Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
21
STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA
Kúvæt:
Brqttflutningur Banda-
ríkjamanna undirbúinn
Washington. Amman. Reuter.
BANDARÍSKA útvarpsstöðin
Voice of America útvarpaði í
gær skilaboðum til bandarískra
þegna í Kúvæt og bað þá að
gera sig klára fyrir hópflutning
til Bagdad í Irak og þaðan til
Amman í Jórdaníu.
Að sögn útvarpsins er vonast
til að írakar leyfi a.m.k. banda-
rískum konum og börnum sem eru
í Kúvæt að fara úr landi. í gangi
væru tilraunir til að fá þá til að
fallast á að leyfa körlum einnig
að fara en hálft þriðja þúsund
Bandaríkjamanna munu vera í
landinu.
í útsendingum Voice ofAmeríca
var fólk hvatt til þess að hafa
símasamband við bandaríska
sendiráðið í Kúvætborg en beðið
fyrir alla muni að reyna ekki að
fara þangað vegna umsáturs
íraska innrásarliðsins.
í gær komu 182 Bretar með
rútum til Bagdad en fyrr í vikunni
fóru rúmlega 300 konur og börn
landleiðina þangað. í viðtölum við
blaðamenn við komuna gagnrýndi
fólkið breska sendiráðið í Kúvæt
fyrir aðgerðarleysi við að reyna
að koma fólkinu úr landi.
Leiguflugvél frá íraska flugfé-
laginu kom í gær með 140 Vestur-
landabúa til Ankara í Tyrklandi.
Flóttamönnum frá írak og Kú-
væt sem komast til Jórdaníu fjölg-
ar stöðugt. Munu á annað hundrað
þúsund flóttamanna hafast við í
17 búðum. Eru margir aðfram
komnir vegna hás hitastigs í eyði-
mörkinni og vegna vatns- og mat-
arskorts. Því til viðbótar heija
sporðdrekar og snákar á fólkið.
Hermt var í gær, að komið hefði
til bardaga um vatn og mat milli
hinna ýmsu þjóðarbrota í flótta-
mannabúðum.
Reuter
Bandarískur skriðdreki á ferð í eyðimörkinni í Saudi-Arabíu.
Persaflóadeilan og önnur ágreiningsefni í Mið-Austurlöndum:
Yaxandi ótti um að samstaða
stórveldanna verði rofin
Washmgton. The Daily Telegraph.
EMBÆTTISMENN í Washington,
höfuðborg Bandaríkjanna, eru
teknir að óttast að Sovétmenn
hyggist binda hugsanlega lausn
Persaflóadeilunnar við önnur
ágreiningsefni í þessum heims-
hluta. Þykja ummæli Edúards
Shevardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, í Vladivostok fyrr
í vikunni gefa til kynna að Sovét-
menn séu áfram um að boðað
verði til alþjóðlegrar ráðstefnu
um málefni Mið-Austurlanda og
kunni með þessu að ijúfa sam-
stöðu risaveldanna í Persaflóa-
deilunni.
Shevardnadze sagði í ávarpi í
Vladivostok á þriðjudag að innrás
íraka í Kúvæt væri eitt fjölmargra
margslunginna og tengdra ágrein-
ingsefna í Mið-Austurlöndum. Vera
kynni að efna þyrfti til alþjóðlegrar
ráðstefnu í því skyni að þoka deilu-
Bandaríkjamenn vilja fá
allan herkostnaðinn bættan
Anchorage í Alaska. Reuter.
HÁTTSETTIR bandarískir embættismenn greindu frá því í gær
að sú hugmynd nyti nú vaxandi fylgis að þrýst yrði á ríkar þjóð-
ir, vinveittar Bandaríkjamönnum, um að standa straum af kostn-
aði vegna veru herliðsins við Persaflóa.
Heimildarmenn Reuters-írétta-
stofunnar, sem voru í för með
Nicholas Brady, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, á leið hans til Asíu
kváðu það sjálfsagða sanngirnis-
kröfu að auðugir bandamenn
Bandaríkjanna tækju á sig allan
kostnaðinn. í Washington telja
menn að kostnaðurinn við að koma
öllu því viðbótarherliði sem Banda-
ríkjamenn hyggjast senda á þessar
slóðir fram til ársloka verði um
sex milljarðar Bandaríkjadala (um
330 milljarðar ísl. kr.). Að auki
er talið að kostnaðurinn við að
halda liðinu úti verði ekki minni
en einn milljarður dala í hverjum
mánuði.
Embættismennirnir, sem kröfð-
ust nafnleyndar, sögðu að gert
væri ráð fyrir því að hin auðugri
ríki Mið-Austurlanda, iðnríki Evr-
ópu og fjármálaveldi í Asíu, þ. á
m. Taiwan, bættu með mismun-
andi hætti upp útgjöld Bandaríkja-
manna vegna Persaflóadeilunnar.
málum þessum í samkomulagsátt.
Saddam Hussein íraksforseti lýsti
sem kunnugt er yfir því í síðasta
mánuði að hann væri tilbúinn til að
endurskoða innlimun Kúvæt yrði
jafnframt samið um lausn annarra
deilumála í Mið-Austurlöndum og
nefndi forsetinn einkum veru herliðs
ísraela á landsvæðum Palestínu-
manna og heimkvaðningu herliðs
Sýrlendinga frá Líbanon. Þessari til-
lögu höfnuðu Bándaríkjamenn og
bandamenn þeirra í Persaflóadeil-
unni snimhendis.
Sovétstjórnin hefur löngum hvatt
til þess að kölluð verði saman alþjóð-
leg ráðstefna til að ræða yfirráð Isra-
ela yfir Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu og framtíð hinna landlausu
Palestínumanna. Stjórnvöld í ísrael
hafa þráfaldlega hafnað þessari hug-
mynd og það hafa Bandaríkjamenn
einnig gert enda hefur þeim löngum
verið umhugað um að takmarka
áhrif Sovétmanna í Mið-Austurlönd-
Aðspurður um ummæli hins sov-
éska starfsbróður síns sagði James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, að hann teldi þetta ekki
sérlega uppbyggilega hugmynd.
Herför íraka inn í Kúvæt og deilan
um ríki Palestínumánna væru óskyld
málefni. Heimsbyggðin öll hefði þeg-
ar tekið afstöðu til innrásarinnar í
Kúvæt á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna og mætti á ýmsan hátt líkja
því við að boðað hefði verið til ráð-
stefnu um málið.
Baker sagði á fundi með banda-
rískum þingmönnum að tímabært
væri að huga að því hvert ætti að
vera framtíðarhlutverk Banda-
ríkjanna í svæðisbundnum deilumál-
um sem Persaflóadeilunni. Mikil-
vægt væri að Bandaríkjamenn gerðu
sér Ijóst að þeir einir hefðu fullnægj-
andi styrk á hemaðar- og stjóm-
málasviðinu til að skipuleggja við-
brögð á alþjóðavettvangi við árásar-
og yfirgangsstefnu tiltekinna ríkja.
Nefndi hann sem dæmi að hugsanleg
heimkvaðning hersveita íraka frá
Kúvæt myndi ekki reynast fullnægj-
andi ástæða fyrir því að herlið
Bandaríkjamanna yrði aftur flutt til
síns heima. Tímabært væri að hugað
yrði að því hvernig koma mætti á
fót fjölþjóðlegu öryggjsgæsluliði á
þessum slóðum. Lét utanríkiráðher-
rann þess getið að slíkt alþjóðlegt
lögreglulið þyrfti ekki nauðsynlega
að lúta forystu Bandaríkjamanna
þótt sýnilegt væri að floti Banda-
ríkjanna hlyti að vera þar í lykilhlut-
verki.
TEPPALANDS
Teppi, dúkur, parket og flisar.
Teppalandsútsaian er í fullum
gangi. Það hefur aldrei verið jafn
auðvelt að gera eins góð kaup á
gólfefnum á stórlækkuðu verði.
Við höfum lækkað verðið um allt
að 50% - það munar um minna.
Nú er einstakt tækifæri því verslun- og gólfdúkabútum. Einnig fyrsta
in er full af útsölu-gólfefnum, s.s. flokks flísar, grásteinn og skífur,
gólfteppum, stökum teppum, parketafgangar, gólfkorkur og
mottum, dreglum, bútum, teppa- veggdúkur.
afgöngum, gúmmímottum, gólfdúk
Það vilja allir spara - nú er tækifærið.
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 83577 og 83430, Rvík.