Morgunblaðið - 26.08.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 26.08.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 21 JlfoYgmiÞlafeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Bolungarvík og Súðavík IMorgunblaðinu í gær var skýrt frá samkomulagi milli tveggja útgerðarfyrir- tækja í Bolungarvík og Súðavík um sölu á einu fiski- skipa fyrirtækja Einars Guð- finnssonar hf. í Bolungarvík til Frosta hf. í Súðavík en jafn- framt, að kaupandi skipsins skuldbindi sig til að leggja um helming aflakvóta þess upp til vinnslu í Bolungarvík næstu fimm árin. Þetta sam- komulag ásamt t.d. samein- ingu Granda hf. og Hrað- frystistöðvarinnar í Reykjavík er vísbending um, að töluverð hreyfing er innan sjávarút- vegsins til aukinnar hag- ræðingar í rekstri. í þessu tilviki háttar svo til, að Frosti hf. í Súðavík hefur nýlega fengið nýjan tog- ara og þarf á auknum kvóta að halda fyrir skipið. Hins vegar er framleiðslugeta frystihússins í Súðavík nýtt að verulegu leyti. Bolvíkingar eru með stórt frystihús en það hentar rekstri þeirra að selja umrætt skip, geti þeir tryggt sér hráefni til vinnslu í frysti- húsinu. Þarna fara augljós- lega saman hagsmunir þess- ara tveggja nágranna við Djúp. Togari Súðvíkinga fær aukinn aflakvóta, frystihús Bolvíkinga fær tryggingu fyr- ir hráefni til vinnslu. í báðum tilvikum verður niðurstaðan hagkvæmari rekstur, bætt afkoma og öflugri fyrirtæki, sem geta tryggt starfsmönn- um sínum betri kjör, þegar frá líður. Eitt hið mikilvægasta við þetta samstarf Bolvíkinga og Súðvíkinga er, að það sýnir, að fyrirtæki í litlum sjávar- plássum geta tekið höndum saman, þegar á þarf að halda. í umræðum á undanförnum árum um hagræðingu í rekstri sjávarútvegsins hefur það komið fram hvað eftir annað, að hrepparígur á milli fá- mennra byggðarlaga kæmi í veg fyrir samstarf þeirra í milli. Og vissulega er meting- ur milli byggðarlaga þekkt fyrirbæri. Einmitt af þessum sökum standa vonir til, að það samkomulag, sem nú hefur verið gert á milli tveggja byggðarlaga við Djúp, geti orðið fordæmi fyrir slíkri sam- vinnu á milli fyrirtækja í sjáv- arútvegi í sjávarplássum víðs vegar um landið. Raunar er full ástæða til að hvetja for- ráðamenn útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækja til þess að huga að vandamálum fyrir- tækjanna út frá þessum for- sendum. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Einar K. Guð- finnsson að ætlun beggja að- ila væri að taka upp viðræður um enn frekara samstarf, og sagði m.a.: „Við rekum hér sameiginlega allmörg fiski- skip og unnt ætti að vera að stýra útgerð skipanna á þann hátt, að þau séu ekki á sama tíma í slipp og ekki á sama tima í siglingum. Þannig get- um við tryggt hráefnisöflun til frystihúsanna í Bolung- arvík og Súðavík.“ Og Ingi- mar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Frosta hf. í Súðavík benti á áhrif bættra samgangna á slíkt samstarf er hann sagði: „Samvinnan verður greiðari og auðveldari, einkum fyrir húsin vestan heiðar, ef af jarðgangagerð yrði á þessu svæði. Það yrði vissulega stórbylting, því vetr- arsamgöngurnar hafa háð samstarfinu.“ Síðustu árin hefur það kom- ið æ betur í ljós, að batnandi afkoma fólks í þessu landi byggist að langmestu leyti á því, að aukinn hagnaður náist af útgerð og fiskvinnslu. Sam- vinna útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækja af því tagi, sem nú hefur tekizt í Bolung- arvík- og Súðavík, er því til fyrirmyndar og vísbending um hvert stefna skal í sjávarpláss- um víða um land. Á SEXTUGSAF- mæli Kohls kanzlara Þýzkalands birti Bild am Sonntag mynd af honum þarsem kona hans er að rétta hon- um rós í tilefni dags- ins. Kohl tekur rósina og lyktar af henni. Það er augljóst kanzlarinn kann vel að meta ilminn. En hann var ekki að anda að sér ilminum af þýzka Jafnaðarmannaflokknum. Við höfum jafnvel afstæðar þjóð- félagshugmyndir um rósina og ilm hennar. Mér þótti þessi mynd harla snið- ug. Hún sýnir stjómmál eru afstæð einsog annað. Eitt er það sem jafn- aðarmenn rétta að okkur, en annað sú rós sem ilmar í afmæli Kohls og vekur persónulegar minningar hans bundnar einni konu. Lýðræði er þannig einnig af- stætt, að sjálfsögðu. Við höfum ekki öll eina mótaða skoðun á því; heldur margvíslegar og ólíkar á framkvæmd þess. Hugmyndir okk- ar eru í samræmi við afstöðu okkar og smekk. Lýðræði er bezta stjórnarformið, á því er enginn vafí. Og nú hefur sagan sýnt það svo áþreifanlega að engum dettur annað í hug en það hafí alla yfírburði yfir aðra stjórnskipun einsog alræði eða ein- ræði í einhverri mynd. Svo verðum við að umbera gallana og halda jafnvægi andspænis hvimleiðum fylgikvillum einsog Þjóðarsálinni sem gæti bent til þess það séu fáar hugsandi hræður hér á landi, svo áberandi sem holrúmið er í hljóð- nemanum. Einar Benediktsson tal- aði um kúgun tízkunnar og varaði við þeim sem játast helzt ekki undir aðra húsbændur en al- menningsálitið. Hlutafélög hafa fylgt lýðræði sem helzta fjárfesting- arleiðin og einatt gefízt vel. Þó eru á því annmarkar einsog við höfum séð. Slíkir agnúar, eða aghnúar einsog Fjölnismenn sögðu, eru einn- ig á lýðræðinu sjálfu. Það er einsog rósin; rauð, hvít eða bleik eftir því sem verða vill. Hún ilmar. En þym- arnir eru varasamir. Undan þeim getur illa blætt. Þyrnar lýðræðisins eru eijinig því varasamari sem þeir eru sakleysislegri. Auðvelt er að misnota lýðræði, það hefur oft ver- ið gert. I því er hægt að hreiðra um sig í skjóli fjármuna og valda. Fáir stjórnmálamenn hafa til að bera auðmýkt andspænis völdum og fáir eignamenn, fjármálamenn og stjórnendur almennra sjóða þekkja takmörk ábyrgðar sinnar. Þeir fjárfesta í völdum, sumir með peningum sem þeir eiga ekki. Við höfum sem betur fer yfirleitt verið blessunarlega laus við ijár- magnspillingu eða ófyrirleitið valdastreð í skjóli peninga. Þó hefur örlað á því. SÍS og Framsóknar- flokkurinn hafa oft sýnt klærnar, en nú eru þessi fyrirtæki á bata- vegi, enda eru hagsmunir Sam- bandsins ekki lengur ástæða til þeirra stjórnmálaæfínga sem áður var. Fyrirtækið er einsog hver önn- ur saptök um samkeppni á frjálsum markaði og er það vel. Framsóknar- flokkurinn getur snúið sér að mikil- vægara verkefni en innflutningi, kaupfélagsverzlun og bankastarf- semi samvinnumanna, þótt allt sé nú þetta snar þáttur í ijármagns- vefnaði lýðræðisins. Borgaraleg öfl hér á landi höfðu áðurfyr æma ástæðu til að óttast og ala með sér áhyggjur af yfir- gangi alræðis- og einokunarafla, en nú er þessu ekki lengur til að dreifa. Sósíalistar leita guðspjalli sínu nýs inntaks og eru jafnvel farn- ir að prédika helzta trúboð borgara- legs samfélags, fijálsan markað, og SÍS er að hverfa frá samvinnu- hugsjóninni og hallast að hlutafé- lögum. Ástæða þessa er að sjálf- sögðu sú að fólk nennir ekki að eltast endalaust við það sem gefur ekkert nema eymd og fátækt í aðra hönd einsog marxisminn, né það sém fullnægir einungis einhverri óskilgreindri félagshyggju, án hagnaðarvonar, einsog samvinnu- formið. Þessi von er afturámóti aðalhvati hlutafélaga einsog við höfum séð víða um lönd og því eftir- sóknarverð leið fyrir dugandi ein- staklinga til fjárhagslegs sjálfstæð- is sem allir keppa að. Rousseau gerði ekki einungis ráð fyrir sjálfs- bjargarhvöt, heldur einnig sér- gæzku og taldi hana ekki endilega af hinu illa. Öryggis- og eignaþörf mannsins er augljós eðlisþáttur í fari okkar, þótt ýmsum takist vel að hemja hann og halda honum í skefjum. En þá hófst þjóðfélagið þegar fyrsti maðurinn girti eign sína af. M. (meira næsta sunmidag.) HELGI spjall REYKJAVIKURBREF Taugaspennan VIÐ Persaflóa eykst stöðugt. Á sama tíma og her- menn streyma til þessa svæðis úr öllum áttum og gífurlegum herbúnaði er safnað þar saman, heldur forseti íraks uppi taugastríði gegn Vesturlandaþjóðum með því að halda óbreyttum borgurum frá Vesturlöndum nauðugum innan landamæra Iraks. Jafn- framt beinir íraksforseti áróðursstríði að milljónum Araba í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Fjölmiðlar á Vesturlöndum hafa ekki hugað nægilega vel að þeim þætti þessara átaka, en samkvæmt frá- sögn blaðamanns Morgunblaðsins, sem kom fyrir nokkrum dögum úr ferð til Jórd- aníu, ísraels og Sýrlands er stuðningur við forseta íraks og málstað hans meiri meðal almennings i Arabalöndum en menn vilja vera láta í Vestur-Evrópu og í Banda- ríkjunum. Fyrir nokkrum dögum birtist athyglis- verð grein eftir Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Los Angeles Times og fleiri blöðum vestan hafs og austan, um Persaflóadeiluna. í grein þessari segir Kissinger, að eftir að Bush Bandaríkjaforseti tók ákvörðun um að senda bandarískt herlið til Saudi- Arabíu verði ekki aftur snúið. Nú skipti öllu máli hver niðurstaðan verði. Takist írak að halda Kúvæt, beint eða óbeint, verði það mikið áfall fyrir Bandarikja- menn. Verði niðurstaðan sú, að írakar haldi Kúvæt en bandarískar hersveitir verði áfram í Saudi-Arabíu sýni það, að bæði almenningsálitið i heiminum og Bandaríkin sjálf séu aukaatriði, sem litlu máli skipti. Kissinger segir, að af stjórnmálalegum ástæðum þoli hvorki Arabaríkin né Banda- ríkin langvarandi staðsetningu herliðs í Saudi-Arabíu. Tíminn vinni ekki með Bandaríkjamönnum. Verði framvinda mála sú, að herseta Bandaríkjanna og stuðn- ingsríkja þeirra breytist í umsátur kunni Bandaríkin að neyðast til þess að íhuga aðgerðir, sem geti leitt deiluna til lykta. Hann bendir á, að takist írak að halda yfirráðum yfir Kúvæt geti írakar ákveðið markaðsverð á olíu með því að kúga önn- ur ríki við Persaflóa til þess að draga úr olíuframleiðslu en sameiginlega ráði þessi ríki yfir 40% af öllum olíulindum, sem þekktar eru. Kissinger telur, að ástandið í Miðaust- urlöndum verði ótryggara eftir því, sem deilan dragist á langinn. Ekki megi van- meta áhrif áróðurs gegn Vesturlöndum, sem komi frá Bagdað. Stjómarbylting í einu furstadæmanna eða skemmdarverk í olíuvinnslustöð geti valdið uppnámi í þess- um heimshluta og ringulreið í efnahagslífi þjóða heims. Aðgerðirnar, sem nú er beitt gegn Irak, beri ekki árangur nema á nokk- uð löngum tíma og á því tímabili geti komið alvarlegir brestir í þá alþjóðlegu samstöðu, sem tekizt hafi að skapa gegn írak. Spurningin sé ekki fyrst og fremst sú, hvort takist að koma í veg fyrir, að írakar selji olíu heldur, hvort takist að koma í veg fyrir, að þeim berist birgðir frá öðrum löndum. Landamæri íraks séu löng og matur geti borizt yfir þau. Mögu- leikar Iraka til þess að komast yfir mat og aðrar nauðsynjavörur aukist eftir því, sem deilan standi lengur, ekki sízt, ef nágrannaþjóðir íraka komist að þeirri nið- urstöðu, að Saddam Hussein haldi velli. Stutt og hörð átök séu því æskilegri en langvarandi umsátur. Henry Kissinger er þeirrar skoðunar, að Bandaríkin tapi á löngu umsátri um írak. Bandaríkin geti búizt við því að tapa einhveijum þeim stuðningi, sem þau njóti nú á alþjóðavettvangi, ef þau hafi frum- kvæði að harðari átökum en á móti komi, að verði Bandaríkin undir í deilunum við Persaflóa tapi þau þeim stuðningi ekki síður. Að auki mundi auðmýking Banda- ríkjanna í þessari deilu verða til þess, að þau gætu ekki lengur haft jákvæð áhrif á átök þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Deilur milli ljósvaka- miðla Bandaríkin hafa ekki efni á því að vera svikin og þau hafa ekki efni á því að tapa, segir Kissinger. Niðurstaða hans er sú, að beri núverandi aðgerðir ekki árangur verði Bandaríkin að íhuga alvarlega eyði- leggingu hernaðarmannvirkja í írak. Yrði Saddam Hussein áfram við völd og hernað- armáttur hans óskertur mætti búast við frekari árásaraðgerðum af hans hálfu í framtíðinni. Henry Kissinger hafði gífurleg áhrif á þeim árum, þegar hann var öryggisráð- gjafi Bandaríkjaforseta og síðar utanríkis- ráðherra. Hann er sá sérfræðingur Banda- ríkjamanna í alþjóðamálum, sem mest trausts hefur notið víða um heim. Það hlýt- ur því að vekja mikla athygli, þegar hann hvetur beinlínis til þess, að Bandaríkin hafi frumkvæði að hemaðaraðgerðum gegn írak, eins og hann bersýnilega gerir í þeirri blaðagrein, sem hér hefur verið vitnað til. FRÁ ÞVÍ AÐ ÚT- varps- og sjón- varpsstarfsemi var gefin frjáls hafa við og við sprottið upp harðvítugar deilur á milli forráðamanna Ríkisútvarpsins og talsmanna hinna nýju ljósvakamiðla, þ.e. útvarpsstöðva og Stöðvar 2. Með einum eða öðrum hætti snúast þessar deilur fýrst og fremst um aðstöðumun, þau rekstrar- skilyrði, sem hinum nýju fjölmiðlafyrir- tækjum eru búin í samkeppni við Ríkisút- varpið. Slíkar deilur koma óhjákvæmilega upp, þegar ríkisfyrirtæki keppir við einka- fyrirtæki og forsvarsmönnum einkafyrir- tækjanna þykir leikurinn ójafn. Ríkisútvarpið er gömul og rótgróin stofnun, sem hefur gegnt þýðingarmiklu hlutverki í þjóðlífi okkar. Það hlutverk á ekki að vanmeta eða vanvirða á nokkurn hátt við breyttar aðstæður. Þessi gamla stofnun stóð skyndilega frammi fyrir gjör- breyttum aðstæðum fyrir nokkrum árum, þegar nýjar útvarpsstöðvar komu til sög- unnar og ný sjónvarpsstöð tók til starfa. Hún missti fótanna um skeið og tapaði bæði hlustendum og áhorfendum en sótti í sig veðrið á nýjan leik og endurheimti að hluta til það, sem tapast hafði. Þetta var út af fyrir sig ekki óeðlileg þróun. Nú standa leikar þannig, að Stöð 2 hefur fest sig í sessi meðal almennings en á við mikla fjárhagsörðugleika að etja, útvarpsstöðvar hafa risið og fallið og fyrsta fijálsa útvarpsstöðin er nú að sameinast Stöð 2, þannig að öflugt einkafyrirtæki í ljósvakamiðlun er að verða til, þótt rekstr- argrundvöllur þess sé enn mjög ótryggur. Við þessar aðstæður er ekki óeðlilegt, að samanburður sé gerður á rekstrarskilyrð- um þessara tveggja fyrirtækja. Ríkisútvarpið hefur fastan tekjustofn, þar sem eru afnotagjöld, sem allir hand- hafar útvarps- og sjónvarpstækja verða að greiða. Enginn getur sagt þessari þjón- ustu upp nema með því að láta innsigla tæki sín og þá geta menn ekki notfært sér þjónustu einkafyrirtækisins. Þar að auki eru þeir, sem láta innsigla tækin, settir á svartan lista hjá Ríkisútvarpinu! Stöð 2 hefur aflað sér töluvert yfir 40 þúsund áskrifenda, sem er umtalsvert af- rek, en þessum áskrifendum er fijálst að segja áskriftinni upp og notfæra sér þjón- ustu RÚV eina. Hér er auðvitað mikill aðstöðumunur, raunar svo mikill, að hann særir réttlætiskennd fólks í vaxandi mæli eins og sjá má af því, að einstaklingar hafa tekið höndum saman um að stofna samtök gegn nauðungarsköttum og er þá ekki sízt átt við greiðslu afnotagjalda til Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið og Stöð 2-Bylgjan keppa um auglýsingar á ljósvakamarkaði og hafa jafna aðstöðu til að beijast um þær. Hins vegar sýnir reynslan, að Ríkisútvarpið getur búizt við því, að rikissjóður fjár- magni taprekstur fyrirtækisins, jafnvel þótt hann nemi miklum fjárhæðum. Stöð 2-Bylgjan verður hins vegar gjaldþrota takist ekki að stöðva taprekstur fyrirtækis- ins. Raunar snertir, að því er virðist, óheft- Umbrot er- lendis Laugardagur 25. ágúst ur aðgangur Ríkisútvarpsins að ríkissjóði ekki aðeins Stöð 2-Bylgjuna heldur aðra fjölmiðla einnig, þ. á m. dagblöðin. Morg- unblaðið og DV sækja ekki fjármuni í ríkis- sjóð en eru að sjálfsögðu í samkeppni við Ríkisútvarpið um auglýsingar auk sam- keppni á öðrum sviðum svo sem í fréttum. Einkafýrirtækin í fjölmiðlarekstri, hvort sem um er að ræða Morgunblaðið, DV eða Stöð 2-Bylgjuna verða að efna til mikilla spamaðaraðgerða, ef á móti blæs, sem auðvitað getur komið niður á ýmsum þátt- um í starfsemi þeirra en Ríkisútvarpið heldur uppi fullri starfsemi vegna þess, að skattgreiðendur em látnir borga, þótt þeir hafi engin efni á því. Nú er fengin nokkur reynsla af fijálsum útvarps- og sjónvarpsrekstri og þá er orð- ið tímabært að huga að rekstrarskilyrðum þessara fyrirtækja og samkeppnisskilyrð- um á fjölmiðlamarkaðnum almennt með það í huga að jafna aðstöðu á milli einka- fyrirtækja og ríkisfyrirtækis í þessari grein. Það út af fyrir sig ætti að vera fagnaðarefni fyrir helztu forystumenn Ríkisútvarpsins, sem á öðrum vettvangi hafa barizt fyrir einkarekstri, fijálsu fram- taki og fijálsri samkeppni. UMBROT Á FJÖL- miðlamarkaði eru ekki einskorðuð við ísland um þessar mundir. Fyrir nokkrum vikum riðaði rikisstjórn Ítalíu til falls vegna átaka í ítalska þinginu um rekstrarskilyrði fjölmiðlafyrirtækja í ríkis- eign og einkaeign. Samkvæmt frásögn bandaríska dagblaðsins New York Times fær ítalska ríkissjónvarpið greidd afnota- gjöld frá notendum. Þar að auki eru sendar út auglýsingar hjá ítalska ríkissjónvarpinu en skv. nýjum lögum verður auglýs- ingatíminn takmarkaður. Ríkissjónvarpið má ekki senda út auglýsingar nema í 7 mínútur og 12 sekúndur á hveijum klukku- tíma. Hins vegar mega einkasjónvarps- stöðvar senda út auglýsingar í 12 mínútur á hveijum klukkutíma. Ennfremur eru settar takmarkanir á það, hve oft má ijúfa útsendingu kvikmynda eða annars efnis með auglýsingum. Ef útsending tekur lengri tíma en 90 mínútur má ijúfa útsend- ingu þrisvar sinnum með auglýsingum. Nú er það svo, að þessum lagaákvæðum er ekki fyrst og fremst ætlað að jafna rekstrarskilyrði á milli ríkisfyrirtækja og einkafyrirtækja í fjölmiðlun á Ítalíu heldur er þeim að mati erlendra blaða ekki sízt beint að fjölmiðlakónginum Berlusconi, sem talinn hefur verið hliðhollur Sósíalista- flokknum á Ítalíu (ekki kommúnista- flokknum), en sjónvarpsstöðvar hans hafa rofið útsendingar á kvikmyndum að eigin vild til þess að koma að auglýsingum. Þá er þessari nýju ítölsku löggjöf einnig ætlað að koma í veg fyrir of mikla sam- þjöppun eignaraðildar að fjölmiðlafyrir- tækjum. Þannig má enginn einn aðili eiga meira en þijár sjónvarpsstöðvar og eigi hann þijár stöðvar má hann ekki eiga dagblað að auki. Þannig er talið, að Ber- lusconi verði að selja eitt dagblað og nokkr- ar litlar sjónvarpsstöðvar en þess ber að geta, að lög þessi ganga ekki í gildi fyrr en í árslok 1992. Á vettvangi Evrópubandalagsins og í Bretlandi eru miklar umræður um ýmsa þætti fjölmiðlamála. í Bretlandi hafa lengi verið í gildi reglur, sem banna útgefendum dagblaða að eiga hlut í sjónvarps- og út- varpsstöðvum og svipaðar reglur hafa víða verið í gildi í öðrum Evrópulöndum. Hins vegar eru að verða breytingar á þessu vegna tækniframfara. Þá hefur fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins lagt fram drög að reglugerð, sem m.a. gerir ráð fyrir, að sé kvikmynd styttri en 110 mínútur megi ekki ijúfa útsendingu henn- ar með auglýsingum nema tvisvar sinnum. í sumum aðildarríkjum Evrópubandalags- ins felst í slíkum reglum aukið frjálsræði en í öðrum eins og t.d. í Bretlandi takmörk- un frá því, sem nú er. Og samkvæmt því, sem fram kom í ræðu Andrew Knight, aðalforstjóra News International-fjöl- miðlafyrirtækisins í Bretianai, sem reKur bæði Sky-gervihnattasjónvarpið og nokkur helztu dagblöð Bretlands, á ráðstefnu á vegum Financial Times fyrr í sumar, bein- ir framkvæmdastjórnin í Brussel nú at- hygli sinni að eignaraðild að fjölmiðlafyrir- tækjum og hvernig henni skuli háttað. Af þessu má sjá, að það er víðar en hér á íslandi, sem umbrot eru í fjölmiðlaheim- inum og opinberar umræður um ýmsa þætti í rekstri þeirra. Þetta er eðlilegt í ljósi vaxandi áhrifa fjölmiðlanna á Vestur- löndum. StaðaRUV HER A ISLANDI hljóta þessar um- ræður að beinast mjög að stöðu RÚV og að einhveiju leyti að ríkisstyrkjum til dagblaða. Fyrsta krafan, sem gera verður til ríkisins sem á og rekur RÚV, er auðvit- að sú, að fyrirtækið verði rekið taplaust og fjáraustur til þesS úr ríkissjóði verði stöðvaður. Þetta á auðvitað að vera þáttur í almennu aðhaldi, sem ríkið veitir fyrir- tækjum, sem það á, enda er svo komið, að ríkissjóður hefur ekki efni á að halda uppi fyrirtækjum, sem rekin eru með stöð- ugu tapi ár eftir ár. Þess vegna er eðlilegt að gera þá kröfu til yfirstjómar RÚV, að því aðhaldi verði beitt í rekstri, sem dugar til þess, að stöðva tapreksturinn. Morgun- blaðið hefur áður bent á það í forystu- grein, að ef óhjákvæmilegt er að stytta dagskrá Ríkisútvarpsins til þess að ná þessu marki, beri að gera það. Sumir vilja ganga svo langt að banna allar auglýsingar í RÚV og segja sem svo, að fyrirtækið verði að komast af með afnotagjöldin, eins og ríkisrekin fjölmiðla- fyrirtæki verða að gera víða um lönd. Áðrir vilja ganga svo langt í niðurskurði á rekstri RÚV að segja sem svo, að ástæðulaust sé að ríkið reki fréttastarf- semi. Hvort tveggja eru öfgar. Ríkisút- varpið stendur djúpum rótum í íslenzku þjóðlífí og ekki til umræðu að takmarka starfsemi þess á þennan veg. Hins vegar hlýtur sú spurning að vakna, hvort hægt sé að jafna að einhveiju leyti aðstöðumun RÚV annars vegar og ann- arra fjölmiðlafyrirtækja og þá ekki sízt Stöðvar 2-Bylgjunnar með því að tak- marka í raun útsendingartíma auglýsinga í hljóðvarpi og sjónvarpi RÚV. Þá má nefna þann möguleika að gera sjónvarp RÚV að áskriftarsjónvarpi með sama hætti og Stöð 2 er, þannig, að fólk hafí fijálst val um, hvort það notfærir sér sjónvarp RÚV eða ekki. Hvemig sem á þetta er litið er fullt til- efni til að taka rekstrarskilyrði einkafyrir- tækja í fjölmiðlun gagnvart RÚV til um- ræðu á hinum pólitíska vettvangi og taka þá m.a. mið af þeim umræðum, sem nú fara fram innan Evrópubandalagsins og víðar um þessi efni. Morgunblaðið/BAR „Nú er fengin nokkur reynsla af frjálsum útvarps- og sjónvarps- rekstri og þá er orðið tímabært að huga að rekstrar- skilyrðum þess- ara fyrirtækja og samkeppnisskil- yrðum á íjöl- miðlamarkaðnum almennt með það í huga að jafna aðstöðu á milli einkafyrirtækja og ríkisfyrirtækis í þessari grein.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.