Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 26
Félagsbúið Þristur í Hrafnagilshreppi: Mjólkurkvóti búsins orð- inn um 470 þúsund lítrar Jörðin Stórhamar II tekin á leigu með 105 þúsund lítra fullvirðisrétti FÉLAGSBÚIÐ Þristur í Hrafnagilshrcppi hefur tekið jörðina Stórham- ar II í Öngulstaðahreppi á leigu til eins árs. Þar með bætist 105 þús- und lítra mjólkurkvóti við þá 364 þus. 1 sem félagsbúið hafði yfir að ráða. Þrjár fjölskyldur standa að félagsbúinu, en til þess var formlega stofnað 1. maí á síðasta ári. Benedikt Hjaltason, einn Þristar- bænda, sagði að jörðin hefði verið tekin á leigu í eitt ár tii að byija með og að því loknu myndu menn skoða útkomuna. Þijú býlí í Hrafhagiishreppi, Hrafnagil I og II og Kroppur, sam- einuðust formlega í eitt í maí í fyrra undir nafninu Þristur. í upphafi keyptu bændurnir jörðina Merkigil, en þar er Qósið, sem hýsir um 120 kýr. Kálfamir eru aftur á móti á Hrafnagili, en samtals eru gripir Þristarbænda um 300. Fuiivirðisréttur félagsbúsins var um 364 þúsund lítrar, eða nálægt eitt þúsund lítrum á dag. Fullvirðis- réttur búsins á Stórhamri er um 105 þúsund lítrar á ári, þannig að sam- tals er fullvirðisréttur félagsbúsins tæplega 470 þúsund lítrar af mjólk á ári. Búið leggur því til um þrettán hundruð lítra af mjólk á dag. Benedikt sagði að búreksturinn væri í höndum fjölskyldunnar, auk þess sem einn utanaðakomandi aðili ynni á búinu. Þrátt fynr aukningu þyrfti ekki að bæta við mannskap. „Reksturinn gengur alveg ágætlega, en það er með okkur eins og fleiri að við eru ekki sérlega lausafjár- sterkir," sagði Benedikt. • „Við munum bara spila af fingrum fram,“ sagði hann aðspurður um framtíðina og frekari kvótakaup. „Það er ekki hægt að gera neinar áætlanir fram í tímann, þegar maður veit ekki neitt hvernig mál muni þró- ast og þeir sem ráða mjólkurfram- leiðslunni vita ekkert heldur. Ég get tekið sem dæmi að í vetur sem leið fengum við bréf upp á að heimilt væri að nýta 15% af fullvirðisrétti næsta verðlagsárs, þess sem nú er að hefjast fram til þess sem var að ljúka. Síðan vita menn ekki hvort veita megi þessu á undan sér, þ.e. hvort við megum taka 15% af fram- leiðslurétti næsta árs og nota í ár. Ef ná á fram einhverri hagræðingu í rekstrinum þarf að tlkynna um all- ar svona breytingar að lámarki tvö ár fram í tímann. Fyrir okkur þýða 15% af fuilvirðisrétti um 70 þúsund lítra, en það er á við meðalbú í mörg- um sýslum, þannig að það getur haft verulegar breytingar í för með sér,“ sagði Benedikt. Samtök um jafnrétti og félagshyggju: Stefnt að framboði í öllum átta kjördæmum landsins TÓMAS Gunnarson lögfræðingur og stuðningsmaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju segir að unnið sé að því að bjóða fram lista í öllum kjördæmum landsins með svipuðum áherslum og sam- tökin gerðu fyrir síðustu alþingis- kosningar í Norðurlandi eystra. Verið sé að ræða við fólk víða um land þar um en stefnt að því að taka af skarið varðandi framboðið á fundi sem haldinn verður um næstu mánaðamót. félaginu, að það er mikill hljóm- grunnur fýrir nýju fólki, nýjum að- ferðum, að það sé nauðsynlegt að reyna þetta,“ sagði Tómas. Morgunblaðið/Rúnar Þór Nemar í Verkmenntaskólanum eru ríflega eitt þúsund og hafa aldrei verið fleiri. Kennsla hófst í skólanum í fyrradag og var ný kennsluálma tekin í notkun við það tækifæri. Yfír eitt þúsund nemar í dagskóla VMA í vetur Ný kennsluálma tekin í notkun NEMAR í Verkmenntaskólanum á Akureyri hafa aldrei verið fleiri en verða í vetur, en þeir eru skráðir alls 1.003, auk tveggja skiptinema. Ný kennsluálma var tekin í notkun við upphaf skóla- ársins, en kennsla hófst í fýrradag. Skólinn missir á móti stofur í Háskólanum og í íþrótahöllinni, þannig að í raun bætast einung- is tvær stofur við. Haukur Jónsson settur skóla- meistari sagði að vissulega væri gaman að skólinn væri svo vin- sæll sem raun bæri vitni, en hins væri það líka erfitt þar sem skól- inn hefði ekki allt það húsnæði sem hann ætti von á að fá. Ný sérkennsluálma var tekin í notkun við upphaf skólaárs, en þar er um að ræða kennslustofur vegna náms í hjúkrunarfræði, tei- knifræði, hárgreiðslu og tilrauna- stofa í raungreinum og eru stof- umar 9 talsins. Þar sem ekki fékkst fé til kaupa á búnaði í stof- urnar verða þær nýttar sem al- mennar kennslustofur fyrst í stað. Á móti nýju kennslustofunum kemur að skóiinn missir þijár af sex kennslustofum sem hann hafði til umráða í íþróttahöllinni og þá verða engar kennslustofur í notkun í Háskólanum á vegum skólans, utan að þar er enn trésmíðaverkstæði í kjallara. „Það er auðvitað stórkostlegur áfangi að nær öll kennsla er komin und- ir eitt þak á Eyrarlandsholti," sagði Haukur. Kosningabarátta Þjóðarflokksins hafín: Hótel Oðal fær nafn HÓTEL Óðal er heiti á nýju hót- eli við Hafnarstræti 67 á Akur- eyri, en nafnið var skráð I fírma- skrá Akureyrar í gær. Framkvæmdir við breytingar á .húsinu í hótel hófust 1. ágúst sl. og er stefnt að því að opna það um miðian maí á næsta ári. Hötelið er á fjórum hæðum, mót- taka og veitingasalur á þeirri neðstu en á hæðunum þremur verða 19 herbergi, 17 tveggja manna og 2 eins manns herbergi, en snyrting er á öílum herbergjunum. Aðalgeir T. Stefánsson, eigandi Hótels Óðals, sagði að þegar væri farið að huga að markaðsmálunum fyrir næsta ár og samningum þar að lútandi. „Nafnið er rausnarlegt, en við munum standa undir því og kappkosta að veita sem besta þjón- ustu og aðbúnað fyrir okkar gesti,“ sagði Aðalgeir. Tómas sagði að enn væri ekki ljóst hvort boðið yrði fram undir nafni samtakanna eða einhveiju öðru. „Við erum að ræða við fólk um allt íand og vinnum að því að koma á fundi um næstu mánaðamót þar sem tekið verður af skarið um það hvort ráðist verður í þetta eða ekki,“ sagði Tómas. Hann sagði að þetta mál ætti sér langan aðdraganda. Samstarf sem unnið hefði verið að við Þjóðarflokk- inn um framboð hefði runnið út í sandinn og innan forystu þess flokks væri veruleg andstaða um samstarf við Stefán Valgeirsson þingmann Samtaka um jafnrétti og félags- hyggu og hans menn. „Við bindum okkur ekki við það samstarf og það er mikill áhugi fyrir framboði af þessu tagi víða um land.“ Tómas sagði að framboðinu yrði einkum beint gegn „gömlu flokkun- um“ svokölluðu og hagsmunahópum margskonar sem væru verulega ráð- andi um eigin málaflokka. „Við verðum auðvitað að horfa á málin af raunsæi. Jafnvel þó góð samstaða yrði um að bjóða fram, þá vitum við ekkert um niðurstöður. En við teljum aðstæður slíkar í þjóð- Blaðberar óskast Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Strandgötu - Brekkusíðu - Jörfabyggð - Oddagötu - Hólabraut. Hressandi morguntrimm, sem borgar sig. Hafnarstræti 85, sími 23905. Boðið fram í öllum kjördæmum undir nafni Þjóðarflokksins Engar formlegar viðræður farið fram á milli flokksins og annarra stjórnmálasamtaka um framboð KOSNINGABARÁTTA Þjóðar- flokksins fyrir næstu alþingis- kosningar er formlega hafin, en um síðustu helgi var stofhað fyrsta kjördæmisfélag flokksins og er það i Norðurlandi eystra. Flokkurinn stefnir að því að bjóða fram lista í öllum kjördæmum landsins og verða framboðsmálin sem og önnur mál rædd á lands- fundi flokksins sem haldinn verð- ur í lok næsta mánaðar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Þjóðarflokkurinn hélt á Akureyri í gær. Kjördæmisfélag Þjóðarflokksins í Norðurlandi eystra var stofnað síðasta laugardag og er það fyrsta kjördæmisfélagið sem stofnað er innan fiokksins. Benidikt Sigurðar- Lionessur munu bjóða plastpoka til sölu næstu daga. Lionessur selja plastpoka HIN árlega plastpokasala Lion- bænum og bjóða poka síná til sölu. essuklúbbsins Aspar á Akureyri Allur ágóði rennur til fæðingadeild- en hafin. ar Fjórðungssjúkrahússins á Akur- Plastpokasalan stendur yfir fram eyri. Lionessur vænta góðra undir- til 12. september næstkomandi. tekta bæjarbúa nú sem fyrr. Félagskonur munu ganga í hús í Fréttatilkynning . !D2fTOt2 .0 I ""■■MnnnzmnBanaannHanMM son á Akureyri var kjörinn formaður félagsins, en aðrir í stjóm þess eru Anna Helgadóttir á Kópaskeri, Gunnlaugur Sigvaldason í Svarfað- ardal, Þórdís Vilhjálmsdóttir, Húsavík og Klara Geirsdóttir, Akur- eyri. Tilgangur félagins er að vinna að samstarfi fólks um framboð til Alþingis og standa fyrir stjórnmála- umræðu miili kosninga. Á fundinum kom fram að félagið hefði þegar hafið störf og vinnur það að undir- búningi næstu kosninga, „sem e.t.v. dynja á með skömmum fyrirvara“, eins og segir í tilkynningu frá flokknum. Stjórn flokksins vinnur nú að und- irbúningi vegna stofnunar sambæri- legra félaga í öðrum kjördæmum landsins og er áformað að halda landsfund í lok næsta mánaðar.„Við getum litið svo á að við séum með þessu að hefja kosningabaráttuna formlega, enda geta kosningar dunið yfir hvenær sem er,“ sagði Benidikt Sigurðarson formaður kjördæmisfé- lagsins. Á fundinum í gær kom fram að engar formlega viðræður hefðu farið fram á milli Þjóðarflokksins og ann- arra stjórnmálasamtaka um framboð fyrir næstu kosningar. Flokkurinn mun bjóða fram í öllum kjördæmum landsins við næstu kosningar.„Ein- staklingar og skipulögð samtök þeirra sem eru reiðubúin til að vinna að framgangi stefnumála flokksins eru nú sem fyrr boðin velkomin til samstarfs um framboð Þjóðarflokks- ins,“ segir í yfirlýsingu frá flokknum vegna frétta um framboðsmál hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.