Morgunblaðið - 18.08.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. AGUST 1990
19
Bretum og Bandaríkjamönnum stefnt á hótel í Kúvæt;
Tilskipun stjórnvalda
í Irak ekki framfylgt
Breskum og bandarískum stjórnarerindrekum meinað
að heiméækja landa sína í Bagdad
Lundúnum. Reuter.
BRESK stjórnvöld sögðu í gær
að innrásarlið íraka í Kúvætborg
hefði ekki framfylgt iyrirskipun
um að þúsundir Breta og Banda-
ríkjamanna skyldu safnast sam-
an í tveimur hótelum borgarinn-
ar. Hins vegar var breskum og
bandarískum stjórnarerindrek-
um meinað að heimsækja tugi
Bandaríkjamanna, sem urðu inn-
lyksa í hótelum í Bagdad eftir
innrás Iraka í Kúvæt 2. ágúst.
Háttsettur bandarískur þing-
maður varaði Iraka við því að
Bandaríkjamenn myndu grípa til
harðra hefndaraðgerða ef
bandarískum borgurum yrði gert
mein í Kúvæt og Irak.
„Þetta er alvarleg og ískyggileg
þróun,“ sagði talsmaður breska ut-
anríkisráðuneytisins er fréttir bár-
ust af fyrirskipuninni. 4.000 Bretar
og 2.500 Bandaríkjamenn eru í
Kúvæt og óttast var að þeir yrðu
teknir sem gíslar þótt írösk stjórn-
völd segðu að ætlunin væri að safna
þeim þeim saman til að tryggja
öryggi þeirra. Fyrirskipunin kom
frá háttsettum íröskum embættis-
manni í Kúvæt og varaði hann
breska stjómarerindreka við „mikl-
um vandræðum“ ef ekki yrði farið
eftir henni.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði una sólarhring
síðar að nokkrir Bretar hefðu hlýtt
fyrirskipuninni og farið á hótelið,
sem þeim var stefnt á, en engir
írakar hefðu verið þar. Hann sagði
að breska stjórnin hefði krafist taf-
B
I
m&AiiiíVMVivmMiJimvm
a
2.500 Banda- i
ríkiamönnum RAK
sktpaö að Kú|^
safnast saman O
Hótel
Kuwalt
Internatlonal
jf
4.000 Bret-
um skipað
aö safnast
saman
.vKÚVÆT->\'
^\b^lÍ..Ók #
mÍHl Hótel
Annar bandarískur embættismaður
sagði að svo virtist sem mennirnir
hefðu verið fluttir í annað hótel en
ekki væri vitað hvers vegna það
hefði verið gert. Um 500 Banda-
ríkjamenn eru í Irak.
Meira en 600 Bretar eru í írak,
þar af voru 90 fluttir þangað frá
Kúvæt eftir innrásina. „Við minnum
íraka daglega á skyldur þeirra
gagnvart útlendingum samkvæmt
alþjóðalögum og við mótmælum
þegarþau eru brotin," sagði Hurd.
Stephen Solarz, atkvæðamikill
félagi í utanríkismálanefnd fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, sagði að
ef Bandaríkjamenn yrðu pyntaðir
eða drepnir myndu Bandaríkjamenn
grípa til svo harðra hefndaraðgerða
að her og efnahagur landsins yrði
í rústum.
Bush og Hussein á leið til fundar.
Reuter
arlausra skýringa á fyrirskipuninni.
Sendimaður Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, í Kúv-
æt sagði tilskipunina mikið
áhyggjuefni.
Talsmenn bandaríska utánríkis-
ráðuneytisins sögðu að svo virtist
sem flestir Bandaríkjamannanna
hefðu virt fyrirskipunina að vettugi.
Hurd skýrði frá því að írösk
stjórnvöld hefðu bannað sendiráðs-
mönnum að heimsækja annað af
tveimur hótelum í Bagdad þar sem
Bretum er haldið. Bandarískur
stjórnarerindreki sagði að hermenn
hefðu flutt 35 Bandaríkjamenn úr
öðru hóteli í borginni. írösk stjórn-
völd gáfu enga skýringu á þessu.
Árangurslítil heimsókn
Husseins til Bandaríkjanna
Amman. Reuter.
LÍTILL árangur varð af heimsókn Husseins Jórdaniukonungs til Banda-
ríkjanna. Heimildarmenn Reuíens-fréttastofunnar segja að Hussein
hafi verið í þungu skapi þegar hann skýrði ríkisstjórn sinni frá niður-
stöðu fundarins í gær. „Hann var mjög niðurdreginn," sagði einn
þeirra sem hlýddu á konunginn.
Sáttagjörð Iraka og Irana:
30 íraskar herdeild-
Fundur Husseins og Bush á
fimmtudag í sumadvalarstað Banda-
ríkjaforseta í Maine-ríki varð lengri
en búist var og stóð í rúmar tvær
klukkustundir. Breska útvarpið BBC
sagði að opinská skoðanaskipti hefðu
greinilega átt sér stað á fundinum.
Bush sagði að Hussein hefði lofað
að framfylgja viðskiptabanni Sam-
einuðu þjóðana á írak en sjálfur sagði
Hussein að hann vildi bíða eftir því
að SÞ skýrði umfang bannsins.
„Ég býst við að maður verði að
halda í vonina,“ sagði Ilussein- á
fréttamannafundi í Bandaríkjunum
eftir að hafa hitt Bush. „Án vonar
keinst maður ekkert áleiðis. Og hætt-
urnar eru slíkar að það er óhugsandi
að velta því fyrir sér að gefast upp.“
Ekki er ljóst hvað Hussein ætlaðist
fyrir með heimsókninni. Ekki sagðist
hann hafa meðferðis bréf frá Saddam
Hussein íraksforseta eins og gefið
hafði verið til kynna í Jórdaníu.
Reyndar sagði BBC að Hussein hefði
ef til vill hætt við að draga bréfið
upp úr pússi sínu þegar hann heyrði
um innihald hins opna bréfs íraksfor-
seta til Bush.
Jórdaníukonungur er í mjög erf-
iðri aðstöðu. Framfylgi hann við-
skiptabanni SÞ kallar hann yfir sig
reiði íraka og stórs hluta eigin þegna
sem virðast styðja Saddam Hussein.
Jafnframt kæmi slíkt niður á efna-
hag Jórdaníu sem er mjög háður við-
skiptunum við írak. En ef Jórdanir
þráast við að beita íraka efnahags-
þvingunum eiga þeir sjálfir á hættu
harkaleg viðbrögð heimsbyggðarinn-
ar. „Það er sama hvað við gerum,
niðurstaðan er efnahagslegt sjálfs-
morð,“ sagði jórdanskur embættis-
maður í gær.
ir fluttar frá Iran
Níkósíu. Reuter.
BROTTFLUTNINGUR íraskra hersveita frá íran hófst í gær í
samræmi við yfirlýsingu Saddams Husseins Iraksforseta frá því
á miðvikudag er ha.nn gekk óvænt að öllum þeim skilyrðum sem
íranir höfðu sett fyrir formlegum samningi um frið í Persa-
flóastríðinu. Um 1.000 stríðsfangar voru einnig fluttir frá Bagdad,
höfuðborg íraks, yfir landamærin til írans. Talið er að allt að
400.000 íraskir hermenn bætist með þessu í herafla Saddams í
Kúvæt og írak.
Útvarpið í Teheran, höfuðborg
írans, skýrði frá því í gærmorgun
að brottflutningurinn væri hafmn
og dagblöð fjölluðu ítarlega um
málið. Eitt þeirra birti frétt á for-
síðu undir fyrirsögninni: „Blessað
veri bergmál fyrstu skrefa ykkar á
fósturjörðinni". í fréttum útvarps-
ins sagði að fangamir hefðu grátið
og kysst fósturmoldina þegar þeir
stigu á ný á íranska jörð. Að sögn
fréttamanns Reuters-fréttastofunn-
ar í Bagdad var föngunum ekið í
bílum í gegnum borgina og voru
þeir klæddir gulum fangabúning-
um. Nokkrir þeirra veifuðu til veg-
farenda er bílarnir óku hjá. Stjórn-
völd í Teheran hafa fagnað tilkynn-
ingu Íraksforseta og sagt hana til
marks um sigur Iraka í stríðinu,
sem hófst árið 1980 og stóð í átta
ár. Ekki er vitað með vissu hversu
margir stríðsfangarnir eru en
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
segja hugsanlegt að 35.000 íranir
hafi verið teknir höndum og 70.000
írakar.
Fjölmiðlar í írak skýrðu frá því
að 30 herdeildir yrðu fluttar frá
íran og að liðsaflanum yrði nú beint
gegn erlendum hersveitum í Saudi-
Arabíu. Málgagn Saddams íraks-
forseta birti einnig ákall hans til
stjórnvalda í Teheran þar sem hann
hvatti írani til þess að ganga í lið
með írökum og heyja heilagt stríð
gegn íhlutun erlendra ríkja.
ftofpiw-
fæst
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG A RÁOHÚSTORGI