Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 'senIgal, NÍGERIA > MIÐ-AFRÍKU- lýðveldið Viktmuvain IV KENÝA RWANDA: TANZANIA Skriffinnska og pappírsvinna varð fyrsta erfiða verkefni ferða- langanna — ekki að höggva sig gegnum frumskóginn með sveðjum eins og Indiana Jones-verkfærinu sem Ingvar keypti í Malí á 300 krónur og er vægast sagt allhrika- Iegt að sjá. í Nairobi, höfuðborg Kenýa, þurfti að afla sér vega- bréfsáritana til þeirra ríkja sem leið- in skyldi liggja um. „Þar var erfítt að vera Islendingur. Við höfum ekki samninga við þessi lönd um vegabréfsáritanir og mesti höfuð- verkurinn var að sannfæra sendi- ráðsstarfsmennina um það, einn eftir annan, að Island væri í raun og veru til. Þarna mátti maður bukka sig og beygja, kalla alla „herra“ og vera eins undirgefínn og maður gat til að verða ekki fleygt öfugum út. Ég þurfti að fá meðmælabréf frá íslensku ræðis- mannsskrifstofunni í Nairobi til þess að fá vegabréfsáritanirnar. Ekki vildi betur til en svo að hún var lokuð, svo ég sá fram á að verða Syfjaða Ijónafjölskyldan. eru ijón og fleiri kvikindi. Eina nótt- ina vaknaði ég við krafs og ýlfur. Mér leist ekki á blikuna og hélt svissneska vasahnífnum á lofti til- búinn að beijast fyrir lífi mínu, en ekkert gerðist. Morguninn eftir spurði ég verðina hvort þeir hefðu orðið einhvers varir en þeir kváðu nei við. Við nánari eftirgrennslan fundum við hýenuspor allt í kring- um tjöldin en verðirnir ypptu bara AFRDÍU Fjögurra mánaða ævintýraferð tvítugs íslendings Ingvar Hákon Ólafsson, Afrikulari, ásamt félaga sinum frá Nígeríu. Miðstéttarhverfi í Lagos, höfuðborg Nígeríu. „Þarna var bókstaflega rusl út um allt.“ öxlum. Þeim þótti þetta greinilega ekkert tiltökumál, en mér stóð ekki á sama. Þama varð ég í fyrsta sinn alvarlega hræddur í ferðinni." Oðruvísi en í sjónvarpinu Mörg dýranna í þjóðgarðinum eru í útrýmingarhættu. Þó þarna sé mikið af gasellum, bufflum og antilópum segir Ingvar sjaldgæft að koma auga á nashyrninga, sem ásamt fílum eru eftirlætisbráð veiði- þjófa. Ingvar er mikill dýraáhuga- maður og segir frá af miklum eld- móði. Hann líkir þessu við að vera allt í einu staddur inni í miðri nátt- úrulífskvikmynd en upplifunin sé öll miklu sterkari. „Eg sat uppi á Landrover-jeppan- um, fimm metra frá sofandi ljóna- fjölskyldu. Það var alveg sama þótt ég hefði oft séð svona í sjónvarpinu — ég var gagntekinn af þessu. Þama voru hýenur að drepa fugla, blettatígur að elta gasellu og kasó- létt fílskýr á gangi — það var lyginni líkast að sjá þetta — náttúr- an lét sig okkur engu skipta og allt var iðandi í kringum okkur.“ Þátttakendur í fæðukeðjunni — Lenti enginn I klónum á óargadýrum? „Jú, ætli það megi ekki segja skilinn eftir. í örvæntingu sneri ég mér til norska sendiráðsins og fékk þá til að skrifa meðmælabréf fyrir mig. Það var síðan upp á von og óvon að ég rétti fram norska með- mælabréfið, en enginn tók eftir að þar væri eitthvað gruggugt á ferð- inni, og prísaði ég mig sælan fyrir það. Svo þurftum við að keyra alla nóttina til að komast út úr landinu áður en áritunin félli úr gildi. Það var reyndar gegnumgangandi í allri ferðinni að embættismennirnir virt- ust líta stórt á sig og gátu gert manni lífið leitt ef sá gállinn var á þeim.“ Dýrin Þegar aftur var komið til Tanz- aníu var fyrst á dagskrá að skoða Serengeti, einn stærsta þjóðgarð Afríku, sem umlykur Viktoríu- vatnið. „Við vomm stödd á háslétt- unni fyrir ofan stóran sigdal í Ser- engéti-þjóðgarðinum. Ég horfði yfir víðáttuna en sá ekki dýrin sem áttu að vera þar — allt virtist vera stein- dautt. Þegar ég setti aðdráttarlins- una á myndavélina og notaði hana sem sjónauka gat ég þó greint fíla í fjarska. Það var ómögulegt að átta sig á stærðunum, þvílíkt ógnar flæmi var þetta.“ í þjóðgarðinum var sofíð í tjöld- um undir vopnaðri vernd, því þarna fá dýrin að ráfa um eins og þeim sýnist í sínu náttúrulega umhverfí. Sem borgarbarni leikur blaða- manni forvitni á að vita hvernig það var að sofa með ekkert nema tjald- dúkinn milli sín og villidýranna. „Það gat verið óþægilegt, því þarna eftir Guðmund Löve INGVAR Hákon Ólafsson er tutt- ugu og eins árs gamall Reyk- víkingur sem lét draum sinn rætast. Frá sjö ára aldri hefur hann verið ákveðinn í að ferðast um Afríku, og á nýársdag 1990 hélt hann af stað í ferð sem átti eftir að standa í fjóra og hálfan mánuð. Ingvar tók á móti blaða- manni Morgunblaðsins með bros á vör og glettnislegu augnaráði, og eins og við mátti búast hafði hann frá mörgu að segja. Hvemig stóð á því að þú lagðir upp í þessa ferð? „Ég hafði allt- af ætlað mér að fara til Afríku, það má segja að það hafí verið mín fyrirheitna heimsálfa. Upphaflega ætlaði ég að fara einn, strax eftir stúdentsprófið, en tilviljun réð að ég frétti af enskri ferðaskrifstofu sem skipuleggur svona ævintýra- ferðir. Þannig vildi það til að ég varð einn af 18 manna hópi karla og kvenna sem réðst í þessa ferð. Ég hóf ferðina í Malawi, þar sem ég á ættingja sem vinna á hjálpar- stöð hjá Þróunarsamvinnustofnun Islands. Þar hugðist ég meðal ann- ars venjast loftslaginu og hitanum á þessum slóðum, sem reyndar var alls ekki óþægilegur. Það var mér mikið áfall að sjá þá sem bjuggu kringum hjálparstöðina; fatlað og sjúkt fólk var alls staðar — ég fékk hrikalegt „menningaráfall" við að sjá þetta berum augum. Þegar ég svo flaug til Dar Es Salaam, höfuð- borgar Tanzaníu, þar sem ég átti að hitta samferðafólk mitt veiktist ég samt strax af hitanum sem þar var um 40 gráður og loftslagið mjög rakt.“ Frumskógar skriffinnskunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.