Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 25 Atlantshafsbandalagíð og afvopnun á höfunum Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Hægari efna- hagsbati? Bandaríkjamenn hafa nú vaxandi áhyggjur af því, að samdráttur sé að verða í efnahagslífi þar eftir samfellt vaxtarskeið í allmörg ár. Verð- bólgan í Bretlandi er komin í um 10,6%, sem er heldur meiri verðbólga en þar var á árinu 1979, þegar Thatcher tók við völdum. A meginlandi Evrópu má sjá fyrstu merki þess, að eitthvað sé að draga úr þeirri efnahagslegu framsókn, sem einkennt hefur Evrópubanda- lagsríkin undanfarin ár. Við Persaflóa ríkir óbreytt ástand, sem þýðir í raun hærra olíuverð á næstu mánuðum. Hér á Islandi má hins vegar sjá fyrstu merki um bata eftir efnahagslegan öldudal síðustu tveggja ára. Afkoma fyrirtækja á fyrri helmingi þessa árs er betri en á sama tíma í fyrra og þar sem um taprekstur er að ræða er tapið heldur minna en á sama tíma í fyrra. Batn- andi afkoma fyrirtækja, sem hafa gengið í gegnum töluverð- an hreinsunareld síðustu tvö árin, er sennilega ein helzta ástæða þess, að einhver hreyf- ing er að komast á efnahags- og atvinnulífið á nýjan leik. Þjóðin bindur miklar vonir við byggingu nýs álvers. En jafnvel þótt samningar verði gerðir um það á næstu mánuð- um má ekki búast við því, að þær framkvæmdir hafi mikil áhrif á efnahagslífið fyrr en á árinu 1992. Að vísu má gera ráð fyrir, að virkjunarfram- kvæmdir heijist á næsta vori, en þær verða ekki svo umfangs- miklar á næsta ári, að það hafi veruleg áhrif á efnahagsþróun- ina hér. Það gerist hins vegar strax á árinu 1992 og á því ári og næstu tveimur árum á eftir, þ.e. 1993 og 1994, má búast við, að miklir fjármunir komi inn í efnahagskerfí okkar, þjóð- inni allri til hagsbóta. Olíuverð hefur ekki hækkað hér enn sem komið er, en búast má við því, að það gerist á næstu vikum. Þá má ætla, að útgerðarmenn láti í sér heyra og ýmsir fleiri, sem eru háðir olíu og benzíni um rekstur sinn. Olíuverðshækkun ásamt sam- drætti í efnahagslífi Banda- ríkjamanna og Breta, sem eru helztu viðskiptaþjóðir okkar, getur haft þau áhrif að hægja á þeirri jákvæðu hreyfingu, sem er í efnahagsmálum okkar. Reynslan hefur kennt okkur, að við verðum jafnan fyrir tölu- verðum áhrifum af efnahags- þróun í nálægum löndum, sem við eigum viðskipti við, hvort sem um er að ræða uppsveiflur eða neikvæða þróun. Af þessum sökum er hætt við, að efnahagsbati hér, sem margir hafa búizt við, verði hægur og að kjarabætur til al- mennings skili sér seint. Hins vegar fer ekki á milli mála, að þanþol launþega er nánast búið. Þeir geta ekki meir. Það gætir örvæntingar hjá fólki vegna versnandi afkomu og vegna þess, hve þessi kreppa hefur staðið lengi yfir. Fari svo, að fólk fínni ekki efnahagsbata í eigin buddu á næstu mánuðum er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif eða afleiðingar það hefur. Þetta er umhugsunarefni fyrir atvinnurekendur en þó fyrst og fremst fyrir ríkisstjórn- ina, sem stjórnar þeim sjóði, ríkissjóði, sem hefur langmest áhrif á þróun efnahagsmála hér. Það er t.d. ljóst, að ef ekki væri svo mikill halli á ríkissjóði á þessu ári og lánsfjárþörf hans svo mikil, sem raun ber vitni, hefðu vextir lækkað umtalsvert frá því, sem nú er vegna þess, að þá væru bankar og sparisjóð- ir í vandræðum með að ávaxta innlánsfé. Ríkissjóður hefur getað aflað nauðsynlegs lánsfjár á innan- landsmarkaði vegna þess, að atvinnufyrirtækin hafa haldið að sér höndum um fjárfestingar í nokkur misseri. Um leið og fyrirtækin leita eftir fjármagni til fjárfestingar á nýjan leik, verður erfiðara fyrir ríkissjóð að afla lánsíjár hér heima til þess að fjármagna hallarekstur- inn. Og að öðru jöfnu verður að ætla, að fyrirtækin hugsi sér til hreyfings á ný á næsta ári. Lykilatriði í því að varðveita þann árangur, sem náðst hefur í efnahagsmálum undanfarin misseri og að bæta lífskjör fólks á næstu mánuðum og misserum er að hallarekstur ríkissjóðs verði haminn. Þess vegna verð- ur fjárlagafrumvarps ríkis- stjórnarinnar beðið með eftir- væntingu að þessu sinni. Verða þar á ferðinni sömu gömlu lummurnar eða má búast við raunhæfu framlagi af hálfu ríkisstjórnarinnar til þess að stuðla að nýrri uppsveiflu í efnahagsmálum? eftirJón Baldvin Hannibalsson Það vefst tæpast fyrir nokkrum manni lengur að kalda stríðinu er lokið. Nýtt öryggiskerfi í Evrópu, sem tekur tillit til nýrra aðstæðna í stjórnmálum, er í farvatninu. Það hernaðarkerfí sem varð til vegna kalda stríðsins verður aðlagað stjórnmálaþróuninni með einhliða aðgerðum sem og samningum. Þær afvopnunarviðræður sem nú eru í gangi miða að því að sa- mið verði um öll helstu svið vígbún- aðar: kjarnorkuvopn, hefðbund- inn land- og flugher í Evrópu og efnavopn. Innan tíðar verða skammdræg kjarnavopn tekin inn í samningaviðræður. Þá er einung- is eitt veigamikið svið vígbúnaðar utan samningaviðræðna — vígbún- aður á höfunum. Takmörkun vígbúnaðar og traustvekjandi aðgerðir á höfunum er málefni sem skiptir íslendinga augljóslega miklu. Fyrir því eru tvær höfuðástæður: Hernaðarleg lega landsins og hættan á mengun sjávarins af völdum geislavirkra efna. Norðurhöf, þ.e. norðausturhluti Atlantshafsins, voru á tímum kalda stríðsins einhver mikilvægasti vett- vangur flotaumsvifa í heiminum. Þau eru athafnasvæði Norðurflota Sovétríkjanna, sem hefur höfuð- stöðvar á Kóla-skaga, þar sem staðsett er eitthvert mesta víghreiður á jarðkringlunni. Þau eru jafnframt athafnasvæði stærri hluta kjarnorkuvopnavaraforða Sovétríkjanna — eldflaugakafbá- taflotans. Hinn mikli fjöldi takt- ískra og langdrægra kjarnavopna í Norðurhöfum veldur því að lqarn- orkuvopnavæðing svæðisins á sér vart hliðstæður annars staðar. Er að vænta breytinga á hern- aðarumsvifum í Norðurhöfum í kjölfar þess að kalda stríðinu er lokið? Enn getum við ekki svarað eftirJónas Gíslason Fátt hefur vakið meiri athygli undanfarið og komið meir á óvart en breytingarnar, sem orðið hafa í Austur-Evrópu á þessu ári, eftir að Berlínarmúrinn var brotinn nið- ur og járntjaldið rifíð. Mikið hefur verið rætt og ritað um breytingarn- ar á stjórnmálasviðinu. Minna hef- ur verið rætt um breytingarnar, sem orðið hafa í kirkjulegum efn- um. Þær breytingar eru þó svo miklar og óvæntar, að undrum sætir. Lifandi og dauðar kirkjur Engin ný kirkja var byggð í Sovétríkjunum í 73 ár — eða frá byltingunni 1917. Þvert á móti fækkaði þeim kirkjuhúsum veru- lega á þessu tímabili, sem kirkjan gat notað til guðsþjónustuhalds, því að mörgum þeirra var lokað og þeim breytt í söfn eða funda- hús. I Sovétríkjunum töluðu menn um lifandi kirkjur, þar sem guðs- þjónustur voru fluttar, og dauðar kirkjur, sem teknar höfðu verið til veraldlegra nota. Mér er í fersku minni, er ég fyrir fáum árum kom inn í kirkju því með fullri vissu. Óvissuþættirn- ir eru fjölmargir, ekki síst hvað varðar hina pólitísku þróun. Þær upplýsingar sem við höfum gefa þó tilefni til að ætla að einhveijar breytingar verði, en ekki að grundvallarbreytinga sé að vænta. Hagsmunir íslands ísland er staðsett í flöskuhálsi Norðurhafa — Grænland-, ísland-, Bretland-hliðinu dyrunum að Norð- urhöfum. Hernaðarlegt mikilvægti landsins frá lokum seinni heims- styijaldar hefur fyrst og fremst byggt á þessari staðreynd. Mikil- vægi landsins fyrir Atlantshafs- bandalagið hvílir fyrst og fremst á legu landsins, sem gefur einstæða möguleika til að tryggja öryggi siglingaleiðanna yfir Atlantshaf. Landfræðileg lega íslands leiðir til þess að næsta augljóst er, að ef við sjáum ekki fram á að ein- hliða aðgerðir hafi í för með sér veigamiklar breytingar á flotaum- svifum í nágrenni okkar, hljótum við að telja æskilegt að samninga- leiðin verði farin til að draga úr vígbúnaði í Norðurhöfum. Þar fyrir utan ber að hafa í huga að -verði vígbúnaður á höfunum ekki tekinn inn í samningaviðræður í Evrópu, getur það undir vissum kringum- stæðum leitt til aukins vígbúnað- ar á höfunum. Frá hernaðarlegu sjónarhorni eru náin tengsl milli lands og hafs, en það felur í sér að standi sjóherir utan samninga- viðræðna er hætta á að farið verði í kringum samninga um land- og flugheri og kjarnorkuvopn með því að auka vígbúnað á höfunum. Af þessu leiðir, að til þess að samning- ar um vígbúnað í Evrópu verði heilstæðir, en ekki opnir í báða enda, er nauðsynlegt að taka sjó- heri inn í samningaviðræður. Það sem undirstrikar hagsmuni íslendinga átraustvekjandi aðgerð- um og takmörkun vígbúnaðar á höfunum er þörfín fyrir að vernda í Leníngrad, þar sem komið hafði verið fyrir minjasafni um Lenín. Allt hafði verið fjarlægt, sem minnti á kristna trú, en í staðinn gat að líta flennistórar myndir af Lenin og alls konar upplýsingar um líf hans og starf. Mest stakk í augu risastór mynd af Lenín, sem komið var fyrir, þar sem altarista- flan hafði áður verið. Lifandi kirkjur í Sovétríkjunum eru að vonum fáar í dag. Þó hefur allnokkrum kirkjuhúsum nú verið skilað aftur til kirkjulegra nota, m.a. að því er ég bezt veit áður- nefndri kirkju, þar sem Lenínsafn- inu hafði verið komið fyrir. Þar hefur Kristur nú leyst Lenín af hólmi. Ráðstefnan í Manila 1989 r' A fjölmennri kristilegri ráð- stefnu í Manila á Filippseyjum í fyrrasumar, sem haldin var á veg- um alheimshreyfingar evangel- ískra kristinna manna, er nefnist Lausanne-hreyfingin, gat að líta meðal þátttakenda allstóran hóp fólks frá Sovétríkjunum, alls um 70 manns. Þetta fólk var í ýmsum kirkjudeildum og kom frá flestum héruðum ríkisins, og áberandi var, lífríki hafsins fyrir mengun af völd- um geislavirkni. Traustvekjandi aðgerðum á höfunum hefur fyrst og fremst verið beint að því að koma í veg fyrir slys og hættuleg atvik, sem eiga sér stað vegna sam- skipta flota en ekki að slysum, sem eiga rætur sínar að rekja til bilana í vélabúnaði. Við urðum vitni að þremur slysum sovéskra kjarn- orkukafbáta í Norðurhöfum 1989, sém áttu upptök sín í slíkum bilun- um. Sem betur fer hafa slík slys enn sem komið er ekki haft alvar- legar afleiðingar í för með sér. En gerum okkur í hugarlund að skip- stjóri sovéskra Mike-kafbátsins, sem sökk undan ströndum Norður- Noregs, hefði ekki tekist að slökkva á kjamaofninum, áður en hann yfirgaf kafbátinn. Við getum ekki sagt nákvæmlega til úm hvað hefði gerst. Það sem við getum fullyrt er að slíkt tilfelli mundi að öllum líkindum hafa áhrif á umhverfi sjávar — jafnvel alvarleg áhrif. Eitt slíkt tilfelli undan ströndum Islands gæti haft verulega alvar- legar afleiðingar fyrir lífsbjörg ís- lendinga. Jafnvel grunur um að sjávarafurðir okkar væru mengað- ar af völdum geislavirkni gæti haft alvarleg áhrif á markaði erlendis. í kjölfar kjamorkukafbátaslysanna á síðasta ári bárust okkur erindi frá útlendum fískkaupendum þar sem spurt var, hvort fiskistofnarnir hefðu orðið fyrir mengun. Þetta gerðist þrátt fyrir að slysin áttu sér stað töluvert langt undan ströndum íslands. Við eigum engan annan kost en að taka tillit til þess að nútímamarkaðurinn er í auknum mæli viðkvæmur fyrir hvers konar mengunargrun. Ljóst er að vestrænir kafbátar eru tiltölulega öruggir. Það á ekki við um sovéska kafbáta. Það eru þeir síðarnefndu sem við höfum fyrst og fremst áhyggjur af. Sem fyrsta skref til að finna lausn á þessu máli höfum við lagt til á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að að fæst þekktist það innbyrðis fyr- ir ráðstefnuna. Þessi ráðstefna var því afar mikilvæg fyrir þessa sovésku þátt- takendur. Um leið og þeir reyndu að blanda sem mest geði við fólk hvaðanæva úr heiminum, lögðu þeir sérstaka áherzlu á umræður í eigin hópi um ástand kristni og kirkju í Sovétríkjunum. Meginum- ræðuefnið var eitt: Hvernig getum við bezt unnið að útbreiðslu krist- innar trúar heima fyrir? Sovésku þátttakendurnir voru bjartsýnir á framtíð kristilegs starfs í Sovétríkjunum. Aldrei fyrr hafði jafn stór hópur kristinna leið- toga fengið leyfi til þess að fara til útlanda til þátttöku í kristilegri ráðstefnu. Hitt kom áreiðanlega engum til hugar þá, að breyting- arnar yrðu jafnsnöggar og raun ber vitni. Mikilvæg ráðstefha í Moskvu Árangurinn af þátttöku þeirra í ráðstefnunni í Manila 'er nú að koma í ljós. í samráði við leiðtoga Lausanne-hreyfingarinnar hefur verið ákveðið að efna til fjölmennr- ar ráðstefnu kristinna kirkjuleið- toga í Sovétríkjunum. Gjört er ráð fyrir um 1.000 þátt- takendum á ráðstefnunni, þar af 850 frá Sovétríkjunum, auk 150 Alþjóðakjarnorkumálastofnunin gefi út leiðbeinandi reglur um kjarnaofna í hafi. Slíkar reglur hafa verið gefnar út af Alþjóðasigl- ingamálstofnuninni fyrir kjam- orkuknúin kaupskip en einungis fáein slík skip eru til. Reglurnar ættu einnig að ná til herskipa. Við verðum að gera okkur grein fyrir að það sem við erum í reynd að tala um eru hreyfanleg kjamorku- ver. Það eru nálægt 600 slík kjarn- orkuver í liöfunum. Það er engin gild ástæða fyrir því að um kjarn- orkuver í höfunum gildi ekki álíka reglur og eiga við um kjarnorkuver á landi. Atlantshafsbandalagið og röksemdir gegn afvopnun á höfunum Umræðan innan Atlantshafs- bandalagsins um takmörkun víg- búnaðar og traustvekjandi aðgerðir á höfunum hefur ekki enn verið leidd til lykta. Atlantshafsba,nda- lagið hefur hvorki samþykkt að taka upp slíkar viðræður né hafnað því endanlega. Á leiðtogafundi NATO í júlí sl. var samþykkt að bandalagið héldi áfram að kanna möguleika á takmörkun vígbúnað- ar og traustvekjandi aðgerðir á fléiri sviðum. Það er hins vegar Ijóst að einkum og sér í lagi helstu flota- veldin eru um þessar mundir ekki hlynnt samningaviðræðum við Sov- étríkin um sjóhernað. Höfuðröksemdin gegn því að fara út í samningaviðræður er byggð á eðli Atlantshafsbandalags- ins sjálfs; þ.e.a.s. þeirri staðreynd, að það er bandalag sjóvelda, sem eru mjög háð höfunum. Mikilvægi sjóleiðanna yfir Atlantshafið fyrir öryggi Vestur-Evrópu hefur ekki dvínað og mun jafnvel aukast, í kjölfar samdráttar í hefðbundnum vopnum í Evrópu og fækkunar í bandarískum herstyrk á meginl- andinu. Aftur á móti eru Sovétríkin landveldi, sem fyrst og fremst eru háð landleiðum fyrir flutninga. Af Jónas Gíslason „Kristið fólk í Austur- Evrópu hefur sýnt mik- ið hugrekki og stað- festu, þrátt fyrir ýmis konar þrengingar og oft beinar ofsóknir af hálfu yfirvalda. Það vekur athygli, að í flest- um þessara landa var kristin kirkja í farar- broddi, er almenningur reis upp gegn alræðis- valdi kommúnismans og hristi af sér hlekki ófrelsis og kúgunar.“ Lenín eða Kristur Frá kirkjulífí í Austur-Evrópu Jón Baldvin Hannibalsson „Eitt slíkt tilfelli undan ströndum íslands gæti haft verulega alvarleg- ar afleiðingar fyrir lífsbjörg íslendinga. Jafnvel grunur um að sjávarafurðir okkar væru mengaðar af völd- um geislavirkni gæti haft alvarleg áhrif á markaði erlendis.“ þessu er síðan leidd sú röksemd að ekki eigi að hrófla við öryggi þjóðbrautanna með því að fara út í samningaviðræður um takmörkun vígbúnaðar á höfunum. Þetta er grundvallarröksemd- in. Hún leiðir til þeirrar megin- spurningar hvort sú staðreynd, hversu Atlantshafsbandalagið er háð höfunum, veiki stöðu fyrir bandalagið, ef það færi í samninga- viðræður um takmörkun vígbúnað- ar? Ég tel að svo sé ekki. Þvert á mót.i tel ég að við ættum að kanna, hvort takmörkun vígbúnaðar á höf- unum bjóði ekki upp á tækifæri til að efla öryggi flutningaleið- anna fremur en öfugt. Það er næsta augljóst að öryggi flutningaleiðanna yrði betur tryggt með minni sovéskum flotastyrk í Norðurhöfum, einkum minni styrk- leika kafbátaflotans. í Mið-Evrópu, þar sem Sovétríkin hafa öll eftir- stríðsárin haft mikla yfírburði á sviði hefðbundinna vopna, hefur Atlantshafsbandalagið verulegan ávinning af samningaviðræðum, sem greinilega munu leiða til niður- stöðu sem Atlantshafsbandalagið gat ekki náð með því að byggja upp eigin herstyrk, þ.e.a.s. jafn- vægi í herstyrk á meginlandinu. Á höfunum eru það ekki Sov- étríkin heldur. Atlantshafsbanda- lagið sem hefur verulega yfirburði á sviði flotavígbúnaðar. í ljósi ólíkr- ar landfræðilegrar legu eru þetta nauðsynlegir yfirburðir til að tryggja öryggi á hafinu. Það má jafnframt líta svo á að þessir yfir- burðir séu meiri en svo að þeir nægi einungis til að vega upp á móti því, hversu miklu háðari Átl- antshafsbandalagið er höfunum en Sovétríkin. En það felur í sér hag- stæða samningsstöðu gagnvart Sovétríkjunum, hvað varðar tak- mörkun vígbúnaðar.'Pólitískar að- stæður sem og hagstæð samnings- staða Atlantshafsbandalagsins virðast þannig staðfesta þá skoðun, að fremur beri að líta á samninga- viðræður um höfin sem tækifæri en öfugt. Önnur röksemd gegn takmörk- un vígbúnaðar á höfunum byggir á því að sjóherir ýmissa ríkja Atl- antshafsbandalagsins, einkum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands, tengist ekki einungis öryggi Evrópu heldur einnig pólitískum skuldbindingum í öðrum heimshlutum. Að vissu leyti er þetta mjög skiljanleg röksemd. Flotastyrkur þessara ríkja tengist ekki einungis öryggi Evrópu heldur gegnir mun víðtækara hlutverki. En felur þetta ekki öllu fremur í sér ákveðinn ramma um samninga- viðræður um takmörkun vígbúnað- ar á höfunum heldur en að útiloka beri þær? M.a. felur þetta í sér að takmarkanir á hernaðarstyrk til að bregðast við hættuástandi, eins og nú hefur skapast við Persaflóa, koma ekki til greina. En staðreynd er að ákveðin einkenni á sjóherjum stórveldanna hafa lítið sem ekkert að gera með skuldbindingar í öðr- um heimshlutum. Þau ber fyrst og fremst að líta á í austur-vestur samhengi. Hér er einkum um að ræða taktísk kjarnorkuvopn og kjarnorkuknúna árásarkafbáta. Takmarkanir á sviði þessara vopna hefðu þess vegna ekki áhrif á skuldbindingar utan Evrópu. Þriðja röksemdin sem einkum hefur verið sett fram gegn traust- vekjandi aðgerðum er, að þær mundu skerða frelsi til siglinga um höfín. Það er vissulega rétt að ákveðnar traustvekjandi aðgerðir, sem lagðar hafa verið til, mundu setja verulegar hömlur á sjóheri. En það er einnig fjöldi tillagna, sem ekki mundi gera slíkt. Þetta á t.d. við um tilkynningaskyldu um flota- æfíngar, skipti á skoðunarmönnum og upplýsingaskipti um sjóheri. Aðgerðir sem skerða frelsi til sigl- inga hafa í besta falli vafasamt gildi. Það sem við þurfum, á þessu stigi í stjórnmálaþróuninni, er fyrst og fremst aðgerðir sem -lúta að auknu upplýsingaflæði og aðgerðir sem styrkja þá samninga og regl- ur, sem lúta að því að koma í veg fyrir slys á höfunum. Vettvangur samningaviðræðna Þegar komið er að spurningunni um eiginlega takmörkun vígbúnað- ar virðist mega greina þrennt, sem væri æskilegt og mögulegt að semja um: Taktísk kjarnavopn, stýriflaugar sem skotið er af sjó og kjarnorkuknúna árásarkaf- báta. Samningaviðræður um þessi svið vígbúnaðar "á höfunum yrðu væntanlega annaðhvort tvíhliða milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna eða tækju til allra helstu kjarnorkuveldanna. Traustvekjandi aðgerðir eru annað mál og mundu kalla á þátttöku fleiri ríkja. Vettvangur samningaviðræðna um traustvekjandi aðgerðir er vandasamt atriði. Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu (CSCE) gæti verið rétti vettvang- urinn fyrir ákveðnar tegundir svæðisbundinna aðgerða en ekki allar. Höfin hafa engin landamæri og því erfítt að ákveða aðgerðir sem skuldbinda sum ríki en ekki önnur. Að auki ber að hafa í huga að mörg hinna 35 ríkja, sem þátt taka í CSCE, eru umlukt landi og hafa litla hagsmuni á höfunum. Sú staðreynd að höfin hafa eng- in landamæri bendir til þess að rétti vettvangurinn væri alþjóðleg- ur, á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þó þannig að einungis ríki, sem tengjast hafinu, væru þátttakend- ur. Eins og allir vita er vandinn sá að við þyrftum sennilega að bíða alllengi eftir árangri. Að auki meg- um við ekki missa sjónar á þeirri staðreynd, að það er sú hlið sjó- hernaðar sem lítur að Evrópu, sem við höfum áhuga á. Möguleg lausn væri vettvangur þeirra þátttök- urikja CSCE, sem tengjast haf- inu. En hvar eiguni við að byrja? Vínarviðræðurnar um traustvekj- andi aðgerðir byggja á erindis- bréfínu frá Madríd 1983. Það gefur ekki mikið svigrúm til að semja um traustvekjandi aðgerðir á höfunum. Þó leyfír það útvíkkun á ákvæðum Stokkhólmssáttmálans um landgöngulið. Að okkar mati veitir það einnig svigrúm fyrir upp- lýsingaskipti og málþing um sjó- heri. Hvers vegna ekki að byija með því að samþykkja slíkar að- gerðir? Eina röksemdin sem við höfum heyrt gegn því að bytja á að semja um slíkar aðgerðir er kennd við „hálan ís“ og segir, að ekki sé óhætt að samþykkja slíkt enda gæti reynst erfítt að nema staðar, þegar af stað er farið. Spurning mín er þessi: Hvar er að fínna í sögu Atlantshafsbandalags- ins og þátttöku þess í samningavið- ræðum um takmörkun vígbúnaðar, að slíkt hafí raunverulega gerst? Hafí það einhvern tíma gerst hefur okkur ekki tekist að fínna. slík sögu- leg tilfelli. Samningsbundin takmörkun vígbúriaðar mun að líkindum gegna veigamiklu hlutverki á komandi árum sem leið til að aðlaga hernað- arkerfið í Evrópu nýjum pólitískum aðstæðum í stjórnmálum álfunnar, austur-vestur samskiptum og til að tryggja stöðugleika í kjölfar þess að kalda stríðinu er lokið. Verið er að gera heildarsamninga um takmörkun vígbúnaðar í Evr- ópu. Stjórnmálaleg sem og hernað- arleg rök benda til að þeir eigi að ná til allra helstu sviða vígbúnað- ar, einnig vígbúnaðar á höfun- um. Að útiloka höfín væri hvorki í samræmi við hernaðarlegar for- sendur, sem greinilega sýna fram á tengslin milli lands og hafs, né heldur í samræmi við þá pólitísku nauðsyn að koma í veg fyrir að hægt sé að fara í kringum samn- inga, með því að byggja upp her- styrk á höfunum. Atlantshafs- bandalagið er hvorki veikt hernað- arlega eða stjórnmálalega. Það hefur efni á því að nálgast tak- mörkun vígbúnaðar og traustvekj- andi aðgerðir á höfunum með opn- um hug. Það ætti því að íhuga, hvort takmörkun vígbúnaðar og traustvekjandi aðgerðir bjóði ekki upp á tækifæri til að tryggja ör- yggi á Norður-Atlantshafssvæðinu og í Evrópu á sama tíma — betur en við óbreytt ástand. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins. kirkjuleiðtoga frá öðrum hlutum heims. Er þar fyrst og fremst um að ræða fólk, sem tekið hefur þátt í útbreiðslustarfi kristinnar kirkju við svipaðar aðstæður og nú eru þar eystra, þar sem fólk flyzt í stórum stíl úr sveitunum til stór- borganna. Miklar vonir eru bundnar við þessa fjölmennu ráðstefnu. Stefnt er að því, að þar verði lagður grundvöllur að nýrri sókn evangel- ískrar kirkju í Sovétríkjunum. Ég mun reyna að segja frá ráðstefn- unni seinna. Undirbúningur ráðstefnunnar Aðalframkvæmdastjóri Lausanne-hreyfíngarinnar, Tom Houston frá Skotlandi, var nýlega á ferð í Sovétríkjunum til þess að aðstoða við undirbúning ráðstefn- unnar. Mér hefur borizt fréttabréf frá honum, þar sem hann lýsir ferð sinni um Sovétríkin. Hvarvetna hefur hann hitt kristna menn úr mörgum kirkjudeildum, sem marg- ir hafa verið ofsóttir árum saman vegna trúar sinnar. Þeir binda all- ir miklar vonir við ráðstefnuna. Houston hvetur kristna menn um víða veröld til þess að taka höndum saman og styrkja þetta mikilvæga starf með fyrirbæn. Þessi ráðstefna getur markað tímamót í starfi kristinnar kirkju í Sovétríkjunum. Auk þess er kostnaður geysi- mikill, en sovéska kirkjan getur einungis staðið undir þéim kostn- -a.ði, sem hægt er að greiða í rúbl- um. Gjaldeyrisskortur er mikill í landinu. Ef einhver fyndi hjá sér hvöt til þess að styrkja þetta mikil- væga starf, þá get ég komið þeim styrk til skila til leiðtoga ráðstefn- unnar. Hið íslenzka biblíufélag hefur tekið þátt í því að útvega fjölmarg- ar Biblíur á rússnesku, sem dreift hefur verið um Sovétríkin. Öflugt starf Nú eru margar ráðstefnur haldnar víðsvegar í Evrópu, þar sem evangelískir kristnir menn bera saman bækur sínar um, hvemig kristin kirkja geti snúizt við þeim nýju vandamálum, sem fylgja í kjölfar breytinganna í Áustur-Evrópu. Evrópunefnd Lausanne-hreyf- ingarinnar heldur fund í Frankfurt rétt fyrir mánaðamót, þar sem þessi mál verða rædd. Þá verður haldin fjölmenn ráðstefna í Stuttg- art á Þýzkalandi 9.-12. október, þar sem rætt verður sérstaklega um ástand kristni og kirkju í sam- einuðu Þýzkalandi. Mér hefur verið boðið að sækja þessar ráðstefnur, auk þess sem ég ætla að heimsækja gamla vini í Austur-Þýzkalandi. Mun ég eftir heimkomuna reyna að segja nán- ari fréttir af því helzta, sem þar er á döfínni. Biðjum fyrir öllu þessu nýja starfi, sem hafið er til að efla og auka áhrif kristinnar trúar í Austur-Evrópu. Með nýfengnu frelsi streyma þangað alls konar áhrif frá Vesturlöndum, m.a. frá alls kyns nýaldar-hreyfingum, sem eru í algjörri andstöðu við kristna trú. Kristið fólk verður að halda vöku sinni, ef kirkjan þar eystra á ekki að verða undir í þessari flóð- bylgju nýrra áhrifa að vestan. Kirkjan í fararbroddi Kristið fólk í Austur-Evrópu hefur sýnt mikið hugrekki og stað- festu, þrátt fyrir ýmis konar þreng- ingar og oft beinar ofsóknir af hálfu yfirvalda. Það vekur athygli, að í flestum þessara landa var kristin kirkja í fararbroddi, er al- menningur reis upp gegn alræðis- valdi kommúnismans og hristi af sér hlekki ófrelsis og kúgunar. í Póllandi var rómversk-kaþólska í frétt frá samgönguráðuneytinu segir að hér sé um lítillega minni hækkun að ræða en Flugleiðir hafí farið fram á, en ákvörðun ráðu- neytisins sé tekin í ljósi mikillar óvissu um þróun eldsneytisverðs vegna ástandsins við Persaflóa. kirkjan í fararbroddi, í Sovétríkjun- um hefur rétttrúnaðarkirkjan tekið forystuna og í Austur-Þýzkalandi safnaðist fólk saman í lúterskum kirkjum og þar hófust mótmælin gegn einræði kommúnismans. Þrátt fyrir áratuga tilraunir tókst aldrei að útrýma kristni og kirkju úr þessum löndum, ekki heldur í Sovétríkjunum, þar sem þessar tilraunir hafa staðið lengst. Það sannast nú sem oft áður, að kristinni trú verður ekki útrýmt með valdboði eða ofsóknum. Á dögum frumkirkjunnar var talið, að blóð píslarvottanna væri bezta útsæði kristinnar kirkju. Svo hefur enn reynzt á okkar dögum. Höfundur er vígslubiskup. Þá segir: „Líta ber á þessa hækkun sem bráðabirgðahækkun og mun ráðuneytið og Flugeftirlitsnefnd fylgjast nákvæmlega með þróun verðlags á eldsneyti á næstu vikum og taka þá þessa ákvörðun til end- urskoðunar, ef nauðsyn ber til.“ Flugleiðir fá 3,5% fargj aldahækkun Samgönguráðuneytið hefur heimilað 3,5% hækkun á fargjöldum Flugleiða milli íslands og Evrópulanda og Bandaríkjanna frá og með 1. október næstkomandi vegna hækkana á eldsneyti. t.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.