Morgunblaðið - 26.08.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
9
Faríseinn og toll-
h eim ti mmði irinn
eftir sr. HJÁLMAR
JÓNSSON
Guðspjall:
Lúk. 18:9-14
Faríseinn og tollheimtumaðurinn
koma árlega fram á sjónarsviðið í
guðspjöllum kirkjunnar. Textinn er
sem fyrr úr Lúkasarguðspjalli og
stílaður til þeirra, sem treysta því
að sjálfír séu þeir réttlátir og fyr-
irlíta aðra. Litlar líkur eru á því
að þessu guðspjalli verði skipt út.
Það þykir sem sagt eiga við enn
þann dag í dag. Ennþá telji menn
sér fært að fyrirlíta aðra.
Út frá dæmisögunni er freistandi
að hugsa til þessara sjálfsánægðu
og sjálfumglöðu einstaklinga, sem
eru nánast óþolandi innan um ann-
að fólk. Með svolítilli umhugsun
væri unnt að telja upp nokkra, sem
mættu temja sér meiri hógværð
innan um annað fólk. Það gæti ég
og það gætir þú. En þar með er
komið á daginn, að Jesús segir
dæmisöguna okkur til viðvörunar.
Með henni á Kristur erindi við okk-
ur.
Þeir eru þarna ennþá í musterinu
og Kristur sér þá. A einum stað
stendur tollheimtumaðurinn og bið-
ur Guð að miskunna sér, syndug-
um. Á öðrum stað stendur faríseinn
og þakkar Guði fyrir að hann er
ekki eins og tollheimtumaðurinn. Á
þriðja staðnum stöndum við og
þökkum Guði fyrir að við erum
ekki eins og faríseinn. Enginn vill
vera sá hræsnari sem hann.
Þetta segjum við oft um faríse-
ann án þess að gera okkur alltaf
ljóst hvað Kristur er að fara. Hann
er ekki að gagnrýna góða breytni
faríseans, hvorki þá né núna, held-
ur það þegar góð breytni leiðir til
hroka gagnvart náunganum.
Flokkar og stefnur á þessum tímum
voru um margt merkilegir. Þá voru
margir sérsöfnuðir tii og einkenni
sumra þeirra sjálfsupphafning og
sjálfsréttlæting. Líf manns, sem
stendur í samanburði við náung-
ann, er tæpast hamingjusamt.
Maður þykist taka eftir því, að því
óánægðari sem menn eru með eig-
ið líf því harðar dæma þeir aðra.
Sókn virðist þar vera besta vömin.
Hamingjusamur maður ræðst ekki
á aðra. Hann þarf ekki á saman-
burði að halda.
Fleira veldur því að rætt er um
annað fólk í niðrandi tilgangi.
Stundum er það vegna metings og
baráttu um stig eða þrep í mann-
virðingum. Fáir hrósa öðrum ef það
er gegn hagsmunum þeirra eigin.
Tollheimtumaðurinn hrósaði ekki
faríseanum enda þótt margt væri
hrósunarvert í fari hans. Hann var
með hugann við eigin stöðu frammi
fyrir Drottni í musterinu. Hann
hafði ekkert að skýla sér með
hvorki góða breytni né gott álit.
Hann hefði sjálfsagt gert það hefði
hann getað.
Þessir tveir voru ólíkir í skoðun
og framferði. En eitt á við um þá
báða. Þeir hafa báðir misnotað lífið.
Munurinn er bara sá, að tollheimtu-
maðurinn veit það, en faríseinn
ekki. Það munar öllu. Það gerir
gæfumuninn.
Sagan er sögð til þess að hjálpa
okkur að skilja lífið. Sá sem söguna
sagði þekkir okkur. Við þurfum
ekki og getum ekki falið neitt fyrir
honum. Við ávinnum okkur ekki
hjálpræði. Af eigin rammleik hlýtur
enginn frelsið dýrmæta. En hann
tók á sig sektina og dóminn, sem
við verðskuldum m.a. fyrir mis-
notkun á náðargjöfum. Guð reisti
hann upp frá dauðum til þess að
við gætum farið réttlætt heim úr
helgidóminum. Hann hefur réttlætt
okkur af náð sinni einni saman.
Stundum er það í mestu niðurlæg-
ingunni að við sjáum það best.
VEÐURHORFUR í DAG, 26. ÁGÚST
YFIRLIT kl 10:10 í GÆR: Grynnkandi lægð skammt suðvestur
af landinu á hægri austurleið.
HORFUR Á MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Austan- eða suðaustan
strekkingur. Rigning með köflum eða skúrir víða um land en síst þó
í innsveitum norðanlands og norðvestantil á landinu. Á þriðjudag
dregur talsvert úr vindi. Hiti 8-15 stig að deginum, hlýjast á Vestur-
landi.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
Staður hiti veður
Akureyri 8 skýjað
Reykjavik ■ 9 skýjað
Bergen 10 hálfskýjað
Helsinki 11 skýjað
Kaupmannah. 16 skýjað
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk 3 suld
Osló 14 alskýjað
Stokkhólmur 12 rigning
Þórshöfn 8 léttskýjað
Algarve 18 þokumóða
Amsterdam 14 lágþokublettir
Barcelona 21 léttskýjað
Chicago vantar
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 16 léttskýjað
kl. 6:00 í gær að ísl. tíma
Stafiur hiti veður
Glasgow 11 þoka
Hamborg 13 hálfskýjað
London 17 þokumóða
Los Angeles 19 léttskýjað
Luxemborg 18 heiðskirt
Madrid 16 heiðskírt
Malaga 21 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskirt
Montreal 21 skýjað
New York 22 þoka
Orlando 23 skýjað
Paris 18 skýjað
Róm 18 þokumóða
Vín 15 léttskýjað
Washington vantar
Iqaluit 3 léttskýjað
o A Norðan, 4 vindstig:
Helfiskfrt r r r r Rigning V Skúrir K Vindörin sýnir vind- I stefnu og fjaðrirnar
1 vindstyrk, heil fjöður
a Léttskýjafi i Slydduél er tvö vindstig.
r * r * Slydda V
Hálfskýjað r * r ý 10° Hitastig: 10 gráöur á Celsíus
Skýjaft * * * * Snjókoma * * * Él = Þoka
m Alskýjaö ’ , ’ Súld oo Mistur z= Þokumóða
Kvöld-, nœtur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík, dagana 24. ágúst til 30. ágúst, að báöum
dögum meðtöldum er í Vesturbæjar Apóteki. Auk þess
er Háaleitis Apótek opiö til kl. 22 alla daga vaktvikunnar
nema sunnudaga.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöö Reykjavíkur viö Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga
daga 10-16, s. 620064.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaögerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara
fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími framveg-
is á miðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknireða hjúkrunar-
fræöingur munu svara. Uppl. í ráðgjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessum símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styöja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráögjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miöviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varöandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miövikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur viö númerið. Upplýsinga- og ráögjafasími Sam-
taka '78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viötalstíma á þriöjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöö, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garöabær: Heilsugæslustöö: Læknavakt s. 51100. Apó-
tekiö: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opiö virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opiö mánudaga —
fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekiö er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöö, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opiö virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.3Q-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjamarg. 35. Ætlaö börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aöstæðna, samskiptaerfiöleika, einangrunar eöa persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofa
Ármúla 5 lokuð til ágústloka. Sími 82833. Símsvara verð-
ur sinnt
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiösluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. í
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Áfengis- og fíkniefnaneytendur. Göngudeild Landspítal-
ans, s. 601770. Viðtalstími hjá hjúkrunarfræðingi fyrir
aðstandendur þriöjudaga 9—10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 626868/626878.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafn-
arstr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Bretlands og meginlands
Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 17493, 15770, 13830
og 11418 kHz. Kl. 18.55-19.30 á 15770, 13855, 11418
og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum geta einnig nýtt sér send-
ingar á 17440 kHz kl. 14.10 og 13855 kHz kl. 19.35 og
kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40, 19.35-
20.10 og 2300-23.35 á 17440, 15770 og 13855 kHz.
Hlustendur í Kanada og Bandaríkjunum geta einnig oft
nýtt sér sendingar kl. 12.15 og kl. 18.55.
Aö loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesiö fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.. Sængurkvennadeild.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feöur
kl. 19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiríksgötu: Heimsókn-
artímar: Almennur kl. 15-16. Feðra- og systkinatími kl.
20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Barnaspítali Hringsins:
Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Geð-
deild Vífilstaðadeild: Laugardaga og sunnudaga kl.
15- 17. Landakotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19.
Barnadeild: Heimsóknartími annarra en foreldra er kl.
16- 17. — Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstu-
daga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla
daga kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól
hjúkrunarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grens-
ásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. -
Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kkl. 15.30-
16.30. — Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og
kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30
til kl. 17. — Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. — Vífilsstaðaspítali: Heimsóknartími
daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. — St. Jósefsspítali
Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkr-
unarheimili í Kópavogu’Heimsóknartími kl. 14-20 og eft-
ir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Neyðarþjónusta er allan sólarhring-
inn á Heilsugæslustöð Suðurnesja. S. 14000. Keflavík -
sjúkrahúsið: Heimsóknartími virka daga kl. 18.30—
19.30. Um helgar og á hátíðum: Kl. 15.00—16.00 og
19.00-19.30. Akureyri — sjúkrahúsið: Heimsóknartími
alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild
og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysa-
varðstofusími frá kl. 22.00-8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafvelta Hafnarfjarðar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud.
— föstudags kl. 9-19. Handritasalur kl. 9-17 og útlánssal-
ur (vegna heimlána) kl. 13-17.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar í aðalsafni, s. 694326.
Listasafn Háskólans: Sýnir nýjustu verkin í safninu á
öllum hæðum Odda á Háskólalóð kl. 14—18 daglega.
Árnagarður: Handritasýning Stofnunar Árna Magnús-
sonar, er opin alla virka daga kl. 14-16 frá 16. júní til
1. september. Lokað á sunnudögum.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima-
safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru
opin sem hér segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21, föstud.
kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Lokað á laugard. frá 1.5.-
31.8. Aðalsafn — Lestrarsalur, s. 27029. Opinn mánud.
— laugard. kl. 13-19. Lokað júní-ágúst. Grandasafn,
Grandavegi 47, s. 27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.
— föstud. kl. 15-19. Sumartími auglýstur sérstaklega.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðsvegar um borg-
ina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bú-
staðasafn miðvikud. kl. 10-11. Sólheimasafn, miövikud.
kl. 11-12.
Þjóðminjasafnið: Opið þriöjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opið alla daga nema mánudaga kl. 10-18.
Þrjár nýjar sýningar: "Og svo kom blessaö stríðið" sem
er um mannlíf í Rvík. á stríðsárunum. Krambúð og sýning
á vogum og vigtum. Prentminjasýning og verkstæði bóka-
gerðarmanns frá aldamótum. Um helgar er leikiö á harm-
onikku í Dillonshúsi en þar eru veittar veitingar.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud,—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl.
13-15.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýn-
ingarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18. íslensk verk í eigu safnsins sýnd í
tveim sölum.
Safn Ásgríms Jónssonar: Opið til ágústloka alla daga
nema mánudaga kl. 13.30—16.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opið alla daga kl. 10-16.
Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðviku-
daga, kl. 13-17. Opinn um helgar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 13.30—16. Höggmyndagarðurinn daglega kl.
11—17.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið
mánud. — fimmtud. kl. 20-22. Um helgar kl. 14-18. Sýn-
ing á úrvali andlitsmynda eftir hann 1927-1980.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriöjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið alla daga nema mánu-
daga, kl. 14-18. Sími 54700.
Sjóminjasafn íslands Hafnarfirði: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 14-18. Sími 52502.
ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000.
Akureyri s. 96-21840.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-20.30. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00-
15.00. Laugardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-
20.30. Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-
17.30. Vesturbæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-
20.30. Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-
17.30. Breiðholtslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-
20.30. Laugard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-
17.30.
Garðabær: Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30.
Laugard. 8.00-17 og sunnud. 8-17.
Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga — föstudaga:
7.00-21.00. Laugardaga: 8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-
17.00. Sundlaug Hafnarfjaröar: Mánudaga — föstudaga:
7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30.
Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga — fimmtudaga:
7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helgar: 9-15.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundmiðstöð Keflavíkur: Opin mánudaga — föstudaga
7-21, Laugardaga 8-18. Sunnudaga 9-16.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-16. Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug SeKjamarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. k|. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.