Morgunblaðið - 07.09.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.09.1990, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 Þjóðnýtiiiff ferða- þjónustunnar Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Btyrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Geir Hallgrímsson kvaddur Geir Hallgrímsson er f hópi þeirra íslensku stjórnmála- manna, sem verða nefndir, þeg- ar saga þessarar aldar er skráð. Hans verður minnst sem fram- úrskarandi borgarstjóra í Reykjavík. Þess verður getið hve góðan sigur Sjálfstæðisflokkur- inn vann undir hans forystu í alþingiskosningunum 1974. Til þess verður tekið að hann var forsætisráðherra þegar lokasig- ur var unninn í landhelgisbarátt- unni með útfærslunni í 200 sjómílur. Þá var glíman við Breta snörpust og átökin harka- legust og friðargjörðin sem tryggði sigur því mikilvægari en áður. Nafn hans tengist átak- atímum í Sjálfstæðisflokknum og því verður haldið á loft í sögu flokksins, að honum tókst að koma í veg fyrir klofning hans í upphafi níunda áratugarins. Hans verður jafnan getið þegar menn vilja benda á heiðarlega drengskaparmenn, er hafa af- skipti af stjórnmálum. Geirs Hallgrímssonar verður einnig minnst þegar saga Morg- unblaðsins verður skráð. Hann hefur verið virkur þátttakandi í vexti þess á undanförnum ára- tugum. Hann var formaður stjórnar útgáfufélags blaðsins, þegar tengsl þess og Sjálfstæð- isflokksins tóku að breytast. Þrátt fyrir flokkspólitíska for- ystu lagði Geir áherslu á pólitíska víðsýni blaðsins og var ritstjórum þess ávallt sterkur bakhjarl í þeim efnum. Geir Hallgrímsson hóf ungur afskipti af stjórnmálum og var í hópi ungra sjálfstæðismanna sem börðust fyrir fullu sjálf- stæði þjóðarinnar með lýðveldis- stofnuninni 1944. Hann starfaði náið með forverum sínum á formannsstóli í __ Sjálfstæðis- flokknum þeim Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni og Jó- hanni Hafstein. A sjöunda ára- tugnum var ljóst, að Bjarni vildi að hann tæki við flokksforystu af þeim. Stjórnmálaskoðanir Geirs Hallgrímssonar voru skýrar og ótvíræðar, hvort heldur um var að ræða átakamál heima fyrir eða á erlendum vettvangi. Á skólaárum snerist hann til and- stöðu við sósíalisma og komm- únisma. Oft lét hann að sér kveða hér á síðum blaðsins, síðast 26. júní síðastliðinn, þeg- ar birt var kveðja hans til Sam- bands ungra sjálfstæðismanna í tilefni af sextíu ára afmæli þess. Að verðleikum heiðruðu ungir sjálfstæðismenn Geir á þessum tímamótum. Hann var þá orðinn rúmfastur en í kveðjunni minn- ist hann þess, að í baráttu sjálf- stæðismanna fyrir þátttöku í Atlantshafsbandalaginu og aðild að varnarsamningnum við Bandaríkin hafi mikilvægasti þátturinn verið að stöðva meinta sigurgöngu sósíalismans. Hann segir, að svo kynni að hafa far- ið án Atlantshafsbandalagsins, að jámtjaldið hefði ekki aðeins fallið um miðja Evrópu heldur vestur við Atlantshafsströnd álf- unnar. Þá hefðu menn talað um Atlantshafsmúrinn en ekki Bérlínarmúrinn. í þessari kveðju getur Geir þess einnig að nú afneiti jafnvel þeir sem enn kalli sig sósíalista ríkisrekstri og mið- stýringu. Nú keppist samvinnu- menn við að gera samvinnufé- lögin að hlutafélögum. Með þessum orðum bendir Geir Hallgrímsson af alkunnri hógværð á, hvernig viðhorfin breyttust á stjórnmálaferli hans og færðust í átt til þeirra skoð- ana, sem hann aðhylltist ungur og vann að í stjómmálastörfum sínum. Hann var í hópi þeirra stjórnmálamanna á þessari öld sem sýndu hvað mesta staðfestu gagnvart kommúnistum og sós- íalistum. Hann var þar með í hópi þeirra sem höfðu rétt fyrir sér og störfuðu í anda frelsis og mannréttinda. Fyrir 15 árum flutti hann ræðu í Helsinki á leiðtogafundi ríkjanna sem taka þátt í ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Þar minnti hann Sovétmenn og aðra á, að ráðstefnan væri ekki hald- in til að reisa nein Potemkin- tjöld. Þótti það djarflega mælt af fulltrúa smáríkis. Hann lifði það hins vegar að sjá Potemkin- tjöld kommúnismans hrynja og þjóðirnar fá langþráð frelsi hverja á eftir annarri. I stjórnmálastörfum sínum var Geir Hallgrímsson trúr meg- inkjarna sjálfstæðisstefnunar, sem hann lýsti þannig í lokaorð- um kveðju sinnar til ungra sjálf- stæðismanna: „Mestu máli skiptir að virðingin fyrir mann- inum, einstaklingnum, sé í heiðri höfð og um leið og einstaklings- framtakið tryggi hagvöxt og batnandi lífskjör þá hafi menn ávallt skilning á að vernda rétt lítilmagnans.“ Morgunblaðið vottar ástvin- um Geirs Hallgrímssonar samúð og kveður hinn heiðvirða stjórn- málamann og vin með virðingu og þökk. eftir Björn S. Lárusson Fyrir skömmu sagði einn af for- ystumönnum bænda í viðtali við Ríkissjónvarpið, aðspurður um vanda sauðfjárbænda, eitthvað á þá leið, að nú yrði að fara að gera eitthvað róttækt vegna minnkandi kindakjötsneyslu. Lausnin var sú að framleiða kjöt eins og neytendur vildu hafa það. Þetta var mikil speki í augum þeirra sem vinna að mark- aðsmálum. Það vill svo til að sami ráðherra fer með landbúnaðarmál og sam- göngumál og þar með ferðamál. Þeir sem vinna að ferðaþjónustu trúðu því að þegar ráðherrann skip- aði nefnd til þess að móta stefnu í ferðamálum, endurskoða lög um ferðamál og kanna samkeppnis- stöðu ferðaþjónustunnar yrði gert eitthvað róttækt í málefnum þessa olbogabams íslensks atvinnulífs. Reyndin er allt önnur. Ríkið rígheld- ur í forsjá sína yfir málefnum at- vinnugreinarinnar í fjármálum, skipulagsmálum og stjórnun. Þá er ónefnt, að sú stefna sem mörkuð er í þingsályktun sem lögð verður fyr- ir Alþingi í haust er svo almennt orðuð að hana má flokka sem vilja- yfirlýsingu frekar en ákveðna stefnumótum. Stefnan er ennfrem- ur byggð á sandi þar sem ekki er tekið róttækt á fjármálum og skipu- Iagsmálum. Stefnan er með öðrum Björn S. Lárusson „Ríkisrekið ferðamála- ráð á sér engann til- verurétt.“ orðum misvísandi niður á við vegna klúðurs í fjármálum og skipulagi. Fjármál Áfram er lagt til að skattleggja íslendinga í utanlandsferðum með 10% gjaldi af Fríhöfninni. Gjaldið, sem fer í gegn um ríkissjóð, hefur aldrei skilað sértil ferðaþjónustunn- ar og mun aldrei gera það. Á marg- ar aðrar leiðir hefur verið bent, s.s. niðurfellingu launaskatts, gjald af ferðamannastöðum og beint fram- lag úr ríkissjóði með mótframlag frá fyrirtækjum en þessar leiðir hafa verið afskrifaðar að miklu leyti þar sem þær hafa verið taldar óframkvæmanlegar. Það er eins og nefndarmenn hafi ekki kynnt sér framkvæmd þessara mála í öðrum löndum. Settur ferðamálastjóri hef- ur greinilega ekki farið í beijamó, laxveiði, eða á gæsa- eða ijúpna- veiðar sem hann þarf að greiða fyrir. Landið ísland er auðlind sem engin ástæða er að gefa aðgang að. Ef ástæðan fyrir því að ekki má láta greiða aðgang að ferða- mannastöðum er sú, að atvinnu- greinin er ofsköttuð fyrir, þá á að ráðast til atlögu við orsökina, skatt- ana af farseðlum og hin ótal gjöld af veitingarekstri sem engu skila til atvinnugreinarinnar sjálfrar. Undirritaður veit fyrir víst að ágreiningur er í áðumefndri nefnd Hjörleifs Guttormssonar um þessi mál en hluti nefndarmanna og sett- ur ferðamálastjóri eiga að kynna sér þessi mál mun betur áður en þeir mynda sér skoðun á málinu. Skipulag Lagt er til í tillögum nefndar Hjörleifs að fulltrúum í ferðamála- ráði verði fækkað úr 21 í 7. En til hvefs ferðamálaráð? Eftir því sem undirritaður best veit er ekki starf- andi iðnráð, landbúnaðaráð eða sjávarútvegsráð. Búið er til heljar- mikið bákn undir stjórn ríkisins með nefndum ráðum og stjómum sem er stóridómur í öllum málum at- vinnugreinarinnar. Framkvæmda- valdið virðist eins og svo oft áður hafa gleymt hlutverki sínu. Hlut- verk löggjafans er að setja ramma- lög um starfsskilyrði atvinnugrein- arinnar og hlutverk framkvæmda- valdsins er að framfylgja þeim lög- um. Þetta er hægt með deild í sam- gönguráðuneyti eða viðskiptaráðu- neyti sem er eðlilegra. Ríkisrekið ferðamálaráð á sér engann tilveru- rétt. Slík ráð á vegum ríkisins hafa hinsvegar mikla tilhneigingu til þess að halda í sín völd og áhrif og sagan kennir okkur að slíkum báknum verður ekki bylt nema inn- anfrá. Til skýringar eru hér birt skipurit eins og nefnd Hjörleifs leggur til og tillaga sem tekur mið af sjálfsákvörðun þeirra sem starfa í ferðaþjónustu. Skipurit sem tekur mið af þörfum atvinnugreinarinnar og ferðamanna Samgönguráöuneyti, skrifstofa feröamála Ferðamálasamtök Upplýsingamiðstöð ferðamála í héruðum Hagsmunasamtök ferðaþjónustu Ymis sérhagsmunasamtök á landsvísu: Samband veitinga- og gistihúsa, Ferðaþjónusta bænda, flugtélög, Samtök starfsfólks í feröaþjónustu, Félag íslenskra feröaskrifstofa, o.fl. Almennt talið að forseta- kosningar fari fram í ár - segir dr. Stanislaw Laskowski, sendifulltrúi pólsku ríkisstjórnarinnar í Póllandi er sú skoðun almenn að Wojciech Jaruzelski, fyrrum hershöfðingi og núverandi forseti Póllands, segi af sér, jafnvel á þessu ári og að boðað verði til forsetakosninga í Póllandi, að sögn dr. Stanislaws Laskowski, sendifulltrúa pólsku ríkisstjórnar- innar, hér á landi. Dr. Laskowski lét þessi orð falla á fundi með blaðamönnum sem boðað var til í tilefni þess að um þessar mundir eru tíu ár liðin frá stofnun Sam- stöðu í Póllandi, sem markaði þáttaskil í frelsisbaráttu þjóða Austur-Evrópu. Dr. Stansilaw Laskowski kvað það vera viðtekna skoðun í Póllandi að Wojciech Jaruzelski, fyrrum hers- höfðingi og núverandi forseti Pól- lands, léti undan þeim þrýstingi sem hann hefði sætt á undanförnum mánuðum og segði af sér. í Póllandi líta menn almennt svo á að Jaruz- elski geti tæpast talist sannfærandi fulltrúi hins nýja Póllands eftir valda- afsal kommúnista þar í landi. Líkt og fram hefur komið í fréttum hefur verkalýðshetjan Lech Walesa lýst yfir því að hann hafi fullan hug á að hreppa það háa embætti og vitað er Tadeusz Mazowiecki, núverandi forsætisráðherra, sem var í eina .tíð einn nánasti samstarfsmaður Wa- lesa, sætir einnig þiýstingi um að sækjast eftir embætti þessu. Deilur þessara fylkinga innan Samstöðu, hreyfingar pólskra lýðræðissinna, snúast ekki síður um hvert hlutverk forsetans skuli vera en Walesa og fylgismenn hans hafa boðað að tryggja beri forsetanum ærið fram- kvæmdavald líkt og gert er í Banda- ríkjunum og Frakklandi. Mazowiecki og fylgismenn hans vilja hins vegar að þing landsins bindi hendur forset- ans. Dr. Laskowski sagði og að pólskir fjölmiðlar fjölluðu nú í sífellt vaxandi mæli um að á næsta ári færu líklega fram öldungis fijálsar kosningar til þings Póllands en í fyrri kosningun- um sem fram fóru eftir hrun komm- únisimans eystra var kommúnistum tryggður ákveðinn fjöldi sæta. í Póll- andi líta menn svo á að Pólveijar hafi verið í fararbroddi í frelsisbar- áttu þjóðanna í Austur-Evrópu und- an oki kommúnismans og telja því margir óeðlilegt að ekki hafi fari fram alfijálsar kosningar þar í landi. Sendifulltrúinn vék einnig að efna- hagsumbótum þeim sem ríkisstjóm Samstöðu hefur hrundið í fram- kvæmd í Póllandi. Þær kveða m.a. á um stórfellda sölu ríkisfyrirtækja og afnám niðurgreiðslna sem um árabil

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.