Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 13 Ari Gísli Braga- Einar Kárason son ■ LJÓÐAKVÖLD verður haldið í kvöld, föstudagskvöld, í Skugga- sal á Hótel Borg. Hefst kvöldið stundvíslega kl. 21.00 og stendur til kl. 23.30. Fjölmargir höfundar koma fram á þessu fyrsta ljóða- kvöldi sem haldið er í Skuggasal Hótels Borgar. Má þar nefna Einar Kárason, Ara Gísla Bragason, Geirlaug Magnússon, Ferdinand Jónsson, Önnu S. Björnsdóttur, Einar Má Guðmundsson, Kristján Þórð Hrafnsson, Gunnar Hjálm- arsson og Þorstein Gylfason. Kynnir er Thor Aspelund. Allir áhugamenn eru hvattir til að mæta. Aðgangur er ókeypis. Neftid end- urskoðar fyrirtækja- skatta, FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur skipað neftid til að endurskoða skattlagningu atvinnufyrirtækja og peningastofnana. Nefndinni er ætlað að skoða skattlagningu fyrirtækja í ljósi samkeppnis- stöðu þeirra gagnvart erlendum keppinautum. Sérstaklega verð- ur tekið mið af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað innan Evrópubandalagsins. Endurskoðun skattlagningar at- vinnufyrirtækja og peningastofn- ana er í samræmi við loforð sem ríkisstjórnin gaf í tengslum við kjarasamningana. Nefndin mun hafa samráð við fulltrúa atvinnu- lífsins og peningastofnana um þessa endurskoðun og mun efna til sérstakra viðræðna við samtök vinnuveitenda og launafólks. Formaður nefndarinnar er Magnús Pétursson hagsýslustjóri og aðrir nefndarmenn eru Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri, fjár- málaráðuneyti, Eyjólfur Sverris- son, forstöðumaður, Þjóðhags- stofnun, Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri, Már Guðmunds- son, efnahagsráðgjafi fjármálaráð- herra, og Snorri Olsen, skrifstofu- stjóri, fjármálaráðuneyti. Friðleif- ur Jóhannsson viðskiptafræðingur verður starfsmaður nefndarinnar. (Fréttatilkynning) Borgaðu rafmagnsreikninginn áður en þú ferð í fríið! Þáverður heimkoman ánægjulegri Það er ómetanlegt að komast í gott sumarírí en það er líka notaiegt að koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður en við förum göngum við tryggilega frá öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn svo að heimilistækin geti sinnt skyldum sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur strax við heimkomuna. Dreiflkerfi Rafmagnsveitu Reykja- víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi. Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur þar á bætast við dráttarvextir — og þá er líka stutt í hvimleiða lokun. Rafmagnsreikningar eru sendir út á tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur næsta mánaðar eftir útgáfudag (15. dagur næsta mánaðar hjá ellilífeyrisþegum). Ef reikningur hefur ekki verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir. Láttu rafmagnsreikninginn hafa forgang! RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222 Kjörvari og Þekjukjörvari - kjörin viðarvöm utanhúss Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áferð þú óskar eftir. Sé ætlunin að halda viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvöm og til í mismunandi litum. Ein til þrjár umferðir nægja, allt eftir ástandi viðar. Kjósir þú aftur á móti hálfhyljandi áferð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið glatist, mælum við með Þekjukjör- vara sem einnig fæst í mörgum litum. Tvær umferðir eru í flestum tilvikum nóg. Sé viðurinn mjög gljúpur skal grunna hann fyrst með þynntum glær- um Kjörvara og mála síðan yfir með Þekjukjörvara. 3wmmP'1 - Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er málninglf - það segir sig sjálft - ARGUS/SiA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.