Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
37
Regína S. Metúsalems-
dóttir - Minning
Fædd 30. mars 1914
Dáin 12. september 1990
Með örfáum orðum viljum við
minnast föðursystur okkar Regínu
Sigurlaugar Metúsalemsdóttur,
Gínu, eins og hún var nefnd. Gína
andaðist á Elliheimilinu Grund 12.
september og verður til moldar bor-
in í dag. Hún fæddist á Óspakseyri
við Bitrufjörð 30. mars 1914. For-
eldrar hennar voru bæði þingeysk,
Sigrún Sörensdóttir frá Tjörnesi og
Metúsalem Jóhannsson fæddur á
Svalbarðseyri en fluttist síðar að
Einarsstöðum. Sigrún og Metúsal-
em hófu búskap sinn á Akureyri
en fluttust 1912 til Óspakseyrar þar
sem Metúsalem stundaði útgerð,
búskap og verslun. Börn þeirra voru
Óli Vernharður kaupmaður, búsett-
ur í Reykjavík, en nú látinn. Eftirlif-
andi kona hans er Sigríður Agústs-
dóttir. Sören sem lést í Reykjavík
20 ára gamall, Jóhann sem dó í
barnæsku, Fríða sem einnig lést í
blóma lífsins innan við tvítugsaldur,
Helga gift Páli Nikulássyni bónda
á Kirkjulæk í Fljótshlíð eru nú
bæði látin og yngst var Gína sem
hér er minnst.
Hún var aðeins 2ja ára gömul
þegar hún missir móður sína og
fluttist þá fjölskyldan til Reykjavík-
ur þar sem Gína ólst upp og naut
ástar og atlætis föður og systkina.
Eftir hefðbundna skólagöngu í
Reykjavík dvaldi hún erlendis í
nokkur ár, aðallega á Norðurlönd-
um. Gína hafði alla tíð sterkar ræt-
ur til Svíþjóðar enda lagði hún þar
stund á nám í snyrtingu. Eftir heim-
komuna setti hún á stofn snyrtistof-
una Grace og stundaði síðan snyrt-
ingu allan sinn starfsaldur.
Gína var ógift en eignaðist eina
kjördóttur, Sigrúnu Jóhönnu Met-
úselems, fædd 25. desember 1964.
Sigrún er gift Ómari Ragnarssyni
og eiga þau eina dóttur, Vigdísi
Björtu. Gína bjó sér fagurt heimili
þar sem hún tók á móti gestum
með höfðingjabrag. Minnisstæðar
eru veislumar á jóladag þar sem
fjölskyldan kom saman hjá Gínu
og naut hennar alkunnu gestrisni.
Gína var mjög barngóð og nutum
við systumar þess í ríkum mæli.
Ótaldar em þær stundir er við sem
smástelpur heimsóttum hana á
snyrtistofuna og fengum að gera
tilraunir með snyrtivömmar. Þegar
heilsan bilaði var Gína svo lánsöm
að fá að dvelja á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Gmnd. Þar undi hún hag
sínum vel og var hvers manns hug-
ljúfi. Hafði hún oft orð á hversu
alúðlegt og hjálpsamt starfsfólkið
þar var, sérstaklega hlakkaði hún
til tímanna í föndrinu.
Með þessum orðum kveðjum við
frænku okkar. Blessuð sé minning
hennar._
Ólöf Erla Óladóttir,
Sigrún Fríða Óladóttir.
Þann 12. september andaðist
móðursystir mín, Regína Sigurlaug
Metúsalemsdóttir, eftir langvarandi
veikindi. Gína eins og hún var allt-
af kölluð af sínum nánustu, fæddist
á Óspakseyri í Bitrufirði 30. mars
1914, dóttir hjónanna Sigrúnar
Sörensdóttur og Metúsalems Jo-
hannssonar, er rak þar verslun og
búskap. Þau eignuðust 6 börn og
kveður nú Gína síðust þeirra. Hin
systkinin vom Óli kaupmaður í
Reykjavík, lést 1977, Helga hús-
móðir í Kirkjulæk í Fljótshlíð, lést
1980, Sören og Fríða létust bæði í
blóma lífsins og Jóhann lést 4ra
ára. Móðir sína missti Gína aðeins
tveggja ára gömul og fluttist þá
Metúsalem með börn sín fyrst til
Hafnarfjarðar og síðan til
Reykjavíkur, en hann rak verslun
þar. Óll börnin ólust upp hjá föður
sínum og var samheldni fjölskyld-
unnar mikil og ríkti alltaf sterkur
systkinakærleikur milli Gínu, Óla
og Helgu, og er mér minnisstætt
hvað við systkinin á Kirkjulæk
hlökkuðum alltaf mikið til er þeirra
var von í heimsókn ásamt Siggu
konu Óla, enda var alltaf komið
færandi hendi. Það voru sannkall-
aðir hátíðisdagar hjá okkur krökk-
unum. Gína giftist ekki en hélt
heimili með föður sínum og Óla,
þar til hann kvæntist. En Metúsal-
em faðir þeirra fluttist til Danmerk-
ur og bjó þar síðustu árin og þá fór
Gína til hans og sýnir það hvað
vænt henni þótti um hann að þegar
stríðið skall á noitaði hún að fara
heim til íslands og vildi heldur vera
hjá honum, en hann var þá farinn
að kenna þess sjúkdóms er varð
hans banamein, en hann lést í
Kaupmannahöfn 1941. Var hún þá
orðin ein í erlendu landi, en fyrir
dugnað og kjark komst hún yfir til
Svíþjóðar. Þar fór hún að læra
snyrtingu og vann við það þar til
hún komst heim til íslands rétt
áður en stríðinu lauk með ferð er
var skipulögð fyrir nokkra íslend-
inga og var það ekki hættulaus
ferð. Þegar heim kom keypti Gína
sér íbúð á Snorrabraut 40 og vann
þar að iðn sinni. Þegar ég svo fór
til náms í Reykjavík bauð Gína mér
að vera hjá sér og var ég hjá henni
í fjóra vetur og skal þess nú minnst
og þakkað. Oft var glatt á hjalla á
Snorrabrautinni, því Gína var glað-
sinna og mjög gestrisin og voru
mínar vinkonur ávallt velkomnar
ekki síður en hennar. Seinna flutt-
ist Gína í íbúð á Gunnarsbraut 40
og bjó þar meðan heilsa entist.
Árið 1964 tók Gína litla telpu
að sér sem hlaut nafnið Sigrún Jó-
hanna Metúsalems og ól hana upp
sem hennar dóttir væri. Hún er nú
gift og búin að stofna sitt eigið
heimili. Maður hennar er Ómar
Ragnarsson og eiga þau eina dótt-
ur. Síðustu æviárin var Gína á Elli-
heimilinu Grund þar sem henni leið
vel og vel var um hana hugsað.
Að síðustu þakka ég Gínu alla
þá hjálp og umhyggju er hún veitti
mér á unglingsárunum því hún var
mikil. Eg votta dóttur hennar inni-
lega samúð og öðrum aðstandend-
um. Megi frænka mín hvíla í friði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt ðg allt.
(V. Br.)
Sigrún Pálsdóttir
NIÐURHENGD LOFT
CMC korti fyrir ni&urhongd loft, er ur
galvanisoruðum mtlml og eldþolið.
CMC kerfi er au&velt i uppsetningu
og mjög sterkt.
CMC kerfl er fest með stillanlegum
upphengjum sem þola allt að
50 kg þunga.
CMC kerfi fæst i mórgum gerðum baeðl
sýnilegt og fallð og verðið er
ótrulega ligt.
CMC kerfi er serstaklegá hannad Hnngið eftir
fyrir loftplotur frá Armstrong frekan upplysingum
Þ. ÞORGRIMSSQN & CO
Ármúla 29 - Reykavik - sími 38640
Ákveðið hefur verið að kenna olíumálun í framhalds-
deild í vetur frá 8. október 1990 - 1. maí 1991.
Kennarar verða Svanborg Matthíasdóttir, Hringur Jó-
hannesson, Margrét Zophoníasdóttir, Daði Guðbjörns-
son og jafnvel fimmti kennarinn, fjórar til fimm vikur
hver.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl.
17.30-22.00 og opin vinnuaðstaða á laugardögum frá
kl. 14.00.
Umsóknir ásamt innsendum verkum berist fyrir 25.
september.
Tímar í bókalýsingu verða á laugardögum kl. 9.00-
13.30. Þeir eru ætlaðir nemendum með teikniundir-
stöðu. Kennari Anna Cyntia Leplar.
Listasögufyrirlestrar verða á fimmtudögum frá kl.
20.00-21.30. Kennari Ólafur Kvaran.
Uþplýsingar í síma 11990 á skrifstofu skólans frá kl.
10.00-19.00.
Skólastjóri.
Myndlistaskólinn í Reykjavík,
Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík.
Gríptu tækifærid!
GoldStar síminn
m/símsvara á aðeins
kr. 9.952.-
(stgr..m/vsk).
• Sími og símsvari í einu tæki
• Fjarstýranlegurðn aukatækja
úr öllum tónvalssímum
- hvaðan sem er
• 10 númera skammvalsminni
• Fullkomnar leiöbeiningar á
íslensku
• 15 mánaða ábyrgö
• Póstsendum.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Minnum á GoldStar
tölvurnar og símkerfin
/in
Frigor
TILBOÐ
FRYSTIKISTUR
MÁL H-xBxD STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ
90x73x65 1851 B20 31.950
90x98x65 2751 B 30 35.730
90x128x65 3801 B40 39.960
90x150x65 4601 B50 43.470
Aratucareynsla
DÖNSK GÆÐATÆKI A GÓÐU VERÐI
VISA
//
Samkort
Mfsm
SAMBANDSINS
a
VIÐ MIKLAG ARÐ SÍMAR 68 55 50 - 6812 66
_Dale .
Camegie
þjálfun
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í
kvöld kl. 20.30 á Sogavegi 69,
gengið inn að norðanverðu.
★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér að:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Taliö er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
P Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt. ■■■
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
0
STJÓRIMUIMARSKÓLIIMIM
Konráö Adolphsson. Einkaumboö fyrir Dale Carnegie námskeiðin"