Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
35
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Einar Falur^
Sjaldan fellur eplið . . .
Arnar Geirsson, sem er 19 ára FH-ingur, hóf ferilinn í 1. deild í gærkvöldi,
þegar íslandsmeistarar FH sóttu bikarmeistara Vals heim. Arnar er af kunn-
ustu handknattleiksfjölskyldu landsins og er hér með föður sínum, Geir Hall-
steinssyni, eftir leikinn.
Sæti Þýskalands í HM
„Pólitískt mál“
- segirframkvæmdastjóri IHF. Dregið aftur í B-keppninni
EKKI hefur verið tekið
ákvörðun um hvort sameinað
lið Þýskalands taki þátt í
Heimsmeistarakeppninni í
Svíþjóð 1993 eða B-keppninni
í Austurríki 1992. Samkvæmt
reglum IHF á nýtt lið að byrja
einum styrkleikaflokki neðar
og þá myndi eitt sæti losna á
HM og samkvæmt sömu regl-
um ættu íslendingar að taka
það. Þjóðverjar, sem hafa
mikil áhrif innan IHF, róa að
því öllum árum að Þýskaland
taki sæti Austur-Þýskalands
í H M og verði því með í loka-
keppninni í Svíþjóð og Belgar
færist upp í B-keppnina. Fari
svo verður að draga aftur í
B-keppninni þar sem for-
sendur hafa breyst.
Jörg Bahrke, framkvæmda-
stjóri IHF, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann
gæti ekki sagt til um hvar lið
Þýskalands yrði. „Þetta er
pólitískt mál og við fáum ekki
niðurstöðu fyrr en á heimsþinginu
í lok október," sagði Bahrke.
Flestir gera þó ráð fyrir því að lið
Þýskalands taki þátt í Olympíu-
leikunum í Barcelona 1992.
Ef Þjóðveijar taka þátt í HM
koma Belgar upp í B-keppnina
og mæta Islendingum í milliriðli.
Ef hinsvegar Þjóðveijar verða
settir niður í B-keppninni færast
íslendingar upp og taka þátt í
heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð
1992.
í reglum IHF (1.9.4.) segir: „Ef
land sem á þátttökurétt tekur
ekki þátt í HM fer það sjálfkrafa
niður um einn styrkleikaflokk.
Þátttaka varaþjóðar fer eftir
heþmsálfu [Evrópu].“
í reglu 1.9.6. segir: „Ef þjóð
hættir við þátttöku og ný kemur
í staðinn, hvort sem um HM eða
B-keppni er að ræða, skal draga
aftur í riðla í síðasta lagi 6 mánuð-
um fyrir HM og 4 mánuðum fyrir
önnur mót [B-keppni].“
Kjartan Steinbach, í stjórn
HSÍ, sagðist ekki eiga von á öðru
en að Þýskaland yrði með í Heims-
meistarakeppninni. „Það verður
ákveðið af stjórn á þinginu og
Þjóðverjar eru gífurlega sterkir
innan IHF.“
ÚRSUT
1.DEILD KARLA
Valur-FH 25:24 (13:10)
íþróttahús Vals að HUðarenda, íslandsmót-
ið í handknattleik, 1. deild, miðvikudaginn
19. september 1990.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 11/4, Jakob
Signrðsson 4, Finnur Jóhannsson 3, Júlíus
Gunnarsson 2, Jón Kristjánsson 2, Brynjar
Harðarson 2, Ingi R. Jónsson 1.
Mörk FH: Stefán Kristjánsson 9/3, Guðjón
Árnason 5, Óskar Ármannsson 4, Hálfdán
Þórðarson 3, Gunnar Beinteinsson 2, Pétur
J. Petersen 1.
Stjarnan-Grótta 27:20 (12:8)
íþróttahúsið i Garðabæ, íslandsmótið í
handknattleik, 1. deild, miðvikudaginn 19.
september 1990.
Mörk Stjörnunar: Hafsteinn Bragason 7,
Skúli Gunnsteinsson 6, Magnús Sigurðsson
4, Patrekur Jóhannesson 4, Sigurður
Bjarnason 3, Hilmar Hjaltason 2, Axel
Björnsson 1.
Mörk Gróttu: Svafar Magnússon 6,
Vladímír Alexívits 5, Stefán Amarson 4,
Páll Bjömsson 2, Svernr Sverrisson 1, Frið-
leifur Friðleifsson 1, Ólafur Sveinsson 1.
ÍR-Víkingur 24:27 (7:12)
íþróttahús Seljaskóla, Islandsmótið í hand-
knattleik, 1. deild, miðvikudaginn 19. sept-
ember 1990.
Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 10/1, Jóhann
Ásgeirsson 5, Frosti Guðlaugsson 4, Magn-
ús Ólafsson 2, Róbert Rafnsson 2, Njörður
Árnason 1.
Mörk Víkings: Árni Friðleifsson 6, Björg-
• M jf
Morgunblaðið/Einar Falur
Valdimar Grímsson var óstöðvandi í gærkvöldi. Hér er eitt marka hans í uppsiglingu og félagar hans í landsliðinu,
Guðjón Árnason og Óskar Ármannsson fá ekki rönd við reist.
fpRsm
FOLK
■ JÚLÍUS Jónasson, landsliðs-
maður í handknattleik, skoraði
fimm mörk þegar Asnieres vann
sinn fyrsta leik í frösnku 1. deildar-
keppninni. Félagið vann Creteil,
en með því leikur Júgóslavinn Is-
akovic.
■ ANTON Björn Markússon,
miðvallarspilari úr Fram, hefur
verið valinn í 21 árs landsliðið, sem
leikur í Tékkóslóvakíu í næstu
viku.
■ NESTOR Lorcnzo, landsliðs-
maður frá Argentínu, æfir nú með
Nottingham Forést. Lorenzo,
sem er varnarleikmaður, var um
tíma undir smásjánni hjá Bari á
ítaliu.
■ NICK Faldo, einn besti kylfing-
ur heims, hefur unnið lengi að
kennsluþáttum fyrir myndband.
Þegar hann var að leggja síðustu
hönd á myndbandið vár öllu efninu
stolið. Hann hefur nú lofað um
hálfri annarri milljón, verði efninu
skilað.og golfkennslu í hvaða
fangelsi sem er,“ bætti hann við.
Bikarmeistaramir
á fljúgandi ferð
vin Rúnarsson 5, Birgir Sigurðsson 4, Karl
Þráinsson 4, Alexej Trúfan 4/3, Hilmar
Sigurgíslason 3, Guðmundur Guðmundsson
1.
1.DEILD KONUR
Valur-FH 16:18(7:12)
íþróttahús Vals að Hlíðarenda, íslands-
mótið, 1. deild kvenna, miðvikudaginn 19.
september 1990.
Mörk Vals: Anita Pálsdóttir 6/4, Una
Steinsdóttir 4, Arna Garðarsdóttir 3, Berg-
lind Ómarsdóttir 2, Ásta Sveinsdóttir 1.
Mörk FH: Arndís Áradóttir 6/4, Eva Bald-
ursdóttir 3, Rut Baldursdóttir 2, Hildur
Harðardóttir 2, María Sigurðardóttir 2,
Kristín Pétursdóttir 1, Berglind Hreinsdótt-
ir 1, Helga Gilsdóttir 1.
Grótta-Fram 12:21 (6:10)
íþróttahúsið á Seltjarnarnesi, Islandsmótið,
1. deild kvenna, miðvikudaginn 19. septem-
ber 1990.
Mörk Gróttu: Laufey Sigvaldadóttir 3/2,
Helga Sigmundsdóttir 3/2, Gunnhildur Ól-
afsdóttir 2, Elísabet Þorgeirsdóttir 1 og
Erna 1.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 7/6,
Þórunn Garðarsdóttir 4, Ósk Víðisdóttir 3,
Ingunn Bernótusdóttir 3, Sigrún Blomster-
berg 2, Hafdís Guðjónsdóttir 1 og Inga
Huld Pálsdóttir 1.
Stjarnan-Selfoss 29:10 (13:7)
íþróttahúsið í Garðabæ, íslandsmótið, 1.
deild kvenna, miðvikudaginn 19. september
1990.
Mörk Stjörnunnar: Guðný Gunnsteinsdótt-
ir 7, Drífa Gunnarsdóttir 5, Eria Rafnsdótt-
ir 5, Ragnheiður Stephensen 4, Sigrún
Másdóttir 3, Margrét Theódórsdóttir 2,
Ásta Kristjánsdóttir 1 og Herdís Sigur-
bergsdóttir 1.
Mörk Selfoss: Auður Hermannsdóttir 2,
Kristjana Aradóttir 2, Guðbjörg Bjamadótt-
ir 2, Hulda Bjarnadóttir 1, Inga Tryggva-
dóttir 1, Guðrún Helgadóttir 1 og Hulda
Hermannsdóttir 1/1.
BIKARMEISTARAR Vals með
Valdimar Grimsson í farar-
broddi byrjuðu með miklum
látum gegn íslandsmeisturum
FH að Hlíðarenda ígærkvöldi.
Heimamenn voru með þriggja
marka forystu íhálfleik, 13:10,
mest munaði sjö mörkum eftir
hlé, 18:11, en undir lokin var
mikill darraðardans. Gestirnir
voru hársbreidd frá því að
jafna, en urðu að sætta sig við
eins marks tap, 25:24.
Valdimar Grímsson var at-
kvæðamestur hjá Val með 11
mörk. „Við komum vel undirbúnir
til þessa móts,“ sagði landsliðsmað-
^■■liHI urinn, „en okkur
Steinþór vantar leikæfingu
Guðbjartsson og höldum því ekki
skrifar enn ^ ; qq ml'nútur.
En það eru 30 leikir
eftir, við erum með stóran hóp og
ég hef engar áhyggjur af vetrin-
um.“
Valsmenn eru með mjög sterka
vörn og sem fyrr eru þeir snöggir
upp í hraðaupphlaup. í því sam-
bandi hefur markvarsla Einars Þor-
varðarsonar ekki síst mikið að
segja. „Ég neyðist til að halda
áfram í vetur,“ sagði Einar, en
Páll Guðnason, arftaki hans í Vals-
markinu, á við meiðsl að stríða og
á auk þess erfitt með að stunda
æfingar vegna skólasetu á sama
tíma.
Slakur varnarleikur varð FH
fyrst og fremst að falli. Guðmundur
Hrafnkelsson fann sig ekki í mark-
inu í fyrri hálfleik, en Bergsveinn
Bergsveinsson bætti um betur eftir
hlé. „Ég hef ekki áhyggjur af mark-
vörslunni í vetur," sagði Þorgils
Óttar Mathiesen, þjálfari FH. „Við
eigum eftir að njóta góðs af því að
vera með tvo góða markmenn, en
þeir eins og aðrir þurfa að átta sig
á nýrri vörn frá síðasta tímabili.
Ég er hins vegar ánægður með
baráttuna síðasta stundarfjórðung-
inn og ef slík barátta varir í 60
mínútur er ég þokkalega bjart-
sýnn.“
Mikið má út af bregða til að
Valur og FH verði ekki í lokabar-
áttunni um titilinn í vor. Einar Þor-
varðarson vildi samt ekki gera mik-
ið úr frammistöðunni, því veturinn
væri langur og margt gæti haft
áhrif á gang mála eins og meiðsl
og fleira. „Því hefur þessi sigur
ekki eins mikið að segja og áður —
og mótið er rétt að byrja.“ Þorgils
Óttar tók undir orð hans: „Það er
31 leikur eftir og við eigum þá eft-
ir heima.“
■ HAFNABOLTALIÐIÐ
Chicago Cubs hefur fundið nýja
leið til að auglýsa á leikjum sínum.
Á pylsum sem seldar eru á Wrigley
Field, heimavelli Cubs, eru auglýs-
ingar um næstu leiki liðsins! Þetta
er gerí með nýrri tækni þar sem
blaði er vafið um pysluna áður en
hún er soðin. Þegar það er tekið
af skilur það stafina eftir og kaup-
andinn fær auglýsingu með pyls-
unni. Það skal tekið fram að ekkert
aukabragð fylgir.
■ JEAN Walsh, kynningarfulltrúi
ólympíunefndarinnar í Melbourne,
vann ötuilega að því að fá leikana
1996 til borgarinnar. Henni varð
ekki að ósk sinni, en starfið var
ekki unnið fyrir gýg — Melbourne
ætlar að sækja um Ólympíuleik-
ana árið 2000, en Peking og
Berlín hafa einnig áhuga.
Víkingar á sigurbraut
Víkingar unnu annan útileikinn í röð í 1. deild þegar þeir sigruðu ÍR
27:24 í Seljaskóla í gærkvöldi. Liðið er greinilega miklu betra en í
fyrra, þegar það var í fallhættu.
Sigurinn var öruggari en tölurnar gefa til kynna því Víkingarnir höfðu
náð 9 marka forystu um miðjan seinni hálfieik. Þá slökuðu þeir á en
ÍR-ingar náðu sínum bezta leikkafla og söxuðu á forskot Víkinga.
Víkingar léku iengst af sterka vörn og skqruðu grimmt úr hraða-
upphlaupum og vel útfærðum sóknum, þar sem Árni Friðleifsson og Alex-
ei Troufan voru aðalmenn. Ólafur Gylfason var langbeztur ÍR-inga og
reyndar bezti maður vallarins.
Dómgæzla Rögnvald Erlings og Stefáns Arnaldssonar var nánast óað-
finnanleg.