Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 17 Sigfus Halldórsson tón- skáld - Afmæliskveðja í dag, föstudaginn 7. september, er Sigfús Halldórsson sjötugur. Hér á árum áður, þegar ekkert sjónvarp var og myndir af fólki birtust sjaldn- ar í dagblöðum en nú til dags, reyndi ég oft sem ungur stráklingur, að ímynda mér eða sjá fyrir mér, hvern- ig þessi eða hinn frægra manna litu nú eiginlega út. Stundum var þetta jú eftir lýsingu þeirra er séð höfðu mennina. Svo kom oft að því, að ég sá viðkomandi í eigin persónu og hrundi þá yfirleitt til grunna sú ímynd sem ég hafði gert mér. Þetta var um það leyti sem „lítil fluga“ flaug um allt land og öfugt við aliar aðrar flugur, þá var þessari allsstaðar fagnað. Þessi fluga, sem var reyndar í formi lags, eins og allir vita, hefur suðað í eyrum þjóðarinnar síðan og á eflaust eftir að gera það um ókomin ár. Þá var það að ég reyndi að ímynda mér hvernig þessi Fúsi, sem allir töluðu um með svo miklum kærleika, liti út. Hvemig skyldi hann vera? Svo kom að því, eitt sumarið austur á Eskifirði, að ég sá Fúsa í eigin per- sónu. Og meira en það, ég heyrði hann líka spila og syngja! Þarna voru á ferðinni „Frúmar þrjár og Fúsi“. Þetta var mikil upplifun fyrir ung- an dreng í fásinninu í þá daga þar eystra, og man ég að öllum sem á hlýddu, þótti þetta hin besta skemmt- un. En var Fúsi nú líkur þeim, sem ég hafði séð í mínu hugskoti? Ef til vill hefði ég verið búinn að sjá mynd af honum í blaði, þó ég muni það ekki nú, en eitt er víst, að þarna var hann nákvæmlega eins og ég hafði hugsað mér. Og ekki nóg með það, mér fannst að svona og nákvæmlega svona ætti hann að vera og mætti ekki vera öðruvísi! Mér finnst þetta enn í dag. Eftir að ég fluttist í Kópavog 1967, varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Sigfúsi persónulega. Þau kynni hafa farið vaxandi og nú á síðustu árum orðið að einlægri vin- áttu. Það er gott að koma í Víði- hvamminn og móttökur þeirra hjóna á þann veg, að maður finnur sig ávallt velkominn, og marzipankök- urnar hennar Stellu eru hreinasta afbragð. Laun listamanna íslands eru sjálf- sagt ekki alltaf í samræmi við það sem listamaðurinn hefur skapað eða þurft að leggja á sig við sköpun verksins. Ég tel engan vafa á, að þar sé vangoldið. Ég tel jafnframt að fáir listamenn hafi fengið jafn ríkulega goldið frá þjóðinni í formi þakklætis og kærleika, sem Sigfús. Það eru líka laun! Ég mun ekki gera tónsmíðum Sigfúsar nein skil hér og ekki reyna að gera upp á milli hans stórgóðu laga, sem sungin eru dag hvern um land allt. Sum eru vinsælli en önnur, en það er ekki þar með sagt að hin séu ekki jafn góð. Upp úr stendur, að Fúsi er eitt vinsælasta tónskáld þjóðarinnar og stendur hjarta hennar næst. Ég heyrði einu sipni Sigfús spurð- Sr. Arelíus Níels- son - Afmæliskveðja Árelíus Níelsson fæddist 7. sept- ember 1910 í Flatey á Breiðafirði. Hann ólst upp hjá fósturforeldrum sínum í Kvígindisfirði í Múlasveit. Barnafræðsluna önnuðust fóstur- foreldrarnir. Vorprófin staðfestu það að drengurinn hefði í engu misst, þótt hann nyti ekki far- kennslunnar, hann skaraði fram úr jafnöldrum sínum. í Flatey naut hann einkakennslu til undirbúnings fyrir Kennaraskólann. Kennara- prófi lauk hann 1932. Síðan var hann við kennslu í Múlasveit og Stykkishólmi til 1937. Þá hafði hann lokið menntaskólanámi utan- skóla samhliða kennslunni og tók stúdentspróf það vor. Þá settist hann í guðfræðideild Háskóla Is- lands og lauk guðfræðiprófi með 1. einkunn 1940. Samhliða því námi stundaði hann einka- og heimilis- kennslu. Strax að loknu guðfræðiprófi vígðist hann prestur að Hálsi í Fnjóskadal. Honum var veitt Stað- arprestakall á Reykjanesi í október 1940. Sat þar til ársloka 1942. Þá fékk hann veitingu fyrir Eyrar- bakkaprestakalli, en tók ekki við því brauði fyrr en um vorið 1943. Hann var skólastjóri Barnaskólans í Stykkishólmi frá janúar til maí 1943. Hann sinnti einnig Staðar- prestakalli þann tíma, sem hann var við skólastjórn í Stykkishólmi. Á Eyrarbakka sat hann til hausts 1952, en þá fékk hann veitingu fyrir hinu nýstofnaða Langholts- prestakalli í Reykjavík. Meðan hann var á Eyrarbakka stundaði hann mikið kennslu á Eyrarbakka, Stokkseyri, Selfossi og um skeið í Reykjavík. Á fyrstu starfsdögum hans haustið 1940 kynnti hann sér áhuga fólks og viðhorf til kirkju, félagslífs og skólamála. Hann þekkti frá æskudögum sínum hvaða hindranir stóðu í vegi fyrir unglingum sem vildu komast í eitthvert framhalds- nám. Á þessu haustdögum tók hann ásamt konu sinni, Ingibjörgu, þá eftirminnilegu og óeigingjörnu ákvörðun að setja á stofn heimavist- arunglingaskóla á heimili sínu. Að- staðan til skólahalds verður nútíma- manni hreint ótrúleg. Á Stað á Reykjanesi var reisulegt timburhús. Niðri voru tvær stofur og tvö herbergi og stórt eldhús, en uppi voru svefnloft, annað fyrir pilta en hitt fyrir stúlkur, auk þess hjóna- herbergi. Prestshjónin fengu aðra stofuna og herbergið niðri en eldun- araðstöðu í eldhúsinu með tvo prímusa og aðgang að eldavél fyrir stærri eldamennsku. Kennslustofán var stofa prestshjónanna Heima- vistin var hjá Snæbirni og Unni, konu hans. Við vorum þarna í fæði og tvímennt var í hverju rúmi, eins og þá var títt á hveijum bæ. Sumir voru í heimangöngu allt að 10 km göngu hvora leið á dag. Kennslu- greinarnar voru íslenska, danska, enska, reikningur, félagsfræði, mannkynssaga, landafræði, nátt- úrufræði, skrift, kristinfræði, söng- ur, orgelleikur og alhliða félags- störf. Kennslan stóð samfleytt í 4 annir frá janúar til mars ög október til desember bæði árin 1941 og 1942. Nemendur voru frá 6 og upp í 12 þegar flest var. Geymst hafa hjá mér úrslit prófa í þeim þrem önnum er ég var í námi. Að öðru leyti mun ekkert hafa verið skráð um þetta skólahald. Engar skýrslur voru sendar til Fræðslumálaskrif- stofunnar. Stílapeningar, yfirvinna og heimavistargæsla og auk þess kennslan sjálf var hvergi skráð og ekkert greitt fyrir. Síðar fréttist af þessu framtaki prestsins og mun hafa fengist heimild til greiðslu á hálfs árs launum. Iflörtur Þórarinsson an að því, hvaða lag hans honum þætti best. Svarið var svona: „Ef þú ættir 10 börn og værir spurður að því hvert þeirra þér þætti vænst um, yrði þá ekki erfitt að svara?“ Fyrr á þessu ári ákvað Bæjar-. stjórn Kópavogs að gefa út hljóm- plötu með lögum Sigfúsar, í tilefni sjötugsafmælis hans. Frá þessu var síðan horfið eftir nánari athugun og þess í stað ákveðið að gefa út bók með um 40 lögum, sem nær öll eru nú gefin út í fyrsta sinn. Enn eru til fjöldi laga éftir Sigfús, sem ekki hafa verið gefin út og því mikið verk óunnið fyrir tónlistarútgefendur. í dag mun.Bæjarstjórn Kópavogs halda Sigfúsi hóf í Félagsheimili Kópavogs milli kl: 18.00 og 20.00 og eru vinir hans og velunnarar vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. Kæri vinur! Ég óska þér og fjöl- skyldu þinni hjartanlega til hamingju með daginn. Megið þið öll eiga heill- aríka framtíð. Guð blessi ykkur. Guðni Stefánsson HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS NYJA MEGASARPiATAN: „Er nokkuð annad eftir en heimsfrœgðin?“ Þórdís Bacmann, Vikan „Hugsanlega besta plata Megasar til þessa." Skúli Helgason, Rás 2 „Megas er eins og þroskadur ávöxtur innan um her grœnjaxla, tónlistarlega, textalega og heimsþekilega." HMP, Þjóðviljinn 2 x LPog2 x CD Áskriftarsími 616766 „Hættuleg hljómsveit og glæpakvendið Stella" fást einnig afhent í Plötubúðinni, Laugavegi 20, og Bóksölu stúdenta við Hringbraut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.