Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 10

Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 ar persónur sem verða á vegi Kela s.s. lögregluþjón, strák með bolta og gamlan mann. Hann virk- aði svolítið stífur og þá helst þeg- ar hann var í hlutverki lögreglu- þjónsins en það helgast nú kannski líka af því að texti hans var eðlilega mun formlegri en hinna. Skærir litir og léttir hreyfanleg- ir hlutir einkenna leikmyndina enda verður að vera hægt að koma henni fyrir í hinum ýmsu leikfimi- sölum. Litagleði einkennir einnig búningana og því verður strax hressilegur blær yfir sýningunni. Hann undirstrika svo lögin enn frekar, þau eru ijörug og með grípandi viðlögum. Því finnst mér það galli að krökkunum skuli ekki vera afhentir söngtextarnir fyrr en eftir á, ég er viss um að þau hefðu gaman að fá þá fyrr þannig að þau gætu tekið undir með þeim Völu og Kela. Hvað um það börnin á frumsýn- ingunni virtust skemmta sér vel og tóku vel við sér þegar þau voru spurð álits á umferðarregl- unum. En þessi sýning er ekki bara fræðsla um það hvenær óhætt er að fara yfir götu, hún er líka góð kynning á leikhúsi. Því þetta er alvöru leikhús og það eru ekki öll börn sem hafa tök á því að komast í leikhús, fýrir svo utan það að víða er ekki mikið framboð á leikhúsefni fyrir börn. Mér finnst þessi sameining skóla og skemmtunar á Keli þó! hafa tekist vel í alla staði og höfund- arnir hafa gætt sín á því að láta leikhúsið njóta sín og kynna þann- ig fyrir yngstu kynslóðinni töfr- ana sem það býr yfir. „Uti á götu aldrei má leika sér“ Leiklist Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Keli þó! Höfundar: Iðunn og Kristín Steinsdætur. Leikstjóri: Sigi'ún Valbergs- dóttir Leikmynd og búningar: Gerla. Tónlist: Ólafur Haukur Símon- arson. Útsetning og hljóðfæraleikur: Gunnar Þórðarson. Nú þegar dagarnir styttast og skammdegismyrkrið leggst yfir land og þjóð er oft hættulegt fyr- ir litlar mannverur að fara í skólann. Það er margt að varast í glímunni við umferðarorminn og betra að vera vel að sér í reglun- um um rauðan kall og grænan. Leiksýningin Keli þó! er sam- starfsverkefni Alþýðuleikhússins, Umferðarráðs og menntamála- ráðuneytis og ætluð til þess að sýna börnum á aldrinum 6-9 ára hvað helst ber að varast í umferð- inni. Leikritið verður sýnt í grunn- skólum landsins á skólatíma öllum krökkum að kostnaðarlausu. Keli, strákurinn sem leikritið segir frá, er hress og skemmtileg- ur strákur og honum dettur margt sniðugt í hug. Hann er nýfluttur til Reykjavíkur að vestan og það er ýmislegt sem kemur honum spánskt fyrir sjónir einkum þó í umferðinni. En hann er ekki af Baltasar Kormákur leikur titil- hlutverkið á líflegan og skemmti- legan hátt. Hann er mjög liðugur og átti auðvelt með að sýna ýms- ar fimleikakúnstir á sviðinu við góðar undirtektir yngstu áhorf- endanna. Völu, vinkonu Kela, leikur Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir og nær hún góðum tökum á hlutverkinu. Samleikur hennar og Baltasar er fínn, þau leika létt, svona eins og af fíngrum fram, og án allra öfga þó tilþrifin vanti ekki. Steinunn leikur líka móður Kela og gamla konu sem vill ekki fara yfir götu og kemst einnig vel frá þeim hlutverkum. Gunnar Rafn Guðmundsson leikur nokkr- Löggan komin til aðstoðar. baki dottinn og ákveður að gerast lögregluþjónn og aðstoða fólk í umferðinni. A leið sinni niður í bæ hittir hann Völu sem ratar ekki lengur heim til sín og Keli tekur hana auðvitað upp á sína arma. Þeirra ferð endar svo á því að vinsamlegur lögregluþjónn keyrir þau bæði til síns heima. Tvö rit frá Svíþjóð Bókmenntir Erlendur Jónsson Gardar heitir árbók Sænsk- íslenska félagsins í Lundi og Málm- ey. Hún er nú komin út í 20. sinn. Að umfangi er ritið ekki stórt, fjór- ar arkir. Oft hefur þó birst í því markvert efni, bæði skáldskapar og fræðakyns, meira þó hið síðar- nefnda. Svo er enn. Að þessu sinni hefst Gardar á ferðasögu. Birgitta og Eric Lilius segja frá Islandsferð. Erindi þeirra var meðal annars að líta á gömlu torfbæina og komast að raun um hvort hér fyrirfyndust leifar einhvers sem kalla mætti sam- norrænt á því sviðinu, einhvers sem ætti þá hliðstæður í heimalandi höf- unda. Leiðin lá að Keldum, í Glaumbæ og víðar, og birtar eru skýringarmyndir og teikningar til að ófróður megi betur átta sig á því sem um er verið að ræða. At- hyglisverður er þáttur þessi en líklega fróðlegri fyrir Svía en íslend- inga. Næstur á blaði er Gösta Holm, málfræðingur á efra aldri, virðing- armaður í landi sínu, má ég segja. Slíkur lærdómsmaður er að sjálf- sögðu læs á »norrænu«. Hér fer hann ofan í tiltekið sænskt örnefni og leitar skýringa í íslenskum fom- bókmenntum; ekki í fyrsta sinn sem skandínavískir norrænufræðingar róa á þau miðin. Vel er það rök- stutt sem vænta mátti. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ Rauða kross íslands heldur námskeið um starfslok að Hótel Lind, Rauð- arárstíg 18, laugardaginn 13. október. Námskeiðið er opið, en fólk um og yfir sextugt sem býr sig undir að ljúka starfsævinni er sérstaklega boðið velkomið. Á námskeiðinu verður víða komið við, meðal annars fjallað um íbúða- mál, trygginga- og lífeyrismál, þjón- ustu við aldraða, ábyrgð á eigin heilsu og íþróttir. Greint verður frá Þriðja ritgerðin ber svo yfirskrift- ina Keypt við margan, höfundur Evert Salberger. Hann upplýsir að sér hafi forðum-verið kennt að orð- ið við væri þama forsetning og setn- ingin merkti þannig verslað við marga. Síðar hafí hann svo komist að raun um að við mundi vera nafn- orð og sé þá átt við timbur til húsa- gerðar; við margan merki því mikið timbur. Vafalaust er það líka sanni nær. Að lokum rekur svo ritstjórinn, Lars Svensson, sögu félagsins og minnir á að ritið heiti eftir Garðari Svavarssyni. Þó Gardar sé ekki fyr- irferðarmikill er efni hans gegnum tíðina orðið bæði fjölbreytt og fróð- legt. Alhliða nafnaskrár, sem taka til ritsins frá upphafi, auðvelda leit ef einhver hyggst kynna sér hvemig sænskir fræðimenn fjalla um tiltek- in íslensk efni. íslandspóstur (11. árg.) heitir svo rit sem íslendingar búsettir í Svíþjóð gefa út. Að útliti, og sum- part líka að efni, minnir íslandspóst- ur á galsafengið skólablað. Þarna eru vísur ortar í hálfkæringi og smápistlar settir saman of et sama far. Að öðru leytinu er þessi íslands- póstur virðulegt þjóðræknisrit með forsetaávarpi og sendiherraspjalli. Ungir höfundar, sem dveljast í Svíþjóð um þessar mundir, setja svip á ritið: Anton Helgi Jónsson, Hafliði Vilhelmsson, Jóhann árelíuz, Steinunn Jóhannesdóttir og fleiri. Minnisverðast er það sem Steinunn námskeiðum fyrir eftirlaunaþega í bandarískum háskólum og kvöld- námskeiðum við Háskóla Islands. Fjallað verður um fjármál við starfs- lok og félagsstarf. Þess má geta að um tuttugu elli- lífeyrisþegar frá Austfjörðum þ.e.a.s. Eskifírði, Neskaupstað og Reyðarfirði eru væntanlegir á nám- skeiðið sem hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 16.00. Þátttökugjald er kr. 1.200. (Fréttatilkynning) Lars Svensson hefur að segja. í kynningu eru talin upp afrek hennar í ritlistinni en hún er sem kunnugt er höfundur nokk- urra bóka og leikrita sem almenn- ingur hefur fengið að sjá og heyra. Allt má það vera gott og blessað. En snjöllust er Steinunn sennilega sem dálkahöfundur. Pakkað í gám- inn er notaleg hugleiðing um ekki neitt. Áhugavert er líka viðtal Kristínar Bjarnadóttur við Brittu Gíslason sem hér var búsett á sjötta áratugnum, gift Magnúsi Gíslasyni, skólastjóra í Skógum og síðar nám- stjóra í Reykjavík. Magnús starfaði síðustu árin í Svíþjóð en er nú látinn fyrir nokkrum árum. Britta horfír á lífíð út frá sjónarhóli efri áranna, rifjar upp minningar frá æskuárun- um í Svíþjóð, minnist íslandsáranna með hlýjum hug og getur þess sem níu barna móðir að slík fjölskyldu- stærð sé nú orðin fágæt í Svíþjóð »nema hjá einstaka prestshjónum«. Hreinskilni Brittu og hógværð má vel vera fyrirmynd þeim sem svara þurfa spumingum blaðamanns. Lífsviðhorf hennar eru jákvæð en jafnframt raunsæ. Margar spurningar leita á hugann við lestur þessara rita, einkum hins síðamefnda. Hvað eiga Svíar og íslendingar sameiginlegt nú á dög- um? Hvers vegna sækja íslendingar til Svíðþjóðar þessi árin fremur en til annarra Norðurlanda? Hvað er það / raun og veru sem togar land- ann austur þangað? Er nú svo kom- ið að Svíar séu okkur nákomnastir frændþjóðanna? Svörin við þessum spurningum liggja ekki á lausu. Að minnsta kosti er þau hvergi að fínna í þessum íslandspósti. Rauði kross íslands: Námskeið um starfslok Björn Birnir í Listhúsi ________Myndlist_______________ Eiríkur Þorláksson Nú stendur yfír í Listhúsi Vestur- götu 17 sýning á málverkum eftir Björn Bimir listmálara og yfírkenn- ara við Myndlista- og handíðaskól- ann. Hvort sem því ræður tilviljun eður ei, eru verkin á veggjunum 17 talsins, og ganga öll undir heit- inu „Myndir af sandinum". Lista- maðurinn vinnur með mismunandi efni í þessum myndum, því fímm þeirra eru gerðar með olíulitum á pappír, en hinar með akrýllitum á striga; allar em þær frá síðustu þremur árum. Björn Birnir stundaði sitt listnám á þeim tíma þegar abstrakt mál- verkið var að ryðja sér til rúms, og mótaði um leið listrænan þroska heillar kynslóðar. Sumir leituðu síðan annað að sínum viðfangsefn- um, en aðrir fundu í þessum stíl þau vinnubrögð, sem þeir hafa þró- að áfram og þroskað með sér alla tíð. Bjöm er óumdeilanlega einn þeirra síðamefndu. Bjöm hefur mest starfað sem myndlistarkennari í gegnum tíðina, og ekki stundað sýningahald að sama marki og margir af sömu kynslóð. Engu að síður hefur hann sýnt víða í gegnum tíðina, bæði hér á landi og erlendis. Hann tók sig síðan til, kominn á fimmtugsaldur- inn, og hélt til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Þar dvaldi hann loks sem gestalistamaður við gamla skólann sinn, Indiana State Uni- versity, síðastliðið skólaár. Verkin á sýningunni í Listhúsinu munu að mestu afrakstur þeirrar dvalar. Það sem áhorfandinn tekur fljótt eftir við skoðun hinna stóru mynda er mismunandi eðli efnanna sem listamaðurinn notar. Á meðan olíu- myndirnar eru málaðar dökkum, þungum litum sem gefa mikla fyll- ingu, eru akrýllitimir þynnri, og þar með léttari, jafnvel gegnsæir. í hverju verki eru fá form, þannig að það eru fyrst og fremst litbrigð- in sem bregða á leik í fletinum.' Græn litabrigði eru áberandi í mörgum verkannaj oft í jafnvægis- leik við gula liti. I nokkrum verk- anna eru þessir litir djúpir og kald- ir, en í öðrum eru þeir skærir og leikandi. Ef litið er tii þess að sam- Björn Birnir: Mynd af sandinum. 1990 an heita verkin „Myndir af sandin- um“, mætti vel hugsa sér að þarna á veggjunum geti að líta veðra- brigði náttúmnnar og hvernig þau koma fram á söndunum sem blasa við víða um landið. Þannig má lesa myndir af þungri rigningu, léttri þoku, brennandi litum sólarlagsins og nístandi fjúki kalds vetrar yfir sandana. Þannig kemur náttúran sífellt í ljós sem sá bakhjarl sem jafnvel hin óhlutbundna list leitar stöðugt til í viðfangsefnum sínum. I heildina er frekar þungt yfír myndum Bjöms á veggjunum í List- húsinu; birtan yfír fáeinum þeirra undirstrikar þann heildarsvip enn betur. Það er oft sagt að Island sæki frekar á menn þegar þeir dveljast erlendis, og einhvern veg- inn eiga þessi verk betur við tilver- una hér á Iandi en í grösugum, björtum landbúnaðarhéruðum miðríkja Bandaríkjanna. Þannig er þessi heildarsvipur ósköp eðlilegur fyrir myndefnið, því íslensk náttúra og íslenskir sandar eru oftar dimm- ir, dijúpandi og dularfullir en þeir eru bjartir, titrandi og fagrir. Þann- ig minna verk Björns Birnirs hér áhorfendur á að landið á sér sann- ari svip en þann glaðlega svip sól- skins og hægra vinda, sem menn vilja oft kynna eyjuna okkar með erlendis. Sýningin í Listhúsi Vestugötu 17 stendur til sunnudagsins 14. októ- ber. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans!_____________<

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.