Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ C 5 hann áfram. „Ég var eftirlýstur, á dauðalista stormsveitanna. Á ein- hvern óskiljanlegan hátt tókst mér að flýja undan nasistum til Parísar á reiðhjóli. Þau fjögur ár er eftir lifðu til stríðsloka var ég hundeltur af nasistum. Dagarnir liðu í felum, næturnar við störf í andspyrnu- hreyfíngunni. Hvernig ég komst lífs af fra' þrengingum og þjáningum stríðsár- anna er mér engin leyndardómur. Hulin öfl hafa ávallt haldið verndar- hendi yfir tilveru minni. Ég er þess fullviss að dauði bróður míns varð ekki til einskis. Eftir aftöku hans fann ég fyrir örri þróun spádóms- hæfileika minna og skyggni. Andi bróður míns fylgdi mér öll stríðsár- in, hann varð leiðbeinandi minn og hjálparhella á hættustundum stríðsins. í dag er hann stjórnandi minn og einn af þremur leiðbeinend- um. Hinir tveir eru Vladimir Chikra prins af Moldavie, rússneskur prins, og nunna, móðir Henriette, í lifanda lífi var hún móðursystir mín. Eftirlok stríðsins var hugur minn flakandi sár. Flestir af nánustu vinum mínum höfðu hlotið örlög bróður míns, orðið fórnarlömb aftökusveita nasista. Pa.rís, vernd mín og skjól undan ofsóknurn nas- ista, varð heimaborg mín. Við ann- an mann að nafni Leclerc, í dag einn af voldugustu kaupsýslumönn- um Frakklands og eigandi Leclerc- verslunarkeðjunnar, setti ég á stofn fataverksmiðju í miðliorg Parísar, Fyrirtækið blómstraði, atvinnulega séð gekk lífið vel. Samt sem áður voru hin andlegu svöðusár, sem stríðið veitti mér, opin. Ég var and- leg uppgefinn, einstæðingur í stór- borg. Fróun mín varð dulspekin. Ég sökkti mér niður í dulspekibók- menntir. Þær virkuðu sem græð- andi smyrsl á sárin. Innst inni fann ég að ég var ekki „á réttri hillu í lífínu". Ég var þess fullviss að ég væri gæddur fágætri spádómsgáfu, skyggni auk annarra dulrænna hæfíleika. Ég ýttí þessum tilfínn- ingum frá mér, trúði ekki á þessa meðfæddu hæfileika. Ég var ein- mana sál í kaldrifjaðri borg, ég þjáðist. r Idag er ég þess fullviss að þessi ár þjáninga og einmanaleika voru skipulögð af alvaldinu. Undir- búningur fyrir ævistarf mitt. Ég hef trú á að aðeins þeir sem þekkja þjáninguna af eigin raun geti hjálp- að þjáðum. Fyrir aðra er þjáning eitthvað fjarramt, óraunhæft, til- finning þeim óviðkomandi. Stað- reyndin er samt sú að þjáningin snertir alla einhvern tímann á lífslejðinni." Síminn rýfur þögnina. Áríðandi samtal á hinum enda línunnar, maður í sjálfsmorðshugleiðingum. Með rólegri rödd biður Marcelus viðmælandann um fæðingardag og ár. „Vinur minn, tortíming líkama þíns er engin lausn. Jarðvist þinni er ekki lokið, framundan eru enn mörg ár, þú ert að ganga í gegnum erfitt tímabil. Þjáning er til þroska. Takir þú eigið líf þjáistu meira á annarri vídd alheimsins. Komdu til nún á morgun, tímann velur þú sjálfur." Marcelus leggur frá sér símtólið. „Til allrar hamingju lét hann sér segjast, ætlaði að skjóta sig. Von- andi kemur hann á morgun. Starf sjáanda og miðils í stórborg er ekki alltaf öfundsvert hlutskipti. Ég fæ að meðaltali tvö slík „sjálfs- morðssímtöl“ á dag. Oftast get ég aðstoðað og talað um fyrir viðkom- andi, en því miður eru tilfelli þar sem örvænting, lífshatur og von- leysi hafa borið hærri hlut. Þá eru örlög einstaklingsins oftast ráðin.“ Marcelus heldur áfram. „Eitt fagurt sumarkvöld árið 1948 var ég á heimleið eftir langan vinnudag. Undarlegt afl beindi för minni að sérstöku veitingahúsi, við St. Lazare-járnbrautarstöðina. Ég hafði aldrei komið þar inn en lét undan þessari undarlegu löngun. Á staðnum hitti ég tvær ungar stúlk- ur, önnur þeirra gekk rakleiðis til mín og kynnti sig sem Daizy Diza’s, sjáanda og miðil, starfandi í hérað- inu Bretagne. „Alvaldið ákvað fund okkar,“ mælti hún, „þú ert reiðubúinn að heija lífsstarf þitt, ég er leiðbein- andi þinn.“ Ég varð sem þrumulostinn, hélt að um einhvern leik, jafnvel svið- sett gabb væri að ræða. Þegar ég lít til baka og rifja upp þennan undarlega, jafnvel ótrúlega atburð, er ég þess fullviss að fundur okkar var ákveðinn af æðri máttarvöldum. Á þessari stund hófst hið eiginlega lífsstarf mitt. Síðan tjáði hin stúlkan mér, að Daizy hefði boðið henni til Parísar „til að kynna hana fyrir væntanlegum eiginmanni og sam- starfsmanni". Við Daizy giftum okkur árið 1949 og höfum starfað saman óslitið frá því herrans ári. Fyrstu árin vann ég jöfnum höndum sem sjáandi og framkvæmdastjóri fataverksmiðjunnar. Mikið vinnu- álag varð þess valdandi að ég seldi hlut minn í fyrirtækinu og helgaði mig alfarið starfi spámannsins. Síðan urðu fyrirbænir, huglækning- ar auk aðstoðar við einstaklinga, sem eiga við persónuleg vandamál að stríða, stór hluti af starfí mínu. Árið 1968, eftir margra ára far- sælt starf, gáfu fjölmiðlar mér við- urnefnið Nostradamus 20. aldarinn- ar. Sumir mætir menn halda því jafnvel fram að ég sé Nostradamus endurfæddur, þeirrí getgátu hefí ég ávallt mótmælt kröftuglega. 21. maí 1982 buðu blaðamenn stór- blaðsins Paris Match mér á fyrrver- andi heimili hins eina og sanna Nostradamusar, það er í dag varð- veitt sem safn og er mjög sótt af ferðamönnum. Ætlunin með heim- sókninni var að sjá hvort ég kæm- ist í samband við anda þessa látna stórmennis. Með penna í hönd sett- ist ég við vinnuborð spámannsins. Eftir skamma stund féll ég í trans, atvik sem gerist næstum aldrei, þar sem ég er ekki transmiðill. Þegar ég kom til sjálfs mín uppgötvaði ég mér til mikillar undrunar, jafn- vel skelfíngar, að ég hafði með ósjálfráðri skrift, rithönd sem ekki var mín, skrifað spádóma um ýmsa ókomna atburði er síðar rættust. Eftir þessa reynslu hef ég árlega ritað með sömu ósjálfráðu rithönd- inni atburði komandi árs. Spádóm- um mínum er árlega dreift til al- þjóðlegra fjölmiðla af Agence France Presse. Grein um umrætt atvik, ásamt ljósmyndum, var birt í Paris Match og er vottfest af blaðamönnum og öðrum viðstödd- um.“ Yið erum ónáðaðir af fröken Margarite, sem stekkur upp í kjöltu Mareelus og hjúfrar sig mal- andi upp að húsbónda sínum. „Vo- ila Monsecur, ma vie,“ „þarna hefur þú lífssögu mína, herra. Berðu ís- lendingum kveðju mína og segðu þeim að ég sé reiðubúinn til þjón- ustu við þá. Hafi einhver áhuga á að kynnast því hvað framtíðin beri í skauti sér eða sé einhver hijáður af persónulegu vandamáli og óski eftir aðstoð minni getur viðkomandi skrifað mér á íslensku, ensku eða frönsku, tungumál skifta ekki leng- ur máli þar sem hér er góð þýðing- arþjónusta. Ég óska eftir fæðingardegi, ári og ef mögulegt er einnig fæðingar- stund, nauðsynlegt er að viðkom- andi sendi mynd af þeim er ég á að spá fyrir. Sé einhver þjáður af persónulegu vandamáli, jafnvel þótt hann telji það óyfirstíganlegt, er þeim hinum sama velkomið að skrifa, mynd þarf einnig að fylgja í því tilfelli. Állir sem skrifa mér fá myndir sínar endursendar, segul- magnaðar." Það húmar að kveldi, ég kveð þennan merkilega, dulræna mann. Á biðstofunni bíður eiginkona sjá- andans, brosandi réttir hún mér poka, fullan af gómsætum vínberj- um: „Héðan fer enginn tómhentur.“ Ég þakka. Með vínberjapokann minn og blessunarorð hjónanna í veganesti held ég út í hlýja Parísar- nóttina. Fararstjóra- og málaskóli á Mallorca Hefur þú áhuga á fararstjóramenntun ? Ef svo er skrifaðu okkur og fóðu sendo nómsskró fyrir órið 1990/91 - 39. starfs- ór skólans, sem er elsti fararstjóroskóli i Skandinavíu. Kennslan fer from ó dönsku. Næstu nómskeið hefjast 25. október til 20. desember (2 mónuðir) og síðan aftur 5. janóar til 28. febrúar (2 mónuðir). Holtermanns rejselederskole, Norregade 34, 330 Frederiksværk, Danmark, sími +42 12 33 36. Samtök gegn nauðungarsköttun Sími 641886 - opinn frá kl. 10-13 fyrir þá sem vilja styðja samtökin. Fjárstuðningur vel þeginn á tékkareikning 3000 hjá íslands- banka, Lækjargötu. Undirbúningsnefnd. Til sölu er vélbáturinn Guðbjörg RE-21. Báturinn er tæplega 30 rúmlestir. Bátnum fylgir 216 þorskígilda kvóti. Enn- fremur fylgir bátnum snurvoðarleyfi í Faxaflóa. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „G - 9250“ fyrir föstudaginn 3. águst nk. Utsalan hefst á morgun 40-70% afsláttur Rita, Breiðholti, sími 71730. HOOVER UPPVASKIÐ TILHEYRIR FORTÍÐINNI -• • —— £ U. y. I 1 Hoover Crystaljet uppþvottavélarnar státa af öllu þvl er prýða ber frábeerar uppþvottavélar. Skol & bióvlnnsla. ótal vinnslumðgulelka s.s. fyrir kristal, lelrtau, potta, lönnur, gler, ál, stál, allt eftlr þlnum þörfum. :ellur inn í innróttingu eóa frlstandandi. ekur borðbúnað fyrir 12 manns. Hagkvaemnisvlnnsla og sérstök eirtau. Þurrkar fljótt og vel. HOOVER — HUGKVÆMNI OG HAGKVÆMNI. HEIMILISKAU P_H F • HEIHIILISTÆKJADÉILD FÁLKANS • SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670. . iv ,1 As.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.