Morgunblaðið - 18.08.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.08.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990 25 Kristín Sigurjóns dóttir - Minning Fædd 5. september 1906 Dáin 12. ágúst 1990 Stundum er metist á um gildi hinna ýmsu starfa fyrir þjóðfélagið. Sýnist þar sitt hveijum. Mat einstakl- inga á eigin verkum er líka misjafnt. Sumum er það eðlislægt að láta á sér bera og leita eftir viðurkenningu á því sem þeir telja sig hafa afrekað meðan aðrir vinna verk sín í kyrrþey. Að mínu mati er móðurhlutverkið göfugast allra starfa og mest um vert að það sé vel rækt bæði fyrir hvern einstakling og þjóðfélagið í heild. Nó þegar ég hef misst móður mína og veit að ég mun aldrei sjá hana framar geri ég mér grein fyrir því, hvað hún var mér mikils virði ekki aðeins í uppvextinum heldur öll mín æviár. Með orðum verður hugur minn til hennar ekki tjáður, nema að litlu leyti, en þó mun ég reyna að minnast hennar. Hún hét Kristín Siguijónsdóttir og var fædd þann 5. september árið 1906 á Móafelli í Stíflu í Skagafírði. Foreldrar hennar voru Siguijón Jónsson og Helga Jónsdóttir húshjón þar á bænum. Þegar móðir min var tveggja ára flutti hún með foreldrum sínum að bænum Litlu Brekku á Höfðaströnd og var þar til tíu ára aldurs er leiðin lá aftur að Móafelli. Næstu íjögur árin bjuggu foreldr- ar hennar á Móafelli, en voru siðan í nokkur ár á ýmsum öðrum bæjum í Stiflunni eða þar.til þau fluttu að Ytra Á í Ólafsfirði árið 1926. Móðir mín átti þijú systkini: Guð- rúnu, Jón Gunnlaug og Jóhann. Tvö hin fyrstnefndu eru látin en Jóhann á heima í Hátúni 10 í Reykjavík. Ung að árum fór hún að heiman til þess að vinna fyrir sér. Um annað var ekki að ræða. Hún þráði að fara í skóla en engir möguleikar voru á því að láta þá drauma rætast. Næstu árin var hún vinnukona á ýmsum stöðum þar á meðal Syðri Bægisá í Öxnadal. Þar kynntist hún föður mínum Bemharð Guðjónssyni, sem þá var kennari þar í dalnum. Þau giftu sig 30. mars 1929 og vom þá um sumarið á Vindheimum, þar sem hann átti heimili hjá fósturfor- eldrum sínum. Um haustið fluttu þau til Akur- eyrar og stofnuðu heimili. Sumarið eftir fæddist ég. Hamingja og heiðríkja blasti við ungu hjónunum um sinn, en brátt dimmdi yfír, því að einu ári síðar veiktist faðir minn af berklum og þurfti að fara á Kristneshæli. Þegar sýnt var að veikindi hans vom alvarieg fylgdi móðir mín hon- um eftir og fékk leigt á Kristnesbæn- um til þess að geta verið sem næst honum meðan hann háði erfíða og vonlausa baráttu við þennan voða- sjúkdóm, sem á þessum áram hjó stór skörð í raðir fólks á besta aldrí. 2. mars 1932 lést faðir minn og móðir mín einstæð fór með bamið sitt til Guðrúnar systur sinnar, sem bjó á Ytri Á á Kleifum í Ólafsfírði og var hjá henni um nokkurt skeið. Síðar leigði hún eitt lftið herbergi í Ártúni á Kleifum og þar vomm við næstu árin, fyrst ein en 16. apríl 1935 giftist móðir mín aftur. Maður hennar hét Guðmundur Magnússon, ættaður úr Landeyjum en kom til Ólafsfjarðar frá Vestmannaeyjum. Guðmundur rak útgerð á Kleifum ásamt öðmm manni og var skip- stjóri á litlum dekkbáti þeirra er hét Þorkell máni. 16. desember 1936 fórst báturinn með allri áhöfn, 5 mönnum sem allir vom í blóma lífsins. í annað sinn á rúmum fjóram áram hlaut móðir mfn það áfall sem hvað mest reynir á mannlegt þrek, að missa ástfólginn maka sinn. Ekki lét hún þó bugast við þetta. Enn átti hún drenginn sínn til að lifa fyrir. Næsta ár fluttum við til Akur- eyrar, þar sem hún vann fyrír okkur með saumaskap. Haustið 1938 gat hún loks látið gamlan draum rætast, að fara í skóla. Það var húsmæðraskólinn Ósk á ísafirði sem varð fyrir valinu. Mér kom hún f fóstur hjá mágkonu sinni og bróður, Bimu Finnsdóttur og Jóni Siguijónssyni, sem bjuggu að Holta- götu 2 á Akureyri. Hún vissi að þar var ég í öruggum höndum og hlýjum. 18. maí 1939 giftist móðir mín Nývarði Ólfjörð Jónssyni í Garði í Ólafsfírði. Þau hófu þegar búskap á þeii-ri jörð og bjuggu þar til vorsins 1974 er þau brugðu búi og fluttu til Akureyrar í Skarðshlíð 4. Búskapur þeirra í Garði einkennd- ist af mikilli elju og atorku. Þau tóku við kostalítilli jörð með lélegum hús- um og lítilli ræktun. Öll hús endur- byggðu þau og ræktuðu það land sem ræktanlegt var. Að auki keyptu þau eyðijörð þar sem land var einnig brot- ið og ræktað. Þau eignuðust tvö böm: Kára, sem kvæntur er Sigrúnu Ingólfsdóttur. Þau búa í Ólafsfírði og Guðfinna sem gift er Óla Þór Ástvaldssyni. Þeirra heimili er á Þórustöðum V í Eyja- fírði. Sjálfur bý ég í Ólafsfirði ásamt eiginkonu minni Guðrúnu Þorvalds- dóttur. Vinnudagur í sveitinni var að jafn- aði bæði langur og strangur einkum meðan heyskapurinn stóð yfir og áður en vélvæðingin hófst. Oft hlýtur móðir mín að hafa gengið örþreytt til hvflu, en aldrei hafði hún orð á því. Þótt fjölskyldan væri ekki stór var oft mannmargt á heimilinu. Gestkvæmt var enda votu húsráðendur gestrisnir og mann- blendnir. Flest sumur vora einnig böm í sumardvöl f Garði. Ætla mætti að húsmóðurstörfín hefðu verið nóg verkefni en það fannst_ þessari atorkusömu konu ekki. Á sumrin vann hún af kappi í heyskapnum og á veturna spann hún ull og pijónaði og saumaði fatnað á fjölskyldu sína og marga aðra. Ég minnist þess varla að henni félli verk úr hendi og iðulega gaf hún sér ekki tíma til þess að setjast við matborðið en var á þönum meðan aðrir snæddu. Henni var rík þjónustulund í blóði borin og vildi vera veitandi en ekki þiggjandi. Um það leyti sem þau hjónin bragðu búi fór heilsu móður minnar hrakandi. Hún fékk liðagigt sem ágerðist eftir því sem árin liðu. Það var dapurlegt að horfa á hend- umar hennar kreppast og missa mátt. Þessar hendur sem eitt sinn höfðu reynt að lina helstríð föður míns og höfðu leitt og vemdað böm- in hennar og annarra. Þessum þjáðu, kræklóttu höndum var þó beitt af viljastyrk en ekki mætti fram .á síðustu stund. Það var líka átakanlegt að horfa á bakið hennar bogna og kýtast sam- an þegar kvalafull gigtin settist að f því. Mörgum sinnum þurfti hún að leggjast inn á sjúkrahús, þar sem hún gekkst undir aðgerðir. Af æðraleysi bar hún líkamlegar þjáningar sínar eins og hinar andlegu forðum daga, þegar hún missti ást- vini sína. Aldrei var neina uppgjöf að finna. Efst í huga hennar var þakklæti til þeirra sem reyndu að hjálpa henni og löngunin að fá að vera heima. Erfitt átti hún með að sitja auðum höndum, þótt hendumar væru krepptar og tvær hækjur þyrfti til þess að bera sig um. Allt fram á sfðasta dag sem hún var heima vann hún þau húsverk sem hún gat og nægðu þau ekki starfslöngun hennar greip hún til þeirrar handavannu sem hún réði við. Skaparinn var henni óvægur er hann hreif frá henní tvo eiginmenn með stuttu millibili, en honum sé þökk fyrir að gefa henni hinn þriðja, sem virti hana og dáði og sýndi henni mikla umhyggju. Ætla mætti að manneskja sern hefur orðið fyrir svo miklu mótlæti í lífínu væri bitur og neikvæð. Svo var ekki með móður mína. Ég minn- ist þess ekki að hafa heyrt hana hallmæla neinum hvorki fyrr né sfðar og yrði hún áheyrandi slíkra um- mæla frá öðram tók hún gjaman upp hanskann fyrir þann sem hnjóðað var í. Nú er móðir mín öll. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 12. þ.m. Saga hennar er saga fslenskrar móður. Saga alþýðukonunnar sem oft þurfti að treysta á mátt sinn og megin. Konunnar sem ekki lét bug- ast þótt lífíð léki hana stundum gi-átt. Konunnar sem vann störf sín í kyrrþey og lagði í þau hjarta sitt og sál. Guð gefi sem flestum slíka móður. Hreinn Bernharðsson Hún Kristín mín er horfín frá okk- ur, yfír móðuna miklu, þangað sem leið okkar allra liggur fyrr eða síðar. Minningar liðinna ára streyma fram allar ljúfar og góðar. Kristín var gift Nývarði Jónssyni Ólfjörð og bjuggu þau hjón lengst af að Garði í Ólafs- fírði, en fluttu síðan til Akureyrar og áttu yndislegt heimili f Skarðshlið 4. Þau hjónin voru sérlega samhent, þar sem annað þeira var þar var hitt lfka svo að segja með hönd á sama hlutnum. Það var gaman að heimsækja Kristínu og Nývarð þau vora alltaf jafn \júf f viðmóti og gestrisnin var þar ávallt f fyrirrúmi, það má segja að það hafí verið hennar líf og yndi að taka á móti fólki, hún var aldrei ánægð fyrr en komið var hlaðið borð af alls konar góðgæti, sfðan var sest til stofu og spjallað um alla heima og geima. Við þjónin áttum því láni að fagna að vera gestir á heimili þeirra Ný- varðs og Kristfnar viku fyrir andlát hennar, fyrir það viljum við þakka og allar samverustundimir, sem við höfum átt með þeim í mörg ár, allt frá þvl að sonur okkar tengdist þess- ari fjölskyldu, en hann er giftur Guðfinnu dóttur þeirra og eiga þau þijú böm. Það má segja að þjá Ný- varði og Kristfnu hafí þau átt sitt annað heimili, og að alla tíð hafí hún reynst syni okkar sem besta móðir. Blessuð sé minning góðrar konu. Elsku Nývarð við vottum þér, börnum þínum og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Kristín, Ástvaldur Helgasou og börn. Þeir hverfa einn af öðrum, sam- ferðamennimir, sem settu hvað mestan svip á Ólafsfjörðinn, þegar ég var að alast upp. Með söknuði horfum við á eftir vinum og ætt- mennum yfír móðuna miklu. Nú síðast kvaddi þennan heim föðursyst- ir nún, Kristfn Siguijónsdóttir, til heimilis í Skarðshlíð 4 á Akureyri, en hún lést á Fjót'ðungssjúkrahúsinu á Akureyri .þann 12. ágúst sl. Kristfn fæddist á Móafelli í Fljót- um, dóttir hjónanna Siguijóns Jóns- sonar og Helgu Jónsdóttur. Kristín var önnur í röðinni af fjórum systkin- um, eldri var Guðrún, húsmóðir á Ytri-Á í Ólafsfirði, en yngri voru faðir minn Jón Gunnlaugur trésmiður á Akui-eyri og Jóhann sem býr í Reykjavfk. Hann hefur nú séð á eft- ir systkinum sínum þrem yfír í annað tilverastig. Siguijón afi og Helga amma, bjuggu sín fyrstu búskaparár á Móa- felli, en fluttu þaðan í Litlu-Brekku á Höfðaströnd og bjuggu síðar á öðrum bæjum í Fljótum, uns þau fluttu til Guðrúnar dóttur sinnar á Ytri-Á í Ólafsfirði með synina. Þá var afí farinn heilsu og hjá Guðrúnu dvöldu þau til dánardægurs. Afi og amma hafa trúlega ekki verið rík af veraldlegum auði á nútíma mælikvarða, en auðug hafa þau verið á annan máta og miðlað börnum sínum gnótt kærleika og kennt þeim að elska og virða náurng- ann. Þann 30. mars 1929 gekk Kristín að eiga Bernharð Guðjónsson, frá Vindheimum á Þelamörk. Þau settust að á Akureyri, og 5. júní 1930 fædd- ist þeim sonur er skíi'ður var Hreinn. Þetta þjónaband varð ekki langt, Bemharður lést á Kristnesspítala þann 2. mars 1932. Þá stóð Kristfn uppi með soninn, en hún stóð ekki ein, freinur en aðrir sem áttu Guð- rúnu systur hennar að. Guðrún bauð henni til sfn að Ytri-Á, þar var ætfð nóg þjartarými, þótt húsnæðið hafí ekki verið stórt. Á Ytri-Á kynntist Kristfn Guð- mundi Magnússyni frá Vestmanna- eyjum, en hann var skipstjóri og stundaði sjómennsku frá Kleifum. Þau giftust þann 16. apríl 1935, og bjuggu í Ártúni í Ólafsfirði. Maðurinn með ljáinn barði aftur að bæjardyram Kristínar, en þann 16. september 1936 fórst Guðmundur með skipi sínu. Það er svo 18. maí 1939 að ham- ingjusól Kristína fer að skína á ný og nú til langframa, en þann dag gengu hún og Nývarð Ólfjörð Jóns- son frá Garði í Ólafsfirði í þjóna- ■ band. Nývarð og Kristfn settust að í Garði og bjuggu þar til ársins 1974, er þau fluttu til Akureyrar. Þau eign- uðust tvö börn, Kára, fæddur 6. októ- ber 1940. Hann er búsettur í Ólafs- firði, kvæntur Sigrúnu Ingólfsdóttur, og Guðfínnu, fædd 7. október 1950. Hún er búsett á Þórastöðum í Ö;ig- ulsstaðahreppi, gift Ólafi Þór Ást- **-» valdssyni. Hreinn sonur Bernharðs og Kristínar býr í Ólafsfírði, kona hans er Guðrún Þorvaldsdóttir. Barnabörn Kristínar eru nfu á lífi og bamabamabömin eru sjö. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að_ dvelja f Garði hjá Kristínu og Nývarð á hveiju sumri frá sjö til fimmtán ára aldurs. Kristín tók á móti mér með sinni hlýju á hveiju vori og þjá henni var gott að dvelja. Hún og Nývarð reynd- ust mér í alla staði sem bestu foreldr- ar. Þegar ég síðar ákvað að reisa sumarbústað, kom ég að máli við þau hjón og spurði hvort landskiki væri á lausu á landareign þeirr. Að venju var vel tekið á móti mér og mér , boðið land hvar sem ég helst kysi. Kristfn var einstök kona, aldrei sást hún skipta skapi og aldrei hall- . mælti hún nokkrum manni, heldur dró fram jákvæðu hliðar fólks og kom þeim að í umræðunni. Kristín og Nývarð vora samhent þjón og sam- band þeirra einkenndist af virðingu og væntumþykju. Þrátt fyrir að heilsu Kristfnar hrakaði nú á seinni áram og hún ætti erfítt með hreyf- ingar, þá kvartaði hún aldrei. Það eru ekki margir sem taka áföllum lífsins með öðru eins æðruleysi og Kristfn gerði. Andlegt þrek ásamt vinnusemi og náungakærleik voru hennar aðalsmerki. Nú þegar leiðir okkar minnar skilja um stund vil ég þakka henni fyrir fóstur f níu sumur ásamt öllu öðru vinarþeli sem hún hefur sýnt mér á liðnum árum. Ég og íjölskylda mfn sendum öll- um aðstandendum Kristínar, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurjón H. Jónsson á ódýran hátt Innbyggðir og utanáliggjandi diskar frá CMS fyrir Macintosh Plus, SE og Mac II í úrvali. Stærðir frá 20 Mb til 600 Mb. Bjóðum einnig segulbandsstöðvar og geisla- diska (WORM). Tilboð: 60 Mb utanáliggjandi segulbandsstöð 65.000,- kr. staðgreitt Tilboð: 20 Mb utanáliggjandi harður diskur aðeins 35.500,- kr. staðgreitt Hringdu í síma 24120 og kynntu þér kjörin. CKRISTJÁN Ó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.