Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 Hótel ísland: Staðan í hálfleik sýnd á laugardag SÝNING Pálma Gunnars- sonar hljómlistarmanns, Staðan í hálfleik, verður sýnd á Hótel íslandi n.k. laugardagskvöld. Þessi sýning var sýnd i Sjallanum á Akureyri í vetur við mikla aðsókn. Pálmi Gunnarsson syngur sín þekktustu lög við undirleik hljómsveitar. Jafnframt er sögð saga Pálma sem tónlist- armanns, en Bjarni Hafþór Helgason er höfundur text- ans. Sögumaður er Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Gestir Pálma eru söngkon- urnar Elien Kristjánsdóttir og Erna Gunnarsdóttir. - IISm.WjM I W iVw r L, j| 'u"'|v itj ! fJL Moigunblaðið/Þorkell Stuðmenn bregða á leik á blaðamannafiindi. Stuðmenn heQa fimm vikna hliómleikaferð Stuðmenn hafa nýlokið við gerð hljómplötu sem ber nafnið „Hve glöð er vor æska“. Hljómsveitin mun fylgja plötunni úr hlaði með 26 miðnæturhljómleikum víðs vegar um landið. Fyrstu tónleikarnir verða í Stapa nk. fostudagskvöld, síðan leikur hljómsveitin í Ólafsvík en kemur fram í Reykjavík og í Hafharfirði 17. júní. Á efnisskránni að þessu sinni eru auk eldri laga 12 ný íslensk lög eftir Stuðmenn sem er að finna á „Hve glöð er vor æska“. Miðnæturhljómleikarnir hefjast kl. 23:30 og standa til kl.3 e.m. með tveimur 15 mínútna hleúm. Á hljómleik- unum verður fáanleg efnis- skrá með lögum þeim sem flutt eru hveiju sinni, en þau lög sem Stuðmenn hafa sa- mið og flutt á sínum langa ferli nema nú hundruðum. Flutt hafa verið til landsins fyrsta flokks ljósa- og hljóð- kerfi til að tryggja hámarks- gæði og hefur Oli Öder verið ráðinn ljósameistari, Bjarni Friðriksson hljóðmeistari og Bjarni Bragi sviðsstjóri. Á nokkrum stöðum koma fram upphitunarhljómsveitir og á þjóðhátíðardaginn skarta Stuðmenn 10 manna stórhljómsveit skipaðri auk hinna sex föstu meðlima þeim Stefáni Stefánsyni, Pétri Grétarssyni, Össuri Geirssyni og Snorra Valssyni. Hljómleikaferð Stuðmanna að þessu sinni er ívið styttri en venja er til, þar sem annar forsöngvari hljómsveitarinn- ar, Egill Ólafsson, heldur ut- an þann 6. ágúst til að leika í nýrri kvikmynd. Nýtt skip í flota Tálknfirðinga Tálknafirði. NÝTT skip bættist í flota Tálknfirðinga nýlega. Þórsberg hf., saltfiskverkun, keypti mb. Lóm frá Ólafsvík sem er 149 brúttólestir. Þórsberg á fyrir fjóra báta og er sá stærsti 108 tonn. Lómur er stálskip, smíðað á Akureyri 1971- 1974, yfirbyggður 1987. Kvóti skipsins er milli 400 og 500 tonn og er hluti kvótans rækja en skipið hentar til alhliða fiskveiða. Skipstjóri verður væntan- lega Þór Magnússon. Sama dag og Lómur kom til Tálknafjarðar kom þangað 5,9 tonna plastbát- ur af gerðinni Sómi 800. Skipstjóri og hluthafi er Orri Snæbjörnsson. Þrengsli í Tálknafjarðar- höfn eru gífurleg á sumrin vegna vaxandi fjölda smá- báta heimamanna og að- komubáta, sem leggja hér upp afla sinn. Til stendur að bæta úr þessu með gerð smábátabryggju nú í sum- ar. - JOÐBÉ Morgunblaðið/Jón Bjarnason Lómur kominn til heimahafnar í Tálknafirði. í dag verður stórmyndin Dick Tracy frumsýnd í USA. Af því tilefni verður haldið Dick Tracy kvöld m 1 Farið verður í Dick Tracy leiki. Kosið verður Dick Tracy par kvöldsins. Vegleg verðlaun. DANSHÖLLIN MEIRIHATTAR SKEMMTISTAÐUR BRAUTARHOLTI 20 SÍMAR 23333 - 29099 VETRARBRAUT OG NORÐURUÓS KYNNA: Hinn vinsæli Dansdúett ásamt Önnu Vilhjálms skemmta á 3ju hæð. Diskótónlist ásamt góðu rokki frá tímabilinu ’70-’88 á 4 hæð hússins. Þar sem fjörið er mest skemmtir fólkið sér best Rokkskogur Mætum öll ó ball og græðum landið. 150 kr. af hverjum miða rennur til skógræktar Stórhljómsveitin SJOU f rá Vestmannaeyjum leikur fyrir dansi. Ath: Frítt inn til kl. 24.00! Snyrtilegur klæðnaður. Nillabar Dúettinn Sín heldur uppi stuði. Opiðfrákl. 18.00-03.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.