Morgunblaðið - 18.08.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Mm
Þvo sér frá toppi til táar
upp úr handlaugum
Til Velvakanda.
Ég var í Skaftafelli fyrir stuttu
þar sem er yndisleg aðstaða á all-
an hátt. Þar er meðal annars
skilti á þrem tungumálum sem
segir að bannað sé að baða sig
nakinn upp úr handlaugunum og
er þama sturta sem hægt er að
fá að nota. Þama komu tvær ung-
ar enskar stúlkur og spurðu hvort
væri leyfilegt að standa nakinn
og þvo sé upp úr handlaugunum.
Ég benti þeim á skiltið þar sem
stóð að slíkt væri bannað, einung-
is mætti þvo sér um hendur og
andlit. Þá standa þarna þijár
kviknaktar þýskar stúlkur og eru
að þvo sér frá toppi til táar úr
handlauginni. Ég benti þeim kurt-
eislega á skiltið en þær hlógu
Þessir hringdu .. .
Jfe O'
Unglingarnir voru
úr öðrum hverfúm
Ásdís hringdi:
„Ég vil koma með athugasemd
við það sem birtist í Velvakanda
um unglingana í Breiðholtinu í
kjölfar þess að ráðist var á vagn-
stjóra. Þessir umræddu unglingar
voru alls ekki úr Breiðholtinu
heldur voru að koma af Rykkrokk-
tónleikum sem haldnir voru í
Breiðholti og vildu komast heim
til sín. Þessir unglingar búa því í
öðrum hverfum, sem reyndar eru
ekki tiltekin. Mér finnst nóg af
því gert að ræða um unglingana
í Breiðholti og vil því koma þess-
ari leiðréttingu á framfæri."
Trúi börnunum
Sigrún hringdi:
„Vegna þessarar árásar á
vagnstjórann sem mikið hefur
verið skrifað um held ég að það
séu fleiri sem trúa börnunum, en
þau hafa sagt að vagnstjórinn
hafí byijað. Ég ferðast mikið með
strætisvögnum og á þeim leiðum
sem ég hef farið hef ég séð ýmis-
legt til strætisvagnabílstjóra. Oft
fínnst mér að þeir stressist upp
um leið og þeir sjá fólk innan
tvítugs. Auðvitað veit ég líka að
unglingskrakkar geta verið grófír
en í þessu tilviki trúi ég því sem
þau segja.“
Hvar fæst spiladós með
ballerínu?
Berghildur hringdi:
„Mig langar til að vita hvort
einhver verslun selur spiladós með
ballerínu sem snýst. Yfírleitt er
gler yfír ballerínunni og spiladósin
trekkt upp. Ég er mikið búin að
leita en hvergi fundið svona spila-
dós, er ekki einhver sem selur
svona?“
Unglingarnir voru ekki úr
Breiðholti
Jórunn hríngdi:
„Mig langar að koma því á
framfæri að líklega hafa þessir
unglingar sem réðust á vagnstjór-
ann alls ekki verið úr Breiðholt-
inu. Sjálf á ég unglinga í Breið-
holti og fínnst mér leiðinlegt að
unglingar í þessu hverfí séu hafð-
ir fyrir rangri sök. Þama á tón-
leikunum vom unglingar alls stað-
ar úr borginni, ekki bara Breið-
holti.“
Ungmennin ekki úr
Breiðholtshverfi
Guðrún hringdi:
„Mig langar að benda á frétt
sem birtist í Morgunblaðinu 15.
ágúst sl. um slagsmálin í strætis-
vagninum við Eddufell. Þar kemur
fram að ungmennin eru ekki bú-
sett í Breiðholti. Þess vegna skil
ég ekki hvers vegna Breiðholtið
er dregið út úr umræðunni og
rætt um að strætisvagnabílstjórar
sem keyra í hverfíð þurfi sérstaka
vemd. Mér sýnist að þetta gæti
hafa gerst hvar sem er í Reykja-
vík. Eg vil að síðustu benda íbúa-
samtökum Breiðholtshverfa á að
láta frá sér heyra um þetta mál
því hér er enn einu sinni Breiðhol-
tið í neikvæðri umræðu.“
Spjótunum alltaf beint að
unglingum í Breiðholti
Halla hringdi:
„Mér skilst að unglingarnir sem
áttu hlut að máli þegar ráðist var
á strætisvagnabílstjórann hafí alls
ekki verið úr Breiðholti. Það væri
gaman að vita hvar þeir eiga
heima. Því spjótunum er alltaf
beint að unglingunum í Breiðholt-
inu. Mér fínnst það hálf kyndugt
að strætisvagnabflstjórar vilji
hætta að keyra síðustu ferðina í
Breiðholti þegar þessi böm sem
réðust á manninn eiga alls ekki
heima í Breiðholtinu.J‘
Kvittunin gildir sem
ökuskírteini
Gunnar hringdi:
„Ég var að lesa Víkveija sem
kvartar yfír að langan tíma taki
að fá nýtt ökuskírteini. Ég vil
segja Víkveija að þeir sem era
að endumýja skírteinin sín fá
kvittun sem gildir sem ökuskír-
teini á meðan beðið er eftir að fá
nýtt skírteini í hendurnar."
Týnd læða
Hvít læða týndist fyrir rúmum
hálfum mánuði frá Snorrabraut.
Læðan er með annað augað blátt
og hitt grænt. Þeir sem vita um
læðuna era beðnir að hringja í
síma 24763.
Týndi gullúri
Kvengullúr með brúnni ól týnd-
ist á leiðinni frá Aðalstræti upp á
Ránargötu þriðjudaginn 14.
ágúst. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 11893.
Gleraugu í óskilum
Gleraugu með brúnni umgjörð
fundust fyrir utan Hús verslunar-
innar í Kringlunni 7 fyrir nokkram
dögum. Eigandi getur hringt í
síma 608000.
Týndi rúskinnsjakka
Svartur rúskinnsjakki týndist
nálægt Hótel íslandi aðfaranótt
laugardagsins síðasta. Finnandi
vinsamlega hringi i síma 50684.
Læða týnd
Kettlingafull hvít, brún og
svört læða hvarf frá Hjallaseli 17.
Á læðunni er merki þar sem
heimilisfangið kemur fram. Þeir
sem vita um köttinn eru beðnir
að hringja í síma 74476.
bara. Og enginn vörður fannst sem
hefði getað bannað þetta.
Mér er svo sem sama þó fólk
standi þama kviknakið og þvoi sér
en það er alltaf verið að tala um
hvemig íslendingar eru og ekki
býst ég við að íslendingar myndu
gera þetta. Og þegar gefínn er
kostur á að fara í sturtu ættu
erlendu ferðamennirnir að notfæra
sér það, þó þeir þurfí að bíða í
smátíma í biðröð.
En öll aðstaða þarna er einstak-
lega þrifaleg og elskulegheit með
eindæmum, þó má ég til með að
minnast á að fleiri bekkjum með
áföstum borðum mætti koma fyrir
þarna.
Kristjana
TVI
HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI
Markmið kerfísfr.-cóinámsins er að gera nemcndur h;cfa til að skipu-
ieggja og annast tölvuv.-cðingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu
og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur.
Hægt crað hcQa nám i scptcmbcr ogjanúar. Stúdentaraf hagfræði-
braut Ijúka námi á þrcmur önnum. en aðrir gcta þurft að sækja
tima í fornámi. scnt er cin önn til viðbótar. Áhersla er lögð á aó fá
til náms fólk. scm í dag starfar við tölvuvinnslu og í tölvudeildum
fvrírtækja. auk nýstúdcnta. Sérstaklega skal bcnt á. að þeir. scm
hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi. þurfa að sækja um
nú þcgar um innritun á vorönn. Ncmcndur. scm vilja halda áfram
að vinna hluta úr dcgi jafnframt námi. þurfa aó ræða við kennslu-
stjóra um mögúleika á því.
Umsóknarfrestur fyrir vorönn 1991 er til 17. scptembcr nk. cn
þcir. scm hafa áhuga að hcfja nánt í haust. þurfa að sækja urn scrn
allra fyrst. Umsóknarcyóublöð fást á skrifstofu Vcrzlunarskólans.
Ofanlciki 1.
TÖLVUHÁSKÓLI V.í.
Er Rósa hætt
í þularstarfi?
Til Velvakanda.
Mig langar að koma spurningu
á framfæri til forráðamanna sjón-
varpsins hvort Rósa Ingólfsdóttir
sé hætt í þularstarfinu. Hún hefur
ekki sést lengi á skjánum og heyrst
hefur að hún hafi verið látin hætta.
Og fínnst mér það furðulegt að láta
hætta eina bestu og vinsælustu
þulu sjónvarpsins. Ég skora á sjón-
varpið að ráða Rósu Ingólfsdóttur
aftur í þularstarf því það vantar
mikið þegar hana vantar.
Sjónvarpsáhorfandi
Súkkii/aði Sælkera ns
O -gr ■ ■
,.jr-
-ÆZ wfcÆEkÆk
Neildsölubirgðir islensk Dreifing Sími 91 - 68 73 74
VEITINGAHALLARVEISLAN
CÐÍ SfD Cii ItDÍDC
Hff ■ blli* il>
GQMSÆT OG GIRNILEG
Kjarabótaveisla Vejtingahallarinnar helciur áfram meÓ enn
fjölbreyttari og girnilegri matseóli alla föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Fjölskyldan fær úrvalsmat á frábæru veróí.
FISKRÉIÍIR
Fískgratín hússins.................kr 890
Djúpsteikl ýsutlök Orly
m/tórnotkryddjurtasósii..........kr 690
Biandaðir sjávarréttir
i ostösósu....... kf 1.090
Steikt rouðsprettuflök
m/jougurtsósu ........ ..........kr. 890
Risloður karfi m/srnjörsoónum
blaðiauk og rabaibarasósu..........kr. 860
Gufusoöriar fylltar fiskírullur
m/núðlum og bernqisesósu..........kr 940
KJOtKRIIK
Nauta- og grisahryggssrieiðaf
m/lveím tegundum oi sósu... kr. 1.490
Maririeraðar larnbalundir
m/piporsveppasósu..............kr. 1.390
KVOlOKFKiliKKÍiriK
Hyíllaukskrvddað larnbalærí
m/bakaðri karloflu og 'sósu kr. 1.290
Fjölbreytíir barnaréttir á vægu verði. Súpa, brauó og kaffi innífaJjð í öllum réttum.
Kafflhlaðborðið á sunnudögum er girnilegra og fjölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum og brauðtertum.
Kaffihlaðborð sem seint gleymist.
Vpitingahalfan/eisla fyrir alla fjölskylduna er Ijúf og ódýr tilbreyting.
Húsi verslunarínnar - símat: 332/2-30400