Morgunblaðið - 12.10.1990, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.10.1990, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 Tilboð í hlutabréf Hrað- frystihúss Olafsfjarðar um 50% undir nafnverði HLUTAFJÁRSJÓÐUR Byggðastofnunar auglýsti nýlega til sölu gegn staðgreiðslu hlutabréf sjóðsins í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf. Hluta- bréfin eru að nafnverði 96 milljónir kr. sem er um 49% af hejldarhlut- afé í fyrirtækinu. Tvö tilboð bárust í hlutabréfin, bæði frá Ólafsfirði, og voru þau um 50% af nafnverði bréfanna. Þetta er í fyrsta sinn sem hlutabréf Hlutafjársjóðs eru auglýst til sölu. Hærra tilboðið barst sameiginlega Ólafsfírði að upphæð 48 milljónir kr. frá Stíganda hf. og Sædísi hf. á Ói- afsfirði að upphæð 48,5 milljónir kr. Lægra tilboðið var frá Sæbergi hf. Seyðisfjörður: Síld fryst hjá Dvergasteini FISKVINNSLA hófst hjá nýju fyr- irtæki, Dvergasteini hf., á Seyðis- firði á miðvikudag en þá voru fryst þar tæp 13 tonn af stórri og fallegri síld, sem Skógey SF veiddi í Mjóafirði aðfaranótt miðviku- dags. Síldin var fryst á Japansmarkað en 93% af henni voru yfir 300 grömm, að sögn Þórarins Asmunds- sonar verkstjóra hjá Dvergasteini. „Við munum ejnbeita okkur að síldarvinnslunni fram að áramótum," segir Svanbjöm Stefánsson fram- kvæmdastjóri Dvergasteins. Svan- bjöm segir að 50-60 manns muni vinna hjá fyrirtækinu á síldarver- tíðinni og því sé nú ekkert atvinnu- leysi á Seyðisfírði. Hann upplýsir að Dvergasteinn muni frysta sfld í Norð- ursfld og Fiskvinnslunni, svo og verði söltuð sfld í Norðursfld. Tilboðsfrestur er útrunninn og stjóm Hlutafjársjóðs tekur ákvörðun um hvort hlutabréfín verða seld innan hálfs mánaðar. „Við höfðum ástæðu til að ætla að áhugi væri fyrir þessum bréfum og af þeirri ástæðu auglýstum við eftir tilboðum í bréfin," sagði Guðmundur Malmqu- ist, einn þriggja stjómarmanna í Hlutafjársjóði, en auk hans eiga sæti í sjóðnum Helgi Bergs formaður sjóðsins og Helgi Þórðarson. Hann sagði að lysthafendum bréfanna hefði verið tilkynnt að tilboð þeirra væru til athugunar hjá Hlutafjár- sjóði. Guðmundur sagði að óneitanlega væru tilboðin sem borist hefðu í hlutabréfin nokkuð lág, eða aðeins helmingur af nafnverði þeirra, en hafa bæri í huga að hér væri um staðgreiðslu að ræða. Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem hlutabréf sjóðsins væru þannig auglýst en hins vegar hefði sjóðnum borist tilboð í hlutabréf hans í fyrirtækinu Alpan síðasta vor. Því tilboði var þó ekki tekið. Aðspurður um hvort framhald yrði af slíkum sölum á vegum sjóðsins sagði Guð- mundur að samkvæmt lögum væri sjóðnum alls ekki uppálagt að eiga slík bréf til eilífðar. ísafjarðardjúp: Leggjatil 100% aukn- ingu á rækjukvóta ísafirði „VIÐ leggjum til að heimilaðar verði veiðar á 3.000 lestum af rækju á komandi vetrarvertíð úr ísafjarðardjúpi," sagði Guðmund- ur Skúli Bragason forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar á ísafirði við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann fór til Reykjavíkur í gær- morgun til fundar við Takk-nefndina hjá Hafrannsóknastofnun með niður- stöður úr haustleiðangri hafrann- sóknaskipsins Drafnar á rækjumið- unum á Vestfjörðum. Eftir daglang- an fund nefndarinnar sem lýtur for- sæti Sigfúsar Schopka fískifræðings var ákveðið að leggja til við sjávarút- vegsráðherra að leyfðar yrðu veiðar á 3.000 lestum af rækju úr Djúpinu. Meðalafli síðustu ára hefur verið um 1.500 tonn svo hér er um tvöföld- un afla að ræða. Mesti afli sem til þessa hefur fengist var á vertíðinni 1981-1982 en þá voru veiddar 3.100 lestir í andstöðu við tillögur físki- fræðinga. Næstu vertíð féH aflinn í 1.000 tonn. Ef sjávarútvegsráðherra fellst á tillögur fiskifræðinga sem svo óvænt eru um 100% yfír meðalafla síðustu ára er reiknað með að veiðar hefjist á þriðjudag í næstu viku. Talið er að vikuskammtur báta verði aukinn úr 6 í 8 lestir og má vænta þess að öflugri bátamir nái þeim afia á einum til tveim dögum. - Úlfar Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hin veturgamla ær Fjalladrottning með syni sínum og Skollatungu Móra. I kindurnar heldur Sverr- ir bóndi Haraldsson á Æsustöðum Blönduós: Síðasti afkomandi Skolla- tungn-Móra kominn fram Veturgömul ær skilar sér með lambi eftir 15 mánaða útigöngu Blönduósi. SEIGLA og þolgæði íslensku sauðkindarinnar verður ekki dregið í efa og eru af því marg- ar sögur. Nýjasta dæmið sem undirstrikar þennan afkomu- vilja sauðkindarinnar er það að á hreppaskilum í Langadal í A-Hún. ekki alls fyrir löngu kom fram veturgömul kind í eigu Sverris Haraldssonar á Æsu- stöðum með rígvænan lambhrút sér við hlið og hafði hún gengið úti allan síðastliðinn vetur sem er einhver snjóþyngsti í manna minnum. Þykir með ólikindum hvernig þetta lamb framfleytti lífi sínu siðastliðinn vetur auk þess að skila vænum lambhrút. Þijár aðrar gimbrar frá Bólstað- arhlíð gengu einnig úti á svipuð- um slóðum en þær voru allar geldar i vor. Þessi veturgamla kind mun að sögn kunnugra manna í Langadal og Blöndudal hafa fengið við hrút einum sem gekk laus í Langadals- fjalli sl. vetur. Hrútur þessi mun hafa gengið undir nafninu Skolla- tungu-Móri þó svo hann hafi verið svarflekkóttur. Skollatungu-Móri kom víða við á leið sinni suður Langadalsfjall og er vitað með vissu um þijátíu og einn afkom- anda hans. Að sögn heimildarmanna mun Skollatungu-Móri ekki hafa þolað þessa frygðarferð um húnvetnsk fjöll og hafí hann drepist fljótlega eftir að hann var handsamaður og skilað til síns heima í Tungu (áður Skollatunga) í Gönguskörðum. Bróðir þessa hrúts gekk einnig laus á sömu slóðum en mun hafa haldið sig meira norðan til í fjallinu og um áhrif hans á fjárstofn austur- húnvetnskra bænda er ekki eins mikið vitað. Þó segja heimildir að litlu hefði mátt muna að hrúturinn hefði haft áhrif á hveijir veldust í sveitarstjórn í Engihlíðarhrepp sl. vor. Jón Sig. Fjárlagafrumvarp fyrir árið 1991: Framlög til Byggingarsjóðs ríkisins skorin alveg niður Fjárhagsstaða ýmissa sjóða fær ekki staðist til lengdar, segir fjármálaráðherra FRAMLÖG ríkisins til Bygging- arsjóðs ríkisins, sem annast al- menn útlán til íbúðakaupa, hafa verið skorin niður í ekki neitt í frumvarpi til fjárlaga næsta árs. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra segir sjóðinn vera dæmi um fleiri, sem þannig sé fyrir komið, að fjárhagsleg staða þeirra geti ekki gengið til lengd- Þrotabú Stálvíkur: Finnskt-norskt fyrirtæki sýnir áhuga á eigninni VERKTAKAFYRIRTÆKI í eigu finnskra og norskra aðila hefur í at- hugun að leigja eða kaupa húseignir þrotabús Stálvlkur hf. í Garðabæ. Fyrirtækið beinir sjónum að verkefni í málmsmíði við væntanlega bygg- ingu álvers í Keilisnesi og eru nokkrar líkur á því að það kaupi eða leigi Stálvíkurhúsin ef þeir hljóta verkefni við byggingu álversins. Fyrirtækið hefur verið í viðræðum við íslenska aðila um samstarf að væntanlegu verkefni. Hús Stálvíkur, sem eru þrjú að tölu, eru alls um 4.000 fermetrar. Skemman er þeirra stærst, en þar er einnig skrifstofuhús og birgðahús. Benedikt Sveinsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ, sem hefur verið í tengslum við fyrirtækið, sagði að Garðabær hefði að sjálfsögðu áhuga á því að koma starfsemi í gang að ný og þessi mannvirki verði nýtt á þann hátt að af þeim skapist atvinna. Benedikt sagði að rriálið væri skammt á veg komið og of snemmt að spá í framhald þessa máls. „Mál- ið er á algjöru frumstigi og ef fyrir- tækið fær ekki verkið verður ekki neitt úr neinu,“ sagði hann. Þrotabúíð hefur verið auglýst til sölu og þrotabússtjórinn, Ingimundur Einarsson, sagði að fulltrúar fyrir- tækisins hefðu komið hingað til lands, skoðað eignina og óskað eftir frekari upplýsingum, það væri allt og sumt. Af hans hálfu væru engar þreyfingar í gangi. Hann kvaðst ekki getað tjáð sig um verð eignarinnar en til að fá fullt verð þyrfti söluverð- ið að vera jafn hátt og áhvflandi kröfur eru, eða yfír 300 milljónir kr. ar. Hann nefnir einnig Lánasjóð íslenskra námsmanna í sama samhengi. Byggingarsjóður ríkisins fékk á fjárlögum þessa árs 150 milljónir, sem síðan voru skornar niður í 50 milljónir. í fyrra átti hann að fá 1.050 milljónir, en þær voru skorn- ar niður-í 550. Til Byggingarsjóðs verkamanna eru ætlaðar 700 millj- ónir króna, en hann fær 490 milljón-. ir á þessu ári. LÍN fær samkvæmt frumvarpinu á næsta ári 1.930 milljónir samanborið við 2.171 millj- ón á þessu ári. LÍN er ætlað að ná saman endum með lántökum, alls 3 milljörðum króna. Ólafur segir að á undanförnum 10-15 árum hafi verið safnað upp töluverðum óleystum vanda í þjóð- félaginu, sem birtist fyrst og fremst í því, að fjárhagsleg staða ýmissa sjóða geti ekki staðist til lengdar. Hann nefnir Byggingarsjóð ríkisins og Byggingarsjóð verkamanna. „Ég er þeirrar skoðunar að vandamál þeirra verði ekki leyst með því að ausa milljörðum af skattpeningum almennings inn í þessa sjóði. Þau verða ekki leyst nema með kerfís- breytingum sem snúa að húsnæðis- kerfinu sjálfu með breytingu á vaxtagjöldum og öðrum slíkum grundvallarþáttum í rekstri og stöðu sjóðanna sjálfra. Það væri flótti frá vandamálinu að ætla sér að leysa það með því að dæla mill- jörðum af skattpeningum almenn- ings inn í þess sjóði.“ Hann nefndi einnig Lánasjóð íslenskra námsmanna í sama sam- hengi, Atvinnuleysistryggingasjóð, Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og ennfremur verulega fjármuni í út- flutningsbætur landbúnaðarafurða og margvíslega þætti í útgjalda- kerfí ríkisstofnana. 2,2% verðbólga VÍSITALA framfærslukostnaðar hefur síðastliðna tólf mánuði hækkað um 10,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur hún hækkað um 0,6% og jafngildir sú hækkun 2,2% verðbólgu á heilu ári. Vísitalan í október reyndist vera 147,2 stig eða 0,3% hærri en í sept- ember. Verðhækkun ýmissa vöru- og þjónustuliða olli þessari hækkun. Þar- af stafaðj 0,2% af verðhækkkun á fatnaði en á móti vóg lækkun fjár- magsnkostnaðar um 0,1%, frétt frá Hagstofu íslands.’ segir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.