Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 12

Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 ROLLUR Í RÉTTI umferðarlögunum, 88. grein þeirra, um að lækka megi eða fella niður bætur fyrir muni ef sá sem fyrir tjóni varð var meðvaldur að því af ásetningi eða gáleysi. Svo virðist sem tryggingafélögin sjái sér ekki hag í að láta reyna á þetta ákvæði, þau telji bónusmissi sinna viðskiptavina vega upp á bótakostn- aðinum. Ekki er hægt að fá ná- kvæmar upplýsingar um tjón bif- reiðaeigenda vegna þessa. Þá ber þess að geta að oft fer ökumaður af vettvangi eftir að hafa ekið á búfé. Hann telur sig réttlausan og skaðabótaskyldan og ber því tjón sitt í hljóði og yfirgefur slysstað eða greiðir bóndanum „bætur“ á staðn- um, án þess að tryggingafélagi eða lögreglu sé gert viðvart. Það er hins vegar nokkuð öfugsnúið, því í þeim tilvikum þegar ekki fæst upplýst hver valdur er að ákeyrslu, bætir búfjártrygging bænda, brunatrygg- ingin, það búfé sem ferst í umferð- inni. Því má segja að um sé að ræða blóðpeninga fyrir ökumenn, þegar þeir sýna þann heiðarleika að tilkynna óhapp eða tjón. Girðingar meðfram vegum duga skammt Nokkuð hefur verið rætt um að girðingar meðfram fjölfömustu vegum verði til mikilla bóta. Sam- kvæmt niðurstöðum vegkanta- nefndar þjóna þær hins vegar ekki nægilega tilgangi sínum til að koma í veg fýrir ágang búfjár og slysa- hættu. Nefndin leggur til að ákvarðanir um veggirðingar verði ekki teknar fyrr en t.d. möguleikar á uppsetningu hólfa hafa verið kannaðir til þrautar í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög og aðra sem málið varðar. Eins og fram kemur í viðtali á blaðsiðu 11 við Gunnar Gunnarsson, framkvæmda- stjóra hjá Vegagerð ríkisins, getur jafnvel í sumum tilvikum verið hag- kvæmara að kaupa upp búfé á ákveðnum svæðum því girðingar- kostnaður yrði það mikill. Þótt vegkantanefnd leggi til bann við lausagöngu stórgripa, vill hún fara hægar í sakamir varðandi lausagöngu sauðfjár. Að mati henn- ar er algjört bann óraunhæft eins og málum er nú háttað. Sveinn Runólfsson, langræðslustjóri, sem sæti átti í nefndinni er sammála því að banni við lausagöngu búfjár verði ekki komið á nema í áföngum. „Það er ekki gerlegt að koma því á í einni svipan,“ segir Sveinn. „Segja má að nú þegar séu allmarg- ir bændur og jafnvel heilar sveitir sem hafa sín lönd alveg girt og sinn búfénað í afgirtum hólfum. Dæmi um þetta eru Landeyjahrepparnir, þar sem búfénaður er afgirtur á sínum heimalöndum. Mér finnst brýnt fyrir bændastéttina að komið verði skikkan á mál varðandi búfé á vegum, því það sér hvar maður hve alvarlegt það er að búfé gangi laust við og á helstu umferðaræðun- um.“ Sveinn telur hvað brýnast að banna lausagöngu á Reykjanes- skaganum og jafnvel í landnámi Ingólfs öllu. Sveinn segir að allir þeir aðilar sem um málið fjalli, landbúnaðar- ráðuneytið og hagsmunásamtök bænda, hafí fullan hug á að koma á úrbótum. „Það tekur tíma, en þar sem allt útlit er fyrir að sauðfé haldi áfram að fækka, verður þetta auðveldara viðfangs. Ennfremur er stefnt að því að friða afrétti á eld- fjallasvæðum landsins þar sem gróðurfar er viðkvæmt. Það skapar aukinn þrýsting á um að hraða aðgerðum til að koma á banni við lausagöngu búfjár víðar á landinu." Ekki eru til nákvæmar upplýsingar um hve stór hluti búfénaðar gengur laus, en talið er að mikill meirihluti hrossa sé á afgirtum svæðum, en tiltölulega lítill hluti sauðfjár um hásumarið, þegar það er á afréttarlöndum. „Landgræðslan Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra: ÓVÍST HVERNIG UMHVERFISRÁÐUNEYT- ID TEKUR Á MÁLUM „VIÐ GRUM að móta hug- myndir um hvernig við eigum að sinna þessum málum í fram- tíðinni. Reyndar er þegar eitt mál í athugun, um friðun Vatnsfjarðar fyrir beit,“ segir Júlíus Sólnes umhverfismála- ráðherra. Samkvæmt lögum um ráðuneytið ber því ásamt Landgræðslu ríkisins að vinna að gróðurvernd og hafa eftir- Iit með ástandi gróðurs. Þá getur umhverfisráðherra, að fengnum tillögum Náttúru- verndarráðs og í samráði við iandbúnaðarráðherra, ákveðið friðunar- og uppgræðsluað- gerðir á sviði gróður- og skóg- verndar. etta er túlkað með þeim hætti, að við getum, ef okk- ur sýnist svo, fyrirskipað friðuna- raðgerðir,“ segir Júlíus. „En þetta er svolítið í lausu lofti á meðan ýmis endurskoðun er í gangi. Við teljum ekki skynsam- legt að fara með miklu offorsi á meðan verið er að endurskoða lög um landgræðslu og skógrækt og margt annað sem snýr að þessu. Auk þess erum við að skrifa rammalög um umhverfisvernd, sem verða lögð fram á þingi í haust. Ég held að það sé rétt að fara að með gát, á meðan þessi mál eru að komast í höfn.“ Það er að beiðni Náttúruvernd- arráðs sem umhverfisráðuneytið Júlíus Sólnes. kannar nú hvort rétt sé að friða Vatnsfjörð fyrir beit. Hluti Vatnsfjarðar er friðland en brýnt þykir að aflétta beit vegna þess að sauðfé hefur valdið skaða á skóglendi. Jóni Gunnari Ottós- syni, fyrrum forstöðumanni skógræktarstöðvarinnar á Móg- ilsá, hefur verið falið að vinna að því verkefni. Gert er ráð fyrir, að frá og með 1. janúar heyri byggingar- og skipulagsmál undir umhverf- isráðuneytið og þar með Iandnýt- ingaráætlanir. „Það getur orðið flókið að túlka það mál. Það má segja sem svo, að landnýtingar- mál hljóti að snúa að beitilöndun- um, ekki síst í ljósi þess að við þöfum þegar heimild til að fyrir- skipa friðunaraðgerðir,“ segir Júlíus Sólnes. Haukur Halldórsson, formaður Stéttar- sambands bænda: BÆNDUR ANDVÍGIR BANNIÁ LANDSVÍSU „VIÐ vorum fylgjandi þeirri breytingu sem gerð var á lög- um á síðasta ári, að heimila öllum sveitarfélögum að tak- marka lausagöngu alls búfjár. Áður voru ákvæði sem heimil- uðu þeim eingöngu takmörkun á Iausagöngu hrossa. Við telj- um rétt að sveitarfélögin hafi með þessi mál að gera, því aðstæður eru svo mismunandi. Sá meirihluti sem situr í sveit- arfélagi á einfaldlega að ráða þessu,“ segir Haukur Halldórs- son, formaður Stéttarsam- bands bænda um afstöðu sam- bandsins til banns við lausa- göngu búfjár. Hann segir bændur jafnframt andvíga lög- um á landsvísu, sem banni lausagöngu. Fram hefur komið að reglu- gerðir um bann við lausa- göngu búfjár í einstaka sveitarfé- lögum eru ekki trygging gegn ágangi búfjár úr öðrum sveitarfé- lögum. Reglugerðarákvæðin víkja fyrir ákvæðum girðingar- laga. Meginreglur laga heimila lausagöngu búfjár og því er talið að sveitarfélögin þurfi umfram allt fjárhelda girðingu svo reglu- gerðarákvæði haldi. Hins vegar eru mörg sveitarfélög treg að Haukur Halldórsson. taka alfarið á sig kostnað við girðingarnar, fínnst sem bændur eða bændahrepparnir verði að taka þátt í kostnaðinum. Haukur segir að slík mál hljóti að vera hægt að leysa á vettvangi sveit- arfélaganna. Hvað varðar skiptingu bóta þe'gar búfé á hlut að umferðaró- happi, segir Haukur að geri verði mun á hvar óhapp á sér stað. Hvort það gerist á svæði þar sem skepnur eigi ekki að vera, eða hvort það gerist upp á heiðum og á afréttarlöndum.„Afstaða okkar er ekki sú, að viðkomandi skepna eigi ævinlega réttinn," segir Haukur Halldórsson. hefur hvatt bændur til að hafa sitt fé á afgirtum svæðum, þannig að þeir búi á sínu landi en ekki ann- arra. Með því skapa þeir sjálfum sér svigrúm til að bæta sín eigin heimalönd, en þurfa þá jafnframt að tryggja að það nýtist þeirra eig- in búfénaði," segir landgræðslu- stjóri. Bann við lausagöngu eykur svigrúm til landgræðslu Stundum heyrist í umræðunni að búfénaður éti niður uppbygging- arstarf Landgræðslunnar. Sveinn Runólfsson segir sem betur fer um misskilning að ræða. „Mest af því fræ- og áburðarmagni sem Land- græðslan dreifír fer á friðuð land- græðslusvæði. Þá hefur Land- græðslan tekið þátt í samvinnu- verkefnum við sveitarfélög og bændur til þess að græða upp ör- foka land til beitar í þeim eina til- gangi að friða nærliggjandi við- kvæm gróðurlendi. Slíkt er þá að verulegu leyti kostað af viðkomandi bændum eða sveitarfélögum. Menn hafa stundum ekki skilið að í þessu felst beitarstjórnun og gróður- vemd.“ Eins og fyrr segir voru lagaheim- ildir rýmkaðar, þannig að sveitarfé- lög geta nú fengið settar reglugerð- ir um bann við lausagöngu. Mörg sveitarfélög hafa nýtt sér þetta, enda verður svigrúm til land- græðslu og skógræktar mun rýmra en ella á mörgum svæðum, auk þess sem umferðaröryggi er stór- lega aukið eins og áður greinir. Ennfremur myndu íbúar víða í þétt- býli losna við óæskilega grasbíta í görðum, en víða hafa orðið töluverð- ir árekstrar vegna þessa, þegar sauðfé eyðileggur blóm og runna í görðum. Nýlegt dæmi frá Fáskrúðs- fírði sýnir hins vegar að reglugerð í einu sveitarfélagi veitir enga tryggingu gegn ágangi búfjár úr öðru sveitarfélagi. Sýslumaður í Suður-Múlasýslu úrskurðaði svo í .deilu íbúa í kauptúninu Búðahreppi i Fáskrúðsfirði og búfjáreigenda, að bann við lausagöngu búfjár í hreppnum væri óraunhæft á meðan bæjarlandið væri ekki girt fjár- heldri girðingu. „Það er meginregla að lausaganga búfjár um landið er frjáls nema sérstaklega sé bannað í lögum. Þau ákvæði sem banna búfjárhald eða mæla fyrir um geymslu búfjár í lokuðum girðing- um eru undantekningarákvæði," segir m.a. í úrskurði sýslumanns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.