitað er að 4.000 þeirra voru myrtir af öryggis- lögreglu Jósefs Stalíns, NKVD, í Katyn-skógi, skammt frá Smo- lensk. Hluti pólska herliðsins virðist hafa verið myrtur og grafinn á kjarri vöxnu landsvæði er nefnist Svartabraut, rétt hjá stórborginni Kharkov í Úkraínu. Þar gróf NKVD einnig fjölda Sovétborgara sem lögreglan myrti skömmu fyr- ir seinni heimsstyijöld. Vitað er að deild öiyggislögreglunnar í Kharkov handtók nær 4.000 pólska liðsforingja en ekki er vitað hve margir þeirra hvíla í fjölda- gröfínni. Að sögn vikuritsins hefur það gerst á hveiju vori að í leysingum hafa mannabein, pólskar beltis- sylgjur, orður og peningar komið upp á yfírborðið. Börn í nágrenn- inu hafa leitað að slíkum hlutum þarna fram á þennan dag en fáir þorðu að spyijast fyrir um málið þar til losað var um hömlurnar í Sovétríkjunum. Eftir ábendingar skógarvarðar á áttunda áratugn- um var svæðinu þó lokað og KGB, arftaki NKVD, gerði það að sum- arbústaðalandi. Opinber stuðningsadili HM 1990 Philips sér um lýsinguna I G/obusr Vlnsælustu barnasnældur sí&asta árs, Barnalelklr 1 og Rokkllngamlr eru nú aftur fáanlegar. Frábærar barnasnældur frá B.G. útgáfunni fást í hjómplötuverslunum, bensinstöðvum og stórmörku&um um allt land. og slysalausrar feröar. Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri UMFERÐAR RÁÐ útgefandi og dreifing: Hjómplötuútgáfa Birgis Gunnlaugssonar Umferöarráði er ánægja aö ganga enn til samstarfs við BG útgáfuna um efni sem hentar yngstu vegfarendunum. Á þessari nýju snældu eru leikir og vinsæl barnalög til þess að stytta yngstu farþegunum stundir á ferðalaginu. Hún er bæði skemmtileg og fræðandi fyrir börnin og gagnleg fyrir fullorðna, því öðru hverju heyrist í Edda frænda meö léttar ábendingar um umferðarmál. Umferöarráö óskar ungum sem öldnum góörar á leikskólanum, beint í æð í bílinn ■ SPENNANDI LAGALISTI Sex litlar endur. Ég ætla aö syngja. Þaö búa litlir dvergar. Krummi krunkar úti. Ég heiti Keli. Meö sól I hjarta. Ranka. Ein stutt, ein löng. Nú skal syngja um dýrin. Stíllinn sem endaöi aldrei. Fyrst á réttunni. Og nýja laglð meö Rokkllng- unum "Hjálmlnn á!" auk ffölda annarra laga. V/SA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.