Morgunblaðið - 18.08.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990
Kennarasamband íslands undirritar kjarasamninga:
Bráðabirgðalögin gerðu samn-
ingsstöðuna næsta vonlausa
- segir Svanhildur Kaaber, formaður KÍ
KENNARASAMBAND íslands skrifaði undir kjarasanminga við
rikið um hádegið í gær, sem kveða á um sömu hækkanir og samið
hefur verið um við aðra launþega á þessu ári, en kjarasamningur
KÍ gekk úr gildi um mánaðamótin maí/júní. Auk þess eru í samn-
ingnum, sem gildir til 31. ágúst 1991, ákvæði um sérstaka launa-
nefnd og að á samningstímabilinu skuli unnið að endurmati á kenn-
arastarfinu.
Morgunblaðið/KGA
Frá undirskrift kjarasamningsins í gær. Talin frá hægri Svanfríður
Jónasdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Svanhildur Kaaber,
formaður KÍ.
Svanhildur Kaaber, formaður
KÍ, sagði að í kjarasamnijignum
væru ákvæði um sömu áfanga-
hækkanir, verðlagsviðmiðanir, or-
lofsuppbót og desemberuppbót,
eins og í þeim samningum sem
gerðir hefðu verið fyrr á árinu.
„Hann ber þó það sérstaka merki
að vera samningur fyrir Kennara-
samband íslands hvað það snertir
að í samningnum er vísað til nefnd-
arstarfa sem hafa átt sér stað að
undanförnu, bæði á tímabili síðasta
samnings og eins í þeim samninga-
viðræðum sem fram hafa farið
núna. Þessum nefndarstörfum
verður haldið áfram og verki nefnd-
anna á að vera lokið áður en kem-
ur að samningagerð á næsta ári.
Nefndirnar fjalla um mjög viða-
miklar breytingar sem gerðar hafa
verið lögum og reglugerðum um
skólastarf í landinu núna að und-
anförnu," sagði Svanhildur.
Hún nefndi lög um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga, ný
ákvæði um skólaskyldu sex ára
bama, lög um framhaldsskóla og
nýja aðalnámskrá fyrir grunnskóla.
Allt þetta hafi í för með sér að
skólastarf í landinu standi á vissum
krossgötum og það þurfí að fara
ofan í það hvaða áhrif þetta hafi
á skólastarfíð og kjör kennarastétt-
arinnar.
Aðspurð hverpig hafí verið að
semja við þær aðstæður í þjóðfélag-
inu að bráðabirgðalög séu í gildi
'sem nái-til meginhluta launþega,
sagði Svanhildur: „Þrátt fýrir að
samkvæmt orðanna hljóðan taki
bráðabirgðalögin ekki yfír þau
samtök launafólks sem áttu ósa-
mið, þá er það auðvitað alveg
greinilegt að með þeim var beitt
því valdi að samningsstaða var
næsta vonlaus. Fulltrúaráð Kenn-
arasambandsins mat stöðuna þann-
ig að það væri engin leið til þess
að bijótast undan þessu valdi. Okk-
ar er náttúrulega að gæta hags-
muna félagsmanna KÍ eins vel og
nokkur er kostur, og við töldum
þetta vera hið rétta.“
Svanfríður Jónasdóttir, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra, sagði
að samningur KÍ byggði á sömu
forsendum og samningur ríkisins
við Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, auk ákvæða um endur-
skoðun á starfí og starfsaðstöðu
kennara og skólastjóra. „Við teljum
engu síður en kennaramir að það
sé mjög brýnt að halda þessari
vinnu áfram ekki síst með tilliti til
þess að það eru miklar breytingar
að eiga sér stað í þjóðfélaginu og
skólarnir eru að finna fyrir þeim
breytingum."
VEÐURHORFUR í DAG, 18. ÁGÚST
YFIRLtT ( GÆR: Mjlli Hjaltlands og Noregs er 996 mb lægð sem
þokast norðaustur en frá henní liggur vaxandi lægðárdrag í átt til
Jan Mayen. Oálítill hæðarhryggur yfir landinu en 1002ja mb lægð
skammt suður af Hvarfi hreyfist austnorðaustur.
SPÁ: Á sunnanverðu landinu verður austan- og norðaustanótt með
iítilsháttar rigningu, en annarsstaðar hæg norðan átt skýjað, en
úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAC HORFUR Á SUNNUDAG: Hægviðri um allt lam iA: i vfða smt iskúrir.
Hiti 8-9 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG:Norðaustan gola eða kal Ji á iaridim i norö-
anverðu, en hægviðri í öðrum fandshjutum. Skúr ir einkum iorðan
og norðaustanlands. Hiti 7-8 stig.
TAKNi
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil flöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r # Slydda
r * r
* # #
* * # # Snjókoma
* * *
■J Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , » Súld
OO Mistur
—j,- Skafrenningur
j~7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hW ve«ur
Akursyri Reykjavik 9 13 léttskýjað skýjað
Bergen 14 skúr
Heisinki 22 skýjað
Kaupmannahöfn 28 léttskýjað
Narssarssuaq 11121 skýjað
Nuuk 6 Þokaigrennd
Óstó 14 skúr
Stokkhólmur 18 skúrásíð. klst.
Þórshöfn - 10 alskýjað
Algarve 28 helðskírt
Amaterdam 19 skwað
Barcelona 23 skýjað
Bertín 18 þrumuveður
Chicago 22 þokumðða
Feneyjar skýjað
Frankfurt 19 léttskýjað
Glasgow iiJsi skýjað
Hamborg 15 skúr
LesPalmas 27 tóttskýjað
London 20 skýjað
losAngeles 18 helðskírt
Uixemborg 16 skýjað
Madrid 28 léttskýjað
Malaga 28 mlstur
Maflorca mm skýjað
Montreal 20 léttskýjað
NewYork 25 mistur
Orlando 26 skýjað
Parts rnm. skýjað
Róm 28 hélfskýjað
Vín 19 alskýjað
Washíngton 24 mlstur
Wlnnipeg 12 skýjað
Fé til greiöslu stuðningsflolskyldna
fatlaðra fundið með tilfærslum:
Otækt að láta fólkið
bíða fjáraukalaga
- segir Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra
„VIÐ munum reyna til bráða-
birgða að leysa málið með til-
færslum af öðrum liðum félags-
málaráðuneytsiins yfir á þennan
lið í trausti þess að fá það sem
á vantar á fjáraukalögum. Ég á
von á að málið leysist með þeim
hætti í næstu viku,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra þegar Morgun-
blaðið innti hana eftir hvort hillti
undir lausn þeim vanda sem blas-
ir við foreldrum fatlaðra barna
í kjölfar þess að ljárveitingar til
að greiða stuðningsfjölskyldum
fyrir vistun fatlaðra barna eru
þrotnar. „Það er ótækt að láta
þessar fjölskyldur bíða eftir því
að fjáraukalög verði samþykkt í
haust,“ sagði ráðherra.
Ráðherra sagði að við fjárlaga-
gerð hefðu menn ekki verið viðbún-
ir þeirri miklu aukningu sem orðið
hafí í þessari þjónustu. Fjöldi þeirra
sem hennar njóti hafí á sumum
svæðum tvö til þrefaldast á þessu
ári og séu það nú 116 fjölskyldur.
Önnur skýring sé sú að venjulega
sé greitt vegna dvalar hjá stuðn-
ingsfjölskyldu í þrjá sólarhringa í
mánuði en heimilt sé að greiða
vegna fímm sólarhringa og þörfín
sé slík að 60-70% fjölskyldnanna
fái greitt vegna fímm sólarhringa.
„Miðað við reynslu fyrri ára töldum
við að þijár milljónir myndu duga
til að standa straum af þessu en
nú stefnir í að þetta verði 10 milljón-
ir í lok ársins ef samningar verða
endurnýjaðir. Aukafjárveitingar
fást ekki núna og fjáraukalög verða
ekki samþykkt fyrr en í haust. Því
höfum við leitað annarra lausna og
þrátt fyrir að félagsmálaráðuneytið
sé fjárhagslega aðþrengt á öllum
sviðum tel ég þó að þar sé ákveðið
svigrúm til bráðabirgða því það er
ótækt að láta þessar fjölskyldur
bíða eftir því að íjáraukalög verði
samþykkt," sagði Johanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra.
Hrútaíjörður:
Karl og
kona slösuð-
ust í veltu
KARL og kona slösuðust í
bílveltu við Reykjaskóla í Hrúta-
firði í fyrrakvöld. Karlinn var
fluttur með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar á Borgarspítalann í
Reykjavík en konunni var ekið á
sjúkrahúsið á Akranesi.
Fólkið var á norðurleið í fólksbíl
þegar ökumaðurinn missti bílinn út
í vegarkantinn hægra megin, síðan
út af veginum vinstra megin. Þar
valt bíllinn og er talið að ökumaður-
inn hafí kastast út. Bíllinn er talinn
ónýtur.
Sameiginleg mótmæli
Norðurlanda við Irak
NORÐURLÖNDIN hafa sameiginlega mótmælt þeirri ákvörðun
stjórnvalda í írak, að neita norrænum ríkisborgurum, sem staddir
eru í Kúvæt og írak, um brottfararleyfi.
Norðurlöndin höfðu farið form-
lega fram á það, að fólkinu yrði
leyft að fara á brott en því hafa
stjórnvöld í írak neitað.
Átta íslenskir ríkisborgarar
munu nú vera staddir í Kúvæt, þar
af fjögur böm.
Utanríkisráðuneyti Norðurland-
anna vinna nú sameiginlega að
því, að tryggja hag norrænna ríkis-
borgara í Irak og Kúvæt og munu
íslensku ríkisborgararnir njóta að-
stoðar sendiráðs Svía í Kúvætborg.
Stöðugt samráð er á milli ut-
anríkisráðuneyta Norðurlandanna
til að reyna að tryggja farsæla lausn
málsins.