Morgunblaðið - 20.09.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
27
.HMtæiufi
Bftnwnn
Blaða- og merkjasala Sjálfsbjargar fer fram um næstu helgi og að
þessu sinni mun landssambandið verja hluta sölutekna sinna til inn-
réttingar á endurhæfingaríbúð í Sjálfsbjargarhúsinu í Reykjavík.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
19. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verft verft verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 95,00 40,00 92,53 3,022 279.639
Þorskur(ósk) 81,00 81,00 81,00 0,114 9.234
Ýsa 127,00 30,00 110,26 4,467 492.517
Ýsa(ósl.) - 87,00 87,00 87,00 0,075 6.525
Karfi 35,00 35,00 35,00 0,225 7.875
Ufsi 46,00 25,00 43,44 0,287 12.467
Steinbítur 79,00 72,00 72,23 0,369 26.562
Steinbítur (ósl.) 79,00 79,00 79,00 0,019 1.501
Langa 53,00 53,00 53,00 0,122 6.467
Lúða 315,00 300,00 301,61 0,056 16.890
Langlúra 20,00 20,00 20,00 0,226 4.520
Koli 90,00 90,00 90,00 0,017 ' 1.530
Smáþorskur 77,00 77,00 77,00 0,169 13.013
Keila (ósl.) 6,00 6,00 6,00 0,113 678
Langa(ósL) 20,00 20,00 20,00 0,038 760
Keila 32,00 32,00 32,00 0,104 3.328
Ufsi (ósl.) 9,00 9,00 9,00 0,005 45
Skata (ósl.) 59,00 59,00 59,00 0,024 1.416
Samtals 93,64 9,452 885.057
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 119,00 86,00 93,45 64,454 6.023,685
Ýsa(sl.) 120,00 90,00 106,77 10,427 1.113.409
Karfi 46,00 42,00 42,05 9,118 382,423,50
Ufsi 50,00 20,00 40,80 392 11,936,00
Steinbítur 91,00 72,00 72,25 1,831 132,282,00
Langa 50,00 50,00 50,00 715 35,750
Lúða 320,00 100,00 206,61 2,023 417,980,00
Skarkoli 91,00 78,00 82,33 568 46,763,00
Grálúða 78,00 78,00 78,00 602 46,956,00
Keila 33,00 33,00 33,00 733 24,189,00
Skata 100,00 100,00 100,00 15 1,500,00
Skötuselur 210,00 185,00 190,69 202 38,520,00
Saltfiskföl 200,00 200,00 200,00 304 60,800,00
Blandað 38,00 37,00 37,66 154 5,800,00
Undirmál 82,00 82,00 82,00 403 33,045,00
Samtals 91,20 91,842,71 8.376,040
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 137,00 76,00 102,21 20,070 2.051.492
Ýsa 113,00 71,00 93,10 3,339 310.385
Karfi 53,00 48,00 48,86 2,493 121.852
Ufsi 50,00 39,00 41,42 3,521 145.851
Steinbítur 66,00 66,00 66,00 0,009 594
Langa 63,00 63,00 63,00 0,300 18.900
Lúða 365,00 300,00 316,77 0,065 20.580
Skarkoli 85,00 85,00 85,00 0,208 17.680
Koli 79,00 79,00 79,00 0,580 45.920
Keila 35,00 10,00 34,68 0,628 21.780
Skata 86,00 80,00 82,78 0,097 8.030
Skötuselur 153,00 153,00 153,00 0,041 6.273
Náskata 20,00 10,00 15,00 0,016 2540
Blá & langa 50,00 50,00 50,00 0,121 6.050
Blandað 20,00 20,00 20,00 0,074 1.480
Samtals 57,99 31,559 2.777.007
Selt var m.a. úr Hafbergí GK og Alberti GK. Á morgun verður m.a. selt úr
Barðanum.
Olíuverð á Rotterdam-markaði
1. ág. -18. sept., dollarar hvert tonn
BENSÍN
475-------
450--------------------------------422/
225---------------------------------------
-H------1-----1-----1----1-----1----\—
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7.sept. 14.
ÞOTUELDSNEYTI
425--------------
175-
150----------------------------------------
-H------1-----1-----1-----1----1-----H
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7.sept. 14.
GASOLÍA
425-----------
375-----------
350-----------
325-----------
175-
150-
-H------1-----1-----1-----1-----1-----H
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7.sept. 14.
SVARTOLÍA
300--------------
275--------------
225--------------
200--------------
25-----------------------------------------
-H-------1---1-----1-----i------1---H
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7. sept. 14,
Blaða- og merkjasala Sjálfs-
bjargar um næstu helgi
DAGANA 22.-23. september nk.
fer fram blaða- og merkjasala
Sjálfsbjargar um land allt.
Þetta hefðbundna íjáröflunar-
átak féll niður á síðasta ári vegna
landssöfnunar í tilefni 30 ára af-
mælis Sjálfsbjargar, en nú munu
félagar í Sjálfsbjörg og velunnarar
félagsins taka upp þráðinn þar sem
frá var horfið.
Tekjur af blaða- og merkjasölu
Sjálfsbjargar hefur ávallt vegið
þungt á metunum og treyst öfluga
starfsemi Sjálfsbjargar um land
allt. Um það bil helmingur af sölu-
andvirði merkja og blaða rennur til
deilda Sjálfsbjargar víðsvegar um
■ J KVÖLD, fimmtudagskvöldið
20. september, mun útgáfufélagið
Smekkleysa standa fyrir hátíð á
Hótel Borg við Austurvöll. Há-
tíði-n verður opnuð klukkan 21. Af
atriðum þessa kvölds ber fyrst að
nefna Jazzhljómsveit Konráðs Bé.
Hljómsveit þessi, sem formlega var
stofnuð í júlí sl., telur 13 meðlimi,
flesta nokkuð þekkta úr tónlistarlífi
síðustu ára. Nú þegar hefur hljóm-
sveitin getið sér góðs orðs fyrir
túlkanir sínar á dægur- og jazzlög-
um þessarar aldar. Hljómsveit
Konráðs Bé mun fá til lið.s við sig
gestasöngvarana Johnny Triumph
og söngparið Limbó og Lísu, Lest-
ir frá Reykjavík munu flytja tvö
lög, dansaður verður íþróttadans,
skyggnimyndir sýndar undir nafn-
inu „Alsæla frá Selfossi frá Höfn
í Hornafirði“, Hilmar Örn Hilm-
arsson sýnir töfrabrögð, Pippi mun
flytja nokkur frumsamin lög,
Söngdúettinn Jöklar flytur í
fyrsta sinn opinberlega söngva orta
undir Snæfellsjökli, sýndar verða
listir með boltum, tveir stuttir leik-
þættir verða frumfluttir, annars
vegar _ Síðbúinn morgunverður
eftir Oskar Jónasson og hins veg-
ar Örlagasaga Karenar Carpent-
er í flutningi Mörleikhússins og
undir stjórn Þórs Eldons.
■ Á FUNDI sínum 6. þ.m. gérði
stjórnSambands iðnfræðsluskóla
eftirfarandi ályktun: „Stjórn Sam-
bands iðnfræðsluskóla mótmælir
því að sett hafa verið bráðabirgða-
lög til að ógilda kjarasamning
BHMR. Stjórnin telur verulega
hættu á því að lögin muni spilla
íslensku skólastarfi til frambúðar.“
Stjörnubíó hefur tekið til sýninga
myndina „Með tvær í takinu“.
Stjörnubíó
sýnir „Með
tvær í takinu“
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Með tvær í
takinu". Með aðalhlutverk fara
Tom Berenger og Elisabeth
Perkins. Leikstjóri er Alan Ru-
dolph.
Dularfull og fögur kona biður
einkaspæjarann Harry að fylgjast
með fyrrverandi elskhuga sínum,
sem hún grunar um græsku. Harry
eltir fyrsta manninn sem kemur
heim og saman við lýsingu dular-
fullu frúarinnar og fyrr en varir er
hann flæktur í hið undarlegasta
mál.
landið. Að þessu sinni mun lands-
sambandið veija hluta sölutekna
sinna til innréttingar á sérstakri
ehdurhæfingaríbúð í Sjálfsbjargar-
húsinu í Reykjavík.
Slíka íbúð hefur skort í Sjálfs-
bjargarhúsið, en hún er nauðsynleg-
ur þáttur í endurhæfingu fatlaðra.
I endurhæfingaríbúðinni er komið
fyrir sérstökum færanlegum inn-
réttingum ásamt kennslu- og hjálp-
artækjum. Sérmenntað starfsfólk
leiðbeinir og kennir íbúum endur-
hæfingaríbúðarinnar.
Að þessu sinni kostar blað Sjálfs-
bjargar 400 krónur og merki 200
krónur en það er að þessu sinni
FYRSTA leiksýning Þjóðleik-
hússins þetta leikár verður frum-
sýnd í húsnæði íslensku óperunn-
ar í Gamla bíói fostudaginn 21.
september. Það er nýr gaman-
leikur með söngvum og dönsum
er nefnist því tvíræða nafni Örfá
sæti laus, enda var byrjað að
semja hann í þann mund að
gömlu sætin voru losuð úr stóra
sal Þjóðleikhússins vegna við-
gerða.
Höfundarnir eru fimmmenning-
arnir sem kennt hafa sig við Spaug-
stofuna, þeir Karl Ágúst Úlfsson,
Pálmi Gestsson, Randver Þorláks-
son, Sigurður Siguijónsson og Örn
Árnason. Handrit og söngtextar eru
í höndum Karls Ágústs Úlfssonar,
leikstjóri er Egill Eðvarðsson,
Gunnar Þórðarson samdi tónlistina,
Jón Þórisson teiknaði leikmynd og
búninga, Ásdís Magnúsdóttir hann-
aði dansa, Magnús Kjartansson er
hljómsveitarstjóri, Páll Ragnarsson
hannar lýsinguna og sýningarstjóri
er Kristín Hauksdóttir. „Örfá sæti
laus“ er fjölmenn sýning því á svið-
inu birtast 15 leikarar, 4 dansarar,
hljómsveit og tæknifólk. Leikarar
eru Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Bessi Bjarnason, Jóhann Sigurðar-
son, Karl Ágúst Úlfsson, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdóttir,
Páli Gestsson, Randver Þorláksson,
Rúrik Haraldssoiij Sigurður Sigur-
jónsson, Steinn Ármann Magnús-
son, Tinna Gunnlaugsdóttir, Þórar-
inn Eyfjörð og Örn Árnason. Dans-
arar eru þær Asta Henriksdóttir,
Ásdís Magnúsdóttir, Helga Bern-
hard og Guðmunda H. Jóhannes-
dóttir og hljóðfæraleikarar þeir
Magnús Kjartansson, Finnbogi
Kjartansson, Vilhjálmur Guðjóns-
son, Gunnlaugur Briem og Stefán
S. Stefánsson.
Að sögn höfunda er Örfá sæti
laus hugljúfur hvunndagsþriller
með dularfullu, ef ekki beinlínis
dulrænu ívafi, að hluta til byggður
á sönnum heimildum, en að öðru
leyti argasta lygi frá rótum, segir
í fréttatilkynningu frá Þjóðleikhús-
endurskinsmerki. Sérstakur fjöl-
skyldupoki með þremur merkjum
kostar 500 krónur.
■ FÖNK-ROKK. hljómsveitin
Eftirlitið spilar í Duus-húsi í kvöld.
Hljómsveitina skipa: Gunnar Erl-
ings á trommur, Davíð F. Trausta-
son, söngur, Gunnar Þ. Hilmars-
son á bassa og Þorsteinn Magnús-
son á gítar. Einnig kemur fram
gjörningahljómsveitin Inferno 5.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.
Hljómsveitin Eftirlitið spilar í
Duus-húsi í kvöld.
inu. Sögusviðið er Jeikhús og um-
hverfi þess. Á meðan á misheppn-
aðri sýningu á spennuleikriti stend-
ur gerast ólíklegustu uppákomur
innan sviðs og utan. Þekktar per-
sónur úr stjómmálum og hvunn-
dagslífi skjóta upp kollinum eins
og sjónvarpsáhorfendur kannast við
úr fréttaþáttum Stöðvarinnar auk
leikpersóna á borð við Skugga-
Svein, Ketil skræk og Ástu í Dal.
Fjöldi hugljúfra söngva prýða verk-
ið og danslistin fær einnig að njóta
sín. Leikritið er sannkallaður bast-
arður því um allar gerðir leiklistar
gæti verið að ræða aðrar en sorgar-
leik. Þegar er orðið uppselt á liðlega
helminginn af þeim tólf sýningum
sem nú eru komnar í sölu.
Laugarásbíó sýnir um þessar
mundir teiknimyndina „Davíð og
Sandí“.
Laugarásbíó
sýnir barna-
myndina „Dav-
íð og* Sandí“
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýninga barnateiknimyndina
„Davíð og Sandí“.
Efni myndarinnar er í stuttu
máli að Davíð á heima ásamt fjöl-
skyldu sinni í grennd við mikið
skógarflæmi sem er heimkynni dýra
af öllu tagi. Besti vinur hans er
hundurinn Pips en svo eignast hann
nýjan vin, arnarunga, sem dettur
úr hreiðrinu lítt fleygur. Davíð tek-
ur hann upp á sína arma og gefur
honum nafnið Sandí.
.. _ Morgunblaðid/Grímur Bjamason
Pálmi Gestsson og Orn Árnason í hlutverkum sínum í gamanleiknum
„Orfá sæti laus“.
Þjóðleikhúsið:
„Orfá sæti laus“
Nýr gamanleikur með söngvum og dönsum