Morgunblaðið - 18.08.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990
25
Kristín Sigurjóns
dóttir - Minning
Fædd 5. september 1906
Dáin 12. ágúst 1990
Stundum er metist á um gildi
hinna ýmsu starfa fyrir þjóðfélagið.
Sýnist þar sitt hveijum. Mat einstakl-
inga á eigin verkum er líka misjafnt.
Sumum er það eðlislægt að láta á
sér bera og leita eftir viðurkenningu
á því sem þeir telja sig hafa afrekað
meðan aðrir vinna verk sín í kyrrþey.
Að mínu mati er móðurhlutverkið
göfugast allra starfa og mest um
vert að það sé vel rækt bæði fyrir
hvern einstakling og þjóðfélagið í
heild.
Nó þegar ég hef misst móður
mína og veit að ég mun aldrei sjá
hana framar geri ég mér grein fyrir
því, hvað hún var mér mikils virði
ekki aðeins í uppvextinum heldur öll
mín æviár. Með orðum verður hugur
minn til hennar ekki tjáður, nema
að litlu leyti, en þó mun ég reyna
að minnast hennar.
Hún hét Kristín Siguijónsdóttir
og var fædd þann 5. september árið
1906 á Móafelli í Stíflu í Skagafírði.
Foreldrar hennar voru Siguijón
Jónsson og Helga Jónsdóttir húshjón
þar á bænum.
Þegar móðir min var tveggja ára
flutti hún með foreldrum sínum að
bænum Litlu Brekku á Höfðaströnd
og var þar til tíu ára aldurs er leiðin
lá aftur að Móafelli.
Næstu íjögur árin bjuggu foreldr-
ar hennar á Móafelli, en voru siðan
í nokkur ár á ýmsum öðrum bæjum
í Stiflunni eða þar.til þau fluttu að
Ytra Á í Ólafsfirði árið 1926.
Móðir mín átti þijú systkini: Guð-
rúnu, Jón Gunnlaug og Jóhann. Tvö
hin fyrstnefndu eru látin en Jóhann
á heima í Hátúni 10 í Reykjavík.
Ung að árum fór hún að heiman
til þess að vinna fyrir sér. Um annað
var ekki að ræða. Hún þráði að fara
í skóla en engir möguleikar voru á
því að láta þá drauma rætast.
Næstu árin var hún vinnukona á
ýmsum stöðum þar á meðal Syðri
Bægisá í Öxnadal. Þar kynntist hún
föður mínum Bemharð Guðjónssyni,
sem þá var kennari þar í dalnum.
Þau giftu sig 30. mars 1929 og vom
þá um sumarið á Vindheimum, þar
sem hann átti heimili hjá fósturfor-
eldrum sínum.
Um haustið fluttu þau til Akur-
eyrar og stofnuðu heimili. Sumarið
eftir fæddist ég.
Hamingja og heiðríkja blasti við
ungu hjónunum um sinn, en brátt
dimmdi yfír, því að einu ári síðar
veiktist faðir minn af berklum og
þurfti að fara á Kristneshæli.
Þegar sýnt var að veikindi hans
vom alvarieg fylgdi móðir mín hon-
um eftir og fékk leigt á Kristnesbæn-
um til þess að geta verið sem næst
honum meðan hann háði erfíða og
vonlausa baráttu við þennan voða-
sjúkdóm, sem á þessum áram hjó
stór skörð í raðir fólks á besta aldrí.
2. mars 1932 lést faðir minn og
móðir mín einstæð fór með bamið
sitt til Guðrúnar systur sinnar, sem
bjó á Ytri Á á Kleifum í Ólafsfírði
og var hjá henni um nokkurt skeið.
Síðar leigði hún eitt lftið herbergi í
Ártúni á Kleifum og þar vomm við
næstu árin, fyrst ein en 16. apríl
1935 giftist móðir mín aftur. Maður
hennar hét Guðmundur Magnússon,
ættaður úr Landeyjum en kom til
Ólafsfjarðar frá Vestmannaeyjum.
Guðmundur rak útgerð á Kleifum
ásamt öðmm manni og var skip-
stjóri á litlum dekkbáti þeirra er hét
Þorkell máni.
16. desember 1936 fórst báturinn
með allri áhöfn, 5 mönnum sem allir
vom í blóma lífsins.
í annað sinn á rúmum fjóram áram
hlaut móðir mfn það áfall sem hvað
mest reynir á mannlegt þrek, að
missa ástfólginn maka sinn. Ekki lét
hún þó bugast við þetta. Enn átti
hún drenginn sínn til að lifa fyrir.
Næsta ár fluttum við til Akur-
eyrar, þar sem hún vann fyrír okkur
með saumaskap.
Haustið 1938 gat hún loks látið
gamlan draum rætast, að fara í
skóla. Það var húsmæðraskólinn Ósk
á ísafirði sem varð fyrir valinu. Mér
kom hún f fóstur hjá mágkonu sinni
og bróður, Bimu Finnsdóttur og Jóni
Siguijónssyni, sem bjuggu að Holta-
götu 2 á Akureyri. Hún vissi að þar
var ég í öruggum höndum og hlýjum.
18. maí 1939 giftist móðir mín
Nývarði Ólfjörð Jónssyni í Garði í
Ólafsfírði. Þau hófu þegar búskap á
þeii-ri jörð og bjuggu þar til vorsins
1974 er þau brugðu búi og fluttu til
Akureyrar í Skarðshlíð 4.
Búskapur þeirra í Garði einkennd-
ist af mikilli elju og atorku. Þau tóku
við kostalítilli jörð með lélegum hús-
um og lítilli ræktun. Öll hús endur-
byggðu þau og ræktuðu það land sem
ræktanlegt var. Að auki keyptu þau
eyðijörð þar sem land var einnig brot-
ið og ræktað.
Þau eignuðust tvö böm: Kára, sem
kvæntur er Sigrúnu Ingólfsdóttur.
Þau búa í Ólafsfírði og Guðfinna sem
gift er Óla Þór Ástvaldssyni. Þeirra
heimili er á Þórustöðum V í Eyja-
fírði. Sjálfur bý ég í Ólafsfirði ásamt
eiginkonu minni Guðrúnu Þorvalds-
dóttur.
Vinnudagur í sveitinni var að jafn-
aði bæði langur og strangur einkum
meðan heyskapurinn stóð yfir og
áður en vélvæðingin hófst.
Oft hlýtur móðir mín að hafa
gengið örþreytt til hvflu, en aldrei
hafði hún orð á því. Þótt fjölskyldan
væri ekki stór var oft mannmargt á
heimilinu. Gestkvæmt var enda votu
húsráðendur gestrisnir og mann-
blendnir. Flest sumur vora einnig
böm í sumardvöl f Garði.
Ætla mætti að húsmóðurstörfín
hefðu verið nóg verkefni en það
fannst_ þessari atorkusömu konu
ekki. Á sumrin vann hún af kappi í
heyskapnum og á veturna spann hún
ull og pijónaði og saumaði fatnað á
fjölskyldu sína og marga aðra. Ég
minnist þess varla að henni félli verk
úr hendi og iðulega gaf hún sér ekki
tíma til þess að setjast við matborðið
en var á þönum meðan aðrir snæddu.
Henni var rík þjónustulund í blóði
borin og vildi vera veitandi en ekki
þiggjandi.
Um það leyti sem þau hjónin
bragðu búi fór heilsu móður minnar
hrakandi. Hún fékk liðagigt sem
ágerðist eftir því sem árin liðu.
Það var dapurlegt að horfa á hend-
umar hennar kreppast og missa
mátt. Þessar hendur sem eitt sinn
höfðu reynt að lina helstríð föður
míns og höfðu leitt og vemdað böm-
in hennar og annarra. Þessum þjáðu,
kræklóttu höndum var þó beitt af
viljastyrk en ekki mætti fram .á
síðustu stund.
Það var líka átakanlegt að horfa
á bakið hennar bogna og kýtast sam-
an þegar kvalafull gigtin settist að
f því.
Mörgum sinnum þurfti hún að
leggjast inn á sjúkrahús, þar sem
hún gekkst undir aðgerðir.
Af æðraleysi bar hún líkamlegar
þjáningar sínar eins og hinar andlegu
forðum daga, þegar hún missti ást-
vini sína. Aldrei var neina uppgjöf
að finna. Efst í huga hennar var
þakklæti til þeirra sem reyndu að
hjálpa henni og löngunin að fá að
vera heima.
Erfitt átti hún með að sitja auðum
höndum, þótt hendumar væru
krepptar og tvær hækjur þyrfti til
þess að bera sig um. Allt fram á
sfðasta dag sem hún var heima vann
hún þau húsverk sem hún gat og
nægðu þau ekki starfslöngun hennar
greip hún til þeirrar handavannu sem
hún réði við.
Skaparinn var henni óvægur er
hann hreif frá henní tvo eiginmenn
með stuttu millibili, en honum sé
þökk fyrir að gefa henni hinn þriðja,
sem virti hana og dáði og sýndi henni
mikla umhyggju.
Ætla mætti að manneskja sern
hefur orðið fyrir svo miklu mótlæti
í lífínu væri bitur og neikvæð. Svo
var ekki með móður mína. Ég minn-
ist þess ekki að hafa heyrt hana
hallmæla neinum hvorki fyrr né sfðar
og yrði hún áheyrandi slíkra um-
mæla frá öðram tók hún gjaman upp
hanskann fyrir þann sem hnjóðað var
í.
Nú er móðir mín öll. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þann 12. þ.m.
Saga hennar er saga fslenskrar
móður. Saga alþýðukonunnar sem
oft þurfti að treysta á mátt sinn og
megin. Konunnar sem ekki lét bug-
ast þótt lífíð léki hana stundum
gi-átt. Konunnar sem vann störf sín
í kyrrþey og lagði í þau hjarta sitt
og sál.
Guð gefi sem flestum slíka móður.
Hreinn Bernharðsson
Hún Kristín mín er horfín frá okk-
ur, yfír móðuna miklu, þangað sem
leið okkar allra liggur fyrr eða síðar.
Minningar liðinna ára streyma fram
allar ljúfar og góðar. Kristín var gift
Nývarði Jónssyni Ólfjörð og bjuggu
þau hjón lengst af að Garði í Ólafs-
fírði, en fluttu síðan til Akureyrar
og áttu yndislegt heimili f Skarðshlið
4. Þau hjónin voru sérlega samhent,
þar sem annað þeira var þar var
hitt lfka svo að segja með hönd á
sama hlutnum.
Það var gaman að heimsækja
Kristínu og Nývarð þau vora alltaf
jafn \júf f viðmóti og gestrisnin var
þar ávallt f fyrirrúmi, það má segja
að það hafí verið hennar líf og yndi
að taka á móti fólki, hún var aldrei
ánægð fyrr en komið var hlaðið borð
af alls konar góðgæti, sfðan var sest
til stofu og spjallað um alla heima
og geima.
Við þjónin áttum því láni að fagna
að vera gestir á heimili þeirra Ný-
varðs og Kristfnar viku fyrir andlát
hennar, fyrir það viljum við þakka
og allar samverustundimir, sem við
höfum átt með þeim í mörg ár, allt
frá þvl að sonur okkar tengdist þess-
ari fjölskyldu, en hann er giftur
Guðfinnu dóttur þeirra og eiga þau
þijú böm. Það má segja að þjá Ný-
varði og Kristfnu hafí þau átt sitt
annað heimili, og að alla tíð hafí hún
reynst syni okkar sem besta móðir.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Elsku Nývarð við vottum þér,
börnum þínum og fjölskyldum þeirra
innilega samúð.
Kristín, Ástvaldur Helgasou og
börn.
Þeir hverfa einn af öðrum, sam-
ferðamennimir, sem settu hvað
mestan svip á Ólafsfjörðinn, þegar
ég var að alast upp. Með söknuði
horfum við á eftir vinum og ætt-
mennum yfír móðuna miklu. Nú
síðast kvaddi þennan heim föðursyst-
ir nún, Kristfn Siguijónsdóttir, til
heimilis í Skarðshlíð 4 á Akureyri,
en hún lést á Fjót'ðungssjúkrahúsinu
á Akureyri .þann 12. ágúst sl.
Kristfn fæddist á Móafelli í Fljót-
um, dóttir hjónanna Siguijóns Jóns-
sonar og Helgu Jónsdóttur. Kristín
var önnur í röðinni af fjórum systkin-
um, eldri var Guðrún, húsmóðir á
Ytri-Á í Ólafsfirði, en yngri voru
faðir minn Jón Gunnlaugur trésmiður
á Akui-eyri og Jóhann sem býr í
Reykjavfk. Hann hefur nú séð á eft-
ir systkinum sínum þrem yfír í annað
tilverastig.
Siguijón afi og Helga amma,
bjuggu sín fyrstu búskaparár á Móa-
felli, en fluttu þaðan í Litlu-Brekku
á Höfðaströnd og bjuggu síðar á
öðrum bæjum í Fljótum, uns þau
fluttu til Guðrúnar dóttur sinnar á
Ytri-Á í Ólafsfirði með synina. Þá
var afí farinn heilsu og hjá Guðrúnu
dvöldu þau til dánardægurs.
Afi og amma hafa trúlega ekki
verið rík af veraldlegum auði á
nútíma mælikvarða, en auðug hafa
þau verið á annan máta og miðlað
börnum sínum gnótt kærleika og
kennt þeim að elska og virða náurng-
ann.
Þann 30. mars 1929 gekk Kristín
að eiga Bernharð Guðjónsson, frá
Vindheimum á Þelamörk. Þau settust
að á Akureyri, og 5. júní 1930 fædd-
ist þeim sonur er skíi'ður var Hreinn.
Þetta þjónaband varð ekki langt,
Bemharður lést á Kristnesspítala
þann 2. mars 1932. Þá stóð Kristfn
uppi með soninn, en hún stóð ekki
ein, freinur en aðrir sem áttu Guð-
rúnu systur hennar að. Guðrún bauð
henni til sfn að Ytri-Á, þar var ætfð
nóg þjartarými, þótt húsnæðið hafí
ekki verið stórt.
Á Ytri-Á kynntist Kristfn Guð-
mundi Magnússyni frá Vestmanna-
eyjum, en hann var skipstjóri og
stundaði sjómennsku frá Kleifum.
Þau giftust þann 16. apríl 1935, og
bjuggu í Ártúni í Ólafsfirði. Maðurinn
með ljáinn barði aftur að bæjardyram
Kristínar, en þann 16. september
1936 fórst Guðmundur með skipi
sínu.
Það er svo 18. maí 1939 að ham-
ingjusól Kristína fer að skína á ný
og nú til langframa, en þann dag
gengu hún og Nývarð Ólfjörð Jóns-
son frá Garði í Ólafsfirði í þjóna- ■
band. Nývarð og Kristfn settust að
í Garði og bjuggu þar til ársins 1974,
er þau fluttu til Akureyrar. Þau eign-
uðust tvö börn, Kára, fæddur 6. októ-
ber 1940. Hann er búsettur í Ólafs-
firði, kvæntur Sigrúnu Ingólfsdóttur,
og Guðfínnu, fædd 7. október 1950.
Hún er búsett á Þórastöðum í Ö;ig-
ulsstaðahreppi, gift Ólafi Þór Ást- **-»
valdssyni. Hreinn sonur Bernharðs
og Kristínar býr í Ólafsfírði, kona
hans er Guðrún Þorvaldsdóttir.
Barnabörn Kristínar eru nfu á lífi
og bamabamabömin eru sjö.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að_ dvelja f Garði hjá Kristínu og
Nývarð á hveiju sumri frá sjö til
fimmtán ára aldurs.
Kristín tók á móti mér með sinni
hlýju á hveiju vori og þjá henni var
gott að dvelja. Hún og Nývarð reynd-
ust mér í alla staði sem bestu foreldr-
ar. Þegar ég síðar ákvað að reisa
sumarbústað, kom ég að máli við þau
hjón og spurði hvort landskiki væri
á lausu á landareign þeirr. Að venju
var vel tekið á móti mér og mér ,
boðið land hvar sem ég helst kysi.
Kristfn var einstök kona, aldrei
sást hún skipta skapi og aldrei hall- .
mælti hún nokkrum manni, heldur
dró fram jákvæðu hliðar fólks og kom
þeim að í umræðunni. Kristín og
Nývarð vora samhent þjón og sam-
band þeirra einkenndist af virðingu
og væntumþykju. Þrátt fyrir að
heilsu Kristfnar hrakaði nú á seinni
áram og hún ætti erfítt með hreyf-
ingar, þá kvartaði hún aldrei. Það
eru ekki margir sem taka áföllum
lífsins með öðru eins æðruleysi og
Kristfn gerði. Andlegt þrek ásamt
vinnusemi og náungakærleik voru
hennar aðalsmerki.
Nú þegar leiðir okkar minnar
skilja um stund vil ég þakka henni
fyrir fóstur f níu sumur ásamt öllu
öðru vinarþeli sem hún hefur sýnt
mér á liðnum árum.
Ég og íjölskylda mfn sendum öll-
um aðstandendum Kristínar, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sigurjón H. Jónsson
á ódýran hátt
Innbyggðir og utanáliggjandi diskar
frá CMS fyrir Macintosh Plus, SE
og Mac II í úrvali. Stærðir frá 20 Mb
til 600 Mb. Bjóðum einnig
segulbandsstöðvar og geisla-
diska (WORM).
Tilboð: 60 Mb utanáliggjandi segulbandsstöð
65.000,- kr. staðgreitt
Tilboð: 20 Mb utanáliggjandi harður diskur
aðeins 35.500,- kr. staðgreitt
Hringdu í síma 24120 og kynntu
þér kjörin.
CKRISTJÁN Ó