Morgunblaðið - 07.09.1990, Page 44
N • Á * M • A • N
Landsbanki
íslands
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Lömb koma
væn af flalli
^AUKARÉTTIR voru haldnar í
Þverárrétt á mánudag og voru
það fyrstu réttir ársins eftir því
sem næst verður komist. Þar
var, að sögn Þórarins Jónssonar
hreppsfjóra á Hamri í Þver-
árhlíð, dregið í dilka 3.000 fjár
sem komið var af fjalli og hímdi
við Ijallgirðinguna.
Miðað við vænleika þess kvaðst
Þórarinn telja að fallþungi yrði í
góðu meðallagi í ár þótt erfitt væri
að dæma af því fé sem fyrst gengi
af fjalli. Fyrstu reglulegu réttir árs-
ins verða í Skagafirði og Húna-
vatnssýslum um helgina. Þverár-
réttir verða 16. og 17. september
en slátrun hefst í Borgarnesi 13.
september.
150 sauðkind-
• •
ur úr Oræfum
til Kanada
og Bretlands
UM 150 sauðkindur úr Oræfum
«-K'erða í haust fluttar til Kanada
og Bretlands, þar sem bændur
hafa sýnt þeim áhuga. Ólafur
Dýrmundsson, sauðQárræktar-
ráðunautur, segir að þessi útflutn-
ingur hafi verið í undirbúningi í
tvö ár, og kaupendur fjárins leggi
í mikla fyrirhöfn og kostnað til
að fá skepnurnar til sín.
Ólafur segir að útflutningur sauð-
fjár á fæti hafi átt sér stað í smáum
stíl á undanförnum árum, til dæmis
sé eitthvað af íslenzku' fé á Bret-
landi, afkomendur þriggja skepna,
sem þangað voru fluttar 1979. Ólaf-
ur segir að nokkrir einstaklingar í
Bretlandi, mest tómstundabændur,
ætli að kaupa fáeinar ær hver.
Um 100 ær fara hins vegar tii
'lslenzkrar konu, sem hefur búrekstur
í Kanada, Stefaníu Sveinbjarnardótt-
ur. Hún fékk einnig fé árið 1985,
en það smitaðist af mæðiveiki, sem
gekk í kanadísku fé, og varð að lóga
skepnunum.
Ólafur segir að íslenzka sauðféð
sé fyrst og fremst eftirsótt erlendis
vegna eiginleika ullarinnar, litatil-
brigða hennar og hvað hún sé góð í
pijónles. Hann segir alla möguleika
á því að íslenzkt sauðfé geti orðið
umtalsverð útflutningsvara, ekki
síður en íslenzkir hestar.
Hvar á ég að siija ?
í GÆR var fyrsti skóladagurinn hjá grunnskólanemendum í Reykjavík og víðar á landinu. Kennsla hófst þó ekki strax, heldur tóku kennarar á
móti nemendum og kynntu þeim skólastarf vetrarins. Þessi mynd var tekin þegar átta ára nemendur í Foldaskóla í Grafarvogi komu til skóla í gær.
Sjá fréttir á bls. 3 og 4.
Ný athugun á handboltahöll i Kópavogi:
Húsið er of lítið og ekki
í samræmi við kröfiir IHF
- segir Gunnar Birgisson forseti bæjarstjórnar Kópavogs
„SKRINGILEGAST í þessu máli
er, að búið er að hanna hús, án
þess að þarfirnar hafi verið skil-
greindar og farið yfír þær með
Alþjóða handknattleikssamband-
inu,“ sagði Gunnar Birgisson for-
seti bæjarstjórnar Kópavogs eftir
Samningar um nýtt álver:
Orkuverðið tengist
beint við álverðið
ÞÆR tillögur sem liggja fyrir um orkuverð til nýs álvers, fela í
sér, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að orkuverðið verði tengt
beint við heimsmarkaðsverð á áli, en hvorki verði á því hámark né
lágmark eins og er í samningum við ÍSAL.
Þá mun vera gert ráð fyrir að
talsverður afsláttur verði veittur á
raforkuverðinu í ákveðinn árafjölda,
í tveimur þrepum. Til grundvallar
þessum tillögum liggja m.a. spár
um heimsmarkaðsverð á áli, sem
benda til þess að það hækki jafnt
og þétt.
Stjórn Landsvirkjunar fj'allaði í
gær um raforkusölusamning vegna
nýs álvers. Að sögn Halldórs Jóna-
tanssonar forstjóra Landsvirkjunar
var þar gerð grein fyrir þeim hug-
myndum sem fyrir liggja um sam-
komulagsgrundvöll að raforkuverði,
og ýmsar fjárhagsáætlanir og af-
komuathuganir á grundvelli þess
kynntar fyrir stjórnarmönnum.
Engin ákvörðun var tekin a fundin-
um.
Jóhannes Nordal, formaður Ráð-
gjafarnefndar um áliðju og stjórn-
arformaður Landsvirkjunar, sagði í
gær að markmiðið væri enn, að
samningsgrundvöllur um nýtt álver
lægi fyrir í þessum mánuði og ekk-
ert benti til annars en að það
næðist.
fund með Erwin Lanc, forseta
Alþjóða handknattleikssambands-
ins, í gær, þar sem farið var yfír
kröfur sambandsins til húss fyrir
úrslitaleik heimsmeistarakeppni í
handknattleik. Bæjarstjórn Kópa-
vogs hefur fengið Verkfræðistofu
Stefáns Ólafssonar til að yfirfara
hönnun þá, sem gengið var út frá
við gerð samnings um kostnaðar-
hlut ríkisins síðastliðinn vetur.
Gunnar sagði niðurstöðurnar
sýna, að húsið taki 5.400 manns,
en það þurfí að rúma sjö þúsund.
Guðmundur Oddsson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokks, kveðst ekki
hafa séð þessar niðurstöður og
þær komi á óvart, séu þær réttar.
„Alþjóða handknattleikssamband-
ið mun senda okkur lista yfir þær
kröfur sem við verðum að uppfylla
til að byggja húsið. Þær virðast ekki
hafa legið fyrir, þegar fyrra hús var
hannað,“ sagði Gunnar. Hann sagði
að fulltrúar IHF komi hingað til
lands snemma næsta árs til að skoða
teikningar af frumgerð hússins, sem
þá eigi að liggja fyrir. Áframhaldið
sé háð því, að fulltrúatnir samþykki
þær teikningar.
„Það skýtur því skökku við að
búið sé að gera samning um eitthvað
ákveðið hús sem á sér enga stoð í
raunveruleikanum," sagði Gunnar.
í hönnunarforsendum hússins átti
það að taka 7.108 manns j sæti, ef
allir sitja á • bekkjum. „En þegar
búið er að taka tillit til þess að
menn þurfa auðvitað að komast á
bekkina, það er að segja uppganga
og annars, auk annarra þarfa, þá
tekur þetta hús sem er búið að frum-
hanna ekki nema um 5.400 manns.
Þá er ekki farið að líta á brunahönn-
un og aðrar öryggiskröfur," sagði
Gunnar um niðurstöður hinnar nýju
úttektar.
Gunnar sagði að verkfræðistof-
unni hafi verið falið að kanna raun-
kostnað við að vinna út frá þeirri
hönnun sem fyrir liggur og stækka
húsið samkvæmt kröfum IHF, og
hver kostnaðarhlutur Kópavogs yrði.
„Síðan á að leita að öðrum lausnum.
Getum við fundið einhverjar aðrar
lausnir, sem eru hagkvæmari og þá
ef til vill í samvinnu við aðra aðila,
til dæmis í ferðaþjónustu. Við erum
að leita að hagkvæmari lausn fyrir
bæjarfélagið."
Gunnar sagði endanlega stærð
hússins ekki liggja fyrir, fyrr en
hönnun er lengra á veg komin og
þarfir fyrir húsið hafi verið' betur
skilgreindar, en unnið verði hratt
að framgangi málsins. „Við erum
ennþá á byijunarreitnum.“
Guðmundur Oddsson átti hlut að
gerð samningsins við ríkið í vetur
um byggingu íþróttahússins sem
þáverandi formaður bæjarráðs.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að bæjarstjórnarmenn hefðu
þá talið húsið uppfylla kröfur IHF,
enda hafi fulltrúi samþandsins hér
á landi, formaður HSÍ, viðurkennt
teikningarnar. „Það kæmi mér því
mjög á óvart ef það kemur núna út
úr þessu að þetta hefði verið of lítið
hús og stæðist ekki kröfurnar,"
sagði Guðmundur.
Sjá frétt um fundinn með Erw-
in Lanc á bls. 2.
Geir Hall-
grímssonjarð-
sunginn í dag*
ÚTFÖR Geirs Hallgrímsson-
ar, fyrrverandi forsætisráð-
herra, verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag, fóstudaginn
7. september, klukkan 13.30.
Prestur verður séra Árni
Bergur Sigurbjörnsson. Kamm-
ersveit Reykjavíkur leikur við
athöfnina og félagar úr karla-
kórnum Fóstbræðrum syngja.
Organisti verður Marteinn
Hunger Friðriksson. Útförin er
gerð á vegum ríkisins og verður
athöfninni útvarpað.
Ungir sjálfstæðismenn munu
mynda fánaborg fyrir utan
kirkjuna að athöfninni lokinni.
Sjá eftirmæli á bls. 1—16 B.