Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 1

Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 1
96 SIÐUR B/C 192. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Snorri Snorrason SYNT í SJÓNUM VIÐ ARNARSTAPA • • Oryggisráðið leyfir notkun her- valds til að framfylgja hafnbanni Irökum berast efnavopn og hergögn loffcleiðis frá Líbýu New York. Nikósíu. London. Kairó. Abu Dhabi. Reuter. ORYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ) samþykkti í gærmorgun að heimila alþjóðleg- um flota á Persaflóasvæðinu að beita vopnavaldi til þess að framfylgja viðskipta- banni SÞ gegn írak. Frestur sem írakar höfðu gefið til lokunar sendiráða í Kúvæt rann út í fyrrinótt án þess að til tíðinda drægi. Fullyrti upplýsingaráðherra íraks í gærmorgun að þeim yrði ekki lokað með valdi. Drógu írakar skriðdreka til baka frá breska sendiráðinu og opnuðu á ný fyrir vatn og rafmagn. Fjölmennt og vel vopnum búið herlið sat þó enn um breska sendiráðið og rúmlega tug annarra. * Irakar senda orrustuþotur til Súdans og Jemens ÍRAKAR HAFA sent ótiltekinn fjölda orrustuþotna til Jemens og Súdans í öryggisskyni ef til átaka kemur við fjöl- þjóðlegt herlið undir forystu Banda- ríkjamanna og flugvellir í Irak verða eyðilagðir, að sögn heimildarmanna inn- an egypska hersins. Dagblað i Samein- uðu arabísku furstadæmunum greindi frá því í gær að írakar hefðu komið langdrægum Scud-eldflaugum og skot- pöllum fyrir á austurströnd Súdans, en þaðan gætu þeir skotið á skip á Rauða- hafi. Yfirvöld í Jemen neituðu á föstu- dag að íraskar herflugvélar væru á jem- ensku landsvæði. Líbería; Friðargæslusveit- in gengin á land Monrovia. Reuter. FRIÐARGÆSLUSVEIT gekk á land í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, í gær. Hún hafði áður hörfað út úr höfninni þegar skotbardagar brutust þar út. Óðru hvoru mátti heyra skothvelli einn til tvo kílómetra frá höfninni meðan hermenn í friðargæslusveitinni biðu skipana. Allt virtist vera með kyrrum kjörum í borginni í gær en þá hafði sveitin enn ekki verið send út fyrir hafn- arsvæðið. Sígarettuskortur í Sovétríkjunum ÓEIRÐASEGGIR í sovésku borginni Tseljíabínsk eyðilögðu bíla og búðar- glugga og reyndu að yfirtaka skrifstof- ur innanríkisráðuneytisins í borginni á föstudagskvöld, að sögn TASS-frétta- stofunnar. Þetta var þriðja kvöldið í röð sem íbúar mótmæltu matar- og tóbakss- korti. Fyrr um daginn komu 1.500 manns saman við skrifstofur kommúni- staflokksins og kröfðust meira úrvals matar og annarra neysluvara. Yfir 100 manns voru handteknir og tugir særð- ust fyrstu tvo daga óeirðanna. Yfirvöld í Moskvu hafa lýst því yfir að tóbaks- skömmtun verði tekin upp í september. Fulltrúar 13 ríkja af 15 sem sæti eiga í Öryggisráðinu samþykktu tillögu er heimilar hinum alþjóðlega flota á Persaflóa- svæðinu að framfylgja hafnbanni á írak með vopnavaldi. Fulltrúar Kúbu og Jemens sátu hjá. Samþykktin felur í sér að nú fær flotinn heimild til þess að stöðva og fara um borð í skip sem talið er að séu að reyna að bijóta viðskiptabannið. Hermálanefnd Öryggisráðs- ins fær engin afskipti af flotanum. Ráðið hefur aðeins heimilað beitingu vopnavalds tvisvar áður; til þess að hrinda innrás Norður-Kóreumanna í Suður-Kóreu 1950 og vegna einhliða sjálfstæðisyfirlýsingar Rhó- desíumanna, nú Zimbabwe, árið 1965. Valentín Lozínsky, fulltrúi Sovétríkjanna í Öryggisráðinu, sagði í gær að samþykkt ráðsins kynni að leiða til þess að Sovétmenn sendu skip til þátttöku í aðgerðum hins al- þjóðlega flota á Persaflóasvæðinu. Fari svo yrði það í fyrsta sinn eftir stríð að Sovét- menn og Bandaríkjamenn verða vopnabræð- ur. Bandarískir embættismenn sögðu að nú um helgina yrði reynt að loka smugum sem írakar hefðu notað til þess að verða sér út um vopn og matvæli. Þeim bærust enn her- gögn og efnavopn loftleiðis frá Líbýu. Þá hefur ekki tekist að framfylgja viðskipta- banninu til fullnustu og sagði líbanskur flutn- ingabílstjóri í Jórdaníu í gær, að matvæli væru flutt landleiðina frá Líbanon og væru farmskjöl fölsuð í því skyni. Loks greindu heimildir frá því að írakar hefðu í gær og fyrradag sent flutningavélar eftir matvælum til Jemens. Fyrirhugaó að rýmka lög um erlendar fjárfestingar BLAÐ ÓLAFSFJÖRÐUR irenivík (ógssandur • Hauganes Þeirstikna úr hita... AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.