Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 12

Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 Sögiikennslu skamm- degið í nýju ljósi Um doktorsritgerð Þorsteins Gunnarssonar eftir Stefán Baldursson i Sjö árum eftir svonefnt „sögu- kennsluskammdegi," sem markaði upphafið að endalokum umfangs- mestu námsefnisvinnu í íslenskri skólasögu, er komin fram fræðileg ritgerð um samfélagsfræðina og þá deilu sem fram fór á síðum dag- blaða og í sölum Alþingis veturinn 1983-84. í desember sl. varði Þor- steinn Gunnarsson doktorsritgerð- ina Controlling Curriculum Know- ledge: A Documentary Study of the Icelandic Social Science Curriculum Project (SSCP) 1974-1984 við Ohio-háskóla í Bandaríkjunum. Verkið var unnið undir leiðsögn dr. George Wood. Ritgerðin er 319 blaðsíður fyrir utan heimildaskrá og viðauka. Hún skiptist í sjö kafla. I fyrsta kaflan- um er gerð grein fyrir viðfangsefn- inu, rannsóknaraðferðum og helstu hugtök skýrð. Kafli tvö er stutt yfirlit yfir íslenska - menningu, stjórnmál og skólasögu. í þriðja kafla lýsir Þorsteinn forsögu samfé- lagsfræðiverkefnisins og í þeim fjórða er lýsing á sögu og gerð námsefnisins og greining á þeim kennslubókum sem gefnar höfðu verið út þegar verkefninu lauk árið 1984. í fimmta kafla er rakin deilan um samfélagsfræðina frá árinu 1983. í sjötta kafla fer höfundur í saumana á hugmyndum stríðandi hópa um uppeldisfræðipg eðli þekk- ingar í þessari deilu. í sjöunda og síðasta kafla ritgerðarinnar dregur Þorsteinn umræðuna saman jafn- framt því sem hann dregur sínar ályktanir af henni. Sjöunda kafla lýkur síðan á því að höfundur setur fram nokkrar ábendingar um náms- efnisgerð og skólaþróunarstarf. í stuttu máli má segja að mark- mið Þorsteins sé að varpa ljósi á þróun og afdrif sámfélagsfræðinnar á fræðilegan hátt. Höfundur setur samfélagsfræðina í menntapólitískt samhengi með því að greina forsögu hennar og forsendur, það kennslu- efni sem verkefnið gaf af sér og þau sjónarmið sem fram komu í deilunni um verkefnið á síðum dag- blaða og á Alþingi. Sú greiningar- aðferð sem höfundur notar og nefn- ir „documentary“ og „historicaT' er þó mjög í anda túlkunarfræði og byggir einkum á greiningu á margvíslegum rituðum gögnum: kennslubókum, kennsluleiðbeining- um, blaðagreinum, Alþingistíðind- um, viðtölum, o.fl. II Meginforsenda Þorsteins er sú staðhæfing breska menntafélags- fræðingsins Basil Bernsteins að námsskrá og námsefni segi töluvert um dreifingu valds í þjóðfélaginu. Námsefni er ekki hlutlaus endur- speglun þekkingar sem tiltæk er á hveijum tíma heldur hlýtur náms- efni að byggja á tilteknum forsend- um um eðli náms, kennslu og þekk- ingar. Þessar forsendur eru hvorki sjálfgefnar né réttlætanlegar á vísindalegum grunni einum saman. Námsefni mótast af mörgum þátt- um þar sem áhrifa-hagsmuna- og valdahópa samfélagsins gætir á ýmsan hátt. Þorsteinn kallar talsmenn samfé- lagsfræðinnar þróunarsinna (devel- opmentalists) og segir þá fylgja skoðunum leiðandi valdahópa í vest- rænum ríkjum á sjöunda áratugn- um. Þróunarsinnar leggja áherslu á náin tengsl iðnvæðingar, hagvaxtar og menntunar. Nokkrar áhrifa- mestu kenningarnar sem endur- spegla þessa hugmyndafræði eru kenningin um nútímavæðinguna (Rostow) í hagsögu, fjármagns- kenningin um manninn (Schultz) í hagfræði og kenning um menning- arskeið vitsmunaþroska barnsins (Piaget/Taba) í þroskasálfræði og námsskrárfræðum. Á sjöunda áratugnum var íslenskum þróunarsinnum orðið ljóst hve hið staðnaða íslenska skólakerfi var vanbúið til þess að móta þjóðfélagþegna sem gætu nýst iðnvæddu nútímasamfélagi og í upphafi áttunda áratugarins heij- ast þeir handa við að semja og gefa út yfirgripsmikið námsefnis- kerfi sem endurspeglaði afstöðu þeirra til þekkingar, náms og sam- Brýnasta verkefnið er að endurvekja hagvöxt eftir Láru Margréti Ragnarsdóttur Eitt brýnasta verkefni hagstjórn- ar á næstp árum er að endurvekja hagvöxt. Á undanfömum árum hef- ur landsframleiðsla dregist veru- lega saman hér á landi. Horfur eru á að landsframleiðslan verði 4.5% minni en árið 1987. Á sama tíma hafa miklar framfarir og hagvöxtur sett svip sinn á þróun efnahags- mála í öðrum löndum. Landsfram- leiðslan í aðildarríkjum OECD verð- ur til dæmis 11,5% hærri á þessu árin en 1987. Þetta þýðir auðvitað að íslend- ingar hafa dregist verulega aftur úr aðildarríkjum OECD. Við saman- burð á ráðstöfunartekjum kemur frám að þær eru um það bil 15% minni hér á þessu ári en 1987, á sama tíma og ráðstöfunartekjur hafa hækkað um 10% í aðildarríkj- um OECD. Þessari öfugþróun verður að snúa við hið bráðasta og koma íslending- um aftur í hóp þeirra þjóða sem bestra lífskjara njóta í heiminum um þessar mundir. En hvernig á að snúa vörn í sókn? Hér á eftir eru nokkur áhersluatriði sem eru forsenda fyrir nýrri sóknar- stefnu: Stöðugleiki og jafnvægi Að tryggja stöðugleika í rekstr- arskiiyrðum atvinnuveganna og jafnvægi í þjóðarbúskapnum, þann- ig að atvínnulífið finni hag- kvæmustu leiðir til framfara og bættra lífskjara. Frjáls utanríkisviðskipti Að efla frjáls utanríkisviðskipti sem eru forsenda góðra lífskjara hér á landi. í því sambandi þarf að athuga gaumgæfilega kosti og galla aðildar að.Efnahagsbaþdalag- inu (EB) og aðra möguleika íslands. Starfsskilyrði sambærileg við aðildarlönd EB Að miða aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum á næstu árum að því að laga starfsskilyrði íslenskra fyr- „Sljórnmálamönnum ber fyrst og fremst að beita sér fyrir að skyn- samlegar leikreglur gildi í atvinnulífinu og stöðugleiki ríki í þjóð- arbúskapnum.44 irtækja sem mest að þeim ieikregl- um sem munu verða ráðandi í Evr- ópu framtíðarinnar. Þetta er nauð- synlegt hvort sem ákvörðun verður tekin um aðild að EB eða stefnt verður að víðtækari viðskiptasamn- ingi en nú er í gildi við EB. Mestu máli skiptir þó samræming laga og reglna á sviði skattamála, fjármála og gjaldeyrismála. Lækkun skatta á framleiðslukostnað ^ Að lækka skatta á framleiðslu- kostnað fyrirtækja sem er yfirieitt meiri á íslandi en í öðrum löndum og hvetja með skattabreytingum til aukinna viðskipta með hlutabréf. Hagkvæm þjónusta peningastofnana Að tryggja íslenskum fyrirtækj- um aðgang að jafn hagkvæmri þjónustu peningastofnana og erlend fyrirtæki njóta. Mikilvægfur liður í þessari stefnu er að breyta fjár- málastofnunum ríkisins í opin hlutafélög, fyrst fjárfestingarlána- sjóðum og síðan ríkisbönkunum. Afnám hafta á gjaldeyrisviðskiptum Að afnema höft á gjaldeyrisvið- skiptum eins og þegar hefur verið gert í nsé'r öllum mikilvægustu við-. skiptalöndum íslendinga. Jafnframt þarf að huga gaumgæfilega að hvort skynsamlegt sé að gengi krónunnar ráðist á fijálsum gjald- eyrismarkaði í framtíðinni eða hvort tenging við Evrópumyntina (Ecu) skili meiri árangri. Lausn álmálsins Að leiða álmálið farsællega til lykta. Ekki er vafi á því að þjóð- hagslegur ávinningur er af Atlant- áli en finna þarf bestu leiðir til að lágmarka viðskiptalega áhættu Landsvirkjunar af raforkusamn- ingnum. Takmörkun ríkisafskipta Að takmarka bein afskipti ríkis- ins af atvinnulífinu. Hlutverk ríkis- ins á fyrst og fremst að vera rammahlutverk á sviði fræðslu- mála, rannsóknar- og þróunarstarf- semi og að tryggja að fullt tillit verði tekið til umhverfissjónarmiða í starfsemi fyrirtækja og áformum þeirra um nýja framleiðslu. Þetta eru engar kraftaverka- lausnir eins og loðdýrarækt eða fiskeldi áttu t.d. að vera á sínum Lára Margrét Ragnarsdóttir sýnir. Stjórnmálamönnum ber fyrst og fremst að beita sér fyrir að skyn- samlegar leikreglur gildi í atvinnu- lífinu og stöðugleiki ríki í þjóðarbú- skapnum. Þorsteinn Gunnarsson „Það er Ijóst að dokt- orsritgerð Þorsteins er mikill hvalreki fyrir þá sem að skólamálum vinna og vilja hefja sig upp yfir þá slagorða- kenndu umræðu sem allt of oft einkennir umræðu um skólamál hér á landi.“ félags. Námsefnisgerðin laut verk- fræðilegu likani (critical path meth- od), þar sem markmiðið var að færa hefðbundnar námsgreinar í nútímalegri búning, t.d. sögu, með raunvísindalega vissuhyggju að leiðarljósi. Islenskar skólahefðir buðu upp á fábreytt aðföng í þessa smíð en þróunarsinnar leystu þann vanda með því að flytja inn þær fyrirmyndir sem þeir töldu falla best að hugmynda- og þekkingar- fræðilegum ramma þein-a. Mikilvægur hluti af umijöllun Þorsteins um samfélagsfræðina er greining hans á því námsefni sem samið var í tengslum við þessa nýju kennslugrein. Greining hans sýnir að námsefnið endurspeglar mörg ólík þekkingarfræðileg sjón- arhorn. Niðurstaða Þorsteins er að námsefni samfélagsfræðinnar sé allt frá því að vera ógagnrýnin eft- iröpun af þjóðhverfri bandarískri nútímahyggju til þess að vera mjög athyglisverð tilraun um nýja túlkun á skilningi íslendinga á þeim sjálf- um, bömum þeirra, efnislegu um- hverfi og fortíðinni. Sérstaklega gagnrýnir höfundur svonefnt Bruner-líkan í námsefnisgerð sem hann telur hrynja þegar út í skóla- starfið kemur sökum fræðilegs þunga sem hvorki nemendur né kennarar hafa forsendur til þess Við viljum eftir Hrafnkel A. Jónsson Sjónleiknum er lokið, tjaldið hef- ur verið dregið fyrir. Iðnaðarráð- herra hefur upplýst íslensku þjóðina um lokasenuna í leikritinu sem ríkisstjórnin skrifaði um staðsetn- ingu álvers. Niðurstaða stóriðjumálanna er þyngsta höggið sem landsbyggðinni hefur verið veitt í seinni tíð. Ef við sem viljum búa á og byggja í hinum dreifðu byggðum bregðumst ekki við af skynsemi þá mun byggð í landinu dragast saman og borgríkið Island verður staðreynd innan ör- skamms tíma. Hvað er til ráða? Eigum við eitt- hvert svar við þessu tilræði ríkis- stjórnar Steingríms? Þessu svara ég játandi, við getum snúið byggð- aröskuninni við. Okkur hefur verið tamt að gera kröfur til samfélagsins, við höfum „Hvað er til ráða? Eig- um við eitthvert svar við þessu tilræði ríkis- stjórnar Steingríms? Þessu svara ég játandi, við getum snúið byggð- aröskuninni við.“ sent frá okkur ótal ályktanir og kröfugerðir þar sem ríkisstjórnin er krafin um aðgerðir þar sem Reykjavík er bölvað, þar sem ókost- ir þess að lifa utan Reykjavíkur eru málaðir sterkum litum, þar sem við höfum sjálf flokkað okkur sem ann- ars eða þriðja flokks fólk. Þetta er okkar stærsta böl. Það að gera kröfur til samfélags- ins um aðgerðir og úrlausnir í stað þess að hafa frumkvæði sjálfur, hefur leitt til þess að forræði misvit- urra embættismanna er lands- byggðinni óbærilegt. Viðhorfsbreyting er grundvallar- skilyrði þess að við getum snúið byggðaröskuninni við. í stað þess að gera ályktanir sem byija og enda á „við krefjumst" þá skulum við breyta um stíl og segja „við viljum", „við getum“. Islendingar eru vel menntuð þjóð, landið okkar er fullt af fyrirheitum og við getum búið okkur framtíð hvar sem er á landinu, aðeins ef við megum vera að því að líta upp úr kröfugerðarasmíðinni. Austfirðingar eiga að nota tæki- færið nú þegar þeim hefur enn' einu sinni verið sýnt fram á haldleysi hinnar opinberu forsjár. Snúum nú bökum saman og byggjum Austur- land upp án þess að „stóri bróðir“ sé spurður. Við getum sýnt öðrum Islending- um gott fordæmi. Við erum ein þjóð og eigum tilverurétt okkar undir því að við getum unnið saman. Þjóð- in þolir ekki öllu meiri ríkisforsjá. tíma. Það á heldur ekki að vera hlutverk stjórnmálamanna að stjórna atvinnulífinu. Aðrir eru bet- ur til þess fallnir eins og reynslan Htífundur er hagfræðingur og tekurþátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík. að skilja, takast á við eða bæta við. Dæmi um námsefni þar sem námsefnishöfundar ná að áliti Þor- steins að skapa nýja sýn á raun- '■H'M A A ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.