Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
2i
Minning:
Sveinbjörg Svein-
bjömsdóttir
Fædd 13. nóvember 1915
Dáin 30. ágúst 1990
„Af hjartans rót ég heiðra þig,
sem hafðir á mér gætur,
höndin þín bjó svo hægt um mig,
heill komst ég enn á fætur.
Láttu þá sömu sætu náð,
sem þú mér jafnan gefur,
enn í dag blessa allt mitt ráð,
eins og fyrr verið hefur.
Nú þegar samfylgd okkar ömmu
er lokið vil ég þakka henni fyrir
þá miklu ást, hlýju, skilning og
skemmtun sem hún veitti mér.
I Minninguna og það veganesti sem
hún gaf mér geymi ég í hjarta mínu.
Guð geymi elsku ömmu mína.
j EUert
Mig langar með örfáum orðum
að minnast mætrar konu, Svein-
bjargar Sveinbjömsdóttur, Garð-
braut 25, Garði.
Þar kvaddi stórbrotin höfðings-
kona með sæmd, hlutverk hennar
í lífinu var stórt, að ala og annast
uppeldi á stórum hópi barna. Þar
sem maður hennar var langdvölum
á sjónum gefur það augaleið að
uppeldishlutverkið hvíldi mikið á
hennar herðum. Barnahópurinn var
stór og umsvif mikil á heimilinu,
en Sveinbjörg hafði allt það til að
bera að valda hlutverkinu við upp-
eldi barna sinna, þar fór ekkert
úrskeiðis. Hún helgaði sig heimilinu
og börnunum og gaf þeim af sjálfri
sér stóran hlut.
Munu þau hjón hafa verið um
það samhent svo og öðru er að
heimili þeirra og börnum laut.
Kærleikur og fórnfýsi var aðal þess-
arar heimakæru konu. Heimilið,
eiginmaður og svo hinn myndarlegi
barnahópur voru henni svo hjart-
fólgin að hún gaf þeim allan sinn
tíma. Bera þau merki um það.
Ahrif uppeldis Sveinbjargar ná
ekki einungis til barna hennar,
barnabörnin njóta kærleikans í
gegnum mæður sínar og feður.
SmCI auglýsingar
Wélagslíf
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mánu-
daginn 10. september kl. 20.30 í
Skútunni, Dalshrauni 15, Hafnar-
firði. Húsið opnað kl. 19.30. Miðar
seldir við innganginn.
Ungt fólk
meðhtutverk
tjjmSl YWAM - island
Baena- og fræðslusamvera verð-
ur í Grensáskirkju á morgun kl.
10.00. Olaf Engsbroáten veröur
með fræðslu.
Munið eftir samverunni á sunnu-
dag.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Fjölskylduhelgi í Land-
mannalaugum 7.-9. sept.
Eitthvað fyrir alla!
Fjölbreytt dagskrá fyrir unga
sem aldna, m.a. gönguferðir,
ratleikur, leiðbeint í Ijósmyndun,
leikir, pylsugrill, kvöldvaka. Bað-
laugin stendur fyrir sínu. Góð
gistiaðstaða í sæluhúsi FÍ. Þeir,
sem vilja eiga kost á meirihátt-
ar ökuferð á laugardeginum að
Hrafntinnuskeri (íshellar og
hverir). Fararstjóri: Kristján M.
Baldursson. Fjölskylduafsláttur.
Verð kr. 5.000 fyrir utanfélaga
og 4.500 fyrir félaga, 10-15 ára
greiða hálft gjald og frítt fyrir 9
ára og yngri í fylgd foreldra
sinna.
Aðrar helgarferðir
7.-9. september
1. Þórsmörk. Frábær gistiað-
staða í Skagfjörðsskála, Langa-
dal. Haustið er ein skemmtileg-
asta árstíðin í Þórsmörk. Göngu-
ferðir við allra hæfi.
2. Landmannalaugar - Hrafn-
tinnusker. Gist i sæluhúsi FÍ.
Ekið í Hrafntinnusker á laugar-
deginum, hverir og íshellar.
Gengið þaðan í Laugar (ca 4
klst.). Sjá augl. um fjölskyldu-
helgina. Upplýsingar og farmiðar
á skrifstofunni, Öldugötu 3, símar:
19533 og 11798. Verið velkomin!
Ferðafélag Islands.
EHifilllJJOGA
Vetrarstarfið er hafið í
Frískandi, Faxafeni 9
* Opnir jógatímar mánudaga
til fimmtudaga kl. 7.00 og
18.15.
★ Jóganámskeið - Hatha jóga,
hugleiðsla, slökun og öndun.
Upplýsingar hjá Helgu á kvöldin
í síma 676056.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Börn hennar bera þess merki að
þau hafa fengið gott veganesti úr
foreldrahúsum og hafa varðveitt
það. Fyrir þau er gott að líta til
baka og skynja það hversu mikill
auður er að eiga góða móður.
Um leið og ég kveð Sveinbjörgu
þakka ég henni fyrir þá konu er
hún gaf mér.
Ég óska henni velfarnaðar á landi
lifenda.
Laufey Tryggvadóttir
í dag föstudaginn 7. september
fer fram frá Útskálakirkju í Garði
útför tengdamóður minnar, Svein-
bjargar Sveinbjörnsdóttur, Garð-
braut 25, Garði.
Hún andaðist sl. fimmtudag, eft-
ir nokkuð langa legu, vegna sjúk-
dóms er hún fékk um sl. áramót.
Sveina, en það var hún ávallt
nefnd, fæddist 13. nóvember árið
1915 í Garðinum, og ól allan sinn
aldur þar.
Árið 1935 giftist hún Þórði Jörg-
enson frá Hjallakróki í Ölfusi, en
hann andaðist árið 1984.
Þau hófu búskap fljótt eftir sín
kynni og byggðu sér hús ásamt
Njáli Benediktssyni að Garðbraut
25, en það hús var nefnt Fagri-
hvammur eins og títt var í þá daga.
Árið 1941 fæddist fyrsta barn
þeirra Sveinu og Þórðar og urðu
börnin alls 10, en tvö þeirra létust
kornung. Einn fósturson ólu þau
upp og hefur hann verið einn af
barnahópnum.
Það var árið 1965 sem undirrit-
aður kynntist þessu sómafólki, er
ég gekk að eiga eina dótturina.
Framan af búskap þeirra hjóna
stundaði Þórður sjómennsku, svo
það kom í hlut Sveinu að gæta bús
og bama. En eins og títt var, þá
hafði fjölskyldan bústofn til að
framfleyta sér og kom það því hlut
Sveinu að ganga til mjalta kvölds
og morgna, ásamt því að ala upp
börnin. Það hefur því verið langur
vinnudagur hjá Sveinu, en þrátt
fyrir það hefur uppeldishlutverkið
hvergi bragðist.
Árið 1964 slasaðist elsti sonur
þeirra hjóna, en hann var sjómaður
og kom ekki að annað til greina
hjá þeim en að styðja við bakið á
honum. Það var því afráðið að
keyptur yrði bátur til að sonurinn
gæti stundað sitt starf áfram. Þrátt
fyrir stóran barnahóp, og að nokkur
þeirra væru enn í foreldrahúsum,
fór Sveina að vinna í frystihúsi í
Garðinum til þess að afla heimilinu
tekna, en Þórður fór að aðstoða
soninn við bátinn. Það er mér til
efs að Þórður hafi þegið laun fyrir
sitt framlag. En þannig var hugsun
þessara mætu hjóna.
Heima er best, en það fannst
Sveinu. Hún fór afar lítið að heiman
og ferðalög voru fá, og til marks
um það þá kom hún aðeins tvisvar
til Akureyrar frá því að ég kynntist
henni.
Sveina var afar trúuð kona, en
fór dult með það. Hún var mjög
berdreymin og veit ég það fyrir
satt, að hún fylgdist grannt með
sonum og tengdasonum í draumum
sínum er sjómennsku stunduðu.
Hún vakti yfir velferð barna sinna,
tengdabarna og bamabarna.
Þegar Sveina var flutt í Sjúkra-
húsið í Keflavík fyrir tveimur vikum
kvaddi hún Hvamminn sinn í hinsta
sinn vitandi að hún kæmi þar ekki
aftur í þessu lífi. Henni var afar
ljóst að hverju stefndi. Ég er viss
um að heimkoma hennar til æðri
heima hefur verið góð og að Þórður
hefur beðið hennar þar, ásamt öðr-
um ástvinum sem á undan fóra.
Ég vil þakka Sveinu fyrir allar
þær góðu stundir er ég og fjöl-
skylda mín áttum með henni.
Ég votta öllum ástvinum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi elskulega tengdamóð-
ur.
Kristján Skarphéðinsson
Málþing um list- og sköpun-
arþörf barna í Háskólabíói
MÁLÞING um list- og sköpunar-
þörf barna verður haldið í Há-
skólabíói, sal 3, sunnudaginn 9.
stptember kl. 10 til 16. Málþing-
ið er haldið á vegum nefndar
menntamálaráðuneytisins um
barnamenningu.
Dagskrá málþingsins hefst á því
að leikskólabörn frá Marbakka
syngja, en síðan setur Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
samkomuna. Þórunn Sigurðardótt-
ir, formaður nefndar um barna-
menningu flytur inngangserindi.
Auk hennar flytja erindi á ráðstefn-
unni þau Örn Ingi Gíslason mynd-
listarmaður, Bryndís Gunnarsdóttir
kennari, Herdís Egilsdóttir kennari,
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld,
Gerður G. Öskarsdóttir ráðunautur
menntamálaráðherra, Sigurjón B.
Sigurðsson (Sjón) rithöfundur, Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstjóri og
alþingismaður og Sigríður Björns-
dóttir myndmeðferðarfræðingur.
Sýnd verður kvikmyndin „Hér
komum við“, sem gerð er á vegum
Námsgagnastofnunar og kynnir
Guðrún Alda Harðardóttir fóstra
myndina. Málþinginu lýkur með
pallborðsumræðum, þar sem þátt-
takendum gefst kostur á stuttu inn-
leggi. í pallborði sitja Gunnvör
Braga deildarstjóri barnaefnis út-
varps,' Guðmundur B. Kristmanns-
son lektor, Gyða Jóhannsdóttir
skólastjóri, Heimir Pálsson fram-
kvæmdastjóri, Margrét Thorlacius
ritstjóri og Guðrún Alda Harðar-
NÚ stendur yfir í menntamála-
ráðuneytinu sýning á verkum
barna í Varmalandsskóla 1975 til
1990. Sýningin er liður í barna-
menningarátaki ráðuneytisins og
er gott dæmi um velheppnað
skapandi starf með börnum. Hátt
á annað hundrað verk, myndir,
munir o.fl. unnin á íjölbreytileg-
an hátt.
Sýningin stendur út september-
dóttir fóstra. Kynnir og stjórnandi
umræðnanna er Sigurður Hallmars-
son skólastjóri.
Meðan á málþinginu stendur
verða sýnd í anddyri Háskólabíós
verkefni, sem unnin hafa verið á
námskeiðum í Gerðubergi undir
yfirskriftinni „Gagn og gaman“. Þá
munu börn úr Borgarnesi starf-
rækja listasmiðju í anddyrinu.
mánuð og er opin á skrifstofutíma
ráðuneytisins, frá klukkan 8-16.
Málþing um listþörf og sköpunar-
þörf barna verður haldið í Há-
skólabíó, sal 3 sunnudaginn 9. sept-
ember klukkan 10-16. Víðtækar
umræður um þetta viðfangsefni,
þátt skólakerfisins og að hveiju
skuli stefnt. Málþingið er öllum
opið meðan húsrúm leyfir.
Menntamálaráðuneytið:
Sýning á verkum barna
i
í
Nauðungaruppboð
Föstudaginn 7. september 1990
fara fram nauðungaruppboð, annað
og sfðara, á eftirtöldum fasteignum
í dómsal embættisins í Gránu-
götu 4-6.
Aðalgötu 14, 3. hæð, Siglufirði, þingl. eign Sigurjóns Jóhannssonar,
eftir kröfum Tryggingastofnunar ríkisins og fslandsbanka. Kl. 13.30.
Laugarvegur 32, e.h., Siglufirði, þingl. éign Önnu L. Hertevig, eftir
kröfu lönlánasjóðs. Kl. 13.40.
Túngötu 26, Siglufiröi, þingl. eign Benónýs S. Þorkelssonar, eftir
kröfum Vátryggingafélags islands, veðdeildar Landsbanka islands
hf., Ólafs Garðarssonar hdl. og Grétars Haraldssonar hrl. Kl. 13.50.
Bæjarfógetinn á Siglufirði,
Erlingur Úskarsson.
F É L A G S S T A R F
Aðalf undur f ulltrúaráðs
sjálfstæðisfélanna í
Barðastrandarsýslu
veröur haldinn i Félagsheimilinu Bildudal, þriðjudaginn 11. septem-
ber kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. ’
Ávarp: Matthías Bjarnason, alþingismaður.
Stjórnin.
Isafjörður
Fundur veröur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á ísafirði þriðjudag-
inn 11. september kl. 20.30, í Sjálfstæðishúsinu, 2. hæð.
Fundarefni: Bæjarstjórnarmálin.
Stjórnin.
Aðalfundur kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins
á Vestfjörðum
verður haldinn í W 1
Flókalundi 14. og í
15. september I • '
Dagskrá: / j|l
Venjuleg aðalfund- ’ ’ F 7
arstörf. %f0^
Dagskrá verður
send út siðar til
formanna. MÉ
Gestir fundarins al-
þingismennimir Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Stjórnin.