Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 Formaður byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu: Áætlun tíl um að flutt verði inn árið 1994 FINNBOGI Guðmundsson, formaður byggingarnefndar Þjóðarbókhlöð- unnar, segir að gerð hafi verið áætlun sem miði að því að ljúka fram- kvæmdum árið 1993 þannig að hægt verði að flytja inn árið 1994. Segir hann menntamálaráðherra hafa lýst því yfir að Þjóðarbókhlöð- unni beri að fá eignarskattsauka áranna 1987—89 og að honum verði skilað. í grein sem Birgir ísleifur Gunn- arsson, alþingismaður, ritaði í Morg- unblaðið í gær, kemur fram að á árunum 1987, 1988 og 1989 nam álagning sérstaks eignarskattsauka 684 milljónum króna og um mitt þetta ár höfðu verið innheimtar 630 milljónir króna. Af þessum skatti, sem lagður var á til að ljúka við Þjóðarbókhlöðuna, hafa aðeins 244 milljónir króna skilað sér til hennar. Mismunurinn, 386 milljónir, hefur lent í ríkissjóði. Á þessu ári er eignar- skattsauki lagður á samkvæmt nýj- um lögum um „Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga". Á í upphafi að veija sjóðnum til að ljúka byggingu Þjóðarbókhlöðu. Sam- kvaynt fjárlagafrumvarpi á þessi eignarskattsauki að gefa 265 millj- ónir króna á þessu ári og þar af á einungis að verja 67 milljónum til Þjóðarbókhlöðunnar. Segir Birgir ísleifur í grein sinni að allt hafi þetta leitt til þess að fram- kvæmdir við Þjóðarbókhlöðu hafi stöðvast. Milljónirnar 67 hafi farið í að ljúka við áfanga frá síðasta ári. „Með sama áframhaldi mun bygg- ingunni ekki ljúka fyrr en á næstu öld,“ segir Birgir íslefur. Finnbogi Guðmundsson, formaður byggingamefndar Þjóðarbókhlöð- unnar, sagði að það væri rétt að með sama áframhaldi myndi þetta ger- ast. Hann sagðist hins vegar vænta þess að fljótlega færi að komast skriður á málið. „Menntamálaráð- herra segist hafa fullan áhuga á að beita sér fyrir því að lokið verði við Þjóðarbókhlöðuna árið 1993. Þannig yrði hægt að flytja inn í hana á fimmtíu ára afmæli lýðveldisins árið 1994. Það liggur fyrir áætlun sem miðuð er við þessar dagsetningar og þá er bara að sjá hvernig þetta verð- ur leyst fjárhagslega," sagði Finn- bogi. Hann sagði náttúrulega þurfa mikið fé til að ljúka framkvæmdum. Þegar hefði verið varið 850 milljón- um króna á núvirði til byggingarinn- ar og annað eins og vel það þyrfti að koma til ef ljúka ætti verkinu. „Miðað við lögin um eignarskatts- auka eigum við aftur á móti inni stórfé og væri það nóg til að hleypa fullum krafti í framkvæmdimar. Menntamálaráðherra hefur lýst því yfir að Þjóðarbókhiöðunni beri þetta fé og að því verði skilað. VEÐUR i DAG kl. 12.00 HttOTHkit VoðurGtofd ísslands (Byggt á veáurspá kl. 16.15 í gter) VEÐURHORFUR í DAG, 7. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Yfir Norðausturlartdi er 1002 mb smáiægð sem grynnist. Um 700 km suðvestur af landinu er 998 mb lægð á hreyf- ingu norðnorðaustur, SPÁ: í dag verður suðaustan kaldi og víða rigning, síst þó á Norð- austuriandi. Snemma dags snýst vindur til suðvesturs með skúrum um vestanvert iandið. Hiti verður á bifinu 7-12 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg suðvestanátt og sméskúrir á Suðvest- ur- og Vesturlandi, en iéttskýjað austanlands. Fer að þykkna upp vestanlands síðdegis. HORFUR Á SUNNUDAG: SA-átt og rigning, einkum sunnanlands og vestan. Regnsvæði mun hreyfast norðaustur yfir landiö. í kjölfar þess verður suðvestlaag átt með skúrum á Suður- og Vesturi., en á Norö- austur- og Austurlandi léttir þá tit. Hiti báða daga á bilinu 7-12 stig. TÁKN: Heiðskírt 'CálÍl Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10D Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir Él Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður V * V ? 5 5 oo 4 R « 'a Wl T f * ' 4 VBÐUR \ kl. 12:00 / 'IÐA gær m i UM HEIM að fsl. tíma vekur /4M1I cyi i Reykjavik 9 úrkoma Bergen HeUinki 18 14 akýjaö skýjafi Kaupmannahöfn 18 skýjað Narssarssuaq 3 rlgning Nuuk 6 skýjað Óstó 16 skýjaö Stokkhóimur 10 rignlng Þórshöfn 12 rlgning Algarve 26 helðskírt Amsterdam 16 akúr Barcelona 27 mistur Berlln 17 I 1 Chlcago 24 mistur Feneyiar 23 heiöskírt Frankfurt 18 skýjaö Glasgow 11 skýjað Hamborg 16 alskýjaö laa Palmas vantar London 18 skýjaö LosAngeles 18 heiösklrt Lúxemborg 16 skýjað Madríd 32 heiðskirt Malaga 29 heiöakfrt Mallorca 29 léttskýjað Montreal 17 skýjað NewYork 24 mislur Orlando 24 þokumóða Parts 20 skúr Röm 26 tóttskýjað Vín 18 skýjaö Washington 23 þokumóöa Wlnnipeg 16 skýjaö Andrés Kristjánsson og Páll Guðmundsson voru að heíja nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti nú í haust, og sögðu þeir að þeim litist mjög vel á skólann. Höfum ekki trú á því að skólastarf raskist - segja nemend- ur í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti STARF flestra framhaldsskóla í landinu er nú að heíjast. Á undanförnum árum hefur i nokkur skipti orðið röskun á starfi skólanna vegna verk- falla kennara. Nemendur í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti, sem Morgunblaðið ræddu við í gær sögðust ekki kvíða verkfallsátökum í vetur, þrátt fyrir kjaradeilur kenn- ara og ríkisins. Fyrir utan Fjölbrautaskólann í Breiðholti sátu þeir Andrés Kristjánsson og Páll Guðmunds- son, en þeir voru nú að hefja nám við skólann á almennu bóknáms- sviði. Þeir sögðu að sér litist afar vel á skólann og hefðu ekki telj- andi áhyggjur af því að kjarabar- átta kennara truflaði skólastarf- ið. Þar sem þetta væri fyrsti vet- ur þeirra í skólanum hefði nám þeirra ekki raskast til þessa vegna verkfalla. Vala Georgsdóttir er nemandi á fimmtu önn í Fjölbrautaskólan- Vala Georgsdóttir, nemandi á fimmtu önn í Fjölbrautaskó- lanum í Breiðholti, segist ekki hafa trú á að röskun verði á skólastarfi í vetur vegna kjara- deilna kennara og ríkisins. um í Breiðholti og stundar nám á félagsfræðibraut. Hún sagði að frá því hún hefði hafí nám við skólann hefðu kennarar tvisv- ar efnt til verkfalla en hún hefði ekki trú á því að röskun yrði á skólastarfinu í vetur vegna slíkra átaka. Hún sagði að kenaara- verkföllin hefðu ekki haft nein áhrif á nám sitt, en hún vissi hins vegar til þess að ýmsir hefðu hætt í skóla og farið út á vinnu- markaðinn í þessum verkföllum. Álver á Keilisnesi: Fáránleg niðurstaða að 1Ö% vinnuaflsins komi af Suðumesjum - segir oddviti Vatnsleysustrandarhrepps Vogum. JÓN Gunnarsson, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps, segir fáránlegt hvernig hægt sé að komast að þeirri niðurstöðu að einungis 10% þeirra, sem myndu vinna við álver á Keilisnesi, komi frá Suðurnesj- um. Hann segist ekki hafa fengið að sjá forsendurnar fyrir þessum útreikningum. Hins vegar virðist íbúafjöldi Reykjavíkur og Reykjan- eskjördæmis hafa verið lagður saman en íbúaíjöldi Suðurnesja dreg- inn frá og niðurstaðan sé sú að íbúafjöldi Suðurnesja sé um 10%. Jón Gunnarsson segir að álver á Keilisnesi yrði á vinnusvæði stéttar- félaga á Suðurnesjum. „Það er sjálf- sagt að félagar í þeim gangi fyrir um vinnu en ef álvérið verður ekki að fullu mannað fólki frá þessum félögum komi það vinnuafl, sem vantar, annars staðar frá,“ segir Jón. Þá segist Jón vera ákaflega óhress með það hvernig ráðamenn þjóðarinnar tali um Suðurnesin og Suðurnesjamenn. „Ég sem oddviti," segir Jón, „furða mig á hve lítið heyrist í þing- mönnum kjördæmisins, öðrum en Karli Steinari Guðnasyni. Það er furðulegt að þeir sitji undir ámælum ráðherra, sem eru á móti álveri á Keilisnesi, því ég tel hlutverk þing- mannanna meðal annars vera það að gæta hagsmuna okkar. Það tek- -ur- fjögur-til-fjögur-og- hálft -ár- -að byggja álver og á byggingartíman- um tel ég að íbúum fjölgi hér í Vogum, þannig að ekki væri óeðli- legt að um 20% starfsfólks kæmi héðan úr hreppnum,“ segir Jón. Ólafur Ragnar Grímsson ljar- málaráðherra sagði ijölmiðlum frá umræddum niðurstöðum Byggða- stofnunar eftir ríkisstjórnarfund á miðvikudaginn. Skrifstofa starfs- hóps um stóriðjumál á Suðurnesjum sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem sagði, að annaðhvort hefði fjármálaráðherra farið með grófar rangfærslur á skýrslu Byggðastofn- unar eða að stofnunin hefði sýnt ótrúlegan barnaskap í ályktunum í skýrslunni. Skýrslan hefur ekki enn verið gerð opinber, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. EG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.