Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
13
Breytingar á tíð-
um í íslensku
eftirÁrna
Böðvarsson
Egill Egilsson ritar hugvekju um
málfar í Morgunblaðið laugardaginn
18. fyrri mánaðar og gagnrýnir þar
meðal annars mátfar í fjölmiðlum.
Hann spyr í fyrirsögn hvort notkun
tíða sé að breytast í íslensku og bein-
ir spurningunni öðrum þræði til mín.
Ég get reynt að svara henni að ein-
hveiju leyti, en það svar er raunar
reist á tilfinningu minni, ekki neinum
rannsóknum, því að ég veit ekki til
að þetta efni hafí verið kannað að
gagni.
Egill minnist á tvær breytingar
sem hann telur að séu að gerast í
tiðanotkun í íslensku.
Önnur breytingin er óeðlileg notk-
un samsettrar sagnbreytingar í
framtíðarmerkingu þegar notuð er
samsett tíð með munu. Þá segja sum-
ir: „Hann mun koma á morgun.“
Þetta er óeðlilegt mál ef með því er
aðeins átt við þennan ókomna tíma,
á morgun. En það er hins vegar eðli-
legt ef aðalatriðið er ekki framtíðin,
heldur spá um eitthvað. í venjulegri
íslensku er hrein framtíðarmerking
sýnd með svokallaðri nútíð, „hann
kemur á morgun". Þessi ósamsetta
tíð (,,kemur“) er að jafnaði eðlilegra
mál en samsetningin með „munu“
(„hann mun koma“). Orðasambandið
„hann mun koma á morgun“ gefur
í skyn spádóm, sennileika, líkindi,
en framtíðin er þar sýnd fyrst og
fremst með sambandinu „á morgun".
Það eru nokkrir áratugir síðan
Hermann Pálsson tók svo til orða
um þetta í bréfi til mín að máifræð-
ingar væru að „ljúga framtíð inn í
íslenskt mál“. Þetta mun vera rétt
að því leyti að þessari röngu, sam-
settu framtíðarmynd hefur löngum
verið haldið að skólanemendum og
þeim sagt að framtíð í íslensku
myndist með hjálparsögninni munu.
Það er röng kenning, hrein framtíð
er í eðlilegri íslensku táknuð með
svokallaðri nútíð, ósamsettri. Hins
Árni Böðvarsson
„Oft skiptir það máli
hvort sögnin merkir
venju, eðli eða eitthvað
þvílíkt. Þegar sá þáttur
merkingarinnar felst í
sögninni, er notuð
ósamsett nútíð.
vegar held ég — og get þó ekki stutt
það neinu öðru en almennri mál-
skynjun minni — að slík samsett
framtíð sé minna notuð í fjölmiðlum
nú en var fyrir nokkrum áratugum.
En hún fær stuðning af enskri mál-
notkun; það er svo auðvelt að setja
íslensk orð í staðinn fyrir ensk og
halda að þá sé komin þýðing á
íslensku.
Hin breytingin sem Egill talar um,
er samsett nútíð í setningum eins
og hann er að konia. Hún er töm
öllum íslenskumælandi mönnum með
óbrenglaða málkennd þegar verið er
að tala um líðandi stund. En hann
kemur á venjulega aðeins við
framtíð, einhveija ókomna stund; þá
verður að tiltaka tímann nánar með
einhveijum öðrum orðum, „hann
kemur strax, hann kemur eftir tvö
ár“. Ég hygg það sé rétt hjá Agli
að þessi tilhneiging sé að verða æ
ríkari um þessar mundir og mér þyk-
ir líklegt að það séu einnig ensk áhrif.
í sumum sögnum er ósamsett
nútíð þó ein eðlileg, svo sem að vita.
„Hann veit þetta“ er ekki framtíð,
heldur merkir beinlínis að hann viti
þetta núna, en framtíðarmerkingu
má koma að með öðrum orðum í
setningunni, „hann veit þetta á
morgun, hann veit þetta þegar þú
hittir hann“. Enginn segir „hann er
að vita þetta" þó að allir segi „hann
er að koma“. Þetta gildir að mestu
leyti um svo nefndar núþálegar sagn-
ir (unna, kunna, mpna, munu, skulu,
þurfa, eiga, mega, vita, vilja), einnig
þekkja, borða, drekka, sofa og marg-
ar fleiri, en þetta er misjafnt eftir
merkingum þeirra. Til að mynda
segjum við „hún á barn“ í annarri
merkingu en „hún er að eiga barn“,
og sömuleiðis merkir „hann borðar
fisk“ annað en „hann er að borða
fisk“.
Oft skiptir það máli hvort sögnin
merkic venju, eðli eða eitthvað
þvílíkt. Þegar sá þáttur merkingar-
innar felst í sögninni, er notuð ósam-
sett nútíð. Eðli hesta er að hneggja,
eldijalla að gjósa, pappírs að fjúka,
svo nokkur dæmi séu nefnd. Ekki
er sama merking í „hesturinn
hneggjar“ og „hesturinn er að
hneggja", „Hekla gýs“ og „Hekla er
að gjósa", „blaðið fýkur í rokinu"
og „blaðið er að fjúka“.
Þetta efni er flóknara en virðast
kann í fljótu bragði, og þessi dæmi
eru bæði fá og einhæf. En þau eiga
að sýna að ekki er sama hvort notuð
er samsett eða ósamsett nútíð í
íslensku.
Um það gildir að sjálfsögðu hið
sama og um aðra málnotkun, fólk
verður að læra og skilja blæmun á
mismunandi orðalagi. Það er hrein
skylda alls fjölmiðlafólks. Það tekst
með góðum vilja og sívakandi at-
hygli.
Ég vona að Agli þyki þetta svar
skárra en ekkert.
Á höfuðdaginn 1990. Með þökk
fyrir birtinguna.
Höfundur er málfarsráðunautur.
Börnum mínum og Jjölskyldum þeirra þakka
ég myndarlega veislu er þau héldu mér.
Vinum mínum þakka ég heimsóknir, skeyti
og annan sóma er mér var sýndur á 85 ára
afmœli mínu þann 17. ágúst sl.
Sérstakar þakkir til frœnda míns og vinar,
Hjartar skálds Þórarinssonar á Selfossi.
Blessun Guös sé meö ykkur öllum.
LárusÁg. Gíslason,
Miöhúsum.
Músíkleikfimin
hefst mánudaginn 24. september.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur
á öllum aldri.
Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer
fram í íþróttahúsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022
um heigar og virka daga í sama síma
eftir kl. 16.
Söngáhugafólk
Samkór Kópavogs vantar
söngfólk í allar raddir
Fyrirhuguó utanlandsferó meó vorinu
Æft í Kópavogsskóla mánudagskvöld
kl. 20.30-23.00.
Nánari upplýsingar í síma 34369 (Osk),
46493 (Þorbjörg) og 31857 (Ágústa).
DANSSKÓLIAUÐARHARALOS
NÝIR BARNADANSAR FYRIR 3-5 ÁRA
RaðgreiÖslur.
Rock’n’Roll, Boogie og Tjútt.
íslandsmeistararnir yó/og María
kenna. Byrjendurog framhald.
Pör og einstaklingar:
Samkvæmisdansar, gömlu
dansarnir, Rock og tjútt. Byrjendur
og framhald.
Ath!
Gestakennarar skólans fyrir jól eru
Geoffrey og Diana Hearn og
heimsmeistararni'rí
suður-amerískum dönsum, Corkyog
Shirley Ballas.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun ísímum:
39600, 31360 og 656522 frá
kl. 13-19daglega.
F.Í.D. D.Í.
Kennslustaóir
Ath!
Nýtt kennsluhúsnæði í Skeifunni
11B, 2. hæð, Skeifunni 17, 3. hæð,
KR-heimilinuv/Frostaskjól, Tónabæ
og Gerðubergi í Breiðholti.
Garðabær: Garðalundur
(laugardagskennsla).
Kennsla hefst 10. sept.
Kennslutíminn fyrir jól eru 14 vikur
og jólaball.
NYTT - NYTT
„Soca-Dance“
fyrir börn, unglinga og hjón.
Sértímar + kennt með öðrum
dönsum.
NYTT - NYTT
Vouge - hip hop -
funk diskó jazz og
freestyle.
Meiriháttar nýir dansar.
10-12 ára,
13-15 ára
16ára og eldri.