Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 31 Kjartan Jóhannesson fyrrv. deildarsljóri Fæddur 17. júlí 1913 Dáinn 30. ágúst 1990 Erlendis barst mér fregnin um andlát Kjartans Jóhannessonar frá Heijólfsstöðum. Var þá hugurinn fljótur heim en átti þó um stund heimilisfang á miðjum ijórða áratug aldar, sem kreppan hafði svo þung- um skrefum troðið og þjóðin önnur en síðar varð. Sumarið 1935 hringdi til mín Magnús Björnsson, ríkisbókari, bað mig að taka til starfa á skattstof- unni ungan mann, sem ég varla yrði svikinn af. Svo stóð á að þetta sumar lá ég sjúkur heima og kom þessi ungi maður til mín. Var þetta Kjartan Jóhannesson. Á þessum árum var það einn helsti grunnur í skoðun skattfram- tala að reiknað var út hjá skatt- þegni hveijum, hve mikið fé hann hafði notað sér til framfærslu. Hét það á skattstofumállýsku „að gera upp eignahreyfingar og finna lífeyri“. Höfðu mótast um þetta fastar reglur og aðferðir. Voru þær „formúlur“ eitt hið fyrsta sem hveijum nýjum starfsliða skyldi inn- rætt. Náðu sumir þeim hugreikn- ings hraða, að ekki þurfti nema augnagot á framtalið til að sjá hér niðurstöðuna. Ekki var ég í þeirra tölu og af guðs miskunn hafa tækn- iii og tölvan frelsað mannskollinn frá að þurfa slíkt á sig að leggja, að vísu þó fyrir því séð, að léttleik- inn væri ekki aukinn óbærilega á sumum öðrum sviðum. Til gamans lýsti ég fyrir Kjartani hvemig skattstofan færi að því að fínna lífeyri manna, eins og mér hafði sjálfum sýnt verið, þegar ég í fyrsta sinn átti við skattframtal að bjástra. Tók Kjartan þegar blað og út- færði þetta allt á pappírnum. Fór hann að svo búnu, ég þurfti frest til að athuga hvernig á stóð með hlutina. Daginn eftir kom Kjartan aftur. Hafði hann þá vakað yfír því um nóttina, hvort ekki mætti fínna ein- faldari eða fljótlegri aðferð eða aðra röðun við uppsetningu á dæminu. Þetta var dæmigert fyrir Kjartan Jóhannesson. Á þessum tíma var skattstofa Reykjavíkur sú eina í landinu, hvíldi þá einnig á henni að vera útspýtt hundskinn fyrir fjármálaráðuneyt- ið. Hvorki blíð veður eða stríð hefta hafgang þann er voldug skattamál- anna Rán reisir á sínum söndum. Þegar bára hver hefur að bjargi hnigið og dáið sínu drafnarskauti, rísa jafnóðum aðrar frammi. Tuttugu og átta árin var Kjartan Jóhannesson á skattstofunni. Margt var þá gruflið við að fást. Ekki var slegið slöku við þegar Kjartani voru verkefni falin. Ekki spömð yfirleg- an og hugkvæmni kom oft í þarfir. Tap varð það mér þegar skatt- stofan hans missti. Ekki var Kjartan við skattijölina eina félldur. Hneigð hans til rann- sókna og leitandans þrá beindist að fleiri sviðum. Kjörinn hefði hann verið til langskólanáms á einhveiju sérsviði, hefði þess í hans æsku kostur verið. En þá var tíðin önn- ur. Kannski hefði hann ekki valið þær leiðir, sem venjulegastar eru. Tóm gefst mér ekki hér að rekja æviferil, þó af löngum kynnum gæti margs verið að minnast. Ung- ur varð Kjartan fyrir áfalli, sem sveið undan um skeið. Lánsmaður varð hann í einkalífí, gott varð kvonfangið og heimilið. Af hjúadyggðinni og hollustu- tryggðinni blómguðust býlin og lifðu af aldanna basl. Á því búskap- arlagi þraukaði þjóðin. Það var hin íslenska stjórnunarleið mærð í sög- um, sú eina sem í raun gildir. Lagðist mér þetta til. En ekki em mér nú fjærri orð Væringjakon- ungs, er hann gekk frá grefti Úlfs Soffía Theódórs- dóttír — Minning Fædd 12. september 1928 Dáin 31. júlí 1990 Margt kemur upp í hugann nú þegar Nabba, eins og hennar nán- ustu kölluðu hana jafnan, er öll. Margt hefði mátt segja og gera á annan veg en gert var. Nabba var enn barn að aldri er ég giftist Guð- jóni elsta bróður hennar og hófust þá strax náin kynni okkar. Hún varð mér þegar kær, svo blíð og létt í lund og starfsglöð. Þær vom líkar að þessu leyti hún og Lóa systir hennar, sem einnig er nýlega látin. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Soffía Bjarnadóttir og Theó- dór Jónsson sjómaður og verkamað- ur. Nabba og Kristján tvíburabróðir hennar voru yngst af 12 börnum foreldra sinna og var oft þröngt í búi með svo stóran bamahóp. Það var oft erfitt líf fyrir yngstu börnin, en grönn og þrautseig bmtust þau í gegnum allt og náðu góðum þroska. Nabba var oft til heimilis hjá mér og Guðjóni bróður sínum, fyrst sem unglingur og síðar með litla drenginn sinn Helga, sem hún eignaðist ung með Hauki Hjálmars- syni frá Hofi á Kjalarnesi. Við Guð- jón bjuggum um tíma í sveit og sýndi Nabba þá vel hvað í henni bjó, er hún var hjá okkur. Vandvirk og afkastamikil var hún í öllum verkum og hreif alla með glaðlyndi sínu, kom það sérlega vel fram, er hún lék við börnin. Nabba giftist síðar barnsföður sínum og eignuð- ust þau þá þrjú börn í viðbót: Onnu, Kristján og Aslaugu. Það átti ekki við Nöbbu að láta fjötra sig og þau Haukur slitu sambúð. Seinustu árin var hún sjúklingur, en hversu mik- ill vissu fáir. Maður skildi fara var- lega í að dæma, þvíenginn veit hver verður næstur. Ég kveð svo mína kæru yngstu mágkonu og þakka fyrir allt hið góða sem við áttum saman. Veri hún ætíð Guði falin. Lydía Guðjónsdóttir stallara, „Þar liggur sá nú er dygg- astur var og drottinhollastur". Halldór Sigfússon Kjartan Jóhannesson, fyrrv. deildarstjóri við embætti ríkisskatt- stjóra, andaðist 30. ágúst sl. og verður jarðsettur í Reykjavík í dag. Hann varð rúmlega 77 ára gamall, fæddur á Söndum, Meðallandi, þann 17 júlí 1913. Við Kjartan kynntumst fyrst er ég hóf störf á skattstofunni í Reykjavík 1942. Þar vorum við samstarfsmenn fram á árið 1943 og síðan á árunum 1946-1952. Samstarfið á þessum árum varð ekki náið vegna mismunandi verk- efna okkar, svo og hins að Kjartan var frá störfum þaðan á árunum 1948-1950. fyrst við framkvæmd eignakönnunar og síðar við álagn- ingu stóreignarskatts. Náin kynni okkar Kjartans hóf- ust í reynd ekki fyrr en haustið 1962, þegar embætti ríkisskatt- stjóra var stofnað. Þegar ljóst varð að embættinu yrði m.a. falið það verkefni að semja nýja reglugerð um tekju- og eignarskatt með hlið- sjón af nýjum skattalögum leitaði ég á færustu mið og var það lán- samur að fá Kjartan „að láni“ frá skattstofunni í Reykjavík til að ann- ast undirbúning og framkvæmd samningu reglugerðarinnar. Við úrlausn Kjartans á þessu vanda- sama verkefni varð mér ljósara en áður hvílíkan hafsjó af fróðleik hann hafði að geyma um sögu íslenskra skattamála og fram- kvæmd þeirra. Það var mikið gæfu- spor fyrir mig þegar Kjartan að loknu þessu verkefni réðst til starfa sem deildarstjóri við embættið. Þau eru óteljandi verkefnin sem Kjart- ani voru falin, en m.a. má nefna aðstoð við samnignu skattalaga- og reglugerðabreytinga, framkvæmd eignaendurmats, undirbúning skattmata og leiðbeininga við fram- talsgerð, leiðbeiningar ýmsár og fyrirmæli til skattstjóra og síðast en ekki síst skipulag og yfirumsjón með skjalasafni embættisins. Við úrlausn þessara verkefna kom enn frekar í ljós óþijótandi þekking Kjartans á skattmálum, elja hans, alúð og samviskusemi í starfi. Það var því mikil eftirsjá að Kjartani er hann lét af störfum vegna aldurs í júll 1983. Með þessum línum vil ég kveðja góðan og einlægan starfsfélaga. Við hjónin flytjum Valgerði og börnum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurbjörn Þorbjörnsson Góður nágranni er genginn. Kjartan Jóhannesson var fæddur að Söndum í Meðallandi, næst elst- ur 11 systkina. Þegar hann var 5 ára gamall, varð fjölskylda hans fyrir óvenjulegri lífsreynslu. Dagur- inn 12. okt. 1918 rann upp rétt eins og hver annar og engum datt í hug að hann yrði frábrugðinn öðrum, en reyndin varð önnur. Þennan dag hófst Kötlugos mik- ið, hið 13. í röðinni og olli stórkost- legu jökulhlaupi. Ruddist það yfir Mýrdalssand, sópaði burt Hólmsár- brú með steinstólpum og fór í Kúða- fljót með miklum jakaburði. Merki- legt má teljast að ekki varð mann- tjón í hamförum þessum sem lögðu í eyði marga bæi í Meðallándi, þar á meðal Sanda. Daginn áður voru menn að smala uppi undir Mýrdalsjökli og hefðu þeir án efa allir farist ef hlaupið hefði byijað þá. Húsbóndinn í Söndum, Jóhannes Guðmundsson, var einn þeirra bænda sem staddur var með slát- urfé í Vík í Mýrdal 12. okt. er ósköp- in dundu yfír. Má nærri geta hvern- ig mönnum þessum hefír liðið næstu daga því engin tök voru á að fá fréttir að heiman fyrr en eftir marga daga. - En það er af Þuríði húsfreyju á Söndum að segja, að henni tókst að bjarga lífi sínu .og barnanna en bærinn eyðilagðist og jörðin fór í eyði. Nærri má geta hvílík áhrif þessar hamfarir hafa haft á 5 ára dreng. Auk þess fór það næstum með efna- hag fjölskyldunnar sem missti fjölda hesta og nautgripa. Af mikl- um dugnaði var þó farið að búa á annarri jörð, reyndar enn nær Kötlu, Heijólfsstöðum í Álftaveri. Ekki voru mikil tök á að kosta börn til mennta á þessum árum og allra síst eftir slíkt afhroð. Einhvern veginn tókst Kjartani samt að kom- ast í Héraðsskólann á Laugarvatni og lauk hann þar tveggja vetra námi á einum vetri. Síðan lá leiðin í Samvinnuskólann en þar munaði litlu að allt sigldi í strand vegna féleysis. Kjartan fór á síld en „sú silfurgráa“ lét ekki sjá sig vikum saman. Loks kom aflahrota undir lok vertíðar og bjargaði hún málun- um. Aðioknu námi fór Kjartan fljót- lega að vinna á Skattstofunni. Þar vann hann til ársins 1961. Það ár var embætti ríkisskattstjóra stofn- að. Eitthvað hlýtur að hafa kvisast um starfshæfni Kjartans því hann var „fenginn að láni“ hjá Skattstof- unni meðan verið var að koma skrif- stofu ríkisskattstjóra á traustan grunn. Framhald þessara mála varð á þann veg, að Kjartan ílengdist hjá ríkisskattstjóra til ársins 1983 er hann lét af störfum vegna aldurs. Ég hygg að ýmsir hefðu í sporum Kjartans gefíst upp löngu fyrr vegna veikinda, því lungnasjúkdóm- ur hans var þá mjög farinn að þjá hann. En Kjartan var ekki sérlega gef- inn fyrir það að gefast upp. Hann var svo traustur og samviskusamur gagnvart hveiju því er hann tók ».að sér, að allt ann'að varð að bíða. Þó að hans aðalstarf væri skrif- stofustarf, frábærlega af hendi leyst, þá átti Kjartan sér aðra drauma. Hann hefði eflaust orðið Vegna útfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR verða skrifstofur okkar og vöruafgreiðsla lokaðar frá kl. 13.00 í dag. H. Benediktsson hf. Vegna útfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR verða skrifstofur okkar, verslun og verkstæði lokuð frá kl. 13.00 í dag. Ræsir hf. Vegna útfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR verða skrifstofur okkar, verksmiðjur og söludeildir lokaðar frá kl. 13.00 í dag. Nói-Síríus hf. og Hreinn hf. jarðfræðingur ef efni og aðstæður hefðu leyft. Fyrst svo var ekki mátti samt reyna að grúska, lesa sig til, rannsaka o.s.frv. Kjartan gekk í Jöklarannsóknafélag Islands og vann því allt það gagn sem hann mátti. í samvinnu við fræðimenn þar fékk hann sett niður mælitæki í nánd við Kötlu. Árum saman eyddi hann sumarfríinu í að fara austur, fylgjast með mælum, skrá og skrifa. Síðast komst hann austur árið 1986 meira af vilja en mætti og þá í fylgd bræðra sinna Páls og Gissurar og jarðfræðingsins Jóns Jónssonar. Það má segja að Kjartan hafi skor- að Kötlu gömlu á hólm og haft betur. Hún hefir a.m.k. ekki lagt í 14. gosið ennþá og vonandi verða rannsóknir Kjartans og annarra mætra manna til þess að vara fólk við „ósköpunum" í tæka tíð. Kjartan átti fleiri áhugamál en jöklarannsóknir og eitt þeirra var meðferð íslenskrar tungu. Honum féll afar illa þegar hann heyrði málinu misþyrmt í fjölmiðlum. Þá lá við að jafnvægi hans yrði raskað og þurfti þó mikið til. Hávaði og liáreysti nútímans fengu ekki rask- að ró hans. Hver hugsun var vand- lega ígrunduð áður en skoðun var borin fram, en alltaf var stutt í kímnina þó mál væru rædd af festu. Kvæntur var Kjartan Valgerði Jónsdóttur frá Skálholtsvík í Strandasýslu. Var með þeim mikið jafnræði og studdi hún mann sinn dyggilega alla tíð og síðast en ekki sfst í veikindum hans. Það er svo ótalmargt, sem erfitt er að skilja og eitt af því er sú ráð- stöfun almættisins að þessi barn- góðu hjón eignuðust ekki börn. Þau tóku því tvö kjörbörn, Þorgeir Rúnar og Kristrúnu Hörpu. Það var þeirra mikla gæfa að komast í þess- ar hlýju hendur og fengu leikfélag- ar þeirra ætíð að njóta hjartagæsku foreldranna. Síðustu árin fengu dóttursynirn- ir, Guðjón Kjartan og Jerry, einnig að njóta samvistanna við afa og ömmu. Þrátt fyrir ótrúleg and- þrengsli og erfiðleika gat Kjartan gefið afastrákunum sínum ógleym- anlegt veganesti. Þær minningar munu ylja þeim um ókomna tíð. Við Eiríkur „afi“ og bömin mín þökkum áratuga kynni, sem aldrei hefir borið skugga á. Valla mín og þið öll í Karfavogi 34. Látið ekki söknuðinn einan fylla hjörtu ykkar. Meistarinn sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Guð blessi ykkur öll og för Kjart- ans um framtíðarlendur. Þórný Þórarinsdóttir SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA SMIOJUVEOI 6. 200 KÓRAVOGUH. SlMI 43211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.