Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGUST 1990 Atvinnuástand á Ólafsfirði er gott. Þar er næga vinnu að hafa fyrir fiskvinnslufólk og nóg að gera fyrir verktaka. Forráða- menn fiskvinnslunnar sjá fram á vandræði í rækjuvinnslunni vegna skorts á starfsfólki í haust þegar skólafólkið hættir. Fjórir skuttogar- ar eru á Ólafsfirði; tveir ísfisks- og tveir frystitogarar, auk fjölda smærri báta. Kvótinn er um 11.000 þorskígildi. Bæði er um að ræða ís- aðan og frystan fisk. Það kom Ólafs- firðingum því í opna skjöldu þegar Eimskip tilkynntu í júnímánuði síð- astliðnum að í bígerð væri að flutn- ingaskip þess hættu að hafa við- komu á Ólafsfirði í lok júlímánaðar og í þess í stað yrði allur fiskur flutt- ur til Dalvíkur. „Ég tel að Dalvíking- ar hafí verið að beijast fyrir því að fá alla flutninga til sín og einhvern veginn komst sá kvittur á kreik að við hefðum ekkert á móti því að okkar flutningar færu um Dalvíkur- höfn. Ég er ekki í nokkrum vafa um að göngin um Múlann eiga þarna stóran þátt í, þar sem sam- göngur á landi verða mun greiðari með tilkomu þeirra." Svo farast Þorsteini Ásgeirssyni orð en hann er formaður bæjarráðs Ólafsfjarðar. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Dalvík, er ekki á sama máli. Hann segir Dalvíkinga ekki hafa borið sig sérstaklega eftir flutn- ingum Ólafsfirðinga og að höfnun- um hafi ekki verið stillt upp sem andstæðum. Það sé hagsmunamál beggja sveitarfélaga að hafnirnar séu sem best í stakk búnar til að þjóna skipaflotanum og vöruflutn- ingum. „Dalvíkurhöfn er vaxandi vöruflutningahöfn, skipakomur á síðasta ári voru um 260 og með breytingum í vöruflutningum og efl- ingu hafnarinnar tel ég að við stönd- um mjög vel að vígi. Þegar ákvörðun er tekin um breytta flutninga hljóta að koma til ótal samverkandi þættir sem skipafélög munu taka tillit til.“ Þorsteinn segir Ólafsfírðinga hafa brugðist hart við yfirlýsingu Eim- skips og þegar hafi verið haft sam- band við félagið, þar sem afstaða Ólafsfirðinga kom mönnum í opna skjöldu. Málið er nú í biðstöðu. Á síðasta ári voru óreglulegar viðkom- ur skipa Eimskips til Ólafsfjarðar, á bilinu 15-20. Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips, segir ætlunina hafa verið að nýta göngin til að tvöfalda skipa- komur til Dalvíkur, upp í tvær á viku, og hætta viðkomum á Ólafs- firði þar sem aðeins séu tæpir 20 Hafnarframkvæmdir í fullum gangi í Olafsfjarðarhöfn. eftir Urði Gunnarsdóttur/Myndir: Rúnar Þór Björnsson Á ÓLAFSFIRÐI er hugur í mönnum. Þar er þess beð- ið að gerð jarðganga um Múlann ljúki, væntanlega í nóvember, unnið er að hafnarbótum upp á tug- milljónir og þar velta menn því fyrir sér hvernig sam- vinnu og samnýtingu við sveitarfélögin á svæðinu sé best háttað. Verði ekkert að gert, er eins víst að sú samgöngubót, sem göngin eru, snúist upp í andhverfu sína. Til tals hefur komið að færa flutninga Eimskips frá Ólafsfirði til Dalvíkur og það er vel þekkt á stöð- um sem búið hafa við ein- angrun, að þegar sam- göngur batna, flyst fólk og þjónusta ekki til staðarins, heldur frá honum. Slíkar „samgöngubætur“ freista Ólafsfirðinga ekki. Því beinist athyglin að hug- myndum um Stór-Eyja- fjarðarsvæðið svokallaða, sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hef- ur sett fram og miðar að skipulagningu um 30.000 manna þéttbýliskjarna við Eyjafjörð, en með Múlan- um er rutt úr vegi mesta samgöngutálmanum á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.