Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
TILBREYTING
Tugir ungmenna frá
N or ðurlöndunum
kynnast landi og þjóð
Um 80 ungrnenni frá öllum
Norðurlöndunum, sérstak
lega þó frá Svíþjóð, hafa dvalið hér
á landi í sumar á vegum Nordjobb.
Að sögn Aldísar hjá Nordjobb er
hér um atvinnuskipti að ræða og
eru ungmennin á aldrinum 18 til
26 ára sem dvelja hér sumarlangt
og vinna. „Við tókum á móti 80
nú, en sendum 170 til hinna Norður-
landanna," segir Aldís.
Ungmennin hafa, að sögn Aldís-
ar, flest fengið vinnu á elliheimilum.
í stórmörkuðum, hjá Borginni og í
Landsbankanum og íslendingarnir
sem héðan fóru vinna áþekk störf
ytra. Um helgar er reynt að sýna
fólkinu land og þjóð, fara í dags-
og helgarferðir og að sögn Aldísar
hafa klassískir staðir eins og Þórs-
mörk, Gullfoss og Geysir og Bláa
lónið verið heimsóttir, auk þess sem
nokkur fyrirtæki og stofnanir hafa
verið heimsótt. Má þar nefna Land-
helgisgæsluna, Flugleiðir, RUV og
fleiri.
RUT OLAFSDOTTIR LEIKKONA
Fluttist frá íslandi
Qögurra ára gömul
eir sem fylgdust með sýningu
þýsku kvikmyndarinnar
Röng paradís kvödd, sem var á
dagskrú Sjónvarpsins á mánu-
dagskvöld, hafa eflaust tekið eftir
því að meðal leikara var íslensk
kona, Rut Ólafsdóttir. Rut, sem
er 33 ára og búsett í Þýskalandi,
hefur ekki sést áður á skjám
landsmanna en hún mun hafa
getið sér gott orð sem leikari í
Þýskalandi, að sögn Sveins Ein-
arssonar, dagskrárstjóra Sjón-
varpsins;
Rut Ólafsdóttir fæddist á ís-
landi árið 1956 og eru foreldrar
hennar Sybii Urbancic og Ólafur
Bergþórsson, kennari. Hún flutti
hins vegar burt fjögurra ára göm-
ul. Afi hennar var Vietor Urban-
cic, sem kom hingað til iands sem
flóttamaður eftir stríð og setti
mikinn svip á tónlistarlíf í landinu.
Var hann meðal annars fyrsti
hljómsveitarstjóri Þjóðleikhússins
og stóð að fyrstu óperusýningum
þess.
Að sögn Sveins Einarssonar,
dagskráretjóra Sjónvarpsins, búa
mikið af afkomendum Victors enn
á ísiandi. Sybil, móðir Rutar,
fluttist hins vegar til Vínarborg-
ar, og jgiftist þar austurríkis-
manni. Ólst Rut upp hjá þeim í
Vínarborg og nam við Max Rein-
hardt-Ieiklistarekólann, sem er
einn sá virtasti í veröldinni. Fékk
hún síðan starf við MÚnchner
Kammerspiele og hefur aðallega
starfað í Þýskalandi. Sagði Sveinn
hana fyret og fremst hafa leikið
á sviði en einnig í einhverjum
kvikmyndum. Hún héldi enn
tengslum við ísland og kæmi áf
og til í heimsókn hingað.
KONGAFOLK
Karl Bretaprins
handleggsbrotinn
Karl Bretaprins er illa brotinn á
handlegg eftir byltu sem hann
hlaut í pólóleik fyrir þremur vikum.
Hann sótti af kappi að kúlunni er
hestur hans snarsnéri sér óvænt og
hraut prinsinn af baki.
Augljóst var að brotið væri
slæmt, en er hann tók að líða vítis-
kvalir handleggnum er frá aðgerð-
inni leið, var hann grandskoðaður
á ný og þurfti að taka gifsið af,
laga brotið til og gifsa síðan yfir á
nýjan leik. Báðar beinpípur kubbuð-
ust í sundur í hægri handlegg og
er talið að nýja gifsið verði ekki
tekið af fyrr en í október.
Þetta er vægast sagt bagalegt
fyrir prinsinn, því hann er rétthent-
ur og því nánast einhentur á með-
an. Hann getur ekki leikið póló og
kannski aldrei framar. Hann getur
ekki kastað flugu fyrir lax og er
besti veiðitíminn á Bretlandseyjum
að fara í hönd. Og hann getur tæp-
ast mundað haglabyssu skikkan-
lega og missir því líkast til einnig
af hinum árlega akurhænu- og
fasanaveiðum. Karl er sagður geta
sætt sig við að missa úr eitt veiði-
Karl Bretaprins.
tímabil, en meiri áhyggjur hafi hann
af pólóferli sínum, en hann hefur
til þessa þótt geysiliðtækur pólóspil-
ari.
Nokkur ungmennanna um borð í íslensku varðskipi í Reykjavíkurhöfn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sói, sjór, sandur
og fótboltí!
Frábærttilboð KSÍ, Úrvals-Útsýnar og Bylgjunnar
í 6 daga ferð til Costa del
Sol, 5.-11. október, gefst
knattspyrnuunnendum
einstakt tækifæri til að
framlengja sumarið í sólinni á Spáni og
fylgjast með spennandi leikjum.
Útvegum miða á landsleiki íslendinga og
Spánverja í Sevilla 9. og 10. október.
Sætaferðir frá Costa del Sol.
Verð á marin:
Kr. 27.000 ef sex gista saman,
Kr. 29.000 miðað við fjóra saman,
Kr. 31.000 miðað við tvo.
saga
SUOURGðTU 7 ■ SÍMI624040
Álfabakka 16, sími 60 30 60
Pósthússtræti 13, simi 26900