Morgunblaðið - 07.09.1990, Side 1
80 SIÐUR B/C/D/E
202. tbl. 78. árg.________________________________FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Deilurnar í Kambódíu:
Stórveldin tryggja
að viðræður heijist
Jakarta, Indónesíu. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Kína, Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, sem stað-
ið hafa straum af kostnaði við áratuga langa baráttu stríðandi fylk-
inga í Kambódiu, hafa talið tvo af mikilvægustu málsaðilunum á að
taka þátt í friðarviðræðunum sem haldnar verða í Jakarta í Indó-
nesíu innan fárra daga. Norodom Sihanouk prins sagði í gær að
hann mundi koma til viðræðnanna og skömmu seinna sagði höfuðand-
stæðingur hans, Hun Sen, forsætisráðherra kommúnistastjórnarinn-
ar í Phnom Penh, að hann mundi einnig koma.
X*
Ný flugvél Bandaríkjaforseta ínotkun
Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti sést hér í dyrunum
á nýjum farkosti embættisins, sérstaklega útbúinni
flugvél af gerðinni Boeing 747, í gær og var fyrstu
ferðinni heitið til ríkjanna Kansas og Florida. Sæti
eru fyrir 70 manns og 23 manna áhöfn og vélin
getur flogið um 10.000 km leið án þess að bæta
þurfi eldsneyti á geymana. Hún er búin vörnum
gegn eldflaugum, fullkominni sjúkrastofu og afar
yiðamiklum fjarskiptabúnaði; simar eru alls 85.
Önnur sams konar vél verður smíðuð og samanlagt
verð þeirra er um 340 milljónir Bandaríkjadollara
(um 20 milljarðar ÍSK).
Enginn árangur af friðarumleitunum í Persaflóadeilunni:
Saddam Iraksforseti kallar
varalið landsins til vopna
Bagdad, Washington^ Nikosiu, Genf, London. Reuter, Daily, Telegraph.
STJÓRNVÖLD í írak kölluðu í gær út þúsundir manna í varaliði hersins og sögðust hvergi myndu hvika
í Persaflóadeilunni. Allir 37 ára gamlir karlar fengu þijá daga til að gefa sig fram við herflokka sína
og fjölmargir aðrir á fertugsaldri voru einnig kallaðir út. Saddam Hussein forseti sagði á miðvikudag
að fimm milljónir íraka væru reiðubúnir að berjast við hlið milljón manna hers landsins. George Bush
Bandaríkjaforseti hefur þegið boð íraka um að fá að útskýra sjónarmið sín fyrir íröskum almenningi og
hyggst eftir nokkra daga senda myndband með ávarpi sem síðan verður sjónvarpað í Irak.
íranir og Kínverjar hafa gefið í
skyn að þeir muni e.t.v. selja Irökum
mat og lyf; utanríkisráðherrajraka
hyggst ræða við ráðamenn í íran á
sunnudag. íranska dagblaðið Teher-
an Times, sem hliðhollt er Ali Akbar
Rafsanjani forseta, sagði að lands-
menn yrðu að velta því fyrir sér
hvort þeim bæri að að aðstoða
íslamska bræður sína sem þola
þyrftu alþjóðlegt viðskiptabann.
Jafnframtyrði að taka tillit til mann-
úðarsjónarmiða og benti blaðið á að
í samþykkt Sameinuðu þjóðanna
væri tekið fram að gera mætti und-
antekningar frá banrfinu af mannúð-
arástæðum. Blaðið sagði Vesturlönd
ekki hafa hikað við að reka rýting
í bak írana er þeir áttu í Persa-
flóastríðinu við Iraka 1980—1988;
íranar hefðu rétt til að hugsa fyrst
og fremst um eigin hagsmuni.
Breska þingið kom saman til
aukafundar í gær til að ræða spenn-
una í Mið-Austurlöndum. Margaret
Thatcher forsætisráðherra sagði að
stjómin íhugaði að senda aukið her-
lið til Persaflóa. Tareq Aziz, utanrík-
isráðherra íraks, hélt í gær heim á
leið eftir viðræður við Míkhaíl S.
Gorbatsjov Sovétleiðtoga og telja
stjórnmálaskýrendur að enginn
árangur hafi orðið af fundinum.
Gorbatsjov var þungur á brún að
honum loknum. Aziz sagði frétta-
mönnum í Moskvu að ágreiningur
væri milli íraka og „sovéskra vina“
þeirra.
' Upplýsingafulltrúi íraksstjórnar
skýrði frá því að íraskir hermenn í
Kúvæt hefðu af slysni skotið á
Bandaríkjamann og hefði hann
særst lítillega á handlegg. Fulltrúinn
hét því að bandaríska sendiráðið í
Við lá að deilur um fyrirkomulag
viðræðnanna yllu því að ekkert yrði
af fundinum, sem margir teija
síðasta tækifæri málsaðilanna til
að komast að friðsamlegri lausn á
áratuga styrjaldarástandi í
Kambódíu. Þátttaka Sihanouks
prins, sem gegnt hefur eins konar
leiðtogahlutverki í samfylkingu
skæruliðahreyfinganna þriggja, þ.
á m. Rauðu khmeranna, er berjast
gegn stjórnvöldum, og Huns Sens
forsætisráðherra getur ráðið úrslit-
um um það hvort árangur næst
viðræðunum og hvort aðilum tekst
að mynda bráðabirgðastjórn til að
halda um valdataumana í
Bagdad fengi að hitta manninn.
Yfirvöld í Washington mótmæltu
framferði hermannanna harðlega en
bandarískir stjórnarerindrekar í Kú-
væt-borg virtust sammála skýring-
um íraka og sögðu þeir að maðurinn
hefði brotið útgöngubann.
Sjá einnig fréttir á bls. 21.
Kambódíu. Ætlunin er að lýðræði
verði komið á undir umsjá Samein-
uðu þjóðanna og hafa fastafulltrúar
í öryggisráðinu allir samþykkt áætl-
un þess efnis.
Eystrasaltsríkin:
Sjálfstæði
tengist Þýska-
landsmálum
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR Eystrasaltsríkj-
anna þriggja; Eistlands, Lett-
lands og Litháens, hvöttu til þess
á fundi sínum í gær að sjálfstæð-
ismál landanna yrðu til umræðu
þegar samið verður um einingu
þýsku ríkjanna í viðræðum stór-
veldanna og beggja þýsku
ríkjanna.
Öll Eystrasaltsríkin stefna að
sjálfstæði frá Sovétríkjunum. í yfír-
lýsingunni segir að þegar búið verði
að sameina Þýskaland verði Eystra-
saltslöndin einu Evrópuríkin sem
ekki öðlist sjálfstæði á ný eftir að
hafa glatað því í umróti heimsstyrj-
aldarinnar síðari. „Fari svo verða
örlög þjóðanna enn einu sinni
ákveðin án samráðs við þær sjálf-
ar.“ Eistneskur embættismaður
skýrði frá því að í gær hefði slitnað
upp úr viðræðum við Moskvustjórn-
ina um sjálfstæðiskröfurnar.
Irakíir ræna búnaði
sjúkrahúsa í Kúvæt
Ncw York. Rcutcr.
MOHAMMAD Abulhasan, fastafulltrúi Kúvæts lijá Sameinuðu
þjóðunum (SÞ), segir að margir gjörgæslusjúklingar og korna-
börn hafl dáið í Kúvæt að undanförnu þar sem írakar hafi flutt
tæki og búnað sjúkrahúsa til Bagdad.
Abulhasan sagði í bréfi til þess,“ sagði í bréfinu. Ennfremur
framkvæmdastjóra SÞ að Irakar
hefðu sleppt fjölda vistmanna af
geðsjúkrahúsum og stofnunum
fyrir fatlaða og leyft þeim að
ráfa í reiðileysi um götur Kúvæt-
borgar. Sömuleiðis hefði öllum
blóðvökvabirgðum verið rænt og
þær sendar til Bagdad.
„Þá hreinsuðu þeir nær öll
tæki af gjörgæsludeildum
margra sjúkrahúsa landsins og
fluttu þau til Bagdad. Rekja má
dauða fjölda sjúklinga beint til
sagði Abulhasan að súrefniskass-
ar hefðu verið fjarlægðir af fæð-
ingardeildum með þeim afleið-
ingum að öll kornabörn sem
hefðu verið háð þeim hefðu dáið.
Konur frá Sri Lanka, sém
flýðu Kúvæt eftir innrásina og
komnar eru til flóttamannabúða
í Jórdaníu, lýstu í gær fyrir blaða-
mönnum hvernig þeir hefðu verið
leiknar af íröskum hermönnum
sem ráðist hefðu inn á heimili
þeirra og nauðgað þeim.
Reuter
Mótmæla afhendingu Stasi-skjala
Lothar de Maiziere, forsætisráðherra Austur-Þýskalands, lýsti yfir
því á fimmtudag að leyniskjöl a-þýsku öryggislögreglunnar, Stasi,
myndu áfram verða í A-Þýskalandi eftir samruna við V-Þýskaland.
Hann lofaði a-þýska þinginu að samkomulag myndi nást fyrir samein-
ingardaginn 3. október um hvað verður um skjölin sem geyma upp-
lýsingar um 6 milljónir A-Þjóðveija og 2 milljónir V-Þjóðveija. Á
myndinni sjást stuðningsmenn samtakanna Nýs vettvangs mótmæla
hugsanlegri yfirtöku v-þýskrar leyniþjónustu á skjölunum við fyrrver-
andi höfuðstöðvar Stasi í A-Berl(n.