Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 41 Þessir hringdu . . . Kannast einhver við fólkið? Sigríður Eyjólfsdóttir hringdi: „Mig langar til að spyrjast fyrir um hvort einhver man eftir hjón- unum Brynjólfi Vigfússyni og Þóreyju Sveinsdóttur sem bjuggu á Hólalandi í Breiðafirði eystra. Þau fluttu suður á Eyrarbakka frá Borgarfirði eystra 1891 með þrú börn: Margréti, Sveinbjörgu og Brynjólf. Ef einhver kannaðist nú við þetta fólk, vinsamlegast hringið í Sigríði Eyjólfsdóttur í síma 97-29937.“ Peningahyggja Lesandi hringdi: „Ég undrast framkomu kennara ár eftir ár, ekki síst núna síðast. Kennarar eiga að vera til fyrir- myndar en virðast bara hugsa um auð og meiri auð. Að mínu áliti ætti að hætta að borga þeim kaup á sumrin“. Læða Svört og hvi't læða tapaðist frá Hamraborg í Kópavogi sl. föstu- dag. Er eyrnamerkt „E.L.F. 019“. Vinsamlegast hringið í síma 641195 ef hún hefur einhvers staðar komið fram. Jakki Laugardagskvöldið 1. septem- ber var tekinn brúnum tvíhneppt- ur mittisleðuijakki á Gauk á Stöng. Vinsamlegast skilið honum í fatageymsluna þar eða hringið í síma 39246. Blússa Dökkblá jogingblússa með grænum kraga var tekin í Lauga- dalslauginni fyrir nokkru. Vin- samlegast skilist til starfsfólksins þar. Peysa Rauð, handpijónuð, kaðals- munstruð barnapeysa tapaðist í Húsafellsskógi um verslunar- mannahelgina. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 670793. Myndavél JVIyndavél tapaðist í Vest- mannaeyjum um verslunar- mannahelgina. Vinsamlegast hringið í síma 53413 ef hún hefur fundist. Lyklar Lyklar fundust við Tómasar- haga eða Dunhaga. Upplýsingar í síma 621879. REYKVÍKINGAR! Ásgeir Hannes Eiriksson, þingmaóur Borgaraflokksins og fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga- nefnd Alþingis, verður á Kaffi- Hress í Austurstræti í dag, föstu- daginn 7. sept., kl. 1 2.00-14.00 Komið og spjallið við þingmann Reykvíkinga. Tillagan er algjörlega raunhœf því hvort semþú veislþad eóa ekki, þá er húd þtn nú þegar þakin þunnu náttúrulegu sýrulagi, sem SCbameil vemdar og vidheldur. ' Orð Steingríms Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra lagði þunga áherslu á það í viötali við Morgunblaðið um heleina að fslendii ‘ - 'Jí / hcrr ^lÐTÁÚ viö Ntorgunblaðið 19 þ.m. svarar Stcingrimur Hcrmannsson forsxlisrið- hcrra skýrt og skorinort nciundi spumingu blaðamanns um það hvort Islcndingar cigi crindi i Evr- ópubandalagið. i ,.S*vi sjr.'j’.'Jcya lcl cg að vjð cig- um ckkcrt crindi i Evrópt'banda- W lj«lð bað vxri citt þ.v1) v.-. cr um pcrsónulcg cinkcnni fcrð stjómmilamanns ; fyrst og frcmst. cða þ; spcglun af miðflokksstöðL sóknarflokksins.” t*að cr ckki nýtt að vcrandi og fyrTvcrandi, þy til miðjustcfnu koma yfir! sjái hana fyrir sír scm sisli og í milli vinstri og hægri. isma og markaðshyggju miðjumcnn sjálfir skilji p< stöðu sina nokkuð á a ____________)Kcnningin um að miðjt '•m.þcllii þjpðfclag-, /úr i cr gömul pólitisk njinna / scm lengt.hcfur vcrið Orð Steingrims Hermannssonar Orð Stein- gríms Til Velvakanda. Steingrímur Hermannsson sagði í viðtali við Morgunblaðið 19. ágúst sl., að eitt það versta, sem komið gæti fyrir þetta þjóðfélag, væri að ganga í Evrópubandalagið. Nú er það svo, að framsóknar- menn hafa í formanni sínum eign- ast sinn „Kim 11 Sung“, og hafa vitnað í hann líkt og þegar bókstafs- trúarmenn vitna í Orðið, með stór- um staf. Og segja þá þeir bókstafs- trúarmenn gjarnan, er þeir vitna í höfund kristinnar trúar: Orð Krists. Á sama veg hafa Austurlandamenn vitnað í Múhameð, og margir síðar í Arafat. Það stóð líka ekki á því, að Fram- sóknarmenn vitnuðu ótt og títt í Steingrím og legðu fjálglega út af orðum hans, bæði í Tímanum og annars staðar. En þá gerir foringinn þeim þann grikk á blaðamanna- fundi með Mitterrand að þverneita því að hafa nokkurn tímann sagt þetta??? Að mínu mati eiga svona pólitík- usar að segja af sér snarlega. Guðmundur Læða Læðan á myndinni fór að heiman frá sér að Logalandi 2. september. Hún heitir Fífí og er síamsköttur að hálfu. Hún var með appelsínugula ól með svörtum tíglum og er eyrnamerkt. Vinsam- legast hringið í síma 685236 ef hún hefur einhvers staðar komið fram. Erfiðleikamir til blessunar Til Velvakanda. í Nýja-Testamentinu stendur eft- irfarandi: Drottinn agar þann sem hann elskar, og hirtir harðlega þann sem hann tekur að sér. (Hebr. 12:6). Orð þessi koma ávallt upp í huga minn þegar ég sé fólk líða þjáning- ar og verður að ganga í gegn um erfiðleika, sem oft virðast fólki svo ósanngjarnir og tilgangsiausir. Oft er sálarmyrkrið svo svart og kalt að engin virðist undankomuleiðin í birtu og yl. Þessi dimma og drunga- lega leið er samt vegurinn til ljóss- ins og hlýjunnar. En vegir Guðs eru alltaf réttlátir þó þeir séu órannsakanlegir af mannlegri skynsemi og erfiðir yfir- ferðar, meðan þrautin er sem verst. Því er gott 'að hafa hugföst orð Hiskía konungs er hann lofsöng Guð eftir dauðans sátt, en var heill orðinn á ný fyrir orð Guðs: Sjá, til btéssunar varð mér hin sára kvöl. (Jesaja 38:17). Já, Guð heyrir bænir og sér tár- in, þegar við beygjum okkur í auð- mýkt og biðjum Guð um hjáip. Þeir krossar sem við þurfum að bera meðan við lifum eru ekki til einskis. Hver og einn þeirra hefur tilgang, þó við sjáum það ekki fyrr en löngu seinna. Það er nefninlega svo að þó við mennirnir skiljum ekki heilaga ráðstöfun Guðs, þá getum við þurft að líða miklar þján- ingar einhverntíma á lífsleiðinni og sigrast á þeim vegna tilgangs Guðs sem við komumst að seinna meir á ævinni. Þá sjáum við að ráðsályktun Guðs var rétt. Guð segir: Ákalla mig á degi neyðarinnar, ég mun frelsa þig og þú skalt vegsama mig. (Sálm. 50:15). Og til hvers allir þessir erfiðleik- ar? Sálmur 119:71 segir okkur það: Það varð mér til góðs, að ég var beygður til þess að ég mætti læra lög þín. Því sá maður sem þekkir lög Guðs og breytir samkvæmt þeim er Guði velþóknanlegur og öllum til blessunar. Einar Ingvi Magnússon Sýrulagid er fyrsta vöm húdarinnar gegn bakteríum, sveþþum, vírusum og eydileggingaráhrifum frá loftslagi. Sýrulagið hefur pH-giIdid 5.5, sem er einmitt það sama og þH-gildi sebamed léttsáþunnar. sebamed léttsáþan er því sérstaklega mild og góð fyrir þá, sem ekki þola venjulega sápu, þvo sér oft, hafa óhreina húð eða þá, sem vilja vemda húðina og heilbrigði hennar. sebamed léttsápan er fáanleg í fóstu og fljótandi formi. sebamed léttsápan er þykk og freyðir haftlega. Ilmurinn af Sebðmed er beeði mildur'og þagilegur. IDRO - DROTTNINGARHUNANG FYRIR ALLA FJOLSKYLDUNA N0TADAF pROTTNINGUMI ARÞUSUNDIR Gelé Royal er hrein orka beint úr nátt- úrinni. Þegar bý- flugurnar vantar nýja drottningu í búið, taka þær lirfu og fæða hana eingöngu á drott- ningarhunangi. Hún verður nýja drottningin þeirra og fær alia ævi eingöngu þessa konunglegu fæ&u. Venjulegt vinnubý lifir í u.þ.b. 1 mánuð en drottningin lifir í allt að 4 ár og sér alfarið um að viðhalda stofninum. Hvert BIDRO-hylki inniheldur ferskt ómeðhöndlað drottinaarhunang, hunang, hveitikímsolí, bývax og E- vitamin. BIDRO-VEUIÐAN Byrjaðu daginn með BIDRO. Ur því færo þú efni til að viðhalda þreki. BIDRO hefur ekki lent í efnafræðilegri meðhöndlun, er t.d. ekki frostþurrkao. Aðeins ómeðhöndlað drottningar- hunana heldur öllum heilsu- og orkugefandi eiginleikum. BIDR0 • KYNNING Lis Petersen, konan á bak við BIDRO, segir: "Daglega hefur fólk samband við mig, til að segja mér frá gagnlegri verkun BIDR05. Þetta er fólk á öllum aldri og báðum kynjum," Lis Petersen verður í Heilsuhúsinu í Kring- lunni föstudaginn 7. september til að veita upplýsingar og svara fyrirspurnum um BIDRO. eilsuhúsið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.