Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 Þorsteinn fær heimboð frá Eystrasaltsríkjum Mun leggja áherzlu á stuðning við rétt ríkjanna til sjálfstæðis ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur fengið heimboð frá stjórnvöldum í Eistlandi og Litháen. Fer Þorsteinn, ásamt Kjartani Gunnarssyni framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins til Eystrasaltslandanna um aðra helgi. orsteinn sagði við Morgun- blaðið, að boðið hefði komið í kjölfar heimsóknar eistlenska ráð- herrans Endel Lippmaa hingað til lands í sumar, en þá ræddust þeir Þorsteinn við. „Eg mun leggja mikla áherslu á stuðning sjálfstæð- ismanna við rétt Eystrasaltsríkj- anna til sjálfstæðis. Við höfum tekið mjög sterkt undir þeirra sjálf- stæðiskröfur og fluttum tillögu um það í vetur að ísland viðurkenndi sjálfstæði Litháen. Ég hef hins vegar orðið fyrir vonbrigðum með það hvað íslenska ríkisstjómin hef- ur dregið lappimar í þeim efnum. Og ég er ósammála afstöðu stóm ríkjanna í NATO, sem hafa greini- lega tekið aðra hagsmuni framyfir rétt þessara smáríkja til sjálfstæð- is,“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist hafa orðið var við að Eystrasaltsþjóðimar legðu mik- ið upp úr stuðningi íslendinga. „Þótt við séum fáir meta þeir mjög okkar stuðning og telja hann sér til framdráttar og styrktar, og þess vegna lít ég svo á að það sé okkar skylda að gera það sem í okkar valdi stendur til að styðja þessar þjóðir í sjálfstæðisbaráttu sinni,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Svo lítill vindur var á strandstaðnum að þyrlan varð að losa eldsneyti í sjóinn áður en hún gat híft mennina um borð. Skipbrotsmönnum af Vöggi GK bjargað af skeri: Það var byrjað að flæða að mönmmum er við komum að - segir Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæzlunni 6 gjaldþrota fyrirtæki skildu eftír 53 milljómr I Lögbirtingablaðinu var í fyrradag gerð grein fyrir skiptalokum í þrotabúum fjögurra hlutafélaga í Reykjavík þar sem lánardrottnar tapa rúmum 28 milljónum króna. Þá er lokið skiptum í þrotabúum matvöruverslunar og verktakafyrirtækis í Kópavogi þar sem skuldir voru samtals um 25 milljónir umfram eignir. „YNGRI maðurinn hélt utan um félaga sinn á skerinu þegar við kom- um að. Það vatnaði um þá og var byijað að falla að,“ sagði Kristján Þ. Jónsson, skipherra á Landhelgisgæzluþyrlunni TF-SIF, í samtali við Morgunblaðið í gær. Kristján og féiagar hans björguðu mönnunum tveimur af Vöggi GK ísköldum og þjökuðum eftir að þeir höfðu hafzt við á skerinu hartnær klukkustund. Verslunin Kópavogur hf. í Kópa- vogi varð gjaldþrota í nóvem- ber 1988. Ekkert greiddist upp í kröfur sem námu 14,6 milljónum. í þrotabú Eðalverks hf. í Kópa- vogi var lýst forgangskröfum að íjárhæð rúmar 844 þúsund krónur og almennum kröfum fyrir um 7,6 milljónir króna. Eignir reyndust nægja til að greiða um tæp 170 þúsund af forgangskröfum. Konu leitað á Hellisheiði HJÁLPARSVEITIR á Suðurlandi leituðu í gær konu, Aldísar Eiríksdóttur, sem saknað hefur verið frá því 12. þessa mánaðar. Lögreglunni barst í fyrradag ábending um að sést hafi til kon- unnar á Hellisheiði fyrir nokkru, og var þegar í stað skipulögð leit á svæðinu. Um sextíu manns taka þátt í leitinni, en hún hófst um klukkan níu í gærmorgun. Um há- degi í gær hafði ekkert spurst til konunnar. Bikarúrslitaleikurinn: Útlit fyrir mikla aðsókn ÚTLIT ER fyrir að mikil aðsókn verði á úrslitaleikinn í bikar- keppni Knattspyrnusambands Is- lands sem fram fer á Laugardals- velli í dag kl 14. Það eru Valur og KR sem eigast við að þessu sinni. Hjá KR höfðu í gærmorgun selst um 1.000 miðar í forsölu, sem er meira en selst hafði degi fyrir úrslitaleikinn í fyrra, þegar KR keppti við Fram. KR-ingar hafa verið með forsölu á aðgöngumiðum á Eiðistorgi. Vals- menn hafa selt aðgöngumiða í Kringlunni, en ekki tókst að afla upplýsinga um sölu þar í gær. I gærmorgun hófst forsala aðgöngu- miða í Laugardal. Sjá nánar um leikinn á bls. 16-17C Engar eignir fundust í búi hluta- félagsins Astvaldar og Gunnars í Reykjavík, sem tekið var til skipta í janúar 1989. Kröfur námu rúmum 11,8 milljónum. M. Karlsson hf. var tekið til gjald- þrotaskipta í júlí 1989. Lýst var kröfum fyrir 7,4 milljónir króna en engar eignir fundust. Martek hf. varð gjaldþrota í júní 1988. Engin greiðsla kom upp í 6,1 milijóna króna skuld. Videóland hf. varð gjaldþrota 20. desember 1989. Kröfuhafar fá ekk- ert greitt upp í rúmlega 2,6 milljóna króna kröfur. Strandið hefur líkast til orðið um kl. 1.20 í fyrrinótt, og sendu mennimir á Vöggi þá út neyðarkall og sögðust ekki geta hafzt við í bátnum öllu lengur. Sex mínútum síðar gerðu loftskeytastöðvamar Slysavamafélaginu viðvart og mínútu seinna var björgunarsveitin á Stokkseyri kölluð út. Neyðarblys sáust frá Stokkseyri og Selfossi um klukkan hálftvö, og var þá hægt að miða strandstaðinn sæmilega út. Björgunarsveitarmenn voru lagðir af stað á staðinn tuttugu mínútum eftir útkall, og einnig fóm lögreglu- menn frá Selfossi. Landhelgisgæzlan fékk tilkynn- ingu um slysið frá Reykjavíkurradíói kl. 1.30 og var áhöfn þyrlunnar köll- uð út á sömu mínútu. Þyrlan tafðist um nokkrar mínútur vegna bilunar í ljóskastara, en var komin í loftið kl. 2.07. Sjö mínútum seinna létu björgunarsveitarmenn vita að þeir væru komnir að eyðibýlinu Lofts- stöðum, sem stendur skammt ofan við strandstaðinn, en sáu þá engan bát, þrátt fyrir gott skyggni. Brimið hefur þá verið búið að vinna á skips- skrokknum. Björgunarsveitarmenn lögðu af stað frá Loftsstöðum niður á fjörurnar, en sóttist ferðin seint, enda er sandurinn mjög erfíður yfír- ferðar. Þrjár mínútur yfir hálfþijú komu lögreglumenn frá Selfossi auga á mennina tvo á skeri, og leiðbeindu þyrlunni á staðinn. „Við sáum brak á skeijunum í kring og töldum okk- ur sjá bóginn á bátnum, þar sem braut á honum talsvert fyrir utan þá,“ sagði Kristján Þ. Jónsson. Hann gizkaði á að skerið, sem mennirnir stóðu á, hefði verið 100-200 metra undan landi. „Þegar við ætluðum að fara að hífa þá var svo lítill vindur, að þyrl- an ætlaði varla að haldast á lofti. Þyrlan svífur alltaf betur í dálitlum strekkingi. Við tókum þess vegna tvo eða þijá hringi í kring um þá og losuðum okkur við eldsneyti til að ná okkur í rétta þyngd,“ sagði Kristján. Hann sagði að þyrlan væri búin góðum búnaði til að losa elds- neyti, og það hefði gengið hratt fyr- ir sig. Sigmáður seig eftir mönnunum tveimur og gekk vel að ná þeim upp í þyrluna að sögn Kristjáns. Menn- imir vom ískaldir og mjög þjakaðir, sérstaklega sá eldri. Læknir var um borð í þyrlunni að vanda og hlynnti hann að mönnunum á leiðinni í bæ- inn. Þyrlan lenti með mennina tvo við Borgarspítalann sjö mínútur yfir þijú. í áhöfninni vora, auk Kristj- áns, Bogi Agnarsson flugsljóri, Haf- steinn Heiðarsson flugmaður og Gunnar B. Guðmundsson læknir. Saga smábátaútgerðar ekki lið- in en slæmur kapítuli framundan - segir Haraldur Jóhannsson hjá Landssambandi smábátaeigenda „SAGA smábátaútgerðar er ekki liðin en mér sýnist slæmur kapí- tuli vera framundan," segir Haraldur Jóhannsson varaformaður Landssambands smábátaeigenda. Togaraútgerðir hafa keypt mik- ið af smábátum frá því í vor, þegar Alþingi samþykkti lög um stjóm fískveiða en þau kveða m.a. á um að smábátum skuli út- hlutaður aflakvóti frá næstu áramótum. Skagstrendingur hf. keypti til dæmis sex smábáta fyrir skömmu til að nýta sér afla- kvóta þeirra. „Kaupendur smábátanna em aðallega togaraútgerð- ir en einnig bátaútgerðir. Þeir, sem hafa efni á að kaupa afla- kvóta, em fyrst og fremst menn, sem selja aflann á innlendu og erlendu fiskmörkuðunum og sumir þeirra ætla að kaupa 100-400 tonna kvóta,“ segir Brynjar ívarsson hjá skipasölunni Bátum og búnaði. Brynjar ívarsson segir að eftir- spurn eftir varanlegum afla- kvóta sé meiri en framboðið. Kvótakílóið hafi kostað 100 krón- ur í vor, þegar kvótalögin voru samþykkt, en vegna aukinnar eft- irspurnar sé verðið nú komið upp í 120 krónur. Utgerðir, sem kaupa 400 tonna afla- kvóta, þurfa því að greiða 48 milljónir fyrir kvótann. Kílóið af varanlegum kvóta kostaði 30 krónur árið 1984, að sögn Brynj- ars. „Það er alveg ótrúlegt hvað smábátamir geta veitt. Eg fékk til sölu kvótann af tveggja tonna Færeyingi, sem veiddi 102 tonn af þorski árið 1987. Þessi afli fékkst staðfestur hjá ráðuneytinu. Kvóti þessa homs er á hinn bóg- inn ekki nema um 40 tonn, þar sem aflahlutdeild bátanna byggist á meðalafla tveggja bestu áranna frá 1987 til 1989. Menn reikna einnig með að aflakvóti smábáta skerðist um 10% vegna þess að þeim hefur fjölgað mikið undan- farið,“ segir Brynjar. Sam- kvæmt upplýs- ingum Brynjars fást því um fimm milljónir fyrir kvóta þessa tveggja tonna báts. Frá og með árinu 1984, fyrsta kvótaárinu, hafa verið skráðir samtals 683 nýir, opnir vélbátar. Þeir eru allir undir 10 tonnum að stærð og meðalstærð þeirra er um 6 tonn, að sögn Gísla Auðunsson- ar skipaskráningarmanns. Heildarafli smábáta hefur auk- ist mikið að undanfömu. Til dæm- is veiddu smábátar 7 þúsund tonn- um meira af þorski fyrstu sjö mánuðina í ár en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að heildarþorsk- aflinn verði að minnsta kosti 46 þúsund tonnum minni í ár en í fyrra. Haraldur Jóhannsson full- yrðir að aukinn afli smábáta stafí af auknum krókaveiðum, þar sem kvóti sé á netaveiðum smábáta. „Bátar, sem stunda krókaveið- ar, koma með besta fiskinn að landi og það er ódýrara að gera út smábáta en togara. Því fæst meiri arður af smábátaútgerð en togaraútgerð, þegar upp er staðið. Það er því mjög slæm þróun fyrir þjóðarbúið að togaraútgerðir skuli kaupa smábátakvóta í miklum mæli.“ Haraldur upplýsir að sum- ar togaraútgerðir ætli að kaupa 1.000 tonna kvóta og telur líklegt að kvótaverðið haldi áfram að hækka vegna mikillar eftirspurn- ar. Brynjar Ivarsson segir að togaraútgerðir kaupi annars veg- ar bæði smábátana og kvóta þeirra og hins vegar einungis kvótann. Einn þeirra togaraút- gerðarmanna, sem keypt hafa marga smábáta að undanfömu, segir orðrétt við Morgunblaðið: „í rauninni eigum við bátana bara að nafninu til og skilum þeim eft- ir áramótin, þegar kvótinn hefur verið færður yfir. Það er síðan mál eigenda bátanna til hvers þeir nota þá eftir að kvótinn hefur verið seldur. Sumir halda eftir 10-20 tonnum af þorskkvóta og ímynda sér að þeir geti gert út á steinbít og flatfísk og slíkt og átta sig ekki á því að auðvitað fer allur fískur í kvóta.“ Árni Kolbeinsson, ráðuneytis- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, upplýsir að trúlega verði ákveðið í næsta mánuði hversu mikið smábátar fái að veiða á næsta ári og ekki sé búið að ákveða hvort kvóti verði settur á fieiri tegundir en þorsk, ýsu, karfa, ufsa og grá- lúðu á næsta ári. Hann bendir hins vegar á að árið 1984 hafi einnig verið kvóti á skarkola og steinbít. Hjá veiðieftirlitinu fengust þær upplýsingar að veiðieftirlitsmönn- um verði trúlega fjölgað úr 16 í 21, m.a. vegna þess að betur þurfi að fylgjast með veiðum smábáta en áður, þar sem þeim verði út- hlutaður aflakvóti frá áramótum. „Það verður samt sem áður von- laust fyrir okkur að fylgjast með því að þeir, sem selt hafa kvótann af bátum sínum, veiði einungis í soðið fyrir sjálfa sig en þeir verða að greiða fyrir það 2-3 þúsund króna sportveiðileyfi," segir veiði- eftirlitsmaður. BflKSVIÐ efiirÞorstein Briem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.