Morgunblaðið - 07.09.1990, Side 33

Morgunblaðið - 07.09.1990, Side 33
síðustu ár. Einkum tókum við eftir því, hversu mikið hann virtist kunna utan bókar af ljóðum og heilum ljóðabálkum. Eins geymdi hann í minni sínu alls kyns sögur, sem hann hafði lesið eða_ heyrt á langri ævi og þá ekki sízt Islendinga sög- urnar. Þar komu menn óvíða að tómum kofunum hjá honum. Kristján lagði ævinlega hlustir við öllum þáttum um íslenzkt og daglegt mál. Eins kom iðulega fram í bréfum hans og samtölum, að hann fylgdist gi-annt með flestu því, sem ritað var um tungu okkar í blöð og tímarit. Persónuleg kynni mín af Krist- jáni á Snorrastöðum voru orðin ald- arfjórðungsgömul. Sumarið 1965 sat ég heima hjá honum á Snorra- stöðum dijúga dagsstund og ræddi við hann og bróður hans, Svein- björn, um orð og málfar. Eftir það rofnuðu aldrei tengsl mín við Krist- ján. Ég komst fljótt að því, að hann ræktaði með sér hugsjón ung- mennafélaganna frá upphafi aldar- innar og var henni trúr í hvívetna. Af því stafaði m.a. hinn mikli og einlægi áhugi hans á íslenzkri tungu og íslenzkum bókmenntum. í anda þeirrar hugsjónar var hann einnig mikill reglumaður í öllum hlutum og neytti t.d. hvorki víns né tóbaks. Sagði hann mér sjálfur, að hann hefði engu að síður notið þess að vera innan um aðra þá, sem „létu vínið andann hressa“ og getað glaðzt með þeim á sinn hátt. Nú er þessi ágæti fulltrúi alda- mótakynslóðarinnar horfinn úr hópnum og er vissulega mikil eftir- sjá í honum. En eigi má sköpum renna. Að leiðarlokum vil égþakka þess- um látna drengskaparmanni og mikla velvildarmanni Orðabókar Háskólans fyrir góð kynni og alla þá fræðslu, sem hann lét okkur í té og geymist í bréfum hans, og í seðlasafni Orðabókarinnar um ókomna tíð. Um leið færi ég venzlamönnum Kristjáns á Snorrastöðum samúðar- kveðjur okkar við fráfall hins aldna frænda þeirra. Þær eru einnig færð- ar við fráfall bróðursonar Kristjáns, Friðjóns Sveinbjörnssonar, sem féll í valinn dægri síðar en föðurbróður- inn og verður því samferða honum af þessum heimi. Jón Aðalsteinn Jónsson Á einum fegursta degi þessa sólríka sumars berst mér fregn um að nafni minn, vinur og lærifaðir, hann Kristján Jónsson frá Snorra- stöðum væri látinn. Enda þótt mér yrði nokkuð svo hverft við, og teldi mig æði miklu fátækari eftir, þá fann ég um leið að hér hafði gerst mjög eðlilegur atburður. Maður sem lifað hafði á tíunda tug ára og var þrotinn að kröftum og heilsu dró hér tjaldhæla sína úr jörðu. Hann var tilbúinn til vistaskipta og átaka- laus brottför hans mildaði nokkuð söknuð þeirra er eftir stóðu. Ég var mjög svo ákveðinn í því að minnast hans á prenti, helst í löngu máli og hafði til þess nægan efnivið. En áður en það varð framkvæmt bar skugga mikillar sorgar yfir okkur Snorrastaðafólk. Penninn féll úr hendi minni og verður ekki notaður um sinn. Aðeins þessi örfáu orð festi ég á blað, rétt til að þakka honum Kristjáni á Snorrastöðum fyrir mig. Þakka honum fyrir tólf ára samveru á æviskeiði mínu, þar sem hver dagur var ljúf kennslu- stund sem jafngilti háskólagöngu ef nemandinn hefði haft þá gáfu til að bera sem þurfti til að með- taka fræðin. Þakka honum fyrir fórnfúst og óeigingjarnt ævistarf í þágu Snorrastaðaheimilisins, þar sem ekki var spurt um laun, aðeins þörf. Þakka honum vináttu hans við dýr og hversu ljúflega og drengL- lega hann uppfyllti þarfir búpen- ings, án þess þó að vera ætíð með gæluorð á vörum. Kristján á Snorrastöðum lifði vammlausu lífi. Ósamræmi á milli kenninga hans og lífsstíls fyrir- fannst ekki. Höfundur þessara kveðjuorða lýtur höfði með þakklæti og virð- ingu. Kristján Benjamínsson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 33 Minning’: Svava Valdimarsdótt- ir frá Súgandafirði Fædd 17. mars 1923 Dáin 31. ágúst 1990 Geirþrúður Svava eins og hún hét fullu nafni var fædd á Suður- eyri við Súgandaljörð. Hún var dóttir Guðrúnar Sveinbjörnsdóttir frá Laugum og Valdimars Örnólfs- sonar bókhaldara hjá Ásgeirsversl- un. Tveggja ára að aldri fór hún í fóstur til Sígríðar Magnúsdóttur og Guðmundar Guðmundssonar að Gelti í Súgandafirði. Hún sagði sjálf að það væri ekki besti aldur- inn til að eignast nýja foreldra enda hafði hún víst grátið mikið til að byija með. Fósturforeldrar hennar reyndust henni vel á allan hátt og á Gelti átti hún yndisleg uppvaxtarár. Þar var gengið hægt um gleð- innar dyr og þar lærði hún að gleðj- ast yfir litlu. Barnssálin lærði að skynja samspil almættisins í undraveröld. Hún taldi sig alltaf standa í þakkarskuld við þessi góðu og skynsömu hjón. Svava fór á Núpskóla og var að námi loknu á heimili hálfbróður síns, Örnólfs Valdimarssonar kaupmanns, þar til hún giftist föðurbróður mínum, Jóhannesi Þ. Jónssyni kaupfélags- stjóra á Suðureyri. Þau hjón tóku mikinn þátt í félagslífi á Suðureyri og var Svava t.d. lengi í ritnefnd Sóleyjar sem er handskrifað blað kvenfélagsins þar. Hún hafði fal- lega rithönd og næmt auga fyrir því sem betur mátti fara, hún hafði góða frásagnargáfu og átti gott með að kasta fram vísu. Þau Jó- hannes áttu fimm börn. Elstur var Haraldur, f. 16. október 1944, hann lést í bílslysi í Þýskalandi 1965 er hann var þar við nám; Aðalheiður, f. 9. maí 1946, starfs- maður hjá Morgunblaðinu; Þórður, f. 19. júní 1948, kennari við Menntaskólann við Sund; Guðrún Kristín, f. 24. _ september 1950, starfsmaður íslandsbanka og María Þrúður, f. 25. nóvember 1953, en hún er búsett í Banda- ríkjunum. Öll eru börnin vel gefin og mik- ið mannkosta fólk. Árið 1965 fluttu þau hjón til Reykjavíkur þar sem Jóhannes gerðist deildarstjóri inn- heimtudeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga og seinna vann hann hjá Samábyrgð íslenskra fiskiskipa sem deildarstjóri. Svava vann ekki útti eins og sagt er, enda var hún aldrei heilsuhraust og síðustu árin hafa verið henni mjög erfið, en krabbameinið sigr- aði að lokum og lést hún í Landa- kotsspítala að kvöldi 31'. ágúst og veit ég að hún var hvíldinni fegin eftir erfiðan dag. Hve fá okkar geta sagt: „Kom þú sæll, þegar þú vilt“. En það gat hún. Trú hennar á framhaldslíf og algóðan Guð var sterk. Þegar ég frétti lát hennar komu í huga mér ljóðlínur eftir Steingrím Arason; „Hve Ijúft er að verða að liði um langan og fagran dag; í kærleikans kyrrð og friði svo kveðja um sólarlag. Hve sælt er að sofna að kveldi og sólfagran kveðja dag við bjarmann af árdags eldi og yndislegt sólarlag. Við Svara bjuggum um árabil í sama húsi, með henni var gott að búa. Vil ég þakka þessi ár sem við áttum saman og votta þér, Jói minn, börnunum, tengdabörnum og barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þeirra er ljúft að minnast sem mannbætandi var að kynnast. Sigrún Sturludóttir Svava, en þannig var hún yfir- leitt kölluð, fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 17. mars 1923. Foreldrar hennar voru Guðrún Sveinbjörnsdóttir og Valdimar Örnólfsson, skrifstofumaður á Suðureyri. Svava gifti sig 10. októ- ber 1943, eftirlifandi eiginmanni sínum, Jóhannesi Þórði Jónssyni, kaupfélagsstjóra á Suðureyri. Þau eignuðust fimm börn: Harald, fæddan 16. október 1944 en dáinn 28. mars 1965, hann fórst af slys- förum úti í Þýskalandi; Aðalheiði, fædda 9. maí 1946, starfsmann á auglýsingadeild Morgunblaðsins í Reykjavik; Þórð, fæddan 19. júní 1948, kennara við Menntaskólann við Sund í Reykjavík; Guðrúnu, fædda 24. september 1950, banka- starfsmann Reykjavík og Maríu Þrúði, fædda 25 nóvember 1953, tölvufræðing, búsett í Banda- ríkjunum. Barnabörn þeirra hjóna eru orðin níu. Svava hafði kennt lasleika nokkra undanfarna mán- uði. Fyrir tveimur vikum lagðist hún inn á Landakot. Allir gerðu sér vonir um, að hún fengi þar aukinn lífsþrótt og ætti þaðan fljót- lega áfturkvæmt, en það fór á annan veg. Hún andaðist föstudag- inn 31. ágúst síðastliðinn. Svava og Jóhannes byggðu sér hús á Suðureyri og bjuggu þar uns þau fluttu til Reykjavíkur árið 1965. Á stað eins og Suðureyri, þar sem engin aðstaða er til al- mennrar gisti- og veitingaþjónustu kemur það í hlut forsvársmanna í byggðarlaginu að hýsa gesti og gangandi og veita þeim beina. Ileimili þeirra Svövu og Jóhannes- ar var því eitt.af þeim, sem mest mæddi á í þessu sambandi og að sjálfsögðu kom það harðast niður á húsmóðurinni að hafa þennan þátt í góðu lagi. Svava leysti þessi mál af mikilli prýði. Á heimili henn- ar fannst öllum gott að koma og við vitum, að nú, þegar komið er að leiðarlokum, munu margir minnast með hlýjum huga gestrisni og góðvildar hennar og þeirra hjóna. Við, sem þessar línur ritum, eig- um margs að minnast vegna sam- fylgdar okkar með þeim hjónum, Svövu og Jóhannesi. Það voru náin samskipti milli okkar heimila, sér- staklega meðan við áttum öll heima fyrir vestan. Það var oft gáski og gleði í þeim samskiptum og fleiri vora ánægjustundirnar en hinar, þótt sorgaratvik bæra líka að garði, þegar síst skyldi. Það var mikið áfall, þegar elsta barn þeirra, Haraldur, fórst af slysförum í Þýskalandi 28. mars 1965, en hann var þar við háskólanám. Haraldur heitinn var mikill efnispiltur og við hann bundnar glæsilegar framt- íðarvonir. Það þurfti sterka per- sónulega innviði til að standast slíkt áfall. En með Guðs hjálp og góðra vina tókst að komast óskaddaður yfir þá andlegu reynslu og sigrast á sorginni. Þá kom í ljós, hversu sterk Svava var í raun og veru og hversu vel þau hjón studdu hvort annað, þegar mest á reyndi. Við minnumst líka ferðalaga, innanlands og til útlanda, þar sem Svava og Jóhannes voru nauðsyn- legir félagar til þess að skapa rétt andrúmsloft í hópnum og tryggja að ferðin yrði öllum til ánægju. Svava var hæglát að eðlisfari, ljúf í viðmóti og lagði ávallt gott til allra mála. Hún var fyndin í tilsvör- um og kom, öðrum frekar, auga á hinar broslegu hliðar tilverunnar, þegar svo bar undir. Það fylgir því alltaf sorg og söknuður, þegar nánír ástvinir hverfa úr hópnum, en það er líka huggun harmi gegn, að eiga góðar og Ijúfar minningar um horfinn vin og.félaga, og það léttir sorgarbyrðina. Kæri Jóhannes, börn, tengda- börn og barnabörn. Við og fjöl- skyldur okkar sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Sökn- uður ykkar er mikill og viðbrigðin hjá þér, kæri vinur, eftir 47 ára samfylgd ykkar hjóna, óbætanleg. En þú átt minningu um góðan lífsförunaut, sem stóð með þér- í blíðu og stríðu. Þú átt myndarleg og elskuleg börn og barnabörn, sem munu veita þér gleði og traust og milda söknuð þinn á komandi tíma. Blessuð sé minningin um Geir- þrúði Svövu Valdimarsdóttur. Trausti og Hermann Minning: Gígja Viihjálmsdóttir Fædd: 9. mars 1930 Dáin: 28. ágúst 1990 Kveðja frá vinnufélögum Mánudagur, fólk streymir til vinnu, ný vinnuvika er að hefjast, helgarfríinu er lokið. Fólk heilsast og spjallar saman um atburði helg- arinnar. Nú þegar, sumri hallar fara margir til beija, flestir sér til ánægju, því fátt er betra en að dvelja í fallegri berjalaut. Gígja hafði farið í beijamó um helgina ásamt eiginmanni sínum Ingvari Sigmarssyni, eflaust ætlað afrakst- urinn börnum og barnabörnum. En í beijamónum þar sem fullþroskuð berin biðu þess að verða tínd, kom aðsvifið sem kallaði hana burt úr dagsins önn, burt frá fjölskyldu og vinum, allt of snemma að okkur finnst sem eftir stöndum. Gígja Vilhjálmsdóttir, sem í mörg ár hafði starfað við embætti bæjar- fógetans á Akureyri, var þekkt fyr- ir hógværð og lipurð. Hún var búin þeim góðu mannkostum að geta með hlýju og alúð umgengist alla. Ilún var auk þess mjög vandvirk í starfi sínu, enda naut hún trausts allra. Það haustar að í veröld og fyrr en varir verður kominn vetur. Það haustaði líka snögglega að á vinnu- staðnum okkar. Skyndilega var höggvið skarð í hópinn. Vinnufélagi horfinn, vinnufélagi, sem með kær- leika hafði umgengist alla svo aldr- ei bar skugga á. Kveðjan í lok vinnuviku, „sjáumst eftir helgi“, rættist ekki og upp í hugann koma ósögð kveðjuorð. Við erum þakklát fyrii' að hafa mátt eiga Gígju fyrir vin, þakklát fyrir allt það sem hún miðlaði til okkar. Með þessum fátæklegu línum viljum við votta eftirlifandi eigin- manni, börnum, barnabörnum, tengdabörnum og systrum samúð okkar. Við biðjum þess að guð leggi líkn með þraut. Blessuð sé minning hennar. Samstarfsfélagar á bæjarfógeta- skrifstofunni á Akureyri. Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð í dag, föstudaginn 7. september, vegna jarðarfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR. Lögmenn Suðurlandsbraut 4 sf., Gestur Jónsson hrl., Hallgrímur B. Geirsson hrl., Jóhannes A. Sævarsson hdl. Lokað Vegna jarðarfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR, seðlabankastjóra, verður Þjóðhagsstofnun lokuð eftir hádegi í dag, föstudaginn 7. september. Þjóðhagsstofnun. Lokað Skrifstofur Almenna bókafélagsins hf. verða lok- aðar frá kl. 13.00 í dag, vegna jarðarfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR, seðlabankastjóra. Almenna bókafélagið hf. Lokað Vegna útfarar GEIRS HALLGRÍMSSONAR, fyrr- verandi borgarstjóra, verða skrifstofur Reykjavík- urborgar og stofnana hennar lokaðarfrá kl. 13.00 föstudaginn 7. september. Borgarstjórinn í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.