Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
FYRIRHUGAÐ AÐ RYMKA LÖG
UM ERLENDAR FJÁRFESTI
AHÆTTUF
Gert er ráð fyrir að opna möguleika fyrir erlenda aðila að Qárfesta í fiskvinnslufyrirtækjum sem framarlega sem fyrirtækin stundi
ekki hina hefðbundu vinnslu eins og frystingu, söltun og bræðslu.
eftir Friðrik Indriðason
NÚ ERU til skoðunar hjá
hagsmunaaðilum drög að
nýju stjórnarfrumvarpi um
Qárfestingu erlendra aðila í
atvinnurekstri á Islandi. Fyr-
irhugað er að leggja frum-
varpið fram á næsta þingi.
Frumvarpinu er ætlað að
samræma þau lög sem fyrir
eru á þessu sviði auk þess að
rýmka að mun þær heimildir
sem erlendir aðilar hafa til
fjárfestinga hérlendis. Á
frumvarpið að stuðla að því
að erlent áhættufé geti í rík-
ari mæli komið í staðinn fyrir
erlent lánsfé við fjármögnun
atvinnurekstrar hér á landi.
Sem dæmi um rýmkaðar
heimildir til erlendra aðila í
frumvarpsdrögunum má
nefna að frá I. janúar 1992
er gert ráð fyrir að hlutafjár-
eign erlendra aðila í við-
skiptabanka geti verið allt að
50% og að frá 1. janúar 1995
„mega erlendir aðilar kaupa
hlut í íslenskum hlutafélags-
banka án takmarkana enda
njóti íslenskir aðilar eigi lak-
ari réttar í heimaríki viðkom-
andi aðila“, eins og segir í
frumvarpsdrögunum. Annað
dæmi er að eignarhlutur er-
lendra aðila í fiskvinnslufyrir-
tæki hérlendis, sem stundar
aðra vinnslu en hina hefð-
bundnu frystingu, söltun eða
bræðslu og er ekki í útgerð,
getur orðið allt að 50%.
Möguleiki er á að eignarhlut-
urinn verði stærri en þáþarf
sérstakt ley 11 frá viðskipta-
ráðherra.